Leita í fréttum mbl.is

Snúin hagsmunagæsla hjá Arthuri Bogasyni

Ræða Arthurs Bogasonar á aðalfundi LS bar með sér að hagsmunir félagsmanna fara ekki alltaf saman. Það getur verið snúin staða að tala máli stærri útgerða í smábátatflokknum sem gera út fjölda báta, einstaklinga sem hafa „spilað með kerfinu“ og steypt sér í himinháar skuldir sem útséð er að reksturinn geti greitt af, þeirra sem hafa látið sér nægja að veiða „sín“ örfáu tonn og svo þeirra sem hafa ekki yfir neinum veiðiheimildum að ráða og vilja komast á sjó í gegnum leigu og strandveiðiheimildir.

Það verður að segjast eins og er að Arthuri tekst með ágætum að tala að einhverju leyti upp í eyrun á öllum þessum hópum. Það er löngu orðið tímabært að samtökin og þeir sem starfa í greininni fari að ræða um hvaða leiðir er rétt að fara út úr kvótakerfinu. Þjóðin hefur ekki efni á þessu kerfi hafta og sóunar og þeir sem munu hagnast á því að auka frelsið í greininni eru auðvitað þeir sem starfa núna í henni sem og nýliðar sem kunna til verka.

Það sem þarf að ræða er hvernig hægt er að komast upp úr skuldafeninu sem ónýtt fiskveiðistjórnunarkerfi hefur skapað og búa til ásættanlegt kerfi þar sem ágóði verður fyrst og fremst af því að stunda atvinnuna en ekki brask með aflaheimildir framtíðarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svipaðar vangaveltur komu upp hjá mér þegar ég las þetta viðtal. Það eru fremur litlar líkur á að unnt verði að sætta sjónarmið beggja aðila í þessu máli en einhverja niðurstöðu þarf að finna. Tæpast verður hún fundin af nefndinni hans Jóns Bjarnasonar.

Árni Gunnarsson, 17.10.2009 kl. 01:19

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þarna ertu að tala um kjarna málsins Sigurjón. En eins og þú réttilega segir, tekst Arthúr snilldarlega að tala þannig að allir halda að hann sé með þeirra hagsmuni í forgrunni, en það sjá auðvitað allir að er ekki. En það er alger nauðsyn að menn fari að fikra sig útúr vitleysunni. En Jón Bjarnason ætlar ekki að verða maðurinn sem skar upp þetta kerfi, það held ég að sé ljóst. 

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 17.10.2009 kl. 08:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband