Leita í fréttum mbl.is

Vinstri grænir plötuðu fólkið

Margur kjósandi Vinstri grænna bjóst við verulegum breytingum á kvótakerfinu í kjölfar nýrrar ríkisstjórnar. Jón Bjarnason reyndi að fara af stað með mjög takmarkaða opnun á handfæraveiðar, en virðist hafa misst móðinn og þorir ekki að gera verulegar breytingar á gjaldþrota kerfi. Ekki er gott að segja hvað veldur hugleysinu. Mögulegt er að Steingrímur J. og kerfisöflin innan Samfylkingarinnar hafi dregið máttinn úr karlinum.

Manni finnst óneitanlega sérstakt að ekki sé opnað fyrir neinar veiðar á aukategundum, s.s. löngu, keilu og skötusel, hvað þá úthafsrækju sem er ekki veidd skv. ráðgjöf, heldur eingöngu til að braska með.

Ætli ríkisstjórnin skilji ekki að önnur leið sé fær til að afla gjaldeyris en að standa í sníkjum? Nú væri ráð að stjórnmálastéttin sparaði eina sníkjuferðina til AGS eða Noregs og færi þess í stað til Færeyja og kynnti sér skynsamlegri leið til að stjórna fiskveiðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Steingrímur J. taladi reyndar um 5% árlega fyrningu fyrir kosningar...sem er náttúrulega ótholandi metnadarlaust.

Thad á ad afnema thetta glaepakerfi med einu pennastriki og thad strax.

Allir sem stydja thetta raeningjakerfi eru algerir ómerkingar og sidvilltar skepnur.

Thad maetti halda ad stjórnmálamönnum sé mútad af kvótakóngunum.  Thad verdur ad kjósa um afnum á thessu glaepakerfi í beinni kosningu almennings.  Ekki er haegt ad treysta stjórnmálamönnum til thess ad gera thad sem their eiga ad gera....nefninlega ad berjast fyrir hagsmunum almennings en ekki hagsmunum fárra audmanna sem afhent voru sérréttindi af spilltum stjórnmálamönnum.

Rommmi (IP-tala skráð) 11.10.2009 kl. 20:32

2 identicon

svo er um nýjar tegundir sem eru að láta sjá sig hér í landhelgi LIU einsog makrill,spærlingur og þessi smái fiskur sem ég man ekki nafnið á í augnablikinu en líkist helst mjög smárri síld,svo er aukning í lýsu og skötusel allt er þetta kvótasett einsog skot og úthlutað til meðlima LIU,það er ekki einsog þar sé einhver hefð eða veiðireinsla til staðar-nei bara sjálftaka af grófustu gerð,og látið viðgangast af sjávarútvegsráðherrum á hverjum tíma.

zappa (IP-tala skráð) 12.10.2009 kl. 01:57

3 identicon

afnám

Rommmi (IP-tala skráð) 12.10.2009 kl. 12:07

4 Smámynd: Eiríkur Guðmundsson

Mér finnst reyndar nokkuð merkilegt að fólk hafi yfirhöfuð haft einhverja trú á því að VG stæði fast á þessum loforðum sínum, frekar en öðrum, verandi á leið í stjórnarsamstarf með Samfylkingu. Hún hefur nú ekki beinlínis verið þekkt fyrir að hafa þessi mál mjög ofarlega á sinni stefnuskrá, nema jú 5% fyrningu árlega eins og Steingrímur var byrjaður að tala fyrir sjálfur í vor. Með því gátu menn náttúrulega séð að hann væri í raun að gefa það út að lítið sem ekkert myndi breytast hjá þessari ríkisstjórn. Þessi fyrningarleið er, eins og Rommmi segir mjög vel, óþolandi metnaðarlaust

Eiríkur Guðmundsson, 12.10.2009 kl. 12:54

5 Smámynd: ragnar bergsson

Æ já það er eins og þetta vinstralið hafi ekki kjark til að taka á hlutunum  sífelldar umræður og pex en minna um djarfa ákvaðanir.

ragnar bergsson, 12.10.2009 kl. 19:59

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Á góðum degi í framtíðinni ...

Steingrímur Sigfússon var dauður og kominn til himna þar sem hann hitti Lykla-Pétur.
 
Lykla-Pétur varð svolítið vandaræðalegur: „Eh, velkominn,“ sagði hann loks. „Þakka þér fyrir,“ sagði Steingrímur, „ég vissi að ég mundi enda hér“.

- „Nja,“ sagði Pétur , „þú hefur lifað sæmilega frómu lífi, eða þannig, svo við vildum gjarnan hafa þig hér en því eru ekki allir sammála. Þú ert umdeildur maður og það hafa fleiri áhuga á þér en við hér í himnaríki. Við urðum að halda fund með djöflinum þar sem þetta var rætt og það endaði með því að við gerðum samning við hann.“
 
„Samning!“ Hrópaði Steingrímur og var sýnilega brugðið.

„Það er nú ekki alslæmt,“ sagði Pétur, „en djöfullinn sagðist nú þegar hafa flesta vini þína svo við sömdum um að þú eyddir einum sólarhring í helvíti og öðrum hér hjá okkur í himnaríki og svo velur þú sjálfur hvar þú dvelur um aldur og eilífð.

Steingrímur maldaði svolítið í móinn en samningur er jú samningur svo Pétur vísaði honum á lyftuna, kvaddi hann og sagðist sjá hann eftir sólarhring. Steingrímur ýtti á hnapp merktan „helvíti“ í lyftunni og seig svo langt, langt niður á við þar til lyftan stoppaði við kolsvarta hurð. Þegar dyrnar opnuðust stóð djöfullinn sjálfur fyrir innan. „Gamli vinur, vertu hjartanlega velkominn, gakktu í bæinn,“ sagði djöfsi.

Steingrímur fór inn og við honum blasti risastór golfvöllur. Margir af hans gömlu flokksbræðrum léku golf á vellinum eða stóðu í smáhópum og töluðu saman. Golfvöllurinn var fullkominn. Það var heitt í lofti og út um allt voru léttklæddar, snoppufríðar djöflastelpur sem færðu mönnum bjór og aðra kalda drykki. Steingrímur lék golf allan daginn og um kvöldið bauð Svavar Gestsson, sem hafði dáið nokkru áður, honum í „gúrme“grill (hafði sem sagt grætt um daginn og grillað um kvöldið) ásamt Indriða, Álfheiði og fleiri góðum vinum með öllu góðgæti sem hugsast gat. Fáum sögum fer af því hvernig Steingrímur eyddi nóttinni en sólarhringurinn í helvíti var fljótur að líða og morguninn eftir var honum vísað á lyftuna á ný.

Þegar Steingrímur kom aftur til himnaríkis var hann efins um ágæti þess staðar en það var samt sem áður tekið vel á móti honum. Hann var klæddur í englaföt og fengin harpa til að leika á. Hann eyddi deginum með því að ganga um milli skýjanna, hlustaði á fagran fuglasöng og borðaði ferska ávexti.  Hann fékk reyndar í magann af ávöxtunum og það pirraði hann að sjá Davíð og Þorgerði  sitja saman á skýi og leika á hörpur af mikilli innlifun.
 
Um kvöldið kom Pétur. „Nú ertu búinn að dvelja heilan sólarhring í helvíti og heilan dag hér í himnaríki. Ertu kannski búinn að ákveða þig?“ Spurði postulinn.
„Hmm,“ sagði Steingrímur, ég átti nú kannski ekki von á því en ég held að ég velji helvíti, þrátt fyrir allt. Það er heppilegasti staðurinn fyrir mig.“ Andlitið datt af Pétri og hann reyndi hvað hann gat að fá Steingrím ofan af ákvörðun sinni. En Steingrímur var harðákveðinn.
Á ný fór Steingrímur með lyftunni niður í helvíti og djöfullinn tók aftur á móti honum. Hann kippti Steingrími inn en þar var þá allt öðru vísi umhorfs en daginn áður. Brennisteinsfnykinn lagði um allt og skerandi sársaukavein flokksbræðra hans og vina fylltu loftið. „En hvar er golfvöllurinn?“ Spurði Steingrímur. „Og djöflastelpurnar, bjórinn og grillið?

“Ah,“ sagði djöfullinn, „þú skilur þetta mann best, í gær var kostningabaráttan í fullum gangi. En nú ertu búinn að kjósa!“

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.10.2009 kl. 21:07

7 Smámynd: L.i.ú.

Þetta er magnaður andskoti. Það virðist ekki skipta hann Jón Bjarnason nokkru máli hvernig fólk á eftir að minnast hans. Hver einasti maður með snefil af sjálfsvirðingu myndi ganga hratt og örugglega í það að breyta þessu kerfi. Það er hreint ótrúlegt að maður sem er í þeirri stöðu að geta breytt þessum fjanda skuli horfa í hina áttina.

L.i.ú., 13.10.2009 kl. 21:07

8 identicon

Handfærabátar eiga að stofan sinn eiginn þorskstofn því bann á þessa báta er brandari en jónsterkibjarna mætti  banna meira en einn krók á hverju færi og aðeins mætti veiða í des ef bann væri á sett á allar aðrar veiðar þá fyrst láti menn að stjórn.Steingrímurjójó getur átt draum um himnaför,en búi hann með englum er helvítið alltaf á næstu hæð fyrir neðan.

Ludvik (IP-tala skráð) 14.10.2009 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband