Leita í fréttum mbl.is

Er VG í gíslingu Tortólanna í Samfylkingunni?

Einhvern veginn kom það mér ekki á óvart að Gylfi Arnbjörnsson, leiðtogi alþýðunnar og Samfylkingarstrumpur, skyldi vera beintengdur Tortóla-eyjunni illræmdu. Eyjan hefur blóðmjólkað íslenskt samfélag og búið til flækjur í gegnum Lúxemborg sem erfitt er að greiða úr. Gylfi hefur nefnilega verið talsmaður þeirra kerfa sem eru hornsteinninn í spillingunni, s.s. kvótakerfisins og lífeyrissjóðakerfisins.

VG lofaði kjósendum ákveðnum breytingum, gagnsæi, að hafa allt uppi á borðunum og að flæma spillingaröflin burt. Einhvern veginn hefur þetta allt snúist upp í andhverfu sína enda eru helstu samstarfsmennirnir í ríkisstjórninni og áhrifamenn ríkisstjórnarinnar illilega flæktir í fjármálasvikin. Guðbjartur Hannesson sat í bankaráði Landsbankans og enskum banka og segir nú afsakandi að hann viti ekkert hvað þar fór fram. Árni Páll sat í stjórn Búnaðarbankans og sá um að rétta Björgólfunum milljarða að láni til að þeir kæmust yfir eignir Landsbankans. Icesave-maðurinn Björgvin G. Sigurðsson er örugglega ekki áfjáður í að óstjórnin í Fjármálaeftirlitinu verði upplýst þar sem helsti hugmyndafræðingur um efnahagsstefnu Samfylkingarinnar lék lausum hala, Jón Sigurðsson. Hann gekk svo langt að vera eins konar fyrirsæta í auglýsingabæklingi Sigurjóns Árnasonar fyrir Icesave-reikningana í Hollandi.

Borgarstýran fyrrverandi var á prófkjörsspena hjá fjármálafurstunum og greiddi hún götu verktaka þeirra innan borgarmarkanna.

Núna berast hviksögur úr bönkunum af því að verið sé að afskrifa tugi milljarða á einstaka hrunamenn, s.s. þyrluvíkinginn úr Vestmannaeyjum, Magnús Kristinsson. Á sama tíma gefa ráðamenn það í skyn að allt fari á hliðina ef mögulega verður komið til móts við almenning sem hefur tekið gengistryggð lán í bönkunum.

Nú er það spurning hvað VG ætlar að taka mikinn þátt í að byggja velferðarbrúna fyrir Tortólana í Samfylkingunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vestarr Lúðvíksson

Vissulega hefur þú margt til þins máls, en að væna VG um siðblindu er ekki sanngjarnt. Steingrímur og co. reyna eftir bestu getu að láta gott af sér leiða og sjá framundan uppgjör vegna allra þessara spilltu mála og manna ! Róm var ekki byggð á einum degi, og það tekur sinn tíma að hreinsa upp eftir 18 ára fjármálaóstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og að hluta Samfylkingarinnar. Það liggur við að við þurfum á einu kraftaverki á dag að halda. En sannleikanum verður hver reiðastur, hann er þó það vápn sem mun reynast þjóðinni bestur til framtíðar. Glæpamennina með milljarðanna í skattaskjólum á Hraunið !

Vestarr Lúðvíksson, 12.9.2009 kl. 00:10

2 identicon

Það þarf ekki seinna en strax að banna þá trúarbragðaþvælu sem hefur verið síbylja á Íslandi og kemur útúr brjóstviti kynvillings, allt sjúkt og brenglað, magnað upp af sjálfstæðisflokknum og stórþjófum.  Þetta manngrey var að stæra sig af vinskap við Margret Tatcher, þá ensku tík, sem afrekaði það eitt fyrir England að taka af eftirlit með landbúnaði, afleiðingarnar urðu kúariðufaraldur. Þá loks vöknuðu enskir og bésu tíkina af á einni nóttu og alla hennar þvælu, síðan hefur hún ekki heyrst né sést, enda ekki ástæða til,  Það sama þarf að gera við fíflið á Íslandi, sem enn bullar í Háskóla Íslands mataður úr samskotabauk Valhallar.

Robert (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 00:50

3 identicon

Heill og sæll; Sigurjón - sem og, aðrir hér á síðu !

Þakka þér; kröftuga samantekt, Skagfirðingur góður, sem von var til.

Vestarr !

Þú ert; miklu hyggnari en svo, að sjá ekki, hversu VG eru orðin inngróin, í andskotans kraðakið, ágæti drengur.

Að minnsta kosti; er sannfæringar kraftur þinn, ívíð meiri, þá þú ert á spjalli, við þau Arnþrúði og Pétur, á Útvarpi Sögu. Þau Steingrímur, eru búin að hafa 8 mánuði; liðlega, til þrifa verkanna, en enn seinkar öllu vitrænu, frá þeim - enda, .... ekki við miklu að búast þar, úr þessu.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 02:37

4 Smámynd:

Já svo sannarlega ollu VG vonbrigðum með lufsulegu framtaksleysi sínu og meðvirkni með arfalélegri framgöngu Samfylkingar. Það er þessi andskotans meðvirkni sem er allt að drepa. Menn eru svo mikið að passa að stíga ekki á tær hvers annars að ekkert verður úr verkum.

, 12.9.2009 kl. 11:42

5 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Mikið svakalega er ég orðin þreytt á tuggunni hans Steingríms J. og fleiri um að þeir séu að þrífa upp eftir fjármálaóstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.  Svo allt sé rétt talið, þá varaði ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks 12 ár.  Þar á undan var ríkisstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks (stjórnin sem samþykkti EES samninginn), og frá 2007 ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.  Ég man ekki betur en að á þessu 12 ára tímabili þá hafi tekist að gera ríkissjóð nánast skuldlausan (guð hjálpi okkur nú ef svo hefði ekki verið), og ekki heyrðust mikil andmæli frá almenningi.  Nú heitir þetta allt í einu orðið fjármálaóstjórn, og hugmyndir þessarra manna ekki pappírsins virði.  Vinstri menn ættu kannski að beina sjónum sínum að aðgerðarleysi ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðismanna til að leita að sökudólgi, því að það er aðalrót vandans nú.

Sigríður Jósefsdóttir, 12.9.2009 kl. 12:13

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sigga, ég er sammála þér að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins var aðerðarlaus. Hennar aðgerðarleysi er hinsvegar langt frá því að vera helsta rót vandans.

Ég hallast frekar að því að frjálshyggjusýkingin í efnahagslífinu hafi verið orðin svo mikil að sú stjórn gat lítið gert. Ef Samfylkingin hafði vilja til þess, sem ég reyndar efast um, þá stóð mótpartur hennar, Sjálfstæðisflokkurinn gegn allri slíkri viðleitni. Þeir hafa alltaf staðið vörð um sína spillingarpésa.

Theódór Norðkvist, 12.9.2009 kl. 12:29

7 identicon

Við sjáum það á hverjum degi að spillingin er um allt í allri stjórnsýslunni, eina von okkar er að spúla allt heila klappið út og fá algerlega nýtt fólk í allar stöður.
ég vil ganga það langt að banna þá flokka sem hafa verið hér við lýði... held að það sé það eina sem dugar á mafíurnar

DoctorE (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 12:31

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Já og rétt að geta þess líka að hið svokallaða skuldleysi var byggt á sandi. Það var tilkomið fyrst og fremst með því að velta byrðum ríkisins yfir á sveitarfélögin og almenning í landinu.

Theódór Norðkvist, 12.9.2009 kl. 12:32

9 identicon

Það sem við þurfum  er að það fólk sem er valið í valdastöður sé þess vert að gegna þeim.Nú lýður varla dagur að fleiri svokallaðir mætir menn sem eru tengdir útrásinni.Við verkafólk þurfum að fá allt upp á borðið ekki síst hver er staða lífeyrisjósins okkar.Þakka þér Sigurjón fyrir greinina við þurfum að nota allar leiðir til að koma í veg fyrir þá þögn sem margir mundu vilja í dag. Kveðja til þín.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 13:52

10 identicon

Kröftugur pistill og hverju orði sannari.  Fín viðbót á athugasemdardálknum.  

Það er þetta með spillinguna.  Hún hefur aldrei gert neinn flokkamun, og ekkert bendir til að þar verði nein breyting á.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 18:26

11 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Fínn pistill hjá þér Sigurjón. Verða menn ekki bara að láta hverjum degi nægja sína spillingu . Ég er viss um að VG eiga eftir að birta afskriftalistann . Réttast að rekja hann aftur að sölu Landsbankans. Guðmundur það eru ekki allir flokkar í lögreglurannsókn vegna spillingar bara svo því sé haldið til haga. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 12.9.2009 kl. 20:54

12 identicon

Púú á Samfylkinguna, áfram neð Verkalýðshreyfinguna (samt ekki þá á Tortólaeyjum)

Angantýr Ófeigsson (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 21:19

13 Smámynd: Haraldur Baldursson

Já (sem svar við fyrirsögninni)

Haraldur Baldursson, 13.9.2009 kl. 12:03

14 identicon

Davíð,Dóri,Bush R.í.ó. Afaverju er ekki búið að járna þessa illræmdu bófa t.d. Alfreð og Finn Ingólfs? getur ekki verið að alþýðuleiðtoginn okkar sé allræmdur krimmi,noway ekki hann líka.

Ludvik (IP-tala skráð) 14.9.2009 kl. 15:50

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Sigríður Jósefsdóttir

Ég get ekki orða bundist með að þakka þér fyrir það sem þú segir. Ég þarf ekki að enda skeyti á þennan Vestarr Lúðvíksson, þessi skrif þín eru nóg fyrir hann og marga aðra sem yfirleitt eru í standi til að skilja veruleikann.

Halldór Jónsson, 15.9.2009 kl. 13:40

16 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Góð grein Sigurjón og vonandi kemstu fljótt í tiltektarliðið aftur ég spái stjórninni ekki lífi út árið og þarf ekki að lesa í kindagarnir til þess. En áhrifamáttur fjölmiðlana sést hér enn og aftur það tól 48 tíma að flæma Framsóknarmann úr Seðlabankanum enda eiga þeir ekki málsvara í fjölmiðlum og það hefur tekist býsna vel að þagga niður stjórnarsetu æðsta manns verkalýðshreyfingarinnar í fyrirtæki á Tortóla

Það þarf illilega að hreinsa út hér

Jón Aðalsteinn Jónsson, 16.9.2009 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband