Leita í fréttum mbl.is

Kreditkort í Lúx?

Það er deginum ljósara að Samfylkingin er á kafi í spillingunni og heldur markvisst upplýsingum frá þjóðinni. Það er skiljanlegt þar sem Jón Sigurðsson, einn af æðstustrumpum Samfylkingarinnar, ber ásamt Björgvini G. Sigurðssyni höfuðábyrgð á Icesave-brjálæðinu.

Steingrímur J. og Katrín Jakobs taka þátt í samsærinu gegn þjóðinni, viðhalda leyndinni og áframhaldandi mannréttindabrotum í sjávarútvegi. Skynugt fólk er farið að leita eftir fólki sem treystandi er til að leiða þjóðina út úr ógöngunum. Sjálfstæðisflokkurinn er skiljanlega úr leik þar sem formaðurinn og varaformaðurinn hafa setið sem fastast við spilaborðið og tekið til sín gríðarlega há lán. Svo má deila um hvort félagarnir Tryggvi Þór Herberts og Árni Johnsen séu heppilegir til að leiða eitthvert endurreisnarstarf.

Einhverjir hafa litið til Sigmundar Davíðs sem frelsarans endurborna. Ég verð að setja ? við það eftir að hafa lesið upplýsingar í tekjublaðinu um tekjur hans á síðasta ári. Hann hafði 33.000 kr. á mánuði sem er meira en helmingi lægri upphæð en greitt er fyrir fullt starf 15 ára krakka í Vinnuskólanum á Sauðárkróki.

Ég er viss um að leiðtogi samvinnumanna á Íslandi hefur haft meira á milli handanna en helmingi minna en unglingarnir í Skagafirði og hlýtur sú spurning að vakna hvort hann sé einn þeirra fjölmörgu Íslendinga sem lifa á feitum reikningum í Lúx sem borga kreditkortareikninginn. Hann er einn þeirra nýju þingmanna sem ekki hefur skilað inn upplýsingum um æviferil, þ.e. menntun, fyrri störf og hjúskaparstöðu, en hefur að vísu skráð hagsmuni - sem virðast engir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver sem ber ábyrgð á icesave-skandalnun, þá liggur fyrir að almenningur mun borga reikninginn. Sama hvernig allt veltur og snýst. Mætti hann hafa eitthvað um málið að segja?

www.kjosa.is 

Rómverji (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 13:31

2 identicon

Jahérna. Verður ekki bara að endurreisa Frjálslynda flokkinn? ;)

Mörður Árnason (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 15:04

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Frjálslyndi flokkurinn er í góðu lagi en formaðurinn Guðjón Arnar var hér gestur í gær og fyrradag á Unglingalandsmóti á Sauðárkróki. 

Sigurjón Þórðarson, 2.8.2009 kl. 15:36

4 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Sigurjón,

sífelt fleiri sögusagnir, um spillingu okkar æðstu manna eða stærstu fyrirtækja, reynast nú á rökum reistar. Ekki skánar það mikið við að við fáum skrifleg vottorð um spillinguna því umræða um slíkt er umsvifalaust bönnuð með dómi. Spillingin umvefur stjórnvöld Íslands, inn að innsta kjarna. Því er það mjög skiljanlegt að Mörður ákalli Frjálslynda flokkinn opinberlega, greinilega hættur að blóta á laun. 

Gunnar Skúli Ármannsson, 2.8.2009 kl. 15:56

5 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Mig dreymdi að Frjálslyndi flokkurinn væri búinn að flytja höfuðstöðvar sína til Hafnarfjarðar í Suðvesturkjördæmi.

Þar hafði verið úthlutað 4 viðbótar þingsætum vegna misvægis atkvæða og vann FF þessi 4 þingsæti.

Þarna var og maður að nafni Mörður Árnason og þótti honum þessi tíðendi fyrna mikil.

Lýkur svo að segja frá draumum.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 2.8.2009 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband