Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur reynir að sannfæra sjálfan sig í settinu hjá Ingva Hrafni

Það var mikill bægslagangur í Steingrími J.  Sigfússyni í viðtali á ÍNN sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi.  Hann var eins og sjónvarpsprédikari að boða að samþykkt Icesaves væri það eina rétta.  Ég hafði það á tilfinningunni að Steingrímur væri ekki síður að reyna að sannfæra sjálfan sig en aðra með miklum handapati og áherslum í tíma og ótíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Baldursson

Ég sá að vísu bara síðustu mínúturnar, en fannst Ingvi vera helst til ljúfur við Steingrím. Ekki svo að ég vilji sjá fleningu, en kannski missti ég af mestu látunum.

Haraldur Baldursson, 3.7.2009 kl. 14:38

2 identicon

Amex (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 17:54

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já hefur tekið eftir þessum stórundarlegum handahreifingum? Mjög truflandi.

Ein vinkona mín er að æfa sig í að lesa í handahreyfingar Steingríms og heldur því fram að þegar hann spennir greipar og sveiflar þeim fram og til baka sé hann að ljúga.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.7.2009 kl. 19:00

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Pólitískur ferill Steingríms Joð er búinn ef þessi nauðasamningur verður felldu og hann veit það, kannski er það þess vegna sem hann berst svona.  Ef við skoðum fjárlög síðustu ára og reynum að sjá framtíðina fyrir, sem er nú fj.... erfitt, þá sést SVART Á HVÍTU að við GETUM EKKI staðið undir greiðslu af þessu.  Er eitthvað betra að gera samninga sem við vitum að  við getum EKKI staðið við eða segja hreint út að við ÆTLUM EKKI AÐ BORGA?

Jóhann Elíasson, 3.7.2009 kl. 20:27

5 identicon

   Hvað er með þig Sigurjón og fleiri.  Við kusum þetta fólk til þess að kara upp skítinn eftir aðra.  Hvað eru þau búin að sitja lengi.  Ekki átján ár, svo mikið er víst.  Ekki einu sinni hálft ár.  Reyndu að virða vilja þjóðarinnar.  Ást o friður!

Sólveig Margrét Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 03:37

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Pólitískur ferill Steingríms Joð er búinn að vera, ef þessi nauðasamningur verður SAMÞYKKTUR, og hann veit það ekki einu sinni, veslingurinn!

Jón Valur Jensson, 4.7.2009 kl. 04:54

7 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Sólveig Margrét; þetta fólk sem þú kaust virðist standa sig vel við að moka skítinn inn í fjós en ekki út úr því! Þau eru ekki búin að sitja hálft ár en þeim er að takast að setja ísland í stöðu sem engin önnur ríkisstjórn myndi láta sér detta í hug. Þú segir Jóni Vali að virða vilja þjóðarinnar en hvað er þessi ríkisstjórn að gera? Ganga þvert á vilja mikils meirihluta þjóðarinnar smkvt. skoðanakönnunum og neitar svo að setja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki þennan flokkadrátt hér, málið er alvarlegra en svo.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 4.7.2009 kl. 09:04

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sólveig, mér sýnist sem að þetta fólk sem var kosið sé mest í því að láta gamla fólkið og barnfjölskyldur moka skítinn eftir fjársvikamennina sem eru áfram eins og fínir menn á fyrsta farrými inn og út úr landinu.

Sigurjón Þórðarson, 4.7.2009 kl. 10:07

9 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Fólk sem kann ekki að skeina sig, er ekki hæft til að hreinsa upp skít eftir aðra.Það breytir engu, þótt einhverjir af sama sauðahúsi hafi kosið þau til þess.

Sigurgeir Jónsson, 4.7.2009 kl. 11:24

10 identicon

Burt með þessar AULA strax áður en skaðinn verður meiri en komið er.Við höfum ekki lengur trú á að þetta lið geri landinu neitt gagn.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband