Leita í fréttum mbl.is

Davíð hnýtti snöruna

Það var skemmtilegt og að mörgu leyti fróðlegt að lesa bók Ólafs Arnarsonar, Sofandi að feigðarósi. Hún er afrakstur rannsóknarvinnu en er stundum skrifuð í kjaftasögustíl og mikið gert með orðróm og sögusagnir. Kannski verður ekki hjá því komist. Í bókinni rekur hann aðdraganda bankahrunsins og kreppunnar og fer síðan yfir hamfarirnar og eftirleikinn sem fylgdi.

Ég tek undir með höfundi, að Davíð Oddsson muni eigi stóran þátt í hruninu en hann hnýtti sem forsætisráðherra og æðsti ráðamaður þjóðarinnar ásamt öðrum ráðamönnum snöruna sem hann hengdi íslenskt efnahagslíf í, og viðbrögð hans í kjölfar hrunsins voru að mörgu leyti krampakennd eins og Ólafur tíundar nokkuð nákvæmlega. Mér finnst ýmsar aðrar ályktanir sem höfundur dregur oft og tíðum grunnhyggnar, s.s. að fullyrða að bankarnir hafi verið neyddir til að taka sér stöðu gegn íslensku krónunni vegna þess að þeir fengu ekki að gera upp í evru. Það er af og frá og hefði engu breytt. Það má færa fullgild rök fyrir því að það hafi verið nokkuð ljóst hvert stefndi um mitt ár 2007 þar sem umræðan var þá þegar orðin hávær um að bönkunum gengi illa að fjármagna sig með auknu lánsfé.

Davíð Oddsson og ráðamenn hér heima höfðu með útrásarliðinu harðsnúið klapplið sem blés á alla gagnrýna umræðu innanlands og gerði fallið miklu hærra fyrir íslenskt efnahagslíf og særði þjóðina þar af leiðandi miklum mun dýpra sári en hefði þurft að gera. Mér finnst Ólafur gera fullmikinn greinarmun á Davíð Oddssyni og öðrum sérfræðingum Seðlabankans. Auðvitað er eðlilegt að helstu hagfræðingar bankans sem hafa að mestu þagað þunnu hljóði reyni að gera meiningarmun sinn og Davíðs meiri þegar Davíð er fallinn í ónáð og bankinn hruninn. Menn eru að bjarga eigin skinni og gera sitt ýtrasta til að fjarlægjast Davíð og allt það sem hann stóð fyrir. Sömuleiðis er furðulegt að ætla að einhver björgunarleið hafi verið fyrir bankana í október 2008 eins og Ólafur gefur í skyn, hann ýjar að því að einhver önnur viðbrögð en Seðlabankinn sýndi hefðu getað afstýrt ferlinu.

Bankarnir voru dauðadæmdir, gátu ekki fjármagnað sig og höfðu skrúfað upp eignastöðu sína með því að kaupa í sjálfum sér á yfirverði og slá svo lán í sjálfum sér á yfirverði. Þetta gat ekki gengið upp. Mér finnst þann skugga bera á bókina að höfundir gerir lítið úr svikabrellum, eins og þegar Arabíufursti keypti að nafninu til stóran hlut í bankanum.

Höfundur nær sér stundum á strik með líkingamáli úr veiði á laxfiskum sem er vel við hæfi í umfjöllun um mesta flottræfisrugl sem um getur í sögu þjóðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fáránlega léleg og heimskuleg bók. Copy Paste úr blaðagreinum og bloggi. Las aldrei eina setningu sem ég hafði ekki lesið áður.

 Fjármálakreppa í boði Davíðs Oddssonar. Þessi maður hlýtur að hafa asklok fyrir himinn.

Við reyndum að flytja bókina á klósettið, eftir að hafa gefist upp í miðjunni. Það hjálpaði ekki mikið.

Doddi D (IP-tala skráð) 9.5.2009 kl. 01:12

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Það eru voða miklir spekingar sem koma ávallt fram eftir að hlutir gerast - eftiráspekingar. Það er auðvelt. Verra er eins og þessi bókarhöfundur reynir í anda Kremlverja að endurskrifa söguna eins og hann vildi að hún hafi gerst.

Óumdeilt er, þvert ofan í það sem almanarómur segir víða, að umræddur Seðlabankastjóri varaði á miðju ári 2007 við stöðu bankanna. Sama gerði Geir Haarde opinberlega í november eða upphafi desember 2007.

Guðmundur kaffihúsaspekingur Ólafsson og hagfræðingur frá Kreml gerði grín að áhyggjum Seðlabankastjórans með eftirminnilegum hætti eins og sjá má hér. Hann vildi sennilega ekki hafa þá Lilju kveðið hafa í ljósi þess að æahyggur og varnaðarorð þessara tveggja manna reyndust réttm´tar.

Slóðin á þetta er hér : http://www.dv.is/frettir/2007/11/17/bjargbrunarkenning-sedlabankastjora-slegin-af/

Bjargbrúnarkenning seðlabankastjóra slegin af

None

Laugardagur 17. nóvember 2007 kl 14:13

Höfundur: (johannh@dv.is)

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur segir ekki sjá betur en að bandaríski hagfræðingurinn Arthur B Laffer hafi í fyrirlestri hér á landi fyrir helgina slegið af kenningu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um að þjóðin væri á bjargbrúninni vega skuldasöfnunar fyrirtækja og einstaklinga erlendis. "Þetta er bara órökstutt bull. Það veit enginn almennilega hvað við er átt með að þenslan sé of mikil og að hagkerfið geti ofhitnað. Laffer blés af bjargbrúnarkenningu Davíðs Oddsonar seðlabankastjóra heyrðist mér. Hún felst í því að bankastjórinn hefur miklar áhyggjur af skuldasöfnun almennings og fyrirtækja í útlöndum og að við séum komin að mörkum þess sem þjóðfélagið þolir í þeim efnum. Það var í fyrsta skipti í veraldarsögunni sem seðlabankastjóri kvartaði yfir því um daginn að almenningur keypti leikföng," segir Guðmundur. Nánar er rætt við Guðmund um þetta í nýju viðtali hér á vefsíðu dv.is.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 9.5.2009 kl. 03:35

3 identicon

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur átti rosa fína spretti á  útvarp Sögu með Sigurði G.  og var málflutningurinn á öðrum nótum en í þessu viðtali.  Hann var fyrstur til að vara við 90% húsnæðislánunum og öðru þenslurugli og eru þessi samtöl til á hljóðskrám  skora ég á Predikarann að hlusta .       www.hi.is lobbi        þættirnir eru til 1-2 ár aftur í tímann.

Hörður Halldórsson (IP-tala skráð) 9.5.2009 kl. 08:06

4 Smámynd: corvus corax

Það er ótrúlegt hvað menn geta endalaust lamið hausnum við steininn. Það sér það hver maður sem ekki er ofurseldur ofsatrú á Davíð að hann ber langmesta persónulega ábyrgð á því hvernig efnahagsástandið var komið fyrir bankahrunið mikla og ýtti því auk þess sjálfur af stað vegna persónulegs haturs á ákveðnum mönnum. Ef hæfur maður hefði setið í embættisstólum Davíðs á árunum fyrir hrunið hefðu bankarnir og ríkissjóður verið miklu sterkari til að takast á við alþjóðakreppuna. Þess í stað gerði vanhæfni Davíðs og skósveina hans það að verkum að íslenskt hrun fór saman með alþjóðahruni og gerði tjónið því miklu meira en eðlilegt hefði verið. Það þýðir ekkert að kasta skít í alla sem ekki míga á sig af geðshræringu yfir því hvað Davíð og hans glæpahyski var ótrúlega klárt ...þetta eru allt eiginhagsmuna spillingarbjálfar sem mergsugu ríkið og gjöreyðilögðu embættismannakerfið með spillingaraðgerðum hvað sem því varð við komið. Það er alveg sama hvað reynt verður að hvítþvo þetta hyski, staðreyndirnar blasa við hvert sem litið er.

corvus corax, 9.5.2009 kl. 08:14

5 Smámynd:  Valgerður Sigurðardóttir

Ólafur gleymdi víst að geta þess að títtnefndur Davíð rak hann sem framkvæmdastjóra sjálfstæðisflokksins, í því ljósi er sagan skýr

Valgerður Sigurðardóttir, 9.5.2009 kl. 08:50

6 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Bókardómur:

Málsvörn myrkrahöfðingja

http://www.amx.is/pistlar/6959/

Hjörtur J. Guðmundsson, 9.5.2009 kl. 09:11

7 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Furðulegt af þér Sigurjón að taka undir þessa þvælu í Clausen syninum, ekki skrýtið þótt flokkurinn þinn hafi þurrkast út og tilheyri nú sögunni eins og útrásarbankarnir.

Rakst á grein á googlinu - sem kannski skýrir eitthvað í þessum skrifum Ólafs - viðbrögð Arnar Clausen, föður Ólafs, við gagnrýni Davíðs Oddssonar á málsmeðferðina í Geirfinns- og Guðmundarmálinu á sínum tíma.

Viðbrögð verjenda ekki á eina lund

Viðbrögð fyrrverandi verjenda sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu við ummælum Davíðs Oddssonar um að dómsmorð hafi verið framin eru ekki á eina lund. Í samantekt Péturs Gunnarssonar kemur fram að verjendur þeirra sem þyngsta dóma hlutu taka fremur undir gagnrýnina en verjendur þeirra sakborninga sem hlutu vægari dóma og voru jafnframt vitni ákæruvaldsins bregðast við á annan hátt.  Örn Clausen, sem var verjandi Alberts Klahn Skaftasonar, var ómyrkur í máli þegar leitað var viðbragða hans við orðum forsætisráðherra: "Þetta er helv ... röfl og rugl allt saman í Davíð Oddssyni, Svavari Gestssyni og Ragnari Aðalsteinssyni. Þú mátt hafa það beint eftir mér," sagði Örn. "Minn maður játaði þátt sinn í þessu og bakkaði aldrei út úr neinum játningum. Það þýðir ekkert að bakka út úr neinum hlutum eftir á. Allir hinir voru með verjendur sína með sér og játuðu hvað eftir annað, þannig að það þýðir ekkert að halda því fram að það hafi verið neitt annað sem réð ferðinni en að mennirnir hafi verið að játa á sig ákveðinn verknað. Allt hitt er bölvað bull og ég skil ekkert í Davíð Oddssyni að láta hafa sig út í þetta helv ... rugl. Þú mátt hafa það beint eftir mér," sagði Örn.
 Skjólstæðingur hans, Albert Klahn Skaftason, hlaut 12 mánaða fangelsi í Hæstarétti og var dæmdur fyrir að hafa tekið þátt í að fela lík Guðmundar Einarssonar ásamt fíkniefnabrotum. Framburður Alberts var, ásamt játningum sem sakborningar drógu síðan til baka, einn helsti grundvöllur sakfellingar í Guðmundarmálinu.
 Guðmundur Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlögmaður var verjandi Erlu Bolladóttur. Guðmundur vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið þegar til hans var leitað. Erla var dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar og fyrir rangar sakargiftir í garð fjögurra manna sem sátu í haldi í 107 dga vegna rannsóknar málsins. Frásögn hennar af atburðum var, ásamt játningum sem sakborningar hafa dregið til baka, eitt veigamesta atriðið sem dómstólar byggðu sakfellingu á í Geirfinnsmálinu.
 Páll Arnór Pálsson hæstaréttarlögmaður var verjandi Kristjáns Viðars Viðarssonar. "Ég hef aldrei verið sáttur við hæstaréttardóminn," sagði Páll Arnór í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann kvaðst því síður en svo leggjast gegn því að málið verði endurupptekið. Hann sagði að skjólstæðingur sinn teldi sig dæmdan saklausan. Páll Arnór sagði að Kristján Viðar hefði beðið sig að gæta hagsmuna sinna ef málið yrði tekið upp að nýju og því kvaðst hann ekki vilja tjá sig um málið í framhaldi af ummælum Davíðs Oddssonar.
 Kristján Viðar Viðarsson hlaut 16 ára fangelsi í Hæstarétti fyrir að hafa verið valdur að dauða Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar og fyrir rangar sakargiftir gegn mönnunum fjórum.

Á rétt á sér að tala um dómsmorð

 Fyrir Hæstarétti varði Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður Sævar Ciecielski, sem hlaut 17 ára fangelsisvist fyrir sömu sakargiftir og Kristján Viðar.
 Jón Oddsson sagði í samtali við Morgunblaðið um ummæli forsætisráðherra að í fyrsta lagi lægi ekkert fyrir í málinu um sekt þeirra sem voru dæmdir. "Rannsóknaraðferðir og meðferð, þar sem okkur verjendum var haldið frá málinu, virðist hafa verið með þeim hætti að orð Davíðs um dómsmorð eiga fullkomlega rétt á sér," sagði Jón Oddsson.

Sigurður Sigurðsson, 9.5.2009 kl. 11:11

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég þakka fyrir þetta innlegg sisi en ég átta mig ekki fyllilega á samhenginu.

Sigurjón Þórðarson, 9.5.2009 kl. 12:16

9 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Kannski eru upptök ruglsins í Ólafi þarna, þarf ekki að skoða allt í sögulegu samhengi ?  eða hvað.  Eitthvað fór Davíð þarna í taugarnar á gamla karlinum.

Annað dæmi um endalausan pirring út í Davíð Oddsson er bullið í Sverri Hermannssyni, sem DO tók nú aldeilis á beinið á sínum tíma þegar hann var bankastjóri Landsbankans - eru allir búnir að gleyma veiðferðum kallsins og sukkinu í kringum hann ??   Ekki ég.

Ótrúlegt að menn skuli ennþá vera að hamast út í Davíð fyrir hrunið, af hverju einbeitið þið ykkur ekki að því að ná til þessarra manna sem orsökuðu hrunið og misbeittu því valdi sem þeir höfðu - t.d. eigendur bankanna.

Sigurður Sigurðsson, 9.5.2009 kl. 14:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband