Leita í fréttum mbl.is

Fordómafull ruglutófa á Mogganum

Það er merkilegt að lesa enn einn haturspistil starfsmanns ríkisstyrkta blaðsins, Morgunblaðsins, sem var rétt í þessu að komast í hendurnar á útgerðaraðlinum. Leigupenni útgerðaraðalsins ríkisstyrkta, Kolbrún Bergþórsdóttir, virðist gera sér far um að ráðast á minnsta flokkinn á Alþingi af mikilli ósanngirni, s.s. að við sem höfum verið fulltrúar hans á Alþingi séum eitthvert sérkennilegt fólk, illa þenkjandi og þaðan af verra.

Eitt af því sem virðist vera eitur í beinum blaðamanns LÍÚ er að Frjálslyndi flokkurinn beitir sér gegn kvótakerfinu og hún lætur líta út sem það sé eina málið sem flokkurinn hafi beitt sér í fyrir utan nauðsynlega umræðu um útlendinga. Þetta er helbert kjaftæði þar sem stefnuskrá Frjálslynda flokksins varar m.a. sterkt við skuldasöfnun þjóðarbúsins. Ætli þetta tvennt, barátta gegn skuldasöfnun og óréttlátu kvótakerfi, réttlæti ekki fullkomlega tilvist flokks í þjoðfélagi sem glímir við hrun fjármálakerfisins einmitt vegna kvótakerfisins og skuldasöfnunar. Hinir flokkarnir hafa þetta ekki á stefnuskrá sinni.

Þegar sá þingmaður sem sjálfskipaðir fulltrúar leyfilegrar umræðu töldu hvað öfgafyllstan í umræðunni, Jón Magnússon, er genginn í Sjálfstæðisflokkinn og honum hefur verið tekið þar opnum örmum minnist enginn á að hann sé rasisti og ali á andúð í garð útlendinga - hann er kominn í rétta liðið og búinn að gefast upp á að sýna fjórflokknum andóf. Kolbrún Bergþórsdóttir virðist gefa Jóni Magnússyni þá einkunn, bara við það að ganga úr flokknum, að hann hafi af góðmennsku sinni og sterkri réttlætiskennd reynt að vísa flokksfélögum sínum veginn, en hreinlynd sál Jóns hafi verið úthrópuð og hann hrökklast að lokum úr flokknum.

Hvað verður um frjálsa og hlutlæga fjölmiðlun þegar skuldugi kvótaaðallinn er kominn með Moggann og Fréttablaðið er hjá Þorsteini Pálssyni? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kolbrún vill vera "grúpp pía" með aðlinum.

Sigurður Þórðarson, 1.3.2009 kl. 16:15

2 identicon

Morgunblaðið flaggar frjálshyggju í sinni ýktustu mynd og er þá sama hvar borið er niður. Menningarumfjöllun Mbl litast hvað sterkast af þessu, ýtt er undir popúlisma og ráðist gegn gagnrýnni hugsun. Morgunblaðið þjáist auðvitað fyrir þessa óskiljanlegu stefnu enda fækkar ört þeim örfáu hugsandi lesendum sem tíma að greiða fyrir vitleysuna sem vellur úr krönum frjálshyggjufávita sjálfstæðisflokksins

Ragnar (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 18:17

3 identicon

Sæll Sigurjón.

Baráttan gegn gjafakvótakerfinu verður að halda áfram sem aldrei fyrr. Þar liggja rætur óréttlætisins en því miður eru margir stjórnmálamenn leppar valdablokka og standa vörð um kerfið.

Í síðustu kreppum hefur fólk alltaf getað róið til fiskjar til að framfleyta sér. Nú er búið að taka fyrir öll tækifæri til sjálfsbjargar í kreppunni. Þessi kaup á MBL er einn liðurinn í því að viðhalda þessu lénsskipulagi.

TH (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 19:51

4 identicon

Þyngra en tárum taki að eini alvöru kvótaviðspyrnuflokkurinn skuli mælast með fylgi niður við grjót.   Tækifæri frjálslynda flokksins hafa verið þó nokkur en því miður illa misnotuð.   Hverju sætir?

lydur arnason (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 00:57

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Kolbrún er þarna að skjóta sig í fótinn án þess að gera sér grein fyrir að virðist.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.3.2009 kl. 01:49

6 Smámynd: Rannveig H

LÁ Góð spurning sem ég hef oft lagt fyrir mig sjálfa þó sérlega meðan ég var í FF.  Sjálfstæðisflokkurinn er að komast að því núna að stefnan þeirra brást ekki heldur mennirnir sem áttu að framfylgja henni. Eitt er á tæru stefnan hjá FF er ekki að bregðast! Getur það ekki verið og er það ekki augljóst að það séu mennirnir sem ekki eru að standa sig  og ekki nýta tækifærin. Endurreisn er ekki til í þeirra orðaforða.

Rannveig H, 2.3.2009 kl. 09:20

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Lýður, það er nokkuð snúið að átta sig á stöðu mála og enn erfiðara að átta sig á stefnu fjórflokksins sem  virðist ríghalda í kvótann nema þá einstaka menn rétt fyrir kosningar s.s. Kalli Matt.

Eitthvað hafa menn eflaust verið smeykir við stóru peningana en núna eftir að þeir eru orðnir blankir er erfitt að átta sig á því hvers vegna VG viðheldur kerfinu  óbreyttu.

Aðalritarinn Steingrímur J tekur meira segja upp á því að afhenda skulduga útgerðaraðlinum  Moggann með afslætti og ætli hann haldi ekki upp á vel unnið dagsverk með því að syngja Nallann á góðra vina sellufundi að kvöldi.

Sigurjón Þórðarson, 2.3.2009 kl. 10:02

8 Smámynd: Kristján B. Jónasson

"Leigupenni úgerðaraðalsins ríkisstyrkta" er skemmtilegt orðalag um Kolbrúnu Bergþórsdóttur, en sjaldan hef ég séð skotið jafn fjarri markinu. Hvorki "útgerðaraðallinn " (tilheyrir Óskar Magnússon honum?) né orðið "leigupenni" komast nálægt því að ramma inn þann frjálsa anda sem Kolla er. Hún er vön að skrifa það sem henni sýnist.

Svo er það varla hennar sök að Frjálslyndi flokkurinn er fyrst og fremst í fjölmiðlum þessa dagana vegna óeiningar flokksmanna. 

Kristján B. Jónasson, 2.3.2009 kl. 10:32

9 Smámynd: Halla Rut

Nú hefur þessi flokkur barist gegn kvótakerfinu í 10 ár og árangurinn er enginn. Hvernig væri að fara að spá í að breyta um baráttuaðferðir?

Halla Rut , 2.3.2009 kl. 10:59

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Kristján B., mér virðist sem þú hafi ekki kynnt þér hverjir eiga Þórsmörk en þar er framarlega í flokki Þorsteinn Már og fleiri sem hafa rakað milljörðum út úr sameign þjóðarinnar.

Þorsteinn Már var stjórnarformaður Glitnis  en hann sakaði stjórnvöld um að hafa stolið Glitni sl. haust.

Sigurjón Þórðarson, 2.3.2009 kl. 11:04

11 identicon

Búin að segja þessum BLEÐLI upp.Eg vona að fólk geri slíkt hið sama strax í DAG.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 2.3.2009 kl. 11:52

12 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Maorgunblaðið, málsvari er orðið bláber málsvari kvótakerfisins jáfnvel áður en skipt er um stjórn í Árvakri.  Kolbrún reið að vaðið, það verður fróðlegt að fylgjast með þessu.

Sigurður Þórðarson, 2.3.2009 kl. 12:15

13 Smámynd: ThoR-E

Kolbrún er virkilega sorgleg. Ég missti mikið álit á henni þegar ég las "pistlana" hennar um mótmælendurna...

Og núna þessi árás á Frjálslyndaflokkinnn... 

Ég held að það sé ekki nokkur maður sem getur tekið þessa manneskju alvarlega lengur... leigupenni.. eitt orð sem hæfir henni vel.

ThoR-E, 2.3.2009 kl. 15:34

14 Smámynd: Jens Guð

  Það hefur frá fyrstu tíð einkennt blaðamennsku Kolbrúnar Bergþórsdóttur hversu húsbóndaholl hún er.  Hún er alltaf í því hlutverki að þjóna húsbóndanum sem gefur henni að éta.  Á sínum tíma var hún - sem yfirlýstur krati - mjög og réttilega gagnrýnin á Framsóknarflokkinn.  Síðar varð hún blaðamaður Tímans (eða Dags eða hvað blaðið hét á þeim tímapunkti),  málgagns Framsóknarflokksins.  Á því tímabili var ekki hægt að merkja að fjósalyktin angraði hana.  Núna er hún  í því hlutverki að geðjast ríkisstyrkta málgagni Sjálfstæðisflokksins.  Og kemur ekki á óvart.

Jens Guð, 3.3.2009 kl. 00:32

15 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Rétt Jens.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 3.3.2009 kl. 00:40

16 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bara svona að velta fyrir mér þessu með útgerðaaðalinn. Veit jú að Þorsteinn og Guðbjörg hafa verið í útgerð en Óskar sem fór fyrir hópnum á hann ekki DV, Mannlíf og Birting. Og svo eru þarna fleiri.

Eins skil ég ekki þetta með að þau hafi fengið þetta með afslætti. Var einhver sem var tilbúinn að borga yfir 5 milljarða fyrir Moggann? Og hefði verið betra að láta hann rúlla og fá 200 til 300 manns svona á einu bretti inn á atvinnleysisskrá? Og hverjir hefðu svo fengið leyfarnar af blaðinu. Kannksi 365. Sem hefðu þar fengið prentsmiðju fyrir lítið. Prentsmiðju sem kostar milljað. Sem og húsið þarna í Hádegismóum. Og bankin því fengið lítið sem ekkert. Nú er þó möguleiki að bankarnir fái um 40% af skuldum Moggans greiddar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.3.2009 kl. 01:06

17 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Magnús Helgi, það var grein í Morgunblaðinu sl. helgi um nýju eigendur Morgunblaðsins og tengsl þeirra við gjafakvótakerfið en þeir 3 sem nefndir voru til sögunnar tengjast Vísi, Vinnslustöðinni og Samherja.  Sömu aðilar tóku fullan þátt í hlutabréfaspilaborginni sem féll á landsmenn og nú fá þeir Moggann eftir að ríkið hefur meira og minna rekið hann undanfarna mánuði og tekið yfir mörg þúsund milljóna skuldir.

Magnús Helgi, íslenska þjóðin er búin að brenna sig illilega á sumum þessara aðila og því er fáheyrt að láta brennuvarganna byrja upp á nýtt.  Þeir sem lýstu yfir áhuga á að taka  kaupa blaðið höfðu m.a. bundist félagsskap undir forystu Vilhjálms Bjarnasonar. 

Sigurjón Þórðarson, 3.3.2009 kl. 11:00

18 identicon

Heill og sæll, Sigurjón.

Líta máttu á pistil minn nýbirtan (og skrifaðan áður en ég vissi af þessari vefslóð þinni): Ógáfuleg hatursárás Kolbrúnar Bergþórsdóttur á Frjálslynda.

Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband