Leita í fréttum mbl.is

Íslensk alþýðukona slær í gegn

Helstu fréttir af Alþingi eru þær að fyrir rúmri viku urðu sætaskipti vinstri grænna og sjálfstæðismanna í ríkisstjórn. Vinstri grænir sem skyndilega fengu boltann vita eiginlega ekkert hvað þeir eiga að gera við hann og sjálfstæðismennirnir sem misstu hann láta eins og vitleysingar þrátt fyrir að vera búnir að koma þjóðinni í þvílíkan bobba að meðaljóninn sem væri í þeirra sporum og hefði einhverja siðferðiskennd mætti frekar í vinnuna með hauspoka en að ólátast.

Sem betur fer var alþýðukona, búsett á Skaganum, mætt við Austurvöll, Ragnheiður Ólafsdóttir, og talaði skýrt og umbúðalaust á þingi. Það var aðdáunarvert hvað Ragnheiður kom hugsun sinni - og fjölmargra annarra - vel til skila. Hún náði að vanda um við þingmennina sem tala í vafningum úr fílabeinsturni.

Mikið hefur verið gert úr næmni Ragnheiðar sem hún hefur eflaust nýtt sér, og ég þekki reyndar persónulega fólk sem hefur leitað til hennar og verið þess fullvisst að Ragnheiður hafi hjálpað sér. En það sem stendur upp úr er að hún talar venjulegt mannamál.

Frjálslyndi flokkurinn má vera stoltur af þessum blátt áfram og sköruglega fulltrúa sínum.


mbl.is Þingmaður og árulesari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Já, nú vekur það þjóðarathygli og aðdáun að nýr þingmaður heldur einnar mínútu ræðu án þess að verða sér til skammar.

Það gefur nú vonir um að enn finnist "normal" einstaklingar á Íslandi.

Árni Gunnarsson, 13.2.2009 kl. 21:43

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hún nær ekki að vega upp restina af flokknum.. því miður.

spá mín um jón Magnússon sem ég birti hér á þessu bloggi í fyrravor.. rættist ! 

Óskar Þorkelsson, 13.2.2009 kl. 22:54

3 identicon

Ég er sammál því að hún komst þarna nákvæmlega að ,,marbletti" þingsins.

Betra að þið hefðuð fleir ,,varaþingmenn" til að tala.

Hins vegar er það rangt hjá þér Sigurjón að VG viti ekki hvað þeir eigi að gera við boltann. Þú og þínir vinir eruð stanslaust að reyna að gera ríkisstjórninni erfitt fyrir með alls kyns kjaftæði um allt og ekkert. Og það vekur mann til umhugsunar um í hvaða flokki þú varst áður en Frjálslyndir urðu til.

Er erfitt að slíta naflastenginn?

Af því að ég er líffræðimenntaður eins og þú, er ég sammála þér um auknar veiðar, geri mér grein fyrir afleiðingum kvótakerfisins, vil láta veiða miklu meira af þorski svo hann verði ekki kynþroska sem smáfiskur í framtiðinni, en svo skilur á milli, því ég vil blandað hagkerfi, ekki bara eftirsókn eftir vindi eins og þú, trú á tækifæri og frumskógarlögmál, það kerfi hafa frjálshyggjumenn löngu afsannað að virki.

Það þarf að nýta auðlindir lands og sjávar, en með reglum sem virka, bæði fyrir fyrirtækin og landið í heild. Við verðum að geta selt afurðirnar, unnar afurðir.

Nú hlaðast birgðir af fiski upp í sjávarútvegsfyritækjum, af því að ...... ekki fæst viðunandi verð erlendis, .... en  samt er gengið hagstætt.... en það er kreppa úti í löndum líka.

Er ekki kominn tími til að þú takmarkir bullið. Þið hafið bara eitt mál á dagskrá, kvótann. Og svo náttúrulega hliðarmálið..... takmarka litaða inn í landið.

Mér finnst með ólíkindum að nokkur sem er í Frjálslynda flokknum geti galað ,,mannréttindi", því það er ykkur algjörlega framandi hugsun.

Varðandi hvalveiðarnar sem þú ert ekki búinn að fjargviðrast neitt lítið yfir, hafa nú sendiherrar margara Evrópuríkja farið þess á leit við ,,mannréttindabrjótinn" Steingrím J. að hann endurskoði leyfi forvera síns.

Undarlegt. Eru Evrópubúar að hugsa um slík mál? Af hverju?

Ég vona samt að Steingrímur hafi þá hugsun, að ef hægt er að selja afurðirnar, þá leyfi hann einhverjar hvalveiðar. En það verður að tryggja. Af hverju? Jú, því ef hægt er að selja afurðirnar, þá skilar vinnan arði. Ef ekki er hægt að selja afurðirnar, þá á ekki að framleiða vöruna. Það er einfalt.

kveðja að vestan.

Gústaf Gústafsson (IP-tala skráð) 13.2.2009 kl. 22:56

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Gústaf, til þess að leiðrétta örlítinn misskilning þá er rétt að taka það fram að ég hef aðeins verið í einum stjórnmálaflokki.

Það er rétt að ég sækist eftir vindi en ég bý á einum besta stað í heimi en hér á Sauðárkróki er að sönnu þægilegur blástur.

Mér finnst úr því sem komið er tilefni til þess að ég taki saman hér á blogginu ef ég nenni, misgjörðir Steingríms J Sigfússonar í garð íslenskra sjóamanna og er það þá ekki einungis til þess að vel meinandi fólk eins og Gústaf Gústafsson átti sig á ábyrgð leiðtoga VG heldur ekki síður til þess að Steingrímur J bæti ráð sitt en hann er í einstakri aðstöðu til þess.

Sigurjón Þórðarson, 13.2.2009 kl. 23:42

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Ragnheiður er flottust.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.2.2009 kl. 23:47

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ragnheiður er það sem forfeður okkar nefndu að vera ófresk. þ.e. að hafa innsæi sem öllum er ekki gefið. Hún er hagsýn húsmóðir og alþýðukona sem segir hlutina bara eins og þeir eru. Þannig fólk þurfum við á Alþingi Íslendinga.

Sigurður Þórðarson, 14.2.2009 kl. 00:13

7 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Sigurjón.

Já það mættu fleiri í þessum flokki taka hana til fyrirmyndar

Guðmundur Óli Scheving, 14.2.2009 kl. 00:53

8 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Það var hreinlega frábært að hlusta á þessa ágætu konu. Hún þyrfti að söðla um og skipta um flokk. Ekkert bendir til þess að frjálslyndi flokkurinn komi manni á þing í komandi kosningum. Jón Magnússon og félagar urðu ykkur dýrkeyptir.

Sigurður Sveinsson, 14.2.2009 kl. 07:38

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sigurður við skulum sjá til hvaða spil Guðjón á upp í erminni en hann er vanur að fleyta þessu áfram.

Sigurjón Þórðarson, 14.2.2009 kl. 09:22

10 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Ragnheiður talaði þarna einfaldlega fyrir munn íslensku þjóðarinnar.

Frábært hjá henni.

Jón Halldór Guðmundsson, 14.2.2009 kl. 10:40

11 identicon

Sæll Sigurjón.

ég vildi bara benda þér á eina grein sem mannréttindarnefndin þín sem þú hefur haldið svo uppá og tilbeðið var að gefa út.

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/02/14/hrosad_fyrir_daudarefsingu/

Æðisleg nefnd sem telur að dauðarefsingar, þjóðarmorð og kúgun séu ekki mannréttindarbrot... en svo er hún á móti sjálfbærum veiðum og segir að það sé mannréttindarbrot.

Held að þú ættir aðeins að endurskoða hvað þú vitnar oft í þessa nefnd...

Ragnar Smári (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 12:56

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta misskilningur hjá þér Ragnar Smári en mér finnst þessi athugasemd þín lýsa viðkvæmni VG í að taka á mannréttindabrotum íslenskra stjórnvalda

Þetta ráð sem segir frá í fréttinni er ekki sú nefnd sem fjallaði um óréttlæti kvótakerfisins en nefndin sem gerði það er stofnuð samkvæmt alþjóðasamningi um stjórnmála og borgaraleg réttindi. Nefndin er stofnuð á grundvelli 28. grein þess samnings.

Hún hefur það eina markmið að fylgja eftir samningnum.  Vonandi treysta ráðherrar VG til þess að hætta umræddum mannréttindabrotum.

Sigurjón Þórðarson, 14.2.2009 kl. 13:10

13 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Ég ber enn allnokkra virðingu fyrir Guðjóni Arnari. Persónufylgi hans hefur reynst flokknum notadrjúgt. En ég held að kraftaverk þurfi til að bjarga ykkur í vor. Ég er flokkslaus maður en verð samt ekki í vandræðum við kjörborðið. Atli Gíslason vann þingsæti hér í suðurkjördæmi í síðustu kosningum og ég ætla að styðja hann ef hann verður í framboði. Hef þekkt hann frá því vorum í lagadeildinni og treysti honum afar vel til góðra verka.

Sigurður Sveinsson, 14.2.2009 kl. 13:55

14 Smámynd: Hlédís

Verið ekki að tuða svona!

Hér er verið að hrósa Ragnheiði Ólafsdóttur!

Þökk og hrós á hún skilið - Húrra fyrir henni!

Óska Frjálslynda flokknum til hamingju með þennan liðsmann!

Hlédís, 14.2.2009 kl. 13:56

15 identicon

sæll aftur.

Mannréttindarnefndin er væntanlega skipuð af mannréttindaráðinu, enda finnst mér ólílegt að það sitji alltaf sömu mennirnir í þessum nefndum hjá þeim.

Mannréttindarráðið skipar mannréttindanefndirnar sem síðan birti þetta álit um ísl.kvótakerfið.

Þannig að ég sé ekki hvar misskilningurinn er.

Ég vil samt þakka þér fyrir að svara mér alltaf hérna. 

Ég virði það við þig.

Takk

Ragnar (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 13:59

16 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hún ætlar að verða lífseig mýtan um Jón Magnússon og Nýtt afl. Ekki veit ég hversu margir hanga ennþá eins og hundar á því roði að Jón og félagar hans hafi sett allt á annan endann í frjálslyndaflokknum og rúið hann fylgi. Enginn af þessu fólki kemur hinsvegar úr flokkstarfinu þó því virðist vera kunnugt um ástæður fyrir átökunum í innra starfi flokksins.

Nú vill svo til að ég hef gegnt starfi í flokksfélagi og þar að auki setið þá almennu flokksfundi flesta þar sem átök og deilur hafa risið. Engir hafa reynst betur til að bera klæði á vopn og lægja öldur en einmitt Jón og félagar hans úr Nýju afli. En þetta fólk sem og við flest í flokkstarfinu höfum verið beitt hroka og hreinni valdníðslu af stjórn flokksins. Enginn hefur svo ég hafi séð sýnt fram á þann skelfilega bakgrunn sem þetta litla stjórnmálaafl hafði þegar það gekk til liðs við okkur í Frjálslynda flokknum. Er það kannski ekki á hreinu Óskar Þorkelsson?

En nú er mér orðið örðugt að sitja undir endalausum lygaþvælum fólksins sem stendur utan flokksins og reynir að læða inn grunsemdum um heilindi þeirra sem mest heilindi hafa sýnt.

Og þetta bið ég þá að taka til sín sem eiga í þeirri von að ég hafi talað nægilega skýrt.

Árni Gunnarsson, 14.2.2009 kl. 21:29

17 Smámynd: Rannveig H

Þú talaðir svo sannarlega nógu skýrt Árni! Þú talaðir fyrir mig og örugglega marga fleiri.

Rannveig H, 15.2.2009 kl. 12:22

18 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Enginn hefur svo ég hafi séð sýnt fram á þann skelfilega bakgrunn sem þetta litla stjórnmálaafl hafði þegar það gekk til liðs við okkur í Frjálslynda flokknum. Er það kannski ekki á hreinu Óskar Þorkelsson?

Ég tók ekki eftir þessari athugasemd þinni Árni en skal svara fyrir mig..

Jón Magnússon kom í flokkinn með einn tilgang ,og einungis þann eina tilgang, að komast á þing og ná völdum í stjórnmálaflokki sem var nægjanlega hægrisinnaður til þess að falla undir hans heimssýn.. 

Það tókst að hluta hjá honum en ekki að öllu leiti og því fer jón Magnússon úr flokknum á sama hátt og hann kom í hann.. hratt og fyrirlitslega.

FF er fyrir löngu búinn að tapa uppruna sínum og því tilveruréttinum og dómur kjósenda í næstu kosningum mun sanna mitt mál ! 

Óskar Þorkelsson, 15.2.2009 kl. 13:28

19 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekki gar ég nú svosem ætlast til þess af þér Óskar að þú hefðir vit til að sjá að þér. Jón Magnússon þröngvaði sér ekki fram til framboðs. Honum var falið að leiða lista og hann hefur verið einn af virkustu og bestu alþingismönnum þann stutta tíma sem hann hefur setið á Alþingi. Um það vitna fjölmargar þingræður hans.

Mitt ráð til þín er að næst þegar þú tekur til máls þá veljir þú þér það viðfabgsefni sem þú hefur meiri kunnugleika á en innra starfi Frjálslynda flokksins.

Árni Gunnarsson, 15.2.2009 kl. 17:52

20 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég fjalla um FF eins og mér þóknast Árni.. þakka þér fyrir annars frekar einstrengingslega ráðleggingu sem einkennist af hroka.. sem einmitt verður FF að falli.

Ef fólk má ekki fjalla um Flokkinn eins og hann birtist þeim í fjölmiðlum, en verður að treysta á að menn eins og þig Árni sem ert greinilega í innsta koppi þessa flokk, upplýsi okkur þá skaltu bara upplýsa okkur fávísan almúgann um ágæti Jóns Magnússonar sem .. btw er FARINN úr FF.. en ágæti jóns hef ég aldrei getað komið auga á .. ég sé frampotara af verstu gerð... og rasista.

Óskar Þorkelsson, 15.2.2009 kl. 17:58

21 Smámynd: Árni Gunnarsson

Mér finnst lifandis ósköp vænt um þig líka Óskar minn!

Árni Gunnarsson, 15.2.2009 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband