Leita í fréttum mbl.is

Mannréttindabrot Vinstri grænna

Í hverju eru Vinstri grænir lentir?

Mér varð hugsað til þess þegar ég sat á opnum borgarafundi í gær og sjómaður spurði lagarefinn og formann sjávarútvegsnefndar Alþingis, Atla Gíslason hvort það ætti að virða mannréttindi sjómanna og fara að áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Ég kannast vel við sjómanninn sem bar upp spurninguna og veit að hann hefur verið beittur miklu óréttlæti af stjórnvöldum. Svör Atla Gíslasonar voru ekki með eindæmum, þau hefðu alveg eins getað komið úr barka fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, það var tafsað og talið strax leitt að öðru. Ég er viss um að pabbi minn sem var kommúnisti af gamla skólanum hefði skammast sín fyrir framgöngu Vinstri grænna ef hann væri á lífi.

Það er með ólíkindum að horfa upp á þessa vesalinga réttlæta það að halda áfram mannréttindabrotum og rembast á sama tíma eins og rjúpan við staurinn við að banna hvalveiðar.


mbl.is Ákvörðun Steingríms í vikulok?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Það ætti að setja sér ákvæði í stjórnarskránna sem segir:

Ekkert í stjórnarskrá þessari má túlka á þann hátt að það fari í bága við stefnu stjórnvalda hverju sinni

Með þessum hætti mætti setja stjórnarskránna og mannréttindi ofan í skúffu þar sem þau þvældust ekki fyrir neinum!

Aðalheiður Ámundadóttir, 9.2.2009 kl. 17:01

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta ákvæði sem þú bendir á Aðalheiður, hafa stjórnvöld okkar ævinlega lesið á milli línanna í þessu merkilega plaggi.

Enda var það engin tilviljun að Björgu Th. var falið að siðvæða nýja og breytta stjórnarskrá. En ég sárvorkenni Atla Gíslasyni að vera kominn með plástur úr skúffu Steingríms J. á þverrifuna. Ég hef einu sinni rætt fiskveiðistjórnina á fjölmennri kosningaskrifstofu VG í Suðurgötunni. Þar reyndu frambjóðendur að sannfæra mig um að gífurlegar breytingar í réttlætisátt væru í stefnuskrá þeirra. Þar var Atli Gíslason og að leggja af stað í sitt fyrsta framboð. Eftir nokkurt þóf við mína ágætu kunningja í umhverfisbaráttunni, þau Kolbrúnu og Ögmund þar sem ég rakti að þegar til stykkisins kæmi þá reyndist engin innistæða vera fyrir þessu þokukennda bulli- tók Atli til máls:" Þetta er bara allt saman rétt sem maðurinn er að segja!" 

En nú er Steingrímur greinilega búinn að sækja plásturinn og koma honum fyrir.

Árni Gunnarsson, 9.2.2009 kl. 17:16

3 identicon

Ekki halda heilbrigðir menn virkilega að þetta fólk fari t.d að taka kvótakerfið af??  þó þetta séu nú kommúnistar þá eru þau þó með einhvern snefil af heila...   Vondandi allavega, fyrir land og þjóð...

Guðbjartur Þorvarðarson (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 18:36

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðbjartur. það er nú helvíti hart ef að VG ætlar að halda áfram að brjóta mannréttindi eins og ekkert sé - það væri lítið mál ef vilji væri til að koma á móts við álitið með því að gefa t.d. handfæraveiðar frjálsar.

Annars er ekkert vit í að halda áfram með sem hefur komið þjóðinni á hausinn og lagt stóra hluta landsins meira og minna í rúst.

Sigurjón Þórðarson, 9.2.2009 kl. 18:52

5 identicon

.

Ein spurning. 

Er hægt að afnema kvótakerfið á 80 dögum? 

101 (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 20:07

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Með því að gefa handfæraveiðar frjálsar en ekki aðrar krókaveiðar er verið að brjóta jafnræðisreglu á útgerðarfyrirtækjum og sjómönnum sem starfa hjá þeim.Fyrst mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna tók fyrir kæru útgrðarmannanna, sjómannanna, sem kærðu mannréttindabrot vegna kvótakaupa, þótt það sé bannað samkvæmt kjarasamningum að láta sjómenn taka þátt í kvótakaupum og það sé raunar ekki hægt samkvæmt Íslenskum fiskveiðistjórnunarlögum, þá hlyti mannréttindanefndin að taka fyrir kæru vegna mismununar á krókaveiðum fyrir líka.

Sigurgeir Jónsson, 9.2.2009 kl. 20:39

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

101 það er hægur vandi að hefja það verk að afnema óréttlætið en það þarf vilja og einfalda reglugerðarbreytingu en Steingrímur J er því miður harðsoðinn kvótkarl.

Sigurjón Þórðarson, 9.2.2009 kl. 21:05

8 identicon

.

Væri hann samkvæmur sjálfum sér ef hann gerði það.  

Fráfarandi sjávarútvegsráðherra tók veigamikla ákvörðun korteri áður en hann lét af störfum og Steingrímur og fleiri hafa bent á að svona geri menn ekki.  Hann sjálfur situr í minnihlutastjórn sem skipuð er til bráðabirgða fram yfir kosningar.  

Svona málefni eiga ríkisstjórnir að ákveða sem ekki eru til bráðabirgða. 

Þetta er málefni þeirrar ríkisstjórnar sem kemst á koppinn eftir kosningar.  Og líka hvalveiðheimildirnar. 

Tek fram að ég er sammála þér og þínum um afnám kvótakerfisins og ætti að sæta lagi þegar skuldir útgerðarinnar eru gerðar upp.  Og ég er einnig samþykkur hvalveiðum svo fremi menn geti tryggt sölu á ketinu.

101 (IP-tala skráð) 9.2.2009 kl. 23:09

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

101, mannréttindabrot eiga ekki að bíða - það ætti að vera forgangsmál að taka á þeim.

Þetta mál er VG og S til mikillar minnkunar.

Sigurjón Þórðarson, 9.2.2009 kl. 23:24

10 identicon

Í hvalveiðireglugerðinni segir eitthvað á þá leið að þau skip sem sérstaklega eru útbúin til veiða á stórhvelum fái heimild til þess að veiða upp í þennan kvóta. Ég sé svosem ekkert því til fyrirstöðu að hver sem er geti búið skip sitt til hvalveiða og veitt af þessum kvóta. Reyndar er leyfið til hrefnuveiðanna takmarkaðar við þá aðila sem stundað hafa þær veiðar.

Maður spyr sig hins vegar þeirrar spurningar hvort að Steingrímur J. sé jafn mikill náttúrverndarsinni og áhugamaður um sjálfbærni eins og hann hefur fram að þessu haldið fram. 

Upphaf þeirrar endemis hringavitleysu sem viðgengist hefur hér á undanförnum árum og við nú súpum seyðið af er að finna í því fiskveiðistjórnunarkerfi sem legið hefur eins og mara á þjóðinni í aldarfjórðung og varðhundar Sjálfstæðisflokksins hafa varið og mært allan þann tíma.

Mér hefur skilist að nú væri tími breytinga að renna upp. Taka ætti til á öllum sviðum og leiðrétta það óréttlæti sem ríkt hefur í landinu. Taka ætti fyrir það að eignir, sem í raun eru einskis virði, væru bókaðar sem milljarða verðmæti o.s.frv. 

Vilji nú þessi nýja ríkisstjórn ekki gera breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem leitt gætu til þess að fólk gæti, með litlum tilkostnaði, komist yfir fleytu og farið að sækja sjó sér til lífsviðurværis án þess að þurfa fyrst að kaupa sér réttinn til sóknarinnar fyrir tugi eða hundruði milljóna, þá er þetta breytingatal ekkert annað en hjóm eitt. 

Hæstvirtur Fjármála- og Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon,  sagði í ræðu sinni á Alþingi að lokinni setningarræðu Jóhönnu hérna um kvöldið, að nú þyrfti að setja stækkunarglerið á alla möguleika sem nýtst gætu til atvinnusköpunar og hvatti hann landsmenn alla til þess að leggja höfuðið í bleyti og velta fyrir sér spurningunni: „ Hvað get ég gert? “.

Ætli hann svo að draga nýútgefna hvalveiðiheimild til baka og ekki að koma því til leiðar að nýta megi smábátana sem til eru í landinu til atvinnu- og gjaldeyrissköpunar, þá veit ég ekki að hvaða möguleikum hann vill að fólk leiti. Ekki getum við öll bruggað bjór er það?

Ég leyfi mér að fullyrða að engin aðgerð myndi styðja jafn mikið við bakið á almenningi í landinu, ríkissjóði og ímynd Íslands út á við um þessar mundir eins og ef handfæraveiðar smábáta yrðu gefnar frjálsar á ný. Í smábátum á Íslandi eru bundnir miklir fjármunir og við getum öll verið sammála um að á tímum sem þessum höfum við ekki efni á því að láta fjármagn liggja dautt í ónotuðum atvinnutækjum. 

Hér á eftir koma nokkrar staðreyndir sem ýta undir það að handfæraveiðar verði gefnar frjálsar:

- Lög um stjórn fiskveiða (116/2006) standast ekki 1. grein sína að óbreyttu.

- Genginn dómur Mannréttindadómstóls Sameinuðu þjóðanna þess efnis að núgildandi lög um stjórn fiskveiða á Íslandi brjóti á mannréttindum Íslensks almennings.

- Fjölmargar áskoranir einstaklinga, stofnana og félagasamtaka í þessa veru, s.s. stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Landssambands Íslenskra smábátaeigenda og fjölmargra annara.

- Það að handfæraveiðar smábáta eru vistvænar og sjálfbærar og væru þess vegna góð auglýsing fyrir Ísland um allan heim og myndu bæta ímynd okkar sem þjóðar. (Ekki veitir af).

- Frjálsar handfæraveiðar eru ódýr og einföld leið til atvinnu- og gjaldeyrissköpunar, enda má áætla að þrefalt fleiri störf skapist í kringum afla af smábátum heldur en afla stærri skipa.

- Nokkuð er til af smábátum í landinu sem ekki eru í notkun, með frjálsum handfæraveiðum væri hægt að nýta þá fjárfestingu.

- Rannsóknir sýna að fisköflun með handfærum á smábátum er mun hagkvæmari en fiskveiðar annara skipa með öðrum veiðarfærum auk þess sem þær krefjast minni orku og að afli smábáta er þess vegna eftirsóttur um allan heim.

- Veiðar með handfærum raska ekki hafsbotninum eins og veiðar togveiðarfæra og eru þær þess vegna mjög umhverfisvænar.

- Með frjálsum handfæraveiðum öðlast almenningur aðgang að auðlindinni.

- Frjálsar handfæraveiðar myndu styrkja byggð um allt Ísland.

Agnar Ólason (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 01:34

11 identicon

101, ég er ekki allveg sammála þér með að það bryti jafnræðisreglu að gefa handfæraveiðar frjálsar, vegna þess að ef handfæraveiðar yrðu gefnar frjálsar, þá gætu Þorsteinn Már og Guðmundur vinalausi keypt sér trillu, rétt eins og ég og þú, og gert hana út til handfæraveiða.

Svo er ég heldur ekki sammála þér með það að þetta sé ekki í verkahring Steingríms, þetta er jú eitt af brýnustu hagsmunamálum fólksins í landinu. Að vísu dreg ég þá ályktun af nafninu sem þú velur þér, (101) að þú hafir ekki fullan skilning á því en það er önnur saga.

Agnar Ólason (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 01:38

12 identicon

Agnar. Vissulega er þetta í verkahring sjávarútvegsráðherra en ég var að benda á að hann situr í bráðabirgðastjórn og vill þess vegna ekki gera meirháttar breytingar á systeminu.

 Minni hemabyggð hefur blætt út vegna kvótakerfisins og enn er blóðtakan í gangi þegar krókabátar mokveiða og allur afli er settur í gáma og honum ekið í burtu án  þessa að vinnufúsar hendur fái að snerta. 

Þetta er álíka mikið hryðjuverk gagnvart fólki og kvótakerfið sjálft.

101 (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 08:04

13 Smámynd: Þórbergur Torfason

Sæll Sigurjón.

Kvótakerfi á fiskveiðar, í því umhverfi sem við erum í getur aldrei talist mannréttindabrot í þeim skilningi.

Kvótakerfi sem stjórntæki á fullan rétt á sér ef það er í þágu náttúrunnar. Hins vegar er kvótakerfi sem brasktæki náttúrlega óverjandi. Ég fæ ekki séð hvernig Atli Gíslason á að taka á sig misgjörðir síðustu 18 ára í sjávarútvegi.

Þórbergur Torfason, 10.2.2009 kl. 09:32

14 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þorbergur lagarefurinn Atli, viðheldur mannréttindabrotunum með aðgerðarleysi og billegum útúrsnúningum.

Sigurjón Þórðarson, 10.2.2009 kl. 09:38

15 identicon

Það er með ólíkindum hvernig þú tönnlast á meintum mannréttindabrotum VG.

Ég get skilið að þú ert á móti kvótakerfinu, eins og ég, en að gera VG ábyrga fyrir kvótakerfinu og öllu því braski sem átt hefur sér stað í kringum það er náttúrulega út í hött. VG hefur í gegnum árin komið með margvíslegar tillögur varðandi kerfið, en þá hefur alltaf allt orðið vitlaust og þeir sakaðir um að ætla að ræna kvótanum af mönnum ,,sem hafi keypt" hann.

Þessi minnihluta-bráðbirgðastjórn á ekki að mínu viti að gera allt vitlaust í þjóðfélaginu t.d. með því að ákveða að afnema kvótakerfið. Heldur á hún að reyna að standa vörð um fyrirtækin og heimilin í landinu og koma peningamálum þjóðarinnar í réttan farveg.

Eftir næstu kosningar geta svo ,,sigurvegararnir", hverjir sem það verða, tekið þessi mál til endurskoðunar.

Ég er í mörgu sammála þér um kvótamálin, en hvað þig varðar og árásir þínar á Steingrím J. og VG, er það alveg að nálgast sjúklega áráttu eða einhvers konar röskun.

Hvað varðar ,,lagarefinn" Atla Gíslason, eins og þú kallar hann, þá fór hann og fleiri VG þingmenn á fund forseta Alþingis og benti á að neyðarlögin stæðust ekki stjórnarskrána, en á það var ekki hlustað. Þú minnist ekki á það, enda samþykktu ,,þínir menn" þetta umyrðalaust.

Líttu þér nær!

Gústaf Gústafsson (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 11:01

16 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Ég hef lítið vit á umræðu um kvótakerfið en mér líst vel að frjálsar handfæraveiðar. Svo var innlegg Aðalheiðar hér að ofan ansi skondið.

Arinbjörn Kúld, 10.2.2009 kl. 11:28

17 Smámynd: Þórbergur Torfason

Sigurjón, enn og aftur, kvóti er ekki mannréttindabrot.

Framsal, brask, veðsetning og þar fram eftir götum er mannréttindabrot.

Alveg sama hvort kvóti er í fiskveiðum í sjó, laxveiðum í ám, framleiðslu á mjólk eða lambakjöti. Það er ekki verið aðbrjóta nein mannréttindi fyrr en kvótinn er orðinn söluvara.

Hvað viltu að Atli geri? Það er auðvitað hægt að leggja framsalsheimildina af og gefa upp á nýtt með öðrum gleraugum. Það er auðvitað sjónarmið. Atli einn breytir ekki kvótakerfinu sísvona á nokkrum dögum. Allt tal um frjálsar veiðar er gott og gilt en það þarf þá að sýna fram á að eitthvað sé til að veiða.

Sigurjón minn, nafnið mitt er skrifað með ó

Þórbergur Torfason, 10.2.2009 kl. 11:51

18 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þórbergur og Gústaf, ríkisstjórn S og VG sögðust ætla að láta verkin tala og segir í stefnusrká sinni að hún ætli að beita sér fyrir opnu og heiðarlegu samfélagi.

Samt sem áður leggur stjórnin blessun sína yfir áframhaldandi mannréttindabrot gagnvart sjómönnum. 

Fólk er farið að tala um hvað þetta er lélegt hjá Steingrími J og Atla Gíslasyni, en Steingrímur J setti þessa vitleysu af stað með því að samþykkja framsal veiðiheimilda og reynir hvað hann getur til þess að viðhalda vonlausu og óréttlátu kerfi.  Hvers vegna kemur ekki ein tillaga frá þessari stjórn til þess að færa kerfið í skynsemisátt s.s. með því að gefa handfæraveiðar frjálsar?

Sigurjón Þórðarson, 10.2.2009 kl. 12:12

19 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ætli nokkrum detti í hug að Atli Gíslason breyti kvótakerfinu bara sisona einn og óstuddur? Um það snýst þetta mál auðvitað ekki. Aftur á móti hafa allir leyfi til að taka viðhorf hans til málsins til umræðu.

Að halda því fram að núverandi ástand hafi unnið sér allan rétt í tilliti laga jafnt og alls réttlætis er heldur ekki nokkrum manni bannað. Og þeir sem halda því fram að kvótaeigendur séu bara vel að því komnir að spóka sig á sólarströnd á meðan leiguliðar þeirra stritast við að tapa sem allra minnstu við að veiða upp í leiguverðið- þeir eru bara að segja það sem þeim finnst. Það er ekki refsivert. 

Árni Gunnarsson, 10.2.2009 kl. 12:15

20 identicon

Rétt er það Árni, það er öllum frjálst að hafa sínar skoðanir.

Skoðanir manna endurspegla hins vegar þeirra innri manni.

Þeir sem halda því fram að þetta blessaða fiskveiðistjórnunarkerfi, sem við búum við, sé eins og best verður á kosið, hljóta þess vegna annað hvort að vera svona skrítnir, eða þá að þeir eru að fjalla um málefni sem þeir hafa ekki hundsvit á.

Mig langar til þess að (mis)nota aðstöðu mína og benda á nýjan hóp á Smetta-skinnunni (Facebook), Frjálsar handfæraveiðar.

Agnar Ólason (IP-tala skráð) 11.2.2009 kl. 03:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband