Leita í fréttum mbl.is

Sá óréttlætið um leið og hann missti spenann út úr sér

Nýjasti jafnaðarmaður landsins er enginn annar en Sigmundur Ernir Rúnarsson og má búast við því að hann verði ötull baráttumaður barna á Akureyri ef marka má fyrstu fréttir af framboði hans. Það sem mér finnst þó umhugsunarvert er að hann sá fyrst ástæðu til að setja ofan í við eigendur Stöðvar 2 sama dag og hann datt af spenanum sem hann var búinn að mjólka vel og rækilega um árabil. Ég er alls ekki að gera lítið úr vinnuframlagi Sigmundar enda sást vel hverjum hann þjónaði þegar hann gerði upp kostnaðinn við skemmdarverkin í kringum Kryddsíldina á gamlaársdag.

Nú er að vona að börnin á Akureyri njóti krafta hans - þangað til einhver annar býður betur.


mbl.is Sigmundur Ernir í pólitíkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða erindi á HANN í pólitík ?

Laug " í beinni "á gamlársdag ,eins og myndir sýna á blogginu frá þeim skrípaleik .

Nú vantar hann vinnu , eins og rúmlega 13 þús. aðra hér á landi .

Kristín (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 18:09

2 Smámynd: Guðjón Ólafsson

Sæll Sigurjón ætlar þú ekki að skella þér í slaginn í vor og bjóða þig fram í NA kjördæmi ?

Guðjón Ólafsson, 6.2.2009 kl. 18:19

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðjón, það væri gaman ef maður fengi sig lausan úr vinnunni.

Sigurjón Þórðarson, 6.2.2009 kl. 18:39

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég spyr eins og Kristín: Hvaða erindi á hann í pólitík? Hvaða hugsjónum hefur hann þjónað?  Þurfum við fleir sjálfhverfa og sjálfmiðaða framapotara í stjórnmálin? Ég held ekki. Það er þegar offramboð af þeim í Samfylkingunni. Vert að fara að huga að því að skera niður í þeim geira.

Jón Steinar Ragnarsson, 6.2.2009 kl. 18:53

5 Smámynd: Oddur Helgi Halldórsson

Mér sýnist og heyrist að þið þurfið að huga að eiginn flokki og félögum, eða hversu oft getið þið kofnað? Hvernig flokkurinn hagar sér er sennilega ekki heppilegasta leiðin til að fá kjósendur til að trúa á ykkur.

Oddur Helgi Halldórsson, 6.2.2009 kl. 22:14

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er margt til í þessu Oddur Helgi.

Sigurjón Þórðarson, 6.2.2009 kl. 22:36

7 identicon

Hvað hefur blessaður maðurinn unnið til saka?  Og var hann ekki bara að vinna vinnuna sína?  Getur hann ekki unnið við það sem hann kýs?  Hann hefur verið talsmaður barna opinberlega og það er göfugt.

EE elle

EE (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 22:47

8 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

nákvæmlega - nú vantar hann vinnu og svífst einskis

Jón Snæbjörnsson, 6.2.2009 kl. 23:13

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég held að ég verði að vera sammála Oddi Helga. Ef Frj. fl. verður með óbreytta forystu eftir næsta landsfund þá gæti hann orðið eins manns flokkur á Alþingi ef lukkan snerist honum í hag. Og þá kæmi mér ekki á óvart þó "okkar maður" yrði í stjórnarliðinu aðra hverja viku en í stjórnarandstöðu hina vikuna.

En Sigurjón: Nú var ég að frétta það að þessi landsfundur sem ákveðið var af stjórninni að halda í Stykkishólmi sé bara plat. Og þessi 79 hótelherbergi sem pöntuð voru séu bara fórnarkostnaður. En landsfundurinn verði haldinn með leynd í afskekktum beituskúr á Súðavík nú um helgina. Þar verða allir harmonikkuleikarar flokksins og þenji nikkurnar undir fjöldasöng eftir að lesin verða upp úrslit kosninga.

Árni Gunnarsson, 6.2.2009 kl. 23:21

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ægir, ég verð ekki var við annað en að nokkuð góður rómur sé gerður að bloggskrifum okkar Árna. 

Ef satt er Árni með Súðavíkurfundinn þá missi ég af þessum yndislega harmonikkuleik þar sem ég verð á Akureyri á fundi.

Sigurjón Þórðarson, 6.2.2009 kl. 23:45

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Já hann er góður á milli okkar Árna - að minnsta kosti er ég mjög ánægður með frænda minn.

Sigurjón Þórðarson, 7.2.2009 kl. 01:21

12 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Óréttlatur pistill,  Hann missti spenan, vegna skoðanna sinna.  Hann fór of frjálslega með svívirðilega framkomu auðmanna og annarra preláta.

Sigmundur Ernir er algjörlega frábær maður með ríka réttlætiskennd, of hann hefur sýnt að hann er mikill fjölskyldumaður og það veitir ekki af að fá þannig menn´inn í pólitíkina.

Ég var alveg skíthrædd um að hann færi fram fyrir Framsókn, þar hefði þá farið allt of vænn biti í hundskjaft.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 7.2.2009 kl. 03:50

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ingibjörg, ég segi það í sannleika sagt að ég hef ekki orðið var við í gegnum tíðina að Sigmundur Ernir hafi sýnt "svívirðilegri" mikið aðhalda eða hvað þá skuldsetningu íslenskra fyrirtækja s.s.  sjávarútvegsfyriritækja og banka sem er megin orsök hrunsins.

Sigurjón Þórðarson, 7.2.2009 kl. 11:10

14 identicon

Sigmundur Ernir er bara búðingur!  Hann var orðinn alveg steingeldur í allri fréttamennsku, og það er hreinsun að því að fá hann af skjánum.  Þá sjaldan sem hann komst í það að ræða við framámenn stjórnmálaflokkannna, þá gerði hann ekkert annað en að kyssa á þeim afturendann og það fyrir augum alþjóðar.

Trúið mér, af Sigmundi Erni er mikið framboð, en nánast engin eftirspurn!  Hann er bara að leita sér að þægilegri innivinnu, hann á ekkert erindi á þing.

andersen (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 11:38

15 identicon

Þú ert mjög duglegur að taka undir alls konar ófögnuð Sjálfstæðismanna, ertu viss um að þú sért í réttum flokki.

Valsól (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 12:39

16 identicon

Sæll Sigurjón.

Veist þú hort Jóhanna ætlar að festa , orðaleikin um  auðlindir í þjóðareign í stjórnarskránna,eða hvor hún ætlar að færa nýtingar réttinn til FÓLKSINS Í LANDINU,eins og ég heirði hana kalla okku,fyrir ekki laungu síðan.

Julius kristjansson (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 16:27

17 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Júlíus, ég var á fundi fyrr í dag á Akureyri og ég gat ekki betur heyrt á Atla Gíslasyni VG að flokkarnir S og VG væru á harðahlaupum undan því að horfast í augu við að virða álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, því miður.

Sigurjón Þórðarson, 8.2.2009 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband