Leita í fréttum mbl.is

Eiríkur Guðmundsson formaður Frjálslyndra á Austurlandi

Í dag lagði ég leið mína alla leið á Egilsstaði í skemmtilegum félagsskap Guðjóns Arnars Kristjánssonar en þar fór fram stofnfundur Félags frjálslyndra á Austurlandi. Laganeminn Eiríkur Guðmundsson frá Starmýri í Álftafirði var kjörinn formaður. Sjö manna stjórn var kjörin og er mannval þar mikið og ég held að enginn móðgist þótt ég geti sérstaklega verkalýðshetjunnar Stellu Steinþórsdóttur frá Neskaupstað.

Á fundinum var ýmislegt skrafað og rætt, m.a. bar á góma að ekki væri að sjá að gjaldeyri skorti í landi þar sem ráðamenn stæðu fyrir friðunaraðgerðum á þorski, og stefndi allt í að hann fengi brátt sömu stöðu meðal Íslendinga og beljan á Indlandi.

Fréttir bárust af öðrum fundi í dag, fundi Samfylkingarinnar þar sem lausnin á efnahagsvanda þjóðarinnar fælist ekki í að draga björg í bú, heldur leita ásjár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og reka Davíð Oddsson. Ekki bárust heldur fréttir af því að einhverjum þar dytti í hug að spara gjaldeyrinn, s.s. með því að loka nokkrum sendiráðum eða svo.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Til hamingju með það Sigurjón. Gott að fundurinn heppnaðist vel. Óska þér og þeim sem þarna voru til hamingju með það og baráttukveðjur.

Jón Magnússon, 20.10.2008 kl. 00:16

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Hjartanlega til hamingju með nýtt félag á Austurlandi.

Afar ánægjulegt að vita af Stellu í stjórn, óska Eiríki til hamingju.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 20.10.2008 kl. 00:35

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Stella er náttla shnilld...

Steingrímur Helgason, 20.10.2008 kl. 00:43

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Takk takk og sömuleiðis til hamingju en þetta verður án efa lyftistöng fyrir Frjálslynda á Austurlandi en ég fann það fyrlr s.l. kosningar að það var mjög góður jarðvegur fyrir málefni flokksins en það sem á vantaði var flokksstarf,

Sigurjón Þórðarson, 20.10.2008 kl. 10:08

5 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Til hamingju flott hjá ykkur, og gangi ykkur vel.

Grétar Rögnvarsson, 20.10.2008 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband