Leita í fréttum mbl.is

Aðstoðarmenn höfuðpauranna kryfja málin til mergjar

Ég er að horfa á Markaðinn, nýjan þátt á Stöð 2, þar sem fjallað er m.a. um fjármálalíf. Markmiðið er væntanlega að fjalla með gagnrýnum hætti um íslenskt viðskiptalíf. Eftir að hafa horft á hálfan þátt hafa efnistökin gengið þvílíkt yfir mig að ég á varla orð fyrir hneykslun - eða ég er næstum frekar farinn að flissa.

Þátturinn byrjaði með gagnrýnislausum viðtölum við núverandi og fyrrverandi bankastjóra þar sem fátt nýtt kom fram. Í framhaldinu eru málin krufin til mergjar - og hverjir skyldu þá hafa verið í settinu? Páll Magnússon, fyrrverandi aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, sem var í einkavæðingarnefnd sem handvaldi menn til að kaupa bankana, m.a. á forsendum þess að einn kaupandi skyldi vera erlendur kjölfestufjárfestir sem gufaði svo upp á örfáum mánuðum. Svo er Illugi Gunnarsson sem sat og situr í stjórn stjóða Glitnis sem plataði peninga út úr gamla fólkinu sem enduðu sumir hverjir í einkaþotum og lúxussnekkjum og ýmsu öðru bralli. Síðan er Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, sem skrifaði fræga skýrslu fyrir olíufélögin þar sem fullyrt var að samráðssvik þeirra hefðu ekki skaðað neytendur.

Sá sem stjórnaði þessum kór og stjórnar þættinum er enginn annar en Björn Ingi Hrafnsson, fyrrum aðstoðarmaður Halldórs Ásgeirssonar, sem ráðstafaði bönkunum m.a. til aðila sem voru nátengdir forsætisráðherra. Og ekki er ár liðið síðan Björn Ingi Hrafnsson var miðpunkturinn í REI-hneykslinu þar sem allt gekk út á að ráðstafa til útrásarvíkinganna orkueignum almennings með tilheyrandi kaupréttarsamningum og baktjaldamakki.

Þetta er fjölmiðlun fáránleikans og menn geta séð útdrátt úr honum á Stöð tvö kl. 18 í dag. Ég yrði ekki hissa þótt það yrði þokkalega góð mæting á Austurvelli í dag í mótmælaaðgerðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Himmalingur

Ég er mest hræddur um að við ætlum ekki að læra af þeim mistökum sem við höfum þegar gert! Vitleysan heldur bara áfram!

Himmalingur, 18.10.2008 kl. 13:12

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er rosalegt, Illugi mætir eins og fínn maður og lætur líta út fyrir að allt hafi verið í stakasta lagi, en ég tel mig hafa vissu fyrir því að það hafi verið að troða ýmsum vafasömum pappírum inn í peningamarkaðssjóði Glitnis s.s. verðlausum skuldbindingum Stoða (Fl-Group).

Sigurjón Þórðarson, 18.10.2008 kl. 13:26

3 identicon

Nú er ég sammála þér.  Ótrúlegur þáttur.

Guðrún (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 13:39

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég er afar hræddur um að það viðreisnarstarf sem þjóðin bíður eftir verð með álika tjörulykt og þeirri sem olli íkveikjunni.

"Já,Þetta eru nú svona eftirá skýringar," sagði Ingibjörg Sólrún við fréttakonuna sem óskaði svars við spurningunni hvers vegna ekki hefði verið tekið marka á skýrslum erlendra hagspekinga um þá bitru staðreynd að íslenska hagkerfið væri komið í lífshættu ef ekki yrði brugðist tafarlaust við óhóflegri skuldasöfnun útrásarfyrirtækja.

Svona afdráttarlaus höfnun á staðreyndum er líklega eðlileg viðbrögð stjórnmálamanna í ábyrgðarstöðum?  

Árni Gunnarsson, 18.10.2008 kl. 15:29

5 Smámynd: Róbert Tómasson

Halldór er reyndar Ásgrímsson "að því að talið er ".  Ég sá því miður ekki þennan þátt en eftir uptalninguna hjá þér Sigurjón er ég ekki hissa á því að þú skulir hafa flissað, þetta er eins og skreyting sem hefði sómað sér á hvaða drulluköku sem er.  En það er eins og þetta fólk treysti endalaust á það að skammtíma mynni þjóðarinnar sé ekki nema 3 - 4 dagar.

Ég er svolítið hissa á því að þetta fólk skuli þora að mæta hjá Birni Inga í ljósi þess að flestir sem það hafa gert hafa farið með hnífa sett í bakinu út  en þá kemur víst aftur að þessu með skammtíma mynni þjóðarinnar.

Róbert Tómasson, 18.10.2008 kl. 16:21

6 identicon

Mér verður óglatt þegar ég sé smettið á BIH sem þáttastjórnanda um viðskiptamál. Þvílík hneisa. En það er greinilegt að siðblinduliðið sem hefur rænt okkur því litla, sem þessi örþjóð átti af fjármunum, en ekki hætt og ætlar núna að fara að ráðstafa þeim auðlindum, sem einar gætu greitt það sem þjóðin verður nú að borga vítt um heim fyrir þjófnað útrásarglæponanna í öðrum löndum. Bretar hirða af okkur fiskimiðin, sennilega fyrr en nokkur hér gerir sér ljóst, og nú eru mafíóasar úr landi Bússa komnir eins og hrafnar í bráðapestardauða rollu að hirða Landsvirkjun. Svei attan! Og svo er fólk í óða önn að skipta við fyrirtæki þessara fósa, bendi bara á farsímafyrirtækið Nova, sem Kýpverjir Björgúlfur Thor á sem dæmi.

Ellismellur (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 17:49

7 identicon

Sammála,,,,,,,,,,,illa lyktandi,,,þáttur

Res (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 18:19

8 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það á greinilega að halda áfram að skemmta skrattanum, eða hvað...

Sá ekki þáttinn er geri mér grein fyrir því hverju við eigum von frá þáttarstjórnanda. Aðrir greinilega tilbúnir að spila með. Það verður fjör í vetur með alla okkar íslensku þætti í sjónvarpinu, svei mér þá. 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.10.2008 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband