Leita í fréttum mbl.is

Jæja - hver voru skilaboðin?

Það er nokkuð snúið að átta sig á því hvaða skilaboðum Geir Haarde var að koma áleiðis til Íslendinga á blaðamannafundinum nema þá helst að draga til baka fyrri yfirlýsingar um að ætla ekki að tryggja Icesavings reikningana í Bretlandi.

 

 


mbl.is Viðskipti milli landa verða tryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Sigurjón Þórðarson getur þú ekki gert neitt annað en að gangrýna hvert einasta orð forsætisráðherrans undir svona erfiðum kringumstæðum ? Er þetta rétti tíminn ?

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 8.10.2008 kl. 18:38

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Já það er mjög eðlilegt og nauðsynlegt að halda uppi gagnrýnni umræðu.

Í þessu sambandi rétt að hafa í huga að Geir Haarde hefur ekki hirt um að hafa samráð við stjórnarandstöðuna um stöðu mála og að sama skapi hafa skilaboð til þjóðarinnar verið óskýr og illa ígrunduð.

Sigurjón Þórðarson, 8.10.2008 kl. 18:51

3 identicon

Tek undir með Gunnari, alveg ömurleg færsla, 100% snauð af einhverri uppbyggilegri gagnrýni - bara röfli.

Davíð Smári (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 19:35

4 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hann getur ekki tryggt nokkurn skapaðan hlut enda með fallít bú og gjaldmiðil sem hefur í raun fallið um 95% - eftir að hafa sagst vera að vinna í málunum síðustu misserin og lítið annað sagt eða gert, hahahaha.

Baldur Fjölnisson, 8.10.2008 kl. 20:01

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Davíð Smári, það sjónarmið sem þú setur fram hér að ofan er skýrt en að sama skapi ekki mjög vel rökstutt. 

Sigurjón Þórðarson, 8.10.2008 kl. 20:04

6 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Við eigum að snúa saman bökum um skjaldborg um gjörónýtt staff sem mun áfram starfa að því að hámarka tjón okkar með vanhæfni og skemmandi kjaftavaðli út í loftið. Þetta hefur blasað við. Þessir strumpar geta samt einhverra hluta vegna samt haldið úti einhverjum furðulegum sértrúarsöfnuði hér á blogginu en auðvitað laðast það saman sem deilir sameiginlegum gildum, vitsmunastigi og hugmyndafræði.

Baldur Fjölnisson, 8.10.2008 kl. 20:26

7 identicon

 Lýðveldið Ísland og Evrópusambandið  

Hæstvirtur forsætisráðherra Davíð Oddsson fór fyrst fyrir ríkisstjórn 1991 þá í samstarfi með Alþýðuflokknum (Samfylkingin). Formaður Alþýðuflokksins var Jón Baldvin Hannibalsson og jafnframt utanríkisráðherra í þeirri ríkisstjórn. Hún gekk undir nafninu Viðeyjarstjórnin.

Á þeim tíma leiddi Jón Baldvin þá vinnu að koma í höfn samningi um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og við þau tímamót þegar skrifað var undir samninginn lét ríkisstjórnin í það skína að við Íslendingar hefðum fengið nánast allt fyrir ekkert og velmegun myndi aukast verulega þegar fram liðu stundir.

Andstæðingar aðildar vildu láta reyna á tvíhliða viðræður við Evrópusambandið (ESB) um samning sem yrði svo hægt að auka að efni til eftir atvikum. Þeir sem voru á móti EES samningnum töldu hann ekki verða til góðs því með honum yrðu tekin tvö skref af þremur inn í ESB sem hefði í för með sér brot á fullveldisákvæðum íslensku stjórnarskrárinnar.

Annað ákvæði í EES- samningnum um frjálst fjármangsflæði milli aðildarríkjanna skipti sköpum og fullveldissinnar treystu því ekki að okkar litla hagkerfi stæðist ágang erlends fjármagns og myndi því hreinlega sogast inn í hringiðu hagkerfis Evrópusambandslandanna. Þetta myndi leiða til þess að Íslendingar misstu efnahagslegt sjálfstæði sitt í framtíðinni.

Eins og sjá má á þjóðmálaumræðunni í dag hafa erlendar skuldir landsmanna vaxið langt umfram getu okkar litla hagkerfis eftir inngönguna í EES og hafa þær aldrei verið meiri. Góðæriskenningin á sínar rætur frá þessari þróun, skuldir undirstaðan þó þeirra væri aldrei getið í sjálfum málflutningnum þ.e.a.s. þeirra sem studdu EES samninginn. Sannarlega hafa þær verkað sem driffjöður á lífæð hagkerfisins hér á landi, já, hér er verið að tala um skuldir, sem jafnframt hafa verið stór þáttur stöðugleikans, svokallaða.

En hvar er hin raunverulega framleiðni? Uppsveifluna í efnahagslífinu má rekja að mestu leyti til uppbyggingar á Stór- Reykjavíkursvæðinu sem varð til vegna landsbyggðarflóttans sem hefur verið mikill síðustu tvo áratugina. Hornsteinn þessarar þróunar, (landsbyggðarflóttinn annars vegar og fjármagnsstreymið til uppbyggingar hér syðra hins vegar) var lagður með kvótabraskkerfinu sem tryggt var svo í sessi með aðildinni að EES samningnum, áratug síðar. Þetta gerði hinum fáu útvöldu kleift að fjármagna mestu búsyfjan af mannavöldum í sögu þjóðarinnar.

Alls kyns spákaupmennska hefur rutt sér til rúms síðustu árin þar sem arður er gerður úr væntingum og greiddur út í milljörðum til réttra aðila. Þetta hefur verið að gerast í íslensku atvinnulífi og nú síðast í sjávarútveginum á Akureyri, svo tekið sé dæmi. Sameiningarferli íslenskra fyrirtækja undir nafninu ,,Hagræðing” er eingöngu til þess fallið að fyrirtækin geti haldið sjó á meðan þau eru að ná þeim stærðum á markaðinum að þau verði góður fjárfestingarkostur fyrir stóru erlendu fjárfestana sem bíða handan við hornið.

Lykilinn til að ná þessum markmiðum endanlega er innganga okkar í ESB svo að erlendir fjárfestar geti eignast hér áhrif og völd í framtíðinni í okkar annars auðuga landi. Með inngöngunni myndu hinir fáu útvöldu áskotnast mikið fé við að selja auðlindir íslensku þjóðarinar ásamt réttindum til lands og sjávar sem þeir hafa verið að söðla undir sig síðustu misserin geng vilja þorra landsmanna.

Íslenskum útflutningsfyrirtækum er fyrirmunað að stunda sjálfbæran og heilbrigðan atvinnurekstur svo sem í sjávarútvegi og iðnaði. Þau heyja allt að því vonlausa baráttu vegna kvótabraksins og hátt gengis íslensku krónunnar en í staðinn hefur rekstrargrundvelli þeirra verið haldið gangandi með stöðugu flæði af erlendu lánsfé inn í hagkerfið. Gjaldþrot hafa verðið með mesta móti á síðasta ári og sér ekki fyrir endann á þeirri óheilla þróun.

Samtök iðnaðarins hafa staðfest flótta iðnfyrirtækja frá Íslandi. Þreytumerki hafa líka komið fram hjá fyrirtækjum sem framleiða gjaldeyrissparandi vörur fyrir innanlandsmarkað og eru í samkeppni við innfluttar vörur sem eru ódýrari en ella vegna gjaldeyrisútsölunnar. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Sveinn Hannesson vísaði til þeirra staðreynda í Viðskiptablaði Mbl. 26. febrúar s.l. þegar hann sagði að mörg fyrirtæki væru í rekstri þrátt fyrir að í raun væru þau löngu orðin gjaldþrota. Þar kom einnig fram að Samtök iðnaðarins teldu að full aðild að ESB og upptaka evru væri besta vörnin til að bæta markaðsstöðu íslenskra útflutningsfyrirtækja.

Hér ber að hafa í huga þegar Íslendingar gerðust aðilar að EES samningnum töldu sömu aðilar að stigið hefði verið eitt stærsta skref til sóknar fyrir atvinnulífið hér á landi. Stundum verður manni á að þekkja ekki muninn á vörn og sókn þegar kemur að framsetningu markaðsmála.

Matarbúr landsmanna, íslenski landbúnaðurinn, sem er einn stærsti öryggisþáttur í almannavörnum þjóðarinar, vegna legu landsins sem eyríki, er í hættu vegna áhrifa frá Evrópusamrunnanum. Hörðustu stuðningsmenn aðildar að ESB er að finna í Samfylkingunni og vilja þeir hefja aðildarviðræður sem fyrst. Framsóknarflokkurinn er líklegastur ásamt Samfylkingunni að vera í þeirri ríkisstjórn sem myndi samþykkja inngöngu okkar inn í Evrópusambandið.

Hæstvirtur utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sem settist í stól fyrirrennara síns Jón Baldvins hefur verið að undirbúa jarðveginn fyrir seinni áfangann að Ísland geti tekið þriðja skrefið inn í ESB. Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála í umræðunni um ESB hér á landi eftir að verðandi forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson tekur við starfanum 15 september n.k úr hendi núverandi hæstvirts forsætisráðherra Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

Grein þessi birtist í Morgunblaðinu sjómannadaginn 6.júni 2004

P.S. Afhverju gat ég varað við þessu að svona færi fyrir rúmum 4 árum en ekki allir hinir sem þó áttu að passa hagmunni ríkisins??

B.N. (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 20:29

8 identicon

Neyðarlögin segja að eignir á innlánsreikningum séu forgangskröfur.

Þegar búið verður að gera upp eignir bankanna úti ætti (og það skulum við svo sannarlega vona) að fást upp í þær kröfur - ef ekki þurfum við að borga það sem uppá vantar, upp að því marki sem innlána trygging segir að sjálfsögðu.  Hvað héldu menn eiginlega að ætti að gera við þá peninga sem fengjust fyrir eignirnar úti ?

Aðrar kröfur á hinsvegar ekki að greiða ... nema kannski ef það gengur það vel að selja eignir úti að það fáist upp í þær einhverjar prósentur. 

Ef menn hafa túlkað orð Davíðs á annan máta, þá hafa þeir hinir sömu ekki kynnt sér "neyðarlögin". Ef menn hafa síðan ekki skilið það sem Geir sagði í dag ... þá er spurning um að taka bananann úr eyrunum ;o)

Jón (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 22:10

9 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Geir og Björgvin sögðu það á kurteislegan hátt að Davíð hefði farið með fleipur. Allur dagurinn hefði farið í það að leiðrétta þau orð og koma í veg fyrir styrjöld við Stóra-Bretland. Davíð er á einkaflippi í Kastljósi til að skemmta sjálfum sér. Vandamálið er að það er á okkar kostnað. Geir skuldar Dabba stólinn og þar við situr. Aftur á móti upplifi ég Geir svo grandvarann mann að Davíð sé á förum fyrr eða síðar.

Gunnar Skúli Ármannsson, 8.10.2008 kl. 22:49

10 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Krónan hrynur niður í ekki neitt á meðan við ákveðum viðeigandi vistunarúrræði þessarra vitleysinga.

Baldur Fjölnisson, 8.10.2008 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband