Leita í fréttum mbl.is

Össur - maður milljarðanna en lítilla verka

Össur Skarphéðinsson er maður milljarðanna. Í gegnum árin hefur hann séð milljarðana í hillingum, fyrst í fiskeldinu og eftir að hann varð ráðherra hefur hann séð þá á færibandi. Það voru REI-milljarðarnir sem áttu að streyma inn í landið í gegnum gullverkefni í Afríku og Asíu. Svo voru milljarðar í olíuleit, milljarðar í vatnsútflutningi, ekki má gleyma milljörðunum í Hvalárvirkjun og núna síðast sér hann eflaust milljarðavon í að fá Kristin H. Gunnarsson inn í þingflokk Samfylkingarinnar. 


mbl.is Össur býður Kristin H. velkominn í Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég held að Kristinn ætti að taka boðinu umsvifalaust. Þetta er sómaboð og Kristinn yrði Samfylkingunni mikill fengur.

Árni Gunnarsson, 17.9.2008 kl. 18:22

2 Smámynd: Katrín

Lengi skal manninn reyna Sigurjón og nú er fullreynt með þig að mínu áliti.  Mundu að ekki eru allir viðhlæjendur vinir og vinur er sá er til vamms segir.  Nú væri gott fyrir þig og framtíð þína í stjórnmálum að lesa ævintýrið um nýju föt keisarans og settu sjálfan þig í hlutverk keisarans. 

Katrín, 17.9.2008 kl. 18:52

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég þakka kærlega þessa ábendingu Katrín og hver veit nema að ég renni aftur í gegnum góða bók.

Sigurjón Þórðarson, 17.9.2008 kl. 18:57

4 identicon

Ég heyrði á einhverju kaffistofuspjalli að Kristinn H. Gunnarsson ætlaði sér fram í Suðvesturkjördæmi eða í Reykjavíkurkjördæmi suður.

 

Það væri hlýrra og sólríkara þar.

 

Og nú er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að rugla alla skákina, með því að reyna gera Ólaf F., fyrrverandi borgarstjóra í Reykjavík, óvirkan, sem ekki tókst að því er virðist.

 

Hrókur og riddari geta oft verið góðir saman í endatafli.

Þorsteinn H. Gunnarsson (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 19:09

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Já Katrín, við hefðum betur hlýtt á ritara flokksins þegar hún hefur endalaust verið að reyna að leiða sundruð öfl að sáttaborði. Að ég nú tali ekki um framkvæmdarstjórann sem hefur verið óþreytandi við að flytja sáttarorðin eins og við vitum.

Þvílíkt sem þið hafið tekið hlutverk ykkar alvarlega!  

Árni Gunnarsson, 17.9.2008 kl. 19:56

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Össur er vindhani, sem er hræddur við Frjálslyndaflokkinn.

Sigurgeir Jónsson, 17.9.2008 kl. 19:59

7 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Það er ljóst að tíkallamæringnum össuri vantar ræstitækni á krataheimilið. Held að Kristinn sé alveg tilvalinn :)

Jóhann Kristjánsson, 17.9.2008 kl. 20:12

8 identicon

Og svo hefur Ómar Ragnarsson verið á ferðalagi um landið eins og Þórður kakali forðum daga og setið á hljóðskrafi við fólk.

 

Verður Ómar biskupinn í þessu endatafli? Er  hann ekki ígildi 2 þingmanna ef vel er á haldið?

 

Hver hreppir jaðarþingmennina í næstu alþingiskosningunum, þ.e., þá sem komast síðast inn á hlutfallstölu?

Þorsteinn H. Gunnarsson (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 20:28

9 Smámynd: Þóra Guðmundsdóttir

Ég segi nú bara verði Össuri og öllu hans fólki að góðu. Ég er líka jafn viss um að samflokksfólkið hans kunni honum litlar þakkir.

Þóra Guðmundsdóttir, 17.9.2008 kl. 21:36

10 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Hún er nú ansi auðlesanleg og gegnsæ þessi leikflétta ykkar Bakkabræðra Sigurjón. Nú standið þið undir nafni. Er samt undrandi á því að þið skulið ekki vera með flóknari strategiu til að koma sitjandi formanni frá völdum. Segir þó allt sem segja þarf.

Hvað heldur þú að líði langur tími þar til Jón Magnússon reynir að henda þér út fyrir borð? Þessi hallarbylting er einungis eitt af skrefum hans í átt að formennsku innan flokksins. Magnús fær að fljóta með Viðar fær að boffsa hér og þar svona fyrsta kastið en hvað svo?

Þér gengur greinilega afar illa með að fóta þig eftir að hafa misst þingsætið, það get ég svo sem skilið per se. Átti von á vandaðri vinnubrögðum og heilindum af þinni hálfu þó, ekki síst gagnvart Guðjóni Arnari og kjósendum flokksins. FF rúmar greinilega ekki alla.

Það kæmi mér ekki á óvart að þú munir sitja uppi með sárt ennið þegar upp er staðið eftir tryggð þína við Jón. Búinn í raun að lýsa yfir vantrausti á sitjandi formann og hans arm innan flokksins. Hvað ef hallarbyltingin mistekst? Búin að henda Margréti og stofnanda flokksins út, síðan formanni og stuðningsmönnum hans.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 17.9.2008 kl. 22:34

11 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Sigurjón, Kristinn H. er milljarða virði.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 17.9.2008 kl. 23:12

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sæl Guðrún, ég sé að þér er umhugað um mína velferð og ég þakka þér fyrir fyrir þá hugulsemi.  Til þess að létta einhverjum áhyggjum af þér, þá er rétt að taka það fram að mér bæði líður og heilsast vel.

Það er mikill misskilningur að ég, Maggi og Jón höfum staðið einhverju meiriháttar plotti í mörg ár sem gangi út á það að koma Guðjóni Arnari frá og mér að og síðan verði lokahnykkurinn að Jón Magg taki við formennsku í Frjálslynda flokknum.

Þetta er það sem kallast della og enn meiri della er að Kristinn H. Gunnarsson bróðir þinn sé verndari formannsins, en það er af og frá. Ég tel miklu frekar að hann hafi bakað formanninum mikil vandræði með því að leita eftir ágreiningi við flokksfélaga sína.  Ég vona svo sannarlega að Kristinn H. Gunnarsson breyti um takt og fari að beina spjótum sínum í aðrar áttir s.s. að vonlausri ríkisstjórn og kvótakerfinu í sjávarútvegi.  Kristinn hefur mikla reynslu og hefur margt til brunns að bera.  Ef Kristinn beinir kröftum sínum af alefli fyrir málefnum Frjálslynda flokksins þá er ég fyrsti maður til að fyrirgefa honum.

Ég vil að lokum leiðrétta þann misskilning ég og fleiri séum frá bænum Bakka hér í Skagafirði en svo er ekki en þaðan kemur stór og merk sómafjölskylda.

Sigurjón Þórðarson, 17.9.2008 kl. 23:26

13 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég vill að Halla Rut takið við sem formaður FF og ef Jón Magnússon kemst þangað þá segi ég bless.

Sævar Einarsson, 17.9.2008 kl. 23:34

14 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Hvers konar ágreiningur er einungis verkefni til að leysa, og hafi menn ekki vitað það áður að það er mikið að missa mann fyrir borð þá ættu menn að vita það nú, alveg sama hvaða nafni sá þingmaður nefnist eða í hvaða kjördæmi sem sá hinn sami situr.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.9.2008 kl. 00:33

15 identicon

Það er ótrúlegt að sjá hvernig lykilmenn í FF bregðast við málflutningi Kristins H Gunnarssonar, þegar hann vil stemma stigu við útlendingahatri. Hann boðar mannúðleg sjónarmið og fjöldi flokksmanna FF verður úthverfur.

Ef eitthvert vit væri í flokksmönnum myndur þeir gera Kristinn að formanni flokksins þegar Guðjón Arnar stígur úr stólnum. HInn baneitraði Jón Magnússon er langt kominn með að ganga frá flokknum, speilar með einfeldingana, eins og til dæmis Sigurjón.

Að lokum vil ég segja þér Sigurjón að það eru mjög illa gerðir menn, mjög illa, sem höfða til lægstu hvata með ræktun haturs gegn útlendu fólki. Þetta er sami áróðurinn og notaður var í Þriðja ríkinu og allskyns smámenni með vanmektarkend og litlar gáfur heilluðust af. Sé á þessum Viðar að hér er eins fólk að heillast. Þú, Viðar þessi og fleiri slíkir.

Þetta er ógeðfellt og veldur djúpum vonbrigðum.

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 00:37

16 identicon

Ég er ósammála Guðmundi. Ég er líka alveg sannfærð um að hann veit ekki hvað hann segir ef hann heldur að einhver sé vondur við Kristinn. Kristinn sér sjálfur um sínar óvinsældir. Hann hagar sér eins og púkinn á fjósbitanum og nærist þegar hann getur hakkað aðra í sig, því það kann Kristinn vel.

Svala Guð (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 00:43

17 Smámynd: Árni Gunnarsson

Varstu ekki að ávarpa Katrínu, Sigurjón? Nefndir Guðrúnu.

En það er klókt af vaktmönnum Kristins H. að reyna að koma þessum innaflokksdeilum og óróa yfir á Jón Magnússon. Jón er sá eini af þingmönnum (vinnumönnum) flokksins sem hefur talið sig hafa þeim skyldum að gegna að vera innan um sín flokkssystkini og taka þátt í félagsstörfunum. Þar hef ég marga fundina setið með honum og ekki orðið var við óþreyju til aukinna valda innan flokksins. Aftur á móti hefur hann ekki leynt vonbrigðum með þann skort á samstöðu og þá gjá sem myndast hefur milli grasrótarinnar og þeirra sem hafa kosið að starfa í einkaklúbbnum. En Jón virðist liggja afar vel við höggi þeirra utanflokksmanna sem óska flokknum tortimingar. Þeir hafa ákveðið að sameinast um að fylkja sér gegn honum og ljúga upp því sem hentar málstaðnum. Jón hefur bæði vitsmuni og heilindi sem nýtast honum til að horfast í augu við hvern þann sem hann þarf að fást við. Margur mætti öfunda hann af því einu þó ekki kæmi annað til.  Oft hef ég verið á annari skoðun en hann og það er okkur báðum ljóst. Það hefur þó ekki orðið til þess að fjarlægja okkur hvorn frá öðrum og hindra að við sameinuðumst við meginefni flokksbaráttunnar.

Árni Gunnarsson, 18.9.2008 kl. 00:45

18 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Guðmundur.

Vísa þessum málflutningi þínum hér alfarið á bug.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 18.9.2008 kl. 01:00

19 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekki vera að skamma hann Guðmund bjálfann. Þetta er nú bara einfeldningur og að því getur hann ekkert gert. Það hefur einhver sagt honum þetta og hann trúir því blessaður maðurinn.

Okkur frjálslyndum er alls ekki neitt í nöp við einfeldninga fremur en útlendinga. Hitt er ljóst að báðir hóparnir eru orðnir nógu stórir svona í bili því við þurfum að geta rækt skyldur okkar við þetta fólk.

Árni Gunnarsson, 18.9.2008 kl. 09:24

20 identicon

Hverjum er ekki skítsama um FF??

Eiríkur (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband