Leita í fréttum mbl.is

Göfugt verkefni hjá ferðamálastjóra

Fátt er mikilvægara í ferðaþjónustu en að fólk geti létt á sér. Fín veitingahús geta fallið um marga klassa ef þessir hlutir eru ekki í lagi. Það kemur þó nokkuð á óvart að nýr ferðamálastjóri skuli fela fararstjórum þetta mikilvæga og göfuga verkefni. Ég hefði talið nærtækara að láta Umhverfisstofnun meta ástandið sem hefur með málaflokkinn að gera.

Þessi aðferð gæti þó kannski allt eins nýst til þess að þeir sem sækja okkur heim komist í notaleg náðhús.

http://www.noveltp.com/gallery/


mbl.is Skrásetja klósettferðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Mér finnst þetta bara hel.... skítt, get ekki séð mikinn tilgang með þessu.  Hingað til hefur mér ekki mikið hafa komið frá þessum ágæta ferðamálastjóra, sem að sögn Iðnaðarráðherra, var svo miklum kostum búin að heimsbyggðin hafði bara ekki kynnst öðru eins.  Voru kostirnir ekki aðrir en þeir, þegar upp var staðið, að tilheyra Samfylkingunni?

Jóhann Elíasson, 24.7.2008 kl. 21:25

2 identicon

fruss.....

alva (IP-tala skráð) 24.7.2008 kl. 23:48

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Það er ekki öll vitleysan eins heldur aðeins mismunandi, sé ekki betur en verulega sé farið að sverfa að ferðaþjónustunni varðandi það atriði að fækkað hefur svo mikið á landsbyggðinni að hvers konar utanumhald atriða eins og almenningsalerna hefur látið á sjá.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.7.2008 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband