Leita í fréttum mbl.is

Ingibjörg Sólrún vill eiga eðlileg samskipti við þá sem grýta

Þegar ég las þessa sorglegu frétt, að átta konur og einn karlmaður biðu þess að verða grýtt til bana í Íran, kom upp í huga mér sú yfirlýsing utanríkisráðherra okkar að hún teldi rétt að hafa eðlileg samskipti við Íran. Hún leggur sem kunnugt er mikið upp úr því að fá sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og virðist vera tilbúin að snapa atkvæði hjá hverjum sem er og fyrir hvað sem er. Hver man ekki eftir yfirlýsingunni um að hún styddi stefnuna um eitt Kína þegar málefni mannréttindabrota í Tíbet bar á góma?

Í þessu ljósi er engin furða að Ingibjörg Sólrún skuli senda lögregluna á smábátasjómenn þótt mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna sé búin að gefa íslenskum stjórnvöldum tilmæli um að greiða þeim bætur.


mbl.is Níu manns bíða þess að vera grýtt til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

við erum í stjórnmálasamvbandi við ríki sem pyntar fanga.. fangelsar börn niður í 12 ára aldurinn og bíður síðan þar til viðkomandi börn eru orðin 18 ára áður en þau eru tekin af lífi.. hvort er betra að deyja grýttur, hengdur eða brenndur af rafmagni ? 

Óskar Þorkelsson, 20.7.2008 kl. 22:53

2 identicon

Óskar, ertu að leggja til að segjum okkur úr stjórnmálasambandi við Bandaríkin?

Hörður (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 23:18

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Nei Hörður.. ég er bara benda greinarhöfundi á að Iran er ekki versti fanturinn í hverfinu... 

Óskar Þorkelsson, 20.7.2008 kl. 23:26

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég tek undir með Óskari að mannréttindamál í BNA er langt frá því að vera hafin yfir gagnrýni þó svo ástand mála þar séu ekki sambærileg við ógnarríkið Íran sem fótumtreður mannréttindi kvenna, samkynhneigðra og Bahaía svo eitthvað sé nefnt.

Það er óneitanlega furðulegt að Ingibjörg Sólrún skuli leggja upp úr því að eiga náin samskipti við stjórnvöld í Íran og senda þangað æðsta embættimann sinn - ríkis sem grýtir vændiskonur.

Sigurjón Þórðarson, 20.7.2008 kl. 23:53

5 identicon

Á Íslandi er fólk, börn tekin af lífi með einelti mörg á hverju ári. 

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 23:57

6 identicon

Ég er alveg hætt að skilja hana Ingibjörgu S'olrúnu Gísladóttur!!

alva (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góður pistill hjá þér, Sigurjón, og ekki sízt að hafa þetta líka með um Tíbet-(ó)stefnu ISG!

Óskar, engir þessara írönsku níumenninga eru sakaðir um manndráp, ólíkt Kanadamanninum múslimska, sem talinn er hafa banað Bandaríkjamanni með handsprengju, þegar hann var 15 ára (ekki 12 ára); þar að auki veit enginn, hvort hann verði dæmdur til dauða.

Jón Valur Jensson, 21.7.2008 kl. 00:00

8 Smámynd: Han Solo

Er það ekki eina leiðin til þróunar og breytinga að vera í sambandi við óvininn/eða þá sem þú vilt hafa áhrif á til batnaðar. Haldiði að með því að loka á öll sambönd sé hægt að koma skilaboðum til leiðar að svona refsiaðferðir stríði gegn öllum siðfræðilegum rökum?

USA er ekki skömminni skárri t.d. hvað varðar Guantamo-fangabúðirnar ofl.

Nei, ef þú vilt hafa áhrif á svona verður þú að vera í samskiptum við þessi ríki. Þögn er sama og samþykki.

Kv. Hanna Arnórsdóttir

Han Solo, 21.7.2008 kl. 00:02

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég veit ekkert hvað þú ert að tala um jón Valur.. 

Óskar Þorkelsson, 21.7.2008 kl. 00:06

10 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Er ekki full langt gengið að kenna kerlingunni um þetta, er ekki hugsanlegt að hún segi þeim einn góðan veðurdag að maður geri ekki svona lagað.

En samt hef ég meir áhyggjur hvernig við fórum með þennan Egifta sem var að ferðast um landið og var meðhöndlaður sem stórglæpamaður, en hann var að selja listaverk sem eru ekki á nokkurn hatt tollskyld.

Ég velti því líka fyrir mér hvort hann hafi fengið réttargæslu mann og ef svo er var réttargæslumaðurinn löglærður.

Lítum okkur nær og högum okkur ekki eins og tíðkaðist á tímum þriðja ríkisins.

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 21.7.2008 kl. 00:06

11 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þetta var nú einu sinni bara kallað að selja sig.

Víðir Benediktsson, 21.7.2008 kl. 00:16

12 identicon

Hvort er betra að deyja grýttur, hengdur, brenndur af rafmagni og eða með einelti eins og gert er hér á landi ? 

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 00:20

13 Smámynd: Sævar Einarsson

Þetta er það sem koma skal hingað, fyrst var það gasið, svo byssurnar og svo verður lögum breitt og fólkið dæmt og grýtt til dauða, bravó ... smá kaldhæðni svona rétt fyrir svefnin, ég er búinn að vera að svara einu bloggi eftir bestu getu hérna í kvöld, það er ekki að skila árangri enda sumt fólkið þarna að misstíga sig í vitsmunum.

Sævar Einarsson, 21.7.2008 kl. 02:26

14 identicon

Fögnum Fjölmenningunni!

LS.

LS (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 09:45

15 identicon

GRÝTING TIL DAUÐA FYRIR HÓRDÓM.

Ein kona enn í blómagarði Múhameðs spámanns, dæmd til dauða fyrir hórdóm.

(Konum sem er nauðgað eru einnig dæmdar fyrir hórdóm, og dæmdar til dauða.)

(Samkynhneigð telst hórdómur samkv. Múhameðstrú),

Múhameðstrú kúgar konur.

Sent af Lily Mazahery Mánudaginn 3 júlí 2006.

Samkvæmt AdnkronosInternational ( AKI fréttastofan), þá var önnur Írönsk kona dæmd til dauða með grýtingu, 29 júní , 2006.

Dómstóll í Norðvestur Íran í borginni Urmia dæmdi Kúrdiska konu, Malak Ghorbany, seka um hórdóm. Samkvæmt hegningarlögum Írans, þá er orðið “hórdómur” notað til að lýsa öllum kyntengdum athöfnum, milli manns og konu , sem ekki eru gift.(eða samkynhneigðra) Hórdómsglæpurinn er einnig notaður í þeim tilfellum, sem stúlka er dæmd fyrir að hafa framið ,,gerning sem er ósamræmanlegur skírlífinu”, sem innifelur í sér tilfelli þegar stúlku er nauðgað. “Dauðarefsing gildir fyrir hórdóm”.

Við fullnægingu dómsins, þá eru hendur konunnar bundnar fyrir aftan bak hennar, og síðan er hún umvafin líni frá toppi til tár. Henni er síðan komið fyrir sitjandi í holu. Holan er síðan fyllt upp með jarðveg að brjósti og troðið meðfram. Þegar hér er komið þá er meðlimum samfélagsins, boðin að myrða hana með því að grýta hana. Til að tryggja að hin dæmda kona fái hámarks kvöl og píningu, þá hefur Íranska klerkastjórnin lögfest stærð steinanna, sem nota skal í þessari villimannlegu opinberu aftöku. Samkvæmt lögunum mega steinarnir ekki vera of smáir, svo að dauði hljótist ekki af, eða of stórir svo að dauðinn náði hina dauðadæmdu of fljótt.

Mannréttindanefnd í Íranska Kurdistan hefur opinberað yfirlýsingu til bjargar Malak Ghorbani og ég er nú að vinna með ýmsum samtökum og einstaklingum til að bjarga lífi Malak og til að afla meiri vitneskju um málsatvik hennar.. Ég væri ákaflega þaklát fyrir sérhverjar þær upplýsingar sem varða þetta mál, á hvaða tungumáli sem er.

Nýjustu upplýsingar:

Tildrög dómsins voru þessi: Abu Bakr Ghorbai, eiginmaður Malak Ghorbany og bróðir hennar Múhammeð Daneshar myrtu meintan elskhuga hennar.

Dómur: Hún skyldi grýtt til bana samkv. Hegningarlögum Írans, en morðingjarnir (karlmenn) fengu aðeins 6 ára dóm.

Nú skulum við líta á orð spámannsins Múhameðs, hins miskunnsama og sáttfúsa varðandi grýtingu fólks til dauða.

Bindi 2, Bók 23, Númer 413: Frásögn Abdullah bin Umar:

Hópur fólks færði spámanninum, mann og konu sem höfðu framið “hórdóm”. Hann skipaði svo fyrir að bæði skildu grýtt til bana, nálægt fórnarstaðnum, þar sem greftrunarbænir fóru fram við hliðina á Moskunni.

(Athugið að hórdómur í Múhameðstrú getur verið: framhjáhald og kynmök samkynhneigðra.)

Hvernig getum við leyft Múhameðstrúarmönnum (Múslimum) sem trúa slíkum villimannasiðum (Sharia) að búa meðal okkar

Ofangreint er á upplýsingaveitunni www.news.faithfreedom.org.

Sjá HEIÐURSMORÐ OG STAÐA KVENNA Í ÍSLAM á þessari slóð:

http://hermdarverk.blogcentral.is/blog/2008/4/21/heidursmord-og-stada-kvenna-i-islam/

 

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 10:51

16 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Þetta er nú landið sem Margrét Sverrisdóttir "varaformaður Íslandshreyfingarinnar" og "formaður Kvenréttindafélags Íslands" fór til og "heillaðist af menningu þess" eins og hún skrifaði í grein sem hún skrifaði og birtist í 24 stundum þann 4. júlí síðastliðinn.

Varðandi stöðu kvenna í Íran þótti henni merkilegast að konur væru látnar fara inn að aftan í strætisvagna á meðan karlarnir færu inn að framan. Einnig þótti henni skrýtið að sjá að konurnar væru sveipaðar svörtum kuflum frá toppi til táar í þessu sólríka landi.

En sjálfsagt hefur hún náttúrulega skilið að þetta væri allt í nafni kvenfrelsis, jafnræðis og mannréttinda.

Enda sett hún sjálf upp slæðuna.

Magnús Þór Hafsteinsson, 21.7.2008 kl. 11:15

17 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Rétt Sigurjón...hætum að hafa samskipti við svona ríki...Bandaríkin aflífa með eitursprautu og pynta 15 ára í Guantanamo...Íran grýtir...Arabía handheggur og grýtir... Írak hengir... eigum við að halda áfram...... Ísrael pyntir og drepur ... og skýtur varnarlausa fanga..... sammála...lýsum því yfir að við eigum ekki í samskiptum við svona ríki og klárum málið...leggjum það til formlega að þau verði rekin úr Sameinuðu þjóðunum.

Jón Ingi Cæsarsson, 21.7.2008 kl. 11:17

18 Smámynd: Le Betiz

Blessaður vertu ekki með þetta! Hvað getur Ingibjörg gert að þessu? Hún vissi ekki hvað dagurinn bar í skauti sér.

Le Betiz, 21.7.2008 kl. 11:26

19 identicon

Ingibjörg Sólrún er nú varla að frétta af því fyrst núna að slíkt framferði viðgangist í Íran. Hún hlýtur líka að hafa heyrt því fleygt að grunur leiki á að Bandaríkjamenn séu ekki einungis búnir að endurskilgreina pyntingar, heldur að þeim sé líka beitt. Við verðum hinsvegar að athuga að manneskjan er utanríkisráðherra landins og hefur því ekki lengur neina hagsmuni af því að rífa kjaft. 

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 12:15

20 identicon

Við skulum reyna að gæta smá sanngirnis.  Ég efa stórlega að Ingibjörg Sólrún sé stuðningskona slíkra ómannúðlegra refsinga.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 13:09

21 identicon

Um þetta er bara eitt að segja. Af vinahópnum skaltu þekkja þau.

Jon Mag (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 13:23

22 identicon

Mig langar að spyrja þá sem leggja Bandaríkin að jöfnu við Íran einnar spurningar.

 Af hverju er fólksflótti frá Íran til Bandaríkjanna en ekki frá Bandaríkjunum til Írans?

marco (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 13:49

23 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég er svo sem alveg sammála ykkur að ástandið í Íran er ekki til fyrirmyndar.

Þið megið samt ekki gleyma að við getum ekki algjörlega einangrað okkur frá umheiminum og hætt algjörlega að hafa samband við þau ríki, þar sem við erum ósátt við stjórnarfarið.

Hlutirnir hafa nú smám saman verið að lagast. Austur-Evrópa frjáls, Rússland því sem næst frjálst, margt fólk farið að hafa það aðeins skárra í Kína og víða annarsstaðar í Asíu.

Hvað hefur gerst í þeim ríkjum, sem við höfum ekki verið í neinum samskiptum við, t.d. Kúpa og Norður-Kórea? Nákvæmlega ekkert, engar efnahagslegar framfarir fyrir þjóðir þessara ríkja og einræðisherrarnir eða réttara sagt "einræðisfjölskyldurnar" sitja enn sem fastast.

Þetta skildu Þjóðverjar mjög vel og einn frægasti stjórnmálamaður Þýskra sósíaldemókrata, Egon Bahr, setti fram stefnu, sem Þýskalandi hefur fylgt æ síðan „Breytingar með nálgun - Þ. Wandel durch Annäherung“. Þessari stefnu beitti Sambandslýðveldið Þýskaland í samskiptum sínum við Þýska alþýðulýðveldið allt til endaloka þess 3. október 1990.

Þó má þó segja að það hafi verið hin harða óeftirgefanlega stefna Ronalds Reagan og vopnakapphlaupið, sem henni því miður fylgdi, sem setti Sovétríkin á hausinn og batt þannig enda á Kalda stríðið og leysti þjóðir Austursins undan ógnarstjórn kommúnista.

Það virðist því vera tvær leiðir færar til að fást við ógnarstjórnir. Önnur er að veikja stjórnirnar með því að vera í góðum samskiptum og ýta undir bættan efnahag og menntun íbúa landanna, en hvorutveggja gerir stjórnvöldum erfiðara að hafa stjórn á fólkinu. Eða að veikja stjórnirnar með vopnakapphlaupi, þ.e.a.s. að setja þær á hausinn.

Ég vil ekki upplifa annað kalt stríð við öfgatrúarhópa í Miðausturlöndum með tilheyrandi olíuhækkunum og hryðjuverkum. Stundum er betra að sá vægi, sem vitið hefur meira. 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 21.7.2008 kl. 14:20

24 Smámynd: Óskar Þorkelsson

marco.. þetta er sennilega heimskulegasta spurning sem ég hef séð á bloggsíðum íslands... fólk flytur oftast á milli landa af efnahagslegum ástæðum.. pólitískir flóttamenn finnast og svo eru það þeir sem eru raunverulegir flóttamenn..  fyrir utan islam yassuf eða Cat Stevens sem fór af trúarlegum ástæðum til írans og er bannfærður í BNA sem terroristi af þeim sökum einum þá held ég að vesturlandabúar almennt hafi lítið að gera til íran.. nema þá í stundarsakir í einhverju byggingaverkefni.. eða í fornleifarannsóknum

Óskar Þorkelsson, 21.7.2008 kl. 14:26

25 identicon

Ég vona svo sannarlega að Íslendingar komist aldrei í Öryggisráðið.  Bæði höfum við ekkert með það að gera og einnig að Öryggisráðið er algerlega steindauð stofnun sem kemur engu í gegn því stórveldin beita neitunarvaldi á allar ályktanir sem virkilegt bit er í. Þannig hafa tennurnar verið algerlega dregnar úr þessu ráði og það raunverulega til ekki neins.

Þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 14:47

26 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Ég hef aldrei skilið hvað við viljum í Öryggisráðið og hvaða séns haldið þið að við eigum gegn Austurríki og Tyrklandi.

Bankaríkjamenn þurfa á Tyrklandi að halda eins og ástandið er í Miðausturlöndum og auðvitað fara þeir inn. BNA ræður ferðinni þarna eins og víðar.

Þetta er því hrein og klár peningaeyðsla, sem Halldór Ásgrímsson kom okkur úti í og hvorki Davíð, Halldór eða Ingibjörg Sólrúna hafa haft þor í að draga okkur út úr aftur. 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 21.7.2008 kl. 15:13

27 identicon

Óskar kjaftfori.  Af hverju er hið forna stórveldi Persía sem í dag er hið olíuauðuga ríki Íran ekki eftirsóknarvert að flytja til? 

marco (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 18:09

28 Smámynd: Óskar Þorkelsson

var ég ekki að svara því Marco ? 

Óskar Þorkelsson, 21.7.2008 kl. 19:10

29 identicon

Kannski það þó illa tæmandi sé.  En hið raunverulega svar er islam. 

Saudi-Arabía og mörg lönd arabíuskagans eru gríðarlega rík en fáir vesturlandamenn vilja búa þar nema þá kvenhatarar eins og yusuf islam.

Ástæðan er helstefnan islam.  Mannhatrið, heimskan og grimmdin.  Að líkja dauðadómum yfir morðingjum í Bandaríkjunum við morðin á fórnarlömbum nauðgana og samkynhneigðum í Íran er ekkert annað en fáránlegt yfirklór og skammarlegt í alla staði.

Ingibjörg Sólrún komst fyrst til áhrifa gegnum femínismann.  Að sjá hana slæðuklædda meðal verstu kvennakúgara veralda er að minnsta kosti óþægilegt.

Merkilegt hvað sumum finnst sjálfsagt að boycotta Ísrael svo ég tali ekki um gömlu Suður-Afríku en á sama tíma má ekki anda á íslamska heiminn.

marco (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 19:34

30 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það kemur mér ekki á óvart, að Óskar er úti að aka (sjá aths. hans kl. 00:06).

Jón Valur Jensson, 21.7.2008 kl. 19:51

31 Smámynd: Óskar Þorkelsson

merkilegt hvað trúarfólkið er viljugt til þess að vera með misfærslur og ritskoðanir.. jón valur.. þú tókst eitthvað dæmi sem ég hafði ekki hugmynd um.. en ég var bara að tala um dæmi sem þú getur lesið um á síðum amnesty international.. slepptu bara kaflanum um hryðjuverk israela á meðan þú lest í gegnum þessa merkilegu síðu um mannréttindabrot þar sem bandaríkjamenn, kína og israel eiga stóran hluta.. 

Óskar Þorkelsson, 21.7.2008 kl. 20:36

32 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það voru að meirihluta fulltrúar islamskra ríkja sem ályktuðu að það hefði verið framið mannréttindabrot á íslenskum útgerðarmönnum.Þessi hin sömu ríki hafa ekki ályktað um mannréttindabrot Írans, eins og þau sem að ofan er lýst.

Sigurgeir Jónsson, 21.7.2008 kl. 21:14

33 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Veit einhver hvenær Íran var síðast í mannréttindanefndinni, eða er Íran kanski komið aftur í hana núna.

Sigurgeir Jónsson, 21.7.2008 kl. 21:18

34 Smámynd: Halla Rut

Alveg merkilegt að einhver geti líkt dauðadómum í Íran við dauðadóma í BNA. Þessar konur er þarna dæmdar fyrir hórdóm sem er oftast vegna þess að þær hafa sængað hjá einhverjum öðrum en þeim sem þær voru giftar eða með öðrum orðum "haldið framhjá". Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég sé fólk taka upp hanskann fyrir þessa hryllilegu grimmd og það óréttlæti og kúgun sem konur lifa við í Íran. Þeir hinir sömu segja þetta svo í lagið af því að eitthvað slæmt gerist líka annars staðar. Hvað er eiginlega að ykkur?

Ingibjörg er okkur öllum til skammar þegar hún leggur allt sem hún á til að skapa vinarsamband við þá er stjórna þessum löndum. Við ættum að vera að fordæma þá en í staðin þá hneigir hún sig fyrir þeim, fyrir hönd okkar allra.

Halla Rut , 21.7.2008 kl. 21:25

35 Smámynd: Heiða B. Heiðars

mér finnst líklegra að hún, ISG, vilji vera í góðu samband við þá sem eiga á hættu að verða grýttir

Hvar eigum við annars að byrja að breyta því sem okkur finnst óréttlátt nema með umræðu?

Heiða B. Heiðars, 22.7.2008 kl. 00:59

36 identicon

Hárrétt Halla Rut.

 Og ekki gleyma Taiwan sem Íslendingar hafa átt frábært viðskiptasamband við í áraraðir. Solla Snarsnúna var fljót að viðurkenna rétt Kínverja þar. Í staðinn fyrir að einfaldlega þegja.

 Er það opinber stefna okkar Íslendinga að Kína eigi yfirráðarétt yfir Taiwan?? Það hef ég ekki séð. Og væri okkur ekki frekar nær, að vera í fararbroddi að viðurkenna rétt smælingja, sem við einnig erum. Rétt sem Jón Baldvin gjörði okkur stolt af í Baltisku löndunum hér um árið.

Nei ég er sammála því að þetta heiti að selja sig. Sennilega þess vegna að Solla Snarsnúna faldi sig í múnderingunni í Íran, svo hún yrði ekki grýtt fyrir það.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 01:02

37 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Kína var með muslimaríkjunum í mannréttindanefnd Sameinuðu   Þjóðanna í því að  álykta að íslenska ríkið hefði framið mannréttindabrot á Íslenskum útgerðarmönnum, sem kölluðu sig reyndar ekki því nafni af því það hentaði ekki í kærunni.Nú hefur fyrrum íslenskur útgerðarmaður sem seldi kvótann sinn 1990 og hefur síðan þá stundað brask í útlöndum fyrir peninginn, veitt kvótalaus og verður væntanlega ákærður fyrir ólöglegar veiðar.Við skulum öll styðja hann í því að mál hans fari fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og hlýða þeim úrskurði sem þaðan kemur.Vonandi styður Frjálslyndiflokkurinn hann í því.Annað væri að sigla undir fölsku flaggi.Villimenskan í sumum muslimaríkjunum er slík að öllum nútíma siðuðum ríkjum ber að fordæma þau fyrir brot á mannréttindum.Lögfræðinemi við Háskólann á Akureyri sem sérhæfir sig í mannréttindum sagði á ráðstefnu á Grand Hótel að einstaklingar í ríkjum gætu kært mannréttindabrot í öðrum ríkjum til mannréttindanefndarinnar.Nemandin heitir Aðalheiður og hefur stundum átt athugasemd hér.Mjög greinagóð.Kanski getur hún aðstoðað einhvern við aðkoma því í verk að kæra Íran til mannréttindanefndarinnar, eða kert það sjálf.Þá kanski sést hvort þessi nefnd er trúverðug.

Sigurgeir Jónsson, 22.7.2008 kl. 09:20

38 identicon

Þetta sannar enn og aftur fyrir mér hversu langt á eftir ýmis múslimaríki eru. Enn að grýta fólk.

Jesús afgreiddi þetta mál fyrir hönd kristinna manna strax í árdögum kristni. Þegar hann lét þessi ódauðlegu orð falla:                                                                                                   "Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum"

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 12:00

39 Smámynd: Halla Rut

Vel mælt Arnór.

Halla Rut , 22.7.2008 kl. 19:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband