Leita í fréttum mbl.is

Hræsni Ingibjargar Sólrúnar og mannréttindin

Maður furðar sig á hræsni Samfylkingarinnar, hvað hún getur gengið langt. Nú liggur fyrir að hin heilaga Samfylking með sjálfan erkiengilinn Jóhönnu Sigurðar í fararbroddi ætlar að senda Alþingi heim án þess að taka á áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um að íslensk stjórnvöld brjóti á sjómönnum.

Ætli það liggi ekki á að slíta þinginu svo að Ingibjörg komist upp í næstu einkaþotu með Geir Haarde til að boða mannréttindi fyrir heimsbyggðina til að vinna Íslandi fylgi við sæti í öryggisráðinu - vegna þess hve mikið landið hefur fram að færa í mannréttindamálum?

Ég varð var við litla frétt þar sem einhver sjávarútvegsnefnd Samfylkingarinnar skoraði á samstarfsflokkinn að bregðast við þessu áliti. Mér finnst þetta hræsni á hæsta stigi, að reyna að fría sig ábyrgð á áframhaldandi mannréttindabrotum án þess að lyfta litla fingri til að taka á þeim, og kenna sjálfstæðismönnum alfarið um. Ef vilji væri til að standa við yfirlýsinguna væri Samfylkingunni í lófa lagið að gera það.

Ég held að það verði erfitt fyrir sjómenn og aðra þá fjölmörgu sem vinna við útveginn að kjósa Samfylkinguna, flokk sem leggst alfarið gegn hrefnuveiðum út frá þeim forsendum að verið sé að fórna meiri hagsmunum fyrir minni án þess að skýra það í nokkru. Væntanlega er um að ræða sæti í öryggisráðinu góða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bumba

Sigurjón, það er bara eitt svar til við þessu, NIÐUR MEÐ SAMFYLKINGUNA. Með beztu kveðju.

Bumba, 26.5.2008 kl. 09:49

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Skil ekki alveg þetta skot á Jóhönnu Sigurðardóttur. Þar sem þú varst að tala um Ingibjörgu.

Spurnig líka um að heyra hvað þið viljið gera í þessu máli? Hvaða breytingar viljið þið? Hef aldrei heyrt nokkrar fullmótaðar tillögur frá ykkur í xF. Hverju á að breyta og hvað kostar það okkur?

Ekki þar fyrir að ég hef verið á móti þessu kvótakerfi frá upphafi. En maður vill sjá tillögur um eitthvað annað og hvernig á að útfæra það og hvað það kosti. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.5.2008 kl. 10:09

3 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Er ekki viðbúið að menn rói bara í sumar, fyrst svona er komið?

Aðalheiður Ámundadóttir, 26.5.2008 kl. 10:24

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég tek undir með Magnúsi Helga.. hvaða tillögur hafa Frjálslyndir komið með ?  Ég hef ekki heyrt eina einustu varðandi þetta mál !!  Þess meira heyrt um útlendingahatur frá þeim herbúðum.

Óskar Þorkelsson, 26.5.2008 kl. 10:42

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú tekur illa eftir, Óskar, og virðist bara heyra það sem þú sjálfur vilt heyra.

Sigurjón, Jóhanna Sigurðar er því miður ekki í fararbroddi Samfylkingar. – En ég er á einum báti með þér um hrefnuveiðarnar.

Jón Valur Jensson, 26.5.2008 kl. 10:55

6 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Óskar og Helgi eru með eyrnatappa og rafsuðugleraugu og hafa hvorki séð né heyrt neinar tillögur um að afnema kvótakerfið! 

"Ég hef ekki heyrt eina einustu varðandi þetta mál !!" Segir Óskar og er að vonum hneykslaður.  

Málið er ekki að Samfylkingin vilji ekki leysa vandann, hún veit bara ekki af honum. Ef Samfylkingin fréttir af því að sjáfarþorpin séu að leggjast í eyði eru þeir vísir með að bjarga málunum með því að breyta þeim í alþjóðlegar flóttamannabúðir.  

Sigurður Þórðarson, 26.5.2008 kl. 11:03

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það sem vantar í umræðuna um kvótan er hvað kostar það þjóðina að ná honum aftur. Mér skilst að það kosti milljarða á milljarða ofan. Því að flokkarnir þaðan sem flestir þingmenn Frjáslyndra eru ættaðir festu í gildi þetta kvótaframsal.

Það hefur verið talað um að ná honum til baka smátt og smátt en manni hefur heyrst að þá eigi núverandi kvótaeigendur skaðabótarétt.

Spurning hvort að ríkið eigi möguleika á greiða þetta núna um þessar mundir? 

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.5.2008 kl. 11:47

8 identicon

Heill og sæll; Sigurjón og aðrir skrifarar !

Nafni minn Þorkelsson, og Magnús Helgi Björgvinsson ! Virðist; sem þið kjósið, að verja sóðaskap Samfylkingarinnar, út í eitt. Gleymið ekki; að einn fyrirennara SF, Alþýðuflokkurinn gamli, var hlutaðeigandi, að kvótalögunum 1983/4.

Ég get alveg trútt um talað, hvar ég var birgðavörður, hjá Hraðfrystihúsi Stokkseyrar hf, 1983 - 1991, og sá niðurslag greinarinnar, með hverju árinu, sem leið. Má vera, að hægt sé að tala Nafna minn Þorkelsson til; Sigurjón, en Magnús Helgi er gersamlega forritaður, af andstyggilegheitum Samfylkingarinnar, þótt hundur eða köttur væri í framboði, þá kysi hann flokk sinn, og,................... væri ekkert lakara, svo sem, að hafa fulltrúa dýra ríkisins, þar innan vébanda, varla lakara, en það ''mannval'', hverju Magnús Helgi hangir aftan í, á hverju sem gengur.

Við Jón Val; vil ég segja þetta. Ósköp gott; að koma við, á spjallsíðum annarra, með sína fullvissu, en,....... ég neita því ekki, Sigurjón, að ég snöggreiddist Jóni Val, þá hann gaf lítið fyrir orðræðu mína, á síðu hans, í gær, hvar hann; og þeir Júlíus Sigurþórsson útlistuðu ''hættu'' mikla, af vexti einnar okkar beztu bræðraþjóða, Rússa, og mér varð á, að benda á ''lýðræðið'', eða öllu heldur, vísaði til skrumskælingar þess, hjá bandarísku heimsvaldasinnunum. Fyrirgaf ég Jóni Val þó skjótt, hvar ég á honum fornan greiða að gjalda, þá hann hélt, af einlægni, verndarhendi yfir mér, þá sproksetjarar, suður í Garði tóku mig, nokkuð reglulega í bakaríið, huglægt, hjá Hraðfrystistöð Gerðabátanna hf, fermingarsumarið mitt, 1972. Enda hæg heimatök, ég feiminn og uppburðarlítill pjakkur, af Suðurlandinu, og upplagt fyrir gárungana, suður þar, að taka mig fyrir. 

Þeirri liðveizlu Jóns Vals, mun ég ei gleyma, meðan ég tóri. Jón Valur Jensson er gegnheill, í allri sinni sannfæringu, utan fjölmargra annarra mannkosta. Það ber að virða, Sigurjón, og aðrir ágætir skrifarar.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 12:18

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

nokkrir svarað mér  með skætingi en enginn komið með þessar tillögur sem ALLIR virðast hafa heyrt nema litli ég....  merkilegt því ég fylgist töluvert vel með umræðum á sem flestum vígstöðvum..

Komasvo.. fræðið litla skara á hverjar þessar góðu tilllögur F eru í þessu máli sem sigurjón talar um.. hvar eru þingsályktunartillögurnar ?  HVAR ??? 

Óskar Þorkelsson, 26.5.2008 kl. 12:48

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Óskar Þorkelsson, hvað er að og hvar hefur þú verið? Ég vona að þú lendir ekki í þeim fjanda að verja hvaða mál sem er s.s. áframhaldandi mannréttindabrot á Íslendingum bara vegna þess að Samfylkingin ber ábyrgð á þeim.

Frjálslyndi flokkurinn hefur flutt fjölmörg þingmál og tillögur um breytingar á kerfinu til átt til réttlætis s.s.  frelsi til handfæraveið ofl ofl.

Hér að neðan er þingályktunartillaga sem fjallar beint um umrætt mál sem spurt er um:

http://www.althingi.is/altext/135/s/0575.html

Sigurjón Þórðarson, 26.5.2008 kl. 12:59

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það segir nú ósköp lítið í þessari tillögu. Bendi á að Vg setur fram tillögur sínar í dag. En það vantar að vita í sambandi við þetta. Verður þjóðin skaðabótaskyld þegar að hún innkallar veðbundnar veiðiheimildir og hvað kostar að ná þeim aftur. Var ekki einhver að segja að Kvótinn í heild væri um 300 milljarða virði eða meira. Hann er víst að mestu veðsettur. Hvað kostar að ná honum inn aftur. Eru til raunhæfar tillögur sem gera okkur þetta kleift án þess að þjóðarbúið fari á hliðina?

Vg talar um endurúthlutunn. En ef þessu verður endurúthlutað hvað þá sem vilja komast inn í greinina eftir það?

Þessi umræða þarf að verða vitrænni. Ekki bara: tökum kvótan af þessu kvótagreifum - Heldur hvernig, hvað kostar það og hvað gerum við svo.

Ekki vísa í Færeyjar eingöngu því þar hafa fiskistofnar ekki vaxið  eins mikið og menn héldu með kerfi Jóns Kristjánssonar. Og eitthvað kerfi og takmörk verða að vera áfram. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.5.2008 kl. 16:38

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jæja Magnús

Sigurjón Þórðarson, 26.5.2008 kl. 17:01

13 Smámynd: Árni Gunnarsson

Á þeim dögum þegar Alþingi rændi með lögum fólkið í sjávarbyggðum lífsbjörginni og færðu hana auðmönnum til ábata, þá hneykslaðist enginn.

Þegar draga á til baka þessa auðlind og gera hana á ný aðgengilega á grundvelli jafnréttis til nýtingar eftir því sem tök verða á þá fyllast menn þróttmikilli réttlætiskennd. Réttlætiskennd í garð t.d. erfingja þeirra sem fengu milljarðaverðmæti gefins.

Réttlætiskennd í garð þeirra sem liggja makráðir á sólarströndum og sötra vískí á meðan leiguliðar þeirra sveitast blóði við að fiska til að geta borgað leiguna og bera sjálfir úr býtum allt að 15-20% af verðmæti landaðs afla.

Réttlætiskennd fyrir hönd þeirra sem eru farnir að sjá fyrir endann á ævintýrinu og búa sig undir að selja og stinga af með milljarðana inn í einhverja skattaparadís sem felur fyrir þá gróðann.

Verst hversu fáir áhugasamir bloggarar hafa hugmynd um þetta.

En hitt er rétt: Þessi halli á lýðræðinu verður aldrei réttur af á meðan þeir fjalla um hann sem ekki sjá neinar leiðir til að rétta hann af.

Það gengur enginn út úr þeim klefa sem hann er sannfærður um að sé læstur.

Árni Gunnarsson, 26.5.2008 kl. 17:46

14 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það skiptir engu máli þó fiskistofnarnir séu á niðurleið, sjávarútvegurinn stórskuldugur, sjávarþorpin að fara í eyði og mannréttindanefnd Sameinuðu þjóanna hafi fellt þann úrskurð að kvótakerfið byggist á mannréttindabrotum þá verða alltaf til menn eins og Magnús sem sjá engan vanda.  Sumir hafa afar sterkar skoðanir á málefnum sem þeir hafa aldrei kynnt sér og tjá sig þannig að ætla mætti að þeir séu hneykslaðir og reiðir.  Þetta eru samt ljúfustu menn því allt er þetta samkvæmisleikur og dægrastytting því þeir  hinir sömu bregðast ljúfmannlega við þegar þeim er svarað með orðinu: Jæja og svo má bæta við, "og það var nú það" eða jafnvel "það var það", sem er styttri útgáfa en þýðir næstum því það sama.

Það var nú það. 

Sigurður Þórðarson, 26.5.2008 kl. 20:15

15 identicon

Sæll Magnús Helgi

Þú leggur fram þá vangaveltu hvort þjóðin þurfi ekki að borga skaðabætur til þeirra sem veittar voru veiðiheimildir þegar við innköllum þær aftur til endurúthlutunar. Mig langar að spyrja á móti hvort væri ekki sanngjarnt að kvótahafar séu ekki skaðabótaskyldir íslensku þjóðinni að hafa fengið úthlutað í strássi við almenn viðhorf hjá siðmenntuðum þjóðum eins og úrskurður Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna?

Það er allt of algengt að umræða á Íslandi um flest mál er klisjukennd yfirborðsleg og í eintómum upphrópunum. Hér þarf ekki annað að taka til hversu  grunn umræðan er um þá erlendu gesti sem hingað vilja koma.Það er borðleggjandi að EES samningurinn hefur að grunn markmiði frjáls flæði vinnuafls á milli aðildarríkja. Samkvæmt þessu hafa 500 milljónir manns leyfi og rétt til að flytja hingað á klakkann strax í fyrramálið. Hvernig lýst þér á ? Menn tala í stjórnmálafylkingunum og fylla þær orðskrúði sem bæði á við og ekki við umræðuna hverju sinni. Málefnaskráin er því líkast hjómi sem menn þykkjast skilja og umfyllir þau skilyrði að hægt sé að túlka hver eftir sínu höfði. Tökum dæmi. Í málefnaskrá Frjálslynda flokksins segir að þá leið að þessir erlendu gestir munu gera okkur víðsýnni. Geturðu séð það fyrir þér að Norðmenn yrðu víðsýnni ef ég pakkaði niðri í töskur og flytti mig um set???? Nei kærri vinur, nei- nei,það getur ég fullvissað þig um að þeim er það mikil léttir að þetta er aðeins hugmynd. Tökum aðra hlið hefur þú gert þér grein fyrir að það eru tvær tungur talaðar í landinu og þar sem meirihluti íbúa í byggðakjörnum sem tala ekki íslensku og því hægt að fullyrða að þjóðtunga Vestfirðinga er pólsk. Þessu til staðfestingar er hægt að líta til Flateyri. Af þessu litla innleggi getum við séð að þrátt fyrir alla umræðuna hefur umræðan aldrei verið tekin á þeim vitræna grunni hvernig framtíðin á að blasa við. Þessa umræðu alla frá mörgum sjónarhornum þarf að taka!!! Þessir erlendu gestir hafa sýnt og sannað að þeir eru feyki góðir verkmenn og mér ofbýður þegar íslensku samlandahatarnir rísa úr rekju og eru vart búnir að nudda stýrurnar úr augunum þegar þeir byrja að lasta íslenska alþýðu. Svo að lokum voru það ekki íslendingar sem komu þjóðinni úr moldarkofunum til eftirsóttra álna sem aðrir girnast í dag. Verum sanngjörn og ef ungdómurinn er svona linur til verka eins og þessir aðilar vilja halda fram eigum við þá ekki að líta okkur nær. Þó skemmist tönn þurfum við ekki að velja annan betur tenntari í hans stað. Hvaða flokkar eru á móti EES samningum getur eitthver sagt mér það?

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 21:38

16 Smámynd: Óskar Þorkelsson

gott svar hjá þér Baldur Nielsen.  Sammála þér í öllum atriðum.

Óskar Þorkelsson, 26.5.2008 kl. 21:48

17 identicon

Heill og sæll; Sigurjón, og þeir skrifarar, hverjir þess eru verðir !

Velti fyrir mér; úr hvaða skúmaskoti,  þessar smásálir, Baldvin Nielsen og kjarri skríða. Önnur eins Evrópusambands sleikju síli, finnast vart hér á síðum, nema þá helzt, innan raða rolu safnaðar Samfylkingarinnar.

Mikið hnoss; stórfrænku minni, kerlingaruglunni frá Haugi í Gaulverjabæjarhreppi, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, af svoddan tin dátum, sem þessum viðhlæjendum hennar, auk margra annarra, af álíka sauðahúsi. 

Með beztu kveðjum; sem fyrr, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 23:20

18 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þetta rugl í aröbunum og kommúnistanum frá Kina í Mannréttindanefndinni er niðurlægjandi fyrir það vesalings fóik sem traðkað hefur verið á í þessum löndum og orðið fyrir raunverulegum mannréttindabrotum.Það eru ekki sjómenn sem eru að leigja þann kvóta sem er verið að leigja nú í dag, það eru fyrirtæki.Samkvæmt kjarasamningum sjómanna er bannað að láta þá taka þátt í kvótakostnaði.Enda gefa öll samtök sjómanna ekkert fyrir þetta rugl frá mannréttindanefndinni.Fólk sem hangir á ríkisjötunni er að reyna að nota sér þetta rugl frá aröbunum sem þekkja enga úgerð nema skektuútgerð,til fá kvótann þjóðnýttann og gera sjómenn kauplausa

Sigurgeir Jónsson, 26.5.2008 kl. 23:44

19 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

 Já.

Sigurgeir Jónsson, 26.5.2008 kl. 23:56

20 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Mottóið hjá þessari ríkisstjórn er þetta:  Ef það er allt í lagi í lífi ráðherranna þá er ekki við neinn vanda að fást.... Svo skella þeir sér bara til annara heimsálfa til þess að þurfa ekki að díla við vandann hér heima.  Ég legg til að við kaupum handa þeim farmiða til timbúktú...... bara aðra leiðina.

Jóhann Kristjánsson, 27.5.2008 kl. 00:04

21 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Já.

Sigurgeir Jónsson, 27.5.2008 kl. 00:06

22 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Baldvin málið sem ég er að velta fyrir mér er. Þessir menn sem áttu/eiga kvótan fengu leyfi til að veðsetja hann þegar þeir fengu leyfi til framsals. Nú eiga þá væntanlega bankar veð í miklu af kvótanum. Nú ef við förum að innkalla kvótan (sem ég vona að sé hægt) þá eru nú veð á hluta hans. Og því er ég að velta fyrir mér hvort við þurfum að borga fyrir að innkalla hann því veðin fara ekki og eins erum við tilbúin akkúrat núna peningalega til að borga fyrir hann ef við þurfum að borga.

En svona til að taka af allann vafa tel ég að Kvótakerfið sé eitt mesta rán sögu Íslandssögunar og alveg ömurlegt að það skildi ferst í sessi með þessu frjálsa framsali.

Ég tal að það þurfi að vinda ofan af þessu kerfi og eyða því en er nokkuð viss um að það komi til með að kosta okkur þjóðina milljarða á milljaðra ofan út af því hvernig þetta kerfi hefur fengið að þróast.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.5.2008 kl. 00:09

23 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þetta eru þín orð.Ég er búinn að svara þér.Frjálslyndiflokkurinn er flokkur fleiri en einnar skoðunar.Ég hef bæði keypt og selt kvóta og leigt til mín og leigt frá mér.Þetta er allt samkvæmt lögum frá Alþingi.Ríkisskattstjóri hefur stimplað þetta löglegt og tekið þátt í braskinu með því að taka skatt af því.Því er ríkið skaðabótaskylt ef það rifir samningum um sölu á kvóta með afturvirkum lögum.En þessi fáu kíló sem ég hef keypt og selt er nú varla öðrumeginn á hund.En ég endurtek Frjálslyndiflokkurinn er flokkur frjálsra skoðana.

Sigurgeir Jónsson, 27.5.2008 kl. 00:26

24 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Buldi við brestur þegar glerhúsið brast.

Það er gaman að sjá mann úr Frjálslyndaflokknum tala um mannréttindi....

Sigurjón....þetta eru falskir tónar... mundu varaformanninn þinn sem þið verjið út í eitt....

Jón Ingi Cæsarsson, 27.5.2008 kl. 07:53

25 Smámynd: Steingrímur Helgason

Á meðan þú skrifar svona fína pistla & félagar mínir Árni & Óskar taka undir á sínu kjarnyrta, & bloggvinur minn Jón Valur er næstum að verða vantrúaður Valhallarsinni líka.

Ja, þá er enn fín & góð von fyrir okkur Frjálslynda.

Steingrímur Helgason, 27.5.2008 kl. 22:44

26 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Var að lesa aftur commentið frá Baldri Nilsen. Var bara að pæla í því sem hann segir um EES og frjást flæði vinnuafls: Það er borðleggjandi að EES samningurinn hefur að grunn markmiði frjáls flæði vinnuafls á milli aðildarríkja. Samkvæmt þessu hafa 500 milljónir manns leyfi og rétt til að flytja hingað á klakkann strax í fyrramálið. Hvernig lýst þér á ?

Baldur fattar vonandi að þetta gildir í báðar áttir og er óspart notað af okkur. Þ.e. að flytja til annarra EES ríkja og stofna fyrirtæki sem og að vinna þar.

Þessi heimild hefur verið í samningnum um EES í 15 ár. Og það eru nú ekki þessi straumur af fólki hingað. Heyrði í útvarpi að einhver talaði um að meirihluti þeirra sem hér starfa og eru frá öðrum löndum hafi verið ráðnir erlendis til að koma hingað. Og það að þurfi starfsmannaleigur og ráðningaskrifstofur í viðkomandi löndum til að finna fólk til að koma hingað. Það eru nú ekki biðraðir við landamærin hjá okkur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.5.2008 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband