Leita í fréttum mbl.is

Vafasöm ráðning á flekkuðum manni

Ólafur F. Magnússon er prinsippmaður í íslenskri pólitík. Hann hefur staðið og fallið með skoðunum sínum, t.d. í umhverfismálum og flugvallarmálinu. Það er mín skoðun að nú hafi hann gert stór og mikil mistök með því að ráða fyrrum varaþingmann Samfylkingarinnar án þess að rökstyðja það á fullnægjandi hátt.

Jakob Frímann flutti á sínum tíma áhrifamikla ræðu á Alþingi sem fjallaði m.a. um það hvernig hann var spjallaður af Bandaríkjamanni. Í kvöld hlýddi ég á Svandísi Svavarsdóttur hneykslast æsta í Kastljósinu yfir pólitískri ráðningu. Þessi æsingur Svandísar yfir pólitískum ráðningum kom mér algjörlega í opna skjöldu vegna þess að ég hef aldrei heyrt hana andmæla svívirðilegum sendiherraráðningum þar sem íslenski stjórnmálaklúbburinn hefur sent gamla klúbbfélaga úr landi með sendiherranafnbót, og þar að auki á fullum eftirlaunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þessi fyrrum liðsmaður í Frjálsynda flokknum réð fyrrverandi samfylkingarmann en núverandi íslandshreifingarmann til starfa á mjög svo vafasömum forsendum...

Óskar Þorkelsson, 7.5.2008 kl. 23:39

2 identicon

"Ólafur F. Magnússon er prinsippmaður í íslenskri pólitík"

hvar hefur þú verið undanfarnar vikur.

eru ekki allir í stuði (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 00:10

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég legg lítt í að deila um hvort að um mistök þarna er að ræða eða ekki, Sigurjón, enda nýbúinn að rita varnargrein um vin minn Ólaf, hans 'prinzipp' & af hverju ég hef stutt hann.

En, ég er heldur ekkert að ryðja neitt útúr mér yfir þessari skoðun þinni heldur.

Steingrímur Helgason, 8.5.2008 kl. 00:14

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Jakob Frímann Magnússon var oddamaður Íslandshreyfingarinnar í Kraganum í síðustu þingkosningum, og atti þar kappi við efsta mann Frjálslynda flokksins Kolbrúnu Stefánsdóttur.

Hvers vegna hann datt allt í einu inn í borgarmál í Reykjavík er mér ókunnugt um.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.5.2008 kl. 02:40

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Vinur er sá er til vamms segir.

Sigurjón Þórðarson, 8.5.2008 kl. 08:37

6 Smámynd: Atli Hermannsson.

Kona mín er kennari í Grunnskóla hjá Reykjavíkurborg.  Eftir 30 ára starf sem kennari fær hún um 25 þúsund krónur meira í mánaðarlaun en Jakob Frímann mun fá i fasta yfirvinnu á mánuði.... það er gott til þess að vita að Borgin skuli geta gert vel við sitt starfsfólk.

Annars er það glöggt merki um að eitthvað verulega mikið er að manni eins og Ólafi F. Þegar hann virðist aldrei geta endað eitt einasta viðtal nema hnykkja á því hvað hann sé heiðarlegur, trúr sannfæringu sinni og berjast mikið fyrir hagsmuni borgarbúa... ég gæti ælt. 

Atli Hermannsson., 8.5.2008 kl. 09:03

7 Smámynd: Skarfurinn

Laukrétt hjá þér Atli, hef oft hugsað það sama, ummæli um heiðarleika manna eiga ekki að koma frá þeim sjálfum, það kallst SJÁLFSHÓL og er ekki mark á takandi. Ólafur F er þegar kominn með sinn aðstoðarmann og ræður svo vin sinn í vinnu upp á tæp 900. þús. á mánuði án þess að staðan sé auglýst.

Skarfurinn, 8.5.2008 kl. 09:09

8 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þó svo að eigi finnst mér ráðning JFM nokkuð umdeilda sérstaklega þegar launakjörin eru höfð í huga, þá finnst mér þú Sigurjón taka of djúpt í árina.

Þess má geta að JFM, OFM og Mosi vorum alllengi skólabræður fyrst í Hlíðarskóla, síðar landsprófsdeild Gagnfræðiskóla Austurbæjar og síðast MH þaðan sem við útskrifuðumst allir vorið 1972. Það er því einnig mjög athyglisvert að í Ráðhúsi Reykjavíkur eru núna sem stendur við stjórnvölinn gamlir MH-ingar þar sem lengi vel voru einar helstu höfuðstöðvar MR-inga. Þá var lítið sagt.

Gangi þér sem öllum allt í haginn.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 8.5.2008 kl. 10:25

9 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Miðbærinn er í svo mikilli niðurníðslu að maður skammast sín fyrir að fara með útlendinga niður í bæ. Það er gríðarlega mikilvægt að þetta verkefni heppnist vel. JFM er röggsamur maður, sem fer í þetta  af áhuga og er ekki að hækka í launum, ég treysti því að hann muni vinna fyrir kaupinu sínu. Við skulum ekki dæma hann af orðum Svandísar sem man ekki hvað hún hefur í laun heldur verkum sínum.

Sigurður Þórðarson, 8.5.2008 kl. 11:12

11 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Stundum finnst mér stjórnmálaumræða vera smásálarleg og get nefnt um það mörg dæmi. Sama fólk og þykist geta mælt mannréttindi í borginni eftir því hve margir mannréttindafulltrúar starfa í ráðhúsinu láta það sér í léttu rúmi liggja þó mannréttindi séu brotin á sjámannastéttinni og mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna veiti stjórnvöldum harðar ákúrur fyrir stórfelld mannréttindabrot. Sama fólk og hneykslast á að röggsamur framkvæmdamaður sé tímabundið ráðinn í verkefnastjórnun á meðallaunum borgarfulltrúa og tala að illa sé farið með almannafé þegja þunnu hljóði þegar stjórnmálaforingjar útdeila milljörðum til nákominna ættingja sinna úr sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar.

Sigurður Þórðarson, 8.5.2008 kl. 11:30

12 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Verðum við ekki að fara taka til í íslenskri pólitík. Þetta hefur verið á afar lágu plani lengi og núna finnst mér að Ólafur Friðrik eigi að sýna sinn heiðarleika og taka til...komin þörf á því fyrir löngu.

Hættum að horfa afturábak en horfum til framtíðar og gerum eitthvað í þessu.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 8.5.2008 kl. 17:51

13 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Guðrún.. hvaða heiðarleika ertu að tala um í fari Óla falska ?  það fer ekki mikið fyrir þeim heilindum.. hann er flokkamella og hentisemipólitíkus.

Óskar Þorkelsson, 8.5.2008 kl. 19:27

14 identicon

'Ólafur sagði í Kastljósinu,að Jakob Frímann væri miðbæjarborgarstjóri=:Ég bý í hverfi 104,get ég sótt um að verða úthverfaborgarstjóri í hverfi 104?

jensen (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 20:25

15 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvað er eiginlega að gerast í borg Ólafs (óttans?) Fylgislaus borgarstóri skipar fylgislausa vildarvini til hægri og vinstri í feitar stöður í kerfinu. Annar hver ruslakofi í miðbænum seldur borginni fyrir hálfa milljón hver.

Þetta væri fyndið ef við værum ekki að tala um stjórnlausan fjáraustur úr sameiginlegum sjóðum Reykvíkinga, á sama tíma og það fást ekki starfsmenn í umönnunarstörf og kennslu í grunnskólum vegna lélegra launa.

Þessi borgarstjórnarmeirihluti er fyrirbæri sem byggist á valdagræðgi borgarfulltrúanna og engu öðru. Í raun má segja að borgin sé án borgarstjórnar.

Theódór Norðkvist, 8.5.2008 kl. 22:08

16 identicon

Það má segja það að nú sé SUMAR Á SÝRÐU LANDI hjá Jakobi Frímanni.

jensen (IP-tala skráð) 8.5.2008 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband