Leita í fréttum mbl.is

Davíð Oddsson á bremsulausu hjóli

Það er ólíkt hlutskipti Davíðs Oddssonar og Ólafs Ragnar Grímssonar. Félagi Ó. Grímsson baðar sig í alþjóðlegum dýrðarljóma, fær Nehru-orðuna rétt eins og Martin Lúter King, Nelson Mandela og Olof Palme. Ekki nóg með það, heldur kom vinur alla leið frá Ameríku sem hvatti landann sem og alla heimsbyggðina til að berjast gegn hlýnun andrúmsloftsins. Eini skugginn á tilveru Ólafs þessa vikuna er að það hríðaði á Al Gore sama dag og hann flutti predikun sína.

Á sama tíma birtist Davíð Oddsson hálftættur á skjám landsmanna og reyndi að bremsa niður verðbólguna. Svo virðist sem bremsurnar, þ.e. stýrivextirnir, séu haldlitlar þar sem krónan féll í sömu mund. Nú eru góð ráð dýr. Það má segja að Davíð beri mjög mikla ábyrgð á stöðunni. Hann var náttúrlega forsætisráðherra og stýrði efnahagsmálunum þegar bankarnir voru gefnir og stofnuðu síðan til gríðarlegra skulda í útlöndum. Skuldaaukning bankanna hélt áfram af fullu skriði í nafni útrásar eftir að Davíð var kominn í Seðlabankann. Eftir að hann kom þangað datt honum aldrei í hug að beita 13. gr. laga 36/2001 sem gefur bankanum tök á að stemma stigu við óheftri skuldaaukningu bankanna í útlöndum.

Nú eru góð ráð dýr eins og áður segir. Hver veit nema Davíð leiti ráða þar sem vel gengur og slái á þráðinn til Bessastaða?


mbl.is Krónan veiktist um 1,30% í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Seðlabankinn er eyðieyja í fjármálaumhverfinu og hefur hvorki tök né tæki til þess að stjórna einu eða neinu og því fer sem fer.

Mönnum hefði verið nær að gaumgæfa það á sínum tíma við lagasetningu.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.4.2008 kl. 01:08

2 Smámynd: Kári Harðarson

Ef bankinn er eyðieyja mætti kalla hann St.Helenu en þar endaði Napóleon sitt líf í útlegð.

Kári Harðarson, 11.4.2008 kl. 10:21

3 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Af hverju getur hann ekki notað 13 greinina ???

Kveðja

Ari Guðmar Hallgrímsson, 11.4.2008 kl. 10:23

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Kári Það er aldrei að vita hvað gerist en mögulega verður Davíð kallaður til annarra starfa.

Ari hefði alveg getað það ef vilji hefði verið fyrir því að nota 13. greinina en hann svaf á verðinum.

Sigurjón Þórðarson, 11.4.2008 kl. 12:50

5 Smámynd: Dunni

Við höfum séð Davíð gera mistök áður. Hann bregst alltaf eins við.

Viðurkennir ekki mistökin og berst eins og sært ljón til að fá þjóðina til að trúa á sig sem einhvern guð. Alla vega hálf-guð.

Davíð er embættismaður sem hægt er að reka.  Það ætti Geir að íhuga í von um að fá vinnufrið á eftir.

GÞÖ

http://orangetours.no/ 

Dunni, 11.4.2008 kl. 15:12

6 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Það fyrsta sem kom í minn huga þegar ég heyrði í Davíð segja að með " illu skal illt út reka", að þær færi hann fyrstur.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 11.4.2008 kl. 16:41

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Af hverju ætti Geir að reka Davíð. Eru þeir ekki í sömu klíku??

Óskar Arnórsson, 11.4.2008 kl. 17:21

8 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Nú er svo komið að ekki heyrist öðru vísi frá Davíð Oddssyni, gamla goðinu þeirra Sjálfstæðismanna en þegar hann er að hækka stýrivextina. Ef hann hækkar þá ekki þá mætti halda að hann væri týndur og tröllum gefinn.

Óskandi væri að einhver í Sjálfstæðisflokknum þori að kenna honum á hagkerfið að einnig sé möguleiki á að lækka vextina.

Okurvextirnir eru að sliga þjóðina, sumir landar okkar eru á leiðinni í fjárþrot og jafnvel gjaldþrotaskipti, allt vegna óskynsamlegra framkvæmdagleði sem nú er að koma okkur í koll. Því miður. Ætli hefði ekki verið ágætt að eiga Landsvirkjun um þessar mundir nánast skuldlausa? Kárahnjúkavirkjunin hefur valdið því að skuldir og eignir standast núna nokkurn veginn á! Rafmagnsverð til okkar Íslendinga hefur aldrei verið hærra en um þessar mundir. Fáum orðum segir frá því hvað álfyrirtækin greiða fyrir orkuna.

Allt er þetta dapurlegur endir á því sem Sjálfstæðisflokkurinn nefnir mesta og stærsta framfaraskeið íslensku þjóðarinnar.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 11.4.2008 kl. 18:00

9 Smámynd: Júlíus Valsson

Hvort vildir þú vera með Ólafi eða Davíð á eyðieyju?

Júlíus Valsson, 11.4.2008 kl. 18:12

10 identicon

Mér þykir nú 2.mgr. 18.gr. sömu laga líka mjög áhugaverð í þessu samhengi.

LLM (IP-tala skráð) 11.4.2008 kl. 20:50

11 Smámynd: corvus corax

Það er ótrúlegt að fólk skuli vera fyrst núna að átta sig á því að Davíð hefur alla tíð verið gjörsamlega óhæfur stjórnmálamaður. Það getur vel verið að hann kæmist af sem heildsali með umboð fyrir eitthvert fánýtt drasl en hann hefur nákvæmlega ekkert vit á efnahagsmálum þjóða og allra síst íslenska hagkerfinu. En þetta hafa gjarnan verið örlög þessarar vesalings þjóðar sem hefur setið uppi með sjálfgræðgismenn á borð við Ólaf Thors, Bjarna Ben og Davíð Oddson, menn sem svífast einskis til að skara eld að eigin köku og troða sínum hæfum sem óhæfum flokksbræðrum, frændum og vinum í feitustu embætti þjóðarinnar. Meira að segja hæstiréttur hefur ekki farið varhluta af þessum einræðistilburðum eins og sést best á því þegar Oddsson tróð einkavini sínum þar inn um árið. Sá er sama markinu brenndur að þykjast hafinn yfir allt og alla og fyrirlíta skoðanir þeirra sem eru ekki sammála. Nei ekki meira! Nú þarf að losna við siðblinda dýralæknisfíflið og hersjúka dómsmálaráðherrann úr ríkisstjórninni og henda þessu uppgjafa stjórnamálahyski út úr seðlabankanum og ráða þar inn fagfólk sem hefur vit á því sem gera þarf.

corvus corax, 11.4.2008 kl. 22:06

12 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Corvus corax ég tel það algjörlega nauðsynlegt að hafa dýralæknisfíflið þarna inni. Ég meina það veitir ekki af að reynda að svæfa þær skynlausu skepnur sem sitja í ríkisstjórninni og halda þjóðinni í gíslingu. Svo þyrfti bara að fá annann dýralækni til að svæfa hinn siðblinda.

Jóhann Kristjánsson, 12.4.2008 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband