Leita í fréttum mbl.is

Geir Haarde byggir upp vantraust

Í dag hitti ég ýmsa málsmetandi sjálfstæðismenn sem lýstu furðu sinni á Ameríkuför Geirs Haarde. Með honum í för við að byggja upp traust á íslensku efnahagslífi voru m.a. Baugsmenn sem embættimenn Björns Bjarnasonar hafa hundelt í réttarsölum landsmanna undanfarin ár. Ég hef áður fjallað um ræðu Geirs Haarde, best-í-heimi-ræðuna um að allt standi styrkum fótum og allt það, og því skaut skökku við að í kjölfar Geirs hafi Jón Ásgeir flutt sína ræðu alveg á skjön við málflutning Geirs, s.s. að Ísland muni ganga í Evrópusambandið á næstunni og að íslenska krónan væri talin einhver fjármagnsfæla. Það er óneitanlega brogað að ætla að byggja upp traust og í sama mund að gjaldfella eða tala niður innlendan gjaldmiðil, rýra traustið á krónunni.

Ráðherrar Samfylkingarinnar hafa stundað þennan leik og nú virðist sem sjálfur forsætisráðherrann, yfirmaður efnahagsmála, sé farinn að draga með sér ræðumenn á fundi þar sem megininntak máls þeirra er að draga úr trúverðugleika og trausti á íslensku krónuna og þar með íslenskt efnahagslíf.

Ég veit ekki hvar annars staðar í heiminum æðstu ráðamenn efnahagsmála þjóða sjá sig sí og æ knúna til að gjaldfella innlendan gjaldmiðil.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Já þetta er vægast sagt sérkennilegt tilstand.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 15.3.2008 kl. 22:58

2 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Sæll Sigurjón

Það er talið að það muni strax koma á stöðugleika að lýsa því yfir að við stefnum að aðild að ESB. Það eitt og sér að ætla sér að hafa einhver alþjóðleg umsvif eins og hefur orðið raunin með gjaldmiðli sem einungis er notaður af 300 þúsund manns er geggjun fyrir alla nema nokkra sem að láta einhverjar hugmyndir um að tryggð við krónuna sé sama og þjóðhollusta.

Í þessu ljósi hlítur það að vera afar skynsamlegt af Jóni Ásgeiri að tala á þeim nótum að það sé æskilegt og trúlegt að við munum ganga í takt við stærri efnahagssvæði eða myntsvæði. Slík stefna ein og sér róar markaði. Mbk,

Gunnlaugur B Ólafsson, 15.3.2008 kl. 23:11

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Gulli þetta viðhorf minnir nokkuð á þjálfunaraðferðir Bogdans handboltaþjálfara en það var að brjóta niður til að byggja upp.

Sigurjón Þórðarson, 15.3.2008 kl. 23:31

4 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Brjóta niður tryggðina við krónuna? Er það nokkuð svo erfitt, hún er náttúrulega bara afurð af hinni dönsku krónu þegar við vorum í því myntbandalagi. Engin íslensk uppfinning!

Gunnlaugur B Ólafsson, 15.3.2008 kl. 23:43

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Formaðurinn Geirharður greinilega ekki lesið Davíðssálmana sína í flugvélinni hanns Jóns Ásgeirs á vesturleiðinni.  Mázke viskulegt.

Steingrímur Helgason, 15.3.2008 kl. 23:44

6 Smámynd: Ásgerður Jóna Flosadóttir

Sæll, sammála þér, þessi ferð er með ólíkindum.  Ísland er eins og meðal stórt fyrirtæki í henni Ameríku.  Nú standa þeir sem fjárfestu í þaki yfir höfuðið frammi fyrir því að lánin hækka og hækka.  Gátu stjórnvöld ekki séð þetta fyrir og  ráðlagt fólki að breyta erlendum lánum yfir í íslensk lán og svo öfugt.  Að hugsa sér að stór hópur þjóðarinnar situr nú heima með kvíðaköst yfir afleiðingum óábyrgra stjórnvalda í efnahagsmálum.  Ég legg til að þegnarnir dragi stjórnvöld til ábyrgðar.  Búast má við því að fjöldi heimila lendi í gjaldþroti. Staðan væri ekki svona ef Frjálslyndi flokkurinn væri í ríkisstjórn.

kkv.

Ásgerður Jóna Flosadóttir

Ásgerður Jóna Flosadóttir, 15.3.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: Bumba

Sæll og blessaður, má ég spyrja, hvernig er hægt að byggja upp vantraust? Með beztu kveðju.

Bumba, 16.3.2008 kl. 00:49

8 Smámynd: haraldurhar

    Sigurjón þegar þú talar um að tala niður kr, þá held ég varla það sé hægt, og hvað þá síður að tala hana upp.

   Afleiðing peningamálastefnu Seðlabankans með tilheyrandi okurvaxtastefnu er nú bara koma í hausinn á okkur með margföldu afli.

   Það er ekki hægt að halda uppi eðlilegu þjóðfélagi með því að aðal innfluningurinn er lán, og útflutingurinn vextir,  Það kemur því er nú andskotans verr alltaf að skuldadögum.

haraldurhar, 16.3.2008 kl. 01:25

9 Smámynd: Jónína Benediktsdóttir

Áhugaverður pistill.

Meðan Kaupþing þarf að leggja niður starf einnar konu á Flúðum geta þeir auglýst ímynd sína með milljörðum.Ímynd góðu, duglegu, kláru drengjanna í bönkunum og fyrirtækjum þeirra sem Íslendingar hafa legið flatir fyrir og enginn vogað sér að ræða um. Mér hefur ofboðið hvernig sumt fólk hér að ofan hefur þegið ölmussur og hælt sér fyrir að taka við auglýsingagjöfum úr höndum manna sem hér nú skilja eftir sig sviðna jörð út um allt vegna þess að þeir hafa keypt upp samkeppnina.

Auðvitað þarf Geir að reyna að bjarga þessum drengjum sem þjóðin heldur ekki vatni yfir. Svo er verið að benda á krónuna og Seðlabankann. Hvað hafa bankarnir gert ? AF hverju er fákeppnin algjör ? Hverjir hafa mært þessa forkólfa viðskiptalífsins, veitt þeim Fálkaorður og ferðast með þeim um heiminn og selt útlendingum þá hugmynd að íslenskri orku væri best varið í seðlaveskjum þeirra. Þeirra sem flugu með einkaþotum og skilja ekki muninn á tíkalli og milljarði.

Hvað varð um sjálfstæða hugsun hjá íslenskri alþýðu Sigurjón og Frjálslyndir ? Af hverju hafið þið ekki lagt út á ísinn. Verið ákveðnir gegn þessum ofstopa bankanna sem eiga hér fyrirtækin. (Landsbankinn er undatekningin að vísu á marga vegu)

Það er ekki við Seðlabankann að argast út í, almenningur hefði betur staðið þétt að baki Davíð þegar hann sjálfur tók út peningana sína  í Kaupþingi því honum misbauð laun þeirra manna sem siglt hafa þjóðarskútunni í strand; Kaupþingsmönnum og skósveinum þeirra sem þar fara með völdin, beint og óbeint.

Hvað þá þegar forsetinn hafnaði fjölmiðlalögunum og ímynd auðmanna og heiðaleiki þeirra fékk að njóta sín á síðum og á rásum 80% allra fjölmiðla í landinu. Blaðamenn og fjölmiðlamenn, Útvarp Saga (ykkar stöð), engin undantekning. Þeir voru svo sókndjarfir og það mátti anda á milli þess sem bréf og fyrirtæki voru keypt!! Þetta hljómaði í eyru almennings síðan árið 2000.

Á eftir þessu hefur fólk svo hlaupið með aðdáun.

Góðir gæjar sem ekki má ræða um því þá er fólk talið öfundsjúkt eða með vænisýki. Heyrst hefur hæst í kerlingum sem hafa enga sjálfstæða hugsun, þær gjamma um biturleika annarra líkt og þær séu í vinnu hjá sumum þeirra hinna "ríku". Ykkar konur hafa ekki veirð bestar Sigurjón minn.

Fremstir í flokki, að sleikja upp banka og auðmenn, hafa hinsvegar Samfylkingarforkólfarnir gengið eftir að Framsóknarflokkurinn, sá spillti, leið undir lok. 

Framsóknarmenn, þeir sem eru ekki tækifærismiðaðir, og Frjálslyndir eiga að taka höndum saman og búa til traustverðugan miðjuflokk sem byggir á þeim gildum að Ísland sé bara ágæt án þessara "glanna" auðmanna í brúnni. Þessir menn hafa að vísu ekki neytt fólk til þess að taka lán, en ég þekki sjálf hvernig þeir blekkja mann til þess. Blekking er hinsvegar orð sem fáir vilja kannast við, því það er aulaháttur að hafa trúað á auglýsingar og gylliboð. Enginn vill viðurkenna aulahátt sinn.

Haltu áfram en þú þarft að þora að ganga alla leið!!

Það eru margir Sjálfstæðismenn að hugsa sér til hreyfings. 

Jónína Benediktsdóttir, 16.3.2008 kl. 09:07

10 identicon

Ef fer fram sem horfir þá eru góðar líkur á að frammámenn xD þurfi lögregluvörð eins og ISG þarf í för sinni til að frelsa Afganistan, amk er það næsta víst að þeir fela sig ekki á bakvið alla þá sterku og traustu grunna sem Geir virðist sjá all over the place.

DoctorE (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 11:13

11 Smámynd: Hrannar Baldursson

"Þessir menn hafa að vísu ekki neytt fólk til þess að taka lán, en ég þekki sjálf hvernig þeir blekkja mann til þess." Jónína

Reyndar held ég að fjölmargar ungar fjölskyldur hafi einmitt verið neyddar til að taka gríðarlega óhagstæð húsnæðislán til þess að fá þak yfir höfuð. Ég hef heyrt fólk tala um að í ástandinu þessa dagana væri tilvalið fyrir unga Íslendinga að kaupa sér gáma til að búa í, því að húsnæðisverð er langt yfir þeim mörkum sem fólk hefur efni á.

Hrannar Baldursson, 16.3.2008 kl. 12:26

12 Smámynd: proletariat

Ég er hætt að láta R…

Fannst að þessar færslur ættu að vera tengdar.

proletariat, 16.3.2008 kl. 12:35

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er athyglisvert innlegg sem Jónína Ben kemur hér með um sameiningu Frjálslyndra Framsóknar ofl. í nýtt pólitískt afl en framundan eru vissulega tímar pólitískrar gerjunar

Það er vissulega mikið þrekvirki að stofna nýtt stjórnmálafl en ég það gjörla þar sem ég hef verið sjálfboðaliði þingmaður og svo enn á ný sem sjálfboðaliði í starfi Frjálslynda flokksins.

Ég stýri nú málefnavinnu í landbúnaðar byggða og samgöngumálum en hef boðið formanni flokksins að minnka það starf til þess að geta sinn heimasíðu flokksins en að öðrum kosti þyrfti flokkurinn að reiða fram háar upphæðir til þess.  Frjálslyndi flokkurinn hefur víst ekki úr háum upphæðum að spila til að sinna flokksstarfi og allur sparnaður því þegin fegins hendi.

Ég vil endilega benda Jónínu og fleira góðu fólki að koma með góðar tillögur í ofangreindum málaflokkum og senda mér í tölvupósti en netfangið er sigurjon@sigurjon.is eða þá  mæta á fund í málefnahópnum sem haldinn verður í félagsheimili flokksins að  Skúlatúni 4 kl 18 þann 17. mars n.k..

Sigurjón Þórðarson, 16.3.2008 kl. 14:42

14 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Gerjunin er vissulega mikil og sem betur fer innan allra flokka. En ég vil orðið helst innleiða einmenningskjördæmi svo að lýðræðið virki. Sé hægt að skipta út ríkisstjórnum og velja umfram allt áhugaverða einstaklinga. Smáflokkaruglið eins og það birtist í Reykjavík fyrst með Framsókn og svo með F-lista skapar einungis vandræði.

Gunnlaugur B Ólafsson, 16.3.2008 kl. 15:51

15 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ef ég skil þig rétt Gulli þá ertu væntanlega að meina að Frjálslyndir og Framsókn eigi að slá sér saman og þá vinstri flokkarnir VG og S einnig.

Sigurjón Þórðarson, 16.3.2008 kl. 18:43

16 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Dharma það er ekki rétt að þetta sé einhver uppspuni varðandi umrædda Sjálfstæðismenn sem ég ræddi við en ég vil engu að síður ekki nafngreina þá.

Það er hins vegar rétt hjá þér að ég sé uppgjafa stjórnmálamaður en ég er engu að síður liðtækur sjálfboðaliði.

Sigurjón Þórðarson, 16.3.2008 kl. 18:50

17 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Skemmtilegur þessi Dharma, minnir mig á hundinn minn. Segi þetta bara vegna þess að það kom tík heim til okkar í dag. Hundurinn skeit á gólfið en tíkinni fannst það ekki fínt.

Gunnar Skúli Ármannsson, 16.3.2008 kl. 21:05

18 Smámynd: Jens Ruminy

Þetta fyrirkomulag að ráðherrar þurfa að fara í auglýsingar- og ímyndarherferð þekkist helst frá þróunarlöndum með ekkert eða vanþróað lýðræði sem hefur ekki unnið sér traust. Að þurfa að fara í slíkar herferðir er ekki síst afrakstur þeirrar stefnu að viðskipti á Íslandi lúti allt öðrum reglum en annars staðar í heimi og allir aðrir nema Íslendingar skilji samhengi mála rétt, eins og svarað er við gangrýni Moody's, OECD eða aðra á ástandi á Íslandi. Ef eitthvað er allt öðruvísi en ég er vanur, þá treysti ég því ekki.

En ég verð að svara eitt við pistil hennar Jóninu:

Ekki verja stjórnmálamenn sem vinna ekki vinnu sína og setja í tíma reglur sem gilda fyrir alla og verja einstaklinginn fyir áreiti banka, fjölmiðla eða annara. Ef þeir kunna ekki að vinna sín störf eru ekki þörf fyrir yfirvöld.

Af sjálfsögðu hefði verið rétt að takmarka eignarhald í fjölmiðlum að einhverju leiti STRAX ÞEGAR einkareknar (ljósvaka)fjölmiðlar voru leyfðar. En þegar peningamálastefnu Seðlabankans var breyt úr fastagengisstefnu í verðbólgumiðaðri stefnu 2000 (ef mig minnir rétt) gat öllum sem vildu verið ljóst að það mundi leiða fyrr frekar en seinna til hárrar verðbólgu og /eða hárra vaxta. Nú borgar alþýðan brúsann fyrir það að sumir ráðmann virðist aldri hafa farið lengra en hagfræði I.

Jens Ruminy, 16.3.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband