Leita í fréttum mbl.is

Getur Samfylkingin reiknað barn í konu?

Samfylkingin fer mikinn í útreikningum sínum á því hvað hægt er að fá fyrir að leigja út 12.000 tonna byggðakvóta. Fyrir þessi 12.000 tonn telur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir að hægt sé að fá heila 2 milljarða. Þá er líklegast reiknað með að kílóið af þorski sé leigt út á um 170 krónur. Samkvæmt Verðlagsstofu skiptaverðs var vegið meðalverð alls þorskaflans tæpar 180 krónur á kíló þannig að það sem situr eftir þegar búið er að borga leigu eru heilar 10 krónur á kíló til að standa undir rekstri við útgerðina og borga sjómönnum laun.

Með þessum útreikningum væri hægt að leigja allan þorskafla á Íslandsmiðum fyrir um 22 milljarða króna. Virði hans er samkvæmt opinberri stofnun 23,4 milljarðar þannig að það sem eftir situr er ekki há upphæð.

Þessar tölur sem Samfylkingin notar til viðmiðunar eru það viðmiðunarverð sem leiguliðar þurfa að greiða einhverjum handhafa kvótans fyrir að fá að veiða hann, algjört jaðarverð. Útgerðir sem þurfa að greiða þetta verð lifa alls ekki af venjulegum þorskveiðum, heldur þarf að stefna markvisst að því að veiða stærri fisk sem gefur þá hærra verð en meðalverðið segir til um og veiða ýsu í meira mæli þar sem leiguverð er mun lægra og gefur þá útgerðinni eitthvert lítilræði í aðra hönd.

Það er vonandi að Samfylkingin komi sér niður úr fílabeinsturninum, fari betur yfir útreikninga sína og átti sig á því hvers konar vitleysa er í gangi í sjávarútvegi landsmanna.

Þessir útreikningar Samfylkingarinnar minna núna óneitanlega á útreikninga Sölva Helgasonar sem fór mikinn og reiknaði m.a. tvíbura í eina afríkanska og var annað barnið hvítt og hitt svart. Nú reiknar Samfylkingin tugi ef ekki hundruð milljóna í hvert og eitt sjávarþorp landsmanna.


mbl.is Segir tímabært að endurskoða byggðakvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Blessuð sé minning Sólon íslandus !

Níels A. Ársælsson., 18.2.2008 kl. 20:10

2 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Já ég er ekki að sjá þetta ganga upp heldur...

Aðalheiður Ámundadóttir, 18.2.2008 kl. 20:12

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll, Nafni.

Það er ekkert nýtt þó Samfylkingin reikni barn í konu, Sólon íslandus reiknar fyrir hana, hefur áður komið fram á mínu blogi.

Kv, Sigurjón Vigfússon

Rauða Ljónið, 18.2.2008 kl. 21:17

4 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ekki verður dregið úr brottkasti nem komið á jafnrétti með því að ríkið okri á örfáum tonnum af byggðakvóta.  Þetta heitir á mannamáli að skera rófuna af hundinum til að halda honum veislu.

Sigurður Þórðarson, 18.2.2008 kl. 21:51

5 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ályt muslimanna í mannréttindanefdinni, gengur út á það að það sé mannréttindabrot að taka gjald fyrir veiðirétt,  af sjómönnum sem hafa haft það að atvinnu, að stunda veiðar.Ingibjörg verður að lesa betur. 

Sigurgeir Jónsson, 18.2.2008 kl. 21:59

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég fæ ekki með nokkru móti séð hvernig þessi "vitleysa" hjá ISG, getur verið "viðbrögð" við áliti mannréttindanefndarinnar?

Jóhann Elíasson, 18.2.2008 kl. 22:29

7 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Þetta eru ekki viðbrögð við áliti nefndarinnar, eða ekki rétt viðbrögð allavega.  Einu réttmætu viðbrögðin eru þau að tryggja að  allir sitji við sama borð og þeir sem heimildirnar fengu án endurgjalds hér um árið.

Aðalheiður Ámundadóttir, 18.2.2008 kl. 23:01

8 Smámynd: Jón Kristjánsson

Ingibjörg vill selja byggðakvótann, þann eina sem er ekki enn í "einkaeign", til þess að afla peninga svo fólk geti gert eitthvað annað (en að stunda sjó).
Sem sagt; síðustu bröndurnar skulu undir stóru karlana. Þá verður verkið fullkomnað.
Og - Grétar Mar er bara hrifinn af þessu skv. Fréttablaðinu! Var ekki markmiðið að losa okkur við kvótakerfið?

Jón Kristjánsson, 19.2.2008 kl. 12:19

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég ég eftir að sjá Fréttablaðið en ég á bágt með að trúa því að Grétar sé yfir sig hrifinn.

Sigurjón Þórðarson, 19.2.2008 kl. 12:42

10 Smámynd: Johnny Bravo

Málið er að kvótinn er 130.000.000kg og hann er gefinn og svo leygja þeir sem fengu hann að gjöf hann út á 100kr/kg, afhverju ætti ríkið ekki að leigja hann út á þetta? skapar 13milljarða í ríkisjóð í staðinn gætum við hætt með tolla og aukið menntun og lækkað skatta á fyrirtæki.

Það er nú Pétur Blöndal sem mest hefur talað fyrir þessari lausn, en vandamálið er að það eru svo margar lausnir að það er pólitískt sjálfsmorð að ætla að taka á þessu úr þessu.

Ef menn vilja leigja kvóta á 170kr.kg þá reikna menn vondandi ekki bara með 10kr til að halda í sér lífinu, eins og þegar menn leigja land eða húsnæði undir starfsemi, auðvitað er þeim alveg frjálst að leigja ekki þennan kvóta ef menn eru ósáttir. Þá leigja hann bara aðrir sem kunna betur að reka útvegsfyrirtæki.

Johnny Bravo, 19.2.2008 kl. 13:04

11 identicon

Í þínu gamla kjördæmi Sigurjón voru margir sjávarútvegsbændur, stórir og smáir, á fundi með Ingibjörgu hér á Akureyri í gærkvöldi. Mér heyrðist ekki betur að ýmisir jafnvel F-lista tengdir voru alveg tilbúinir að útfæra þessa hugmynd. Þetta er hugmynd til að vinna sig út úr þessu kerfi enda ljóst að það þarf að bregðast við áliti mannréttindanefndar SÞ. Ég skora frekar á þig Sigurjón að koma upp úr skotgröfinni og vinna að lausnum á þessu verkefni. Það er ekki fyrirfram hægt að gefa sér kílóaverð eftir svona breytingar. Svo eru til hugmyndir eins og löndunarskylda og svo frv. Mikilvægast er að grafa sig ekki niður og hvika ekki frá því. Tvær hugmyndir hafa ekki verið ræddar s.s. að opna kerfið neðan frá, eða móta stefnu gangvart því ef leyfð verður meiri veiði á þorski.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 13:41

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Gísli mér finnst það glæfralegt af þér að ýja að því að ég hafi ekki komið með lausnir á því hvernig best sé að losna úr klóm kvótakerfisins.

Pistill minn upplýsir hversu fráleit upphæðin er  sem sérfræðingar Samfylkingarinnar reiknuðu út, að hægt væri að fá fyrir leigu á 12.000 tonna þorskkvóta og Ingibjörg Sólrún bar á borð fyrir landsmenn.  

Sigurjón Þórðarson, 19.2.2008 kl. 15:18

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Johnny  þetta er aðeins flóknara en það sýnist vera í fyrstu þar sem þorskur og þorskur er ekki það sama.  Ef þú leigir 10 kg kvóta á verði Ingibjargar þá þarftu að reiða fram 1.700 kr. ef þú veiðir einn stóran þorsk sem vegur 10 kg. þá er hægt að fá 4oo kr. fyrir kg og þá fæst 4.000 fyrir gollann og mismunur á leigu og verðsins er 2.300 kr. sem rennur til útgerðarinnar.

Ef það eru 10 litlir  sem vega um 1 kg hver sem veiðast, þá fæst einungis um 100 kr per kg og í heild sinni fæst fyrir aflann 1.000 kr. þegar sjómaðurinn er síðan búinn að greiða leiguverð Ingibjargar þarf hann að greiða  með sér um 700 kr.

Þetta leiðir í fyrsta lagi af sér að áfram verður mikill hvati til brottkasts og í öðru lagi þá bitnar þetta öllu fremur á þeim veiðisvæðum s.s. hér norðanlands þar sem fiskur er öllu jafnan minni. 

Sigurjón Þórðarson, 19.2.2008 kl. 15:45

14 identicon

Það semég benti á Sigurjón að það er alls ekki sátt um þá leið sem þú bendir á, og ég vildi fá álit fleirri á þínum útreikningum á sölu byggðarkvóta. Ef þínir reikningar eru réttir gott og vel þá er ljóst að leiðin er þyrnum stráð. Mér hefur verið bent á ráðstefnu sem Háskólinn á Akureyri hélt um sjávarútvegsmál 2003. Þar séu áhugaverðar hugmyndir um hvernig megi snúa ofan af kerfinu. Það er nefnilega verkurinn.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 15:45

15 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það alvarlega í þessu máli er að það var hvorki Pétur eða Páll sem sendi frá sér þessa glórulausu ályktun. Það var formaður næst-stærsta stjórnmálaflokks okkar og ráðherra í ríkisstjórn.

Þessi, einhver viðkvæmustu efnahagsmál og byggðaröskunarmál þjóðarinnar eru greinilega í höndum fólks sem talar um þau eins og ábyrgðarlausir galgopar.

Athyglisvert er svo að sjá hér vegið að þér Sigurjón fyrir ábyrgðarlausan málflutning í tengslum við þetta mál. Mér eiginlega ofbýður.  

Árni Gunnarsson, 19.2.2008 kl. 15:46

16 identicon

Kalli Tomm hjá mér í kvöld kl 21 þú sérlega velkominn.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 19:31

17 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Gísli vorum við ekki á sama fundinum? Um hvað talaði ég, var það ekki akkúrat að opna kerfið neðan frá? Gísli minn þú varst á fremsta bekk og það er algjörlega vonlaust að þetta hafi farið framhjá þér minn kæri. Og hugmyndin um byggðarkvóta brask Ingibjargar var lítið tekið fyrir.

Hallgrímur Guðmundsson, 20.2.2008 kl. 01:09

18 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Sigurjón , leiga í krókakerfinu er í dag 210 kr og 240 kr í aflamarkskerfinu . Samkvæmt mínum útreikningum þá kostar ca 30 til 50 kr kg að veiða það á línu sé línuveiði stunduð allt árið um kring . kv .

PS. Til hamingju með FF fyrir norðan.

Georg Eiður Arnarson, 20.2.2008 kl. 07:55

19 identicon

Hallgrímur: Ég sagði einmitt að rætt hefði verið um það að opna kerfið neðan frá, sjá ofar. Mér heyrist Hallgrímur að tónninn í athugasemd þinni sé ekki í þá átt að leysa þetta verkefni. Miklu frekar drullukaka úr hinni skotgröfinni. Ósköp væri gaman ef þú/þið yrðuð lausnamiðaðir í þessu máli. Morgunljóst að þínar hugmyndir hafa ekki brautargengi. Já, eru þessar fréttir í Fréttablaðinu i gær réttar?! Ef svo er þá er hann inn á "braski Ingibjargar".

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 09:31

20 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sæll Gísli, ég las bar færsluna frá þér og þar segir þú þetta " Tvær hugmyndir hafa ekki verið ræddar s.s. að opna kerfið neðan frá, eða móta stefnu gangvart því ef leyfð verður meiri veiði á þorski" Tilv líkur. Ekki veit ég hvernig þú getur sagt það að mínar hugmyndir hafi ekki brautargengi. 

Miða við undirtektir sem samtökin hafa fengið get ég ekki fundið annað hjá fólki en góðar undirtektir. Við skulum leifa samtökunum að fæðast, fljótlega munum við fara að senda frá okkur þær hugmyndir sem við höfum fram að færa. Í skotgrafarhernað förum við ekki, það verður komið með hugmyndir sem hægt verður að ræða um svo einfalt er það.

Við sem komum að stofnun þessara samtaka trúum því staðfastlega að það má gera breytinga á þessu kerfi byggðunum til heilla, ég er ekki einn í þessu það ætti öllum að vera ljóst þó svo það hafi verið ég sem hef komið fram í fjölmiðlum. Í orðastríð og leiðindum í fjölmiðlum ætla ég ekki að standa minn kæri, verkin verða látin tala.

Ekki get ég tjáð mig um fréttina í Fréttablaðinu þar sem málið er mér með öllu ókunnugt. Það væri óábyrgt af mér að tjá mig um það sem ég ekki þekki, ekki satt? En með þennan fund hjá Sollu verð ég að segja eitt, það er nauðsynlegt að halda svona fundi það verður að gefa fólki tækifæri til að koma fram og tjá sig um þessi mál, það getur í það minnsta ekki skaða meira en þetta kerfi hefur nú þegar skaðað.

Hallgrímur Guðmundsson, 20.2.2008 kl. 09:54

21 identicon

Þá erum við næstum þvi að fallast í faðma Hallgrímur!

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 11:19

22 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sæll aftur Gísli, svona viljum við gera hlutina. Ræða málin og finna á þeim flöt sem raunhæft er að leggja fram. Það liggur alveg ljóst fyrir að verkefnin eru risastór en hvaða verk er þess eðlis að ekki megi leysa það? Fyrst mannskepnunni tókst að komast til Tunglsins og til baka, þá er þetta verk sem er vel leysanlegt ekki satt?

Hallgrímur Guðmundsson, 20.2.2008 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband