Leita í fréttum mbl.is

Opnir milljarðatékkar í allar áttir

Í sumar hafa kaupin á Grímseyjarferjunni verið tekin sem dæmi um subbuskap valdhafa sem taka til sín fé sem þeir hafa ekki heimild fyrir í lögum.

Það er ekki síður umhugsunarvert að nokkrum línum ofar í sömu fjárlögum, frá árinu 2006 og 2007, þar sem heimildin var veitt til kaupa á nýrri Grímseyjarferju var önnur heimild sem lætur ekki mikið yfir sér og hljóðar svo:

„7.7 Að greiða hlut ríkisins í undirbúningskostnaði Austurhafnar TR sem stofnað var á grundvelli samnings við Reykjavíkurborg um rekstur og byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík.“

Miðað við þrönga túlkun Ríkisendurskoðunar á sambærilegu ákvæði er varðar Grímseyjarferjuna er af og frá að það geti talist löglegt að greiða fjármuni í annað en takmarkaðan kostnað sem hlýst af undirbúningi verksins. Samt sem áður er verið að greiða milljarða úr ríkissjóði til byggingar tónlistarhúss eingöngu á grundvelli þessa heimildarákvæðis. Hér er ekki um neinar baunir að ræða þar sem áætlað er að heildarkostnaður hins opinbera til verksins verði sambærilegur þeirri fjárhæð sem á að nota í að grafa ein Héðinsfjarðargöng.

Í umræðu um ákvæðið tók varaformaður fjárlaganefndar það sérstaklega fram að umrædd heimild væri eingöngu til að greiða takmarkaðan undirbúningskostnað enda sagðist hann hvorki muna áætlun kostnaðar við byggingu tónlistarhúss né kostnaðarskiptingu ríkis og Reykjavíkurborgar.

Það verður að teljast víst að flestir þeir sem greiddu atkvæði með því að umrædd heimild væri veitt og tóku framangreind orð varaformanns fjárlaganefndar trúanleg höfðu ekki hugmynd um að með áðurnefndri samþykkt væri verið að opna á opinn tékka menntamálaráðherra á ríkissjóð á grundvelli einhvers samnings um byggingu tónlistarhúss sem þar að auki var hálfgerður leynisamningur. Þeir aðilar sem töldu að óeðlilega hefði verið staðið að samningsgerðinni þurftu að leita ásjár úrskurðarnefndar um upplýsingamál og í kjölfarið fengu þeir að sjá hluta af samningnum.

Það voru helst einstaka þingmenn Samfylkingarinnar sem höfðu varann á sér gagnvart umræddri afgreiðslu og var talið að um væri að ræða mögulega galopinn tékka.

Það er ekki hægt annað en að dást að sjálfstæðismönnum sem setja nýja samstarfsmenn í nýrri ríkisstjórn Geirs Haarde í að drepa á dreif umræðu um vafasama meðferð á opinberum fjármunum sem þeir gagnrýndu harðlega fyrir nokkrum misserum.

Það gerir Samfylkingin með því að beina spjótum sínum að einstaka nafngreindum verkfræðingi og halda kósífundi í nefndum þingsins þar sem lopinn er teygður í þeirri von að kastljós fjölmiðla og og áhugi almennings dofni.

Nú er að vona að áætlunargerð vegna tónlistarhússins gangi betur upp en endurbygging.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Já gott Sigurjón að vekja athygli á þessu. Það er sem ég segi fjárlögin ár hvert þyrfti að birta landsmönnum öllum lið fyrir lið, ekki hvað síst þegar kosningar eru fyrir dyrum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 6.9.2007 kl. 01:24

2 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Gott hjá þér, að vekja upp umræðu á þessu.

Einar Vignir Einarsson, 6.9.2007 kl. 08:28

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sammála Guðrúnu, fjárlögin ætti að birta landsmönnum lið fyrir lið, mjög gott hjá þér Sigurjón að vekja máls á þessu.

Hallgrímur Guðmundsson, 6.9.2007 kl. 14:58

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ótrúlegt mál, og ótrúleg viðbrögð ráðamanna líka. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.9.2007 kl. 16:31

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég er sammála því að það þarf að veita miklu meira aðhald með ríkisrekstrinum.  Fjárlögin eru á netinu en það á að vera tengill á greininni beint á fjarlog.is þar sem hægt er að kynna sér fjárframlögin.

 Ég get undir með að þetta þarf að vera aðgengilegra fyrir almenning og svo þarf að vera mun meira aðhald en auðvitað er það erfitt þegar að æðsti ráðamður þjóðarinnar Geir Haarde gerir lítið úr því sem út af ber og kemst upp á yfirborðið líkt og hann gerði í Kastljósinu í gær.

Sigurjón Þórðarson, 6.9.2007 kl. 16:31

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Geir Haarde gerði sig sekan um að "ljúga" að þjóðinni í Kastljósinu í gærkvöldi.  Hann sagðist hafa veitt heimild til þess að gamla Grímseyjarferjan yrði seld og peningurinn notaður til þess að kaupa aðra í staðinn.  Ekki fylgdist hann betur með en það að ég veit ekki til að það sé búið að selja gömlu Grímseyjarferjuna ennþá en það er búið að kaupa aðra ennþá eldri og minni og gera á henni endurbætur fyrir hundruð milljóna - hætti maðurinn bara að fylgjast með þegar hann var búinn að veita áðurnefnda heimild?  Ég er hræddur um að ábyrgð hans sé meiri en hann vill láta uppi.

Jóhann Elíasson, 6.9.2007 kl. 16:48

7 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Tek undir með höfundi. Flott að vekja athygli á þessum málum. Geir var afleitur og heufr misst allan trúverðugleika líkt og kollegi hans; Sturla. Þeir verða seint látnir axla þá ábyrgð, því miður.

Eitt sem ég vil vekja athygli á Sigurjón og það eru sveitarstjórnarmenn sem hafa a.m.k. betra aðgengi að fjárlögum og "læsari" en almenningur á þau.  Hvar er ábyrgð þeirra og af hverju heyrist rödd þeirra ekki? Ekki það að auðvitað á að birta fjárlögin lið fyrir lið. Lestur þeirra þjálfast með tímanum og það eru margir sem vilja fylgjast betur með.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 8.9.2007 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband