Leita í fréttum mbl.is

Menn eru með óráði

Maður veltir enn fyrir sér gagnrýnisleysinu gagnvart íslenska kvótakerfinu, hvað menn fá að vaða uppi með miklar vitleysur, eins og Þorsteinn Pálsson í leiðara sínum þar sem hann talar um að kvótakerfið hafi hagrætt og leyst úr læðingi kraft fyrir íslenskt atvinnulíf.

Nýleg skýrsla Hagstofunnar sýnir að þjóðfélagið fær tugmilljörðum króna minna út úr greininni árlega þrátt fyrir meintan hagnað greinarinnar á ári og þorskafli er núna helmingi minni en fyrir daga kvótakerfisins.

Hver er stöðugleikinn? Hvar er stöðugleikinn?

Eini krafturinn sem hefur verið leystur í greininni er að hún hefur verið skuldsett fyrir nokkur hundruð milljarða króna á síðasta áratug. Það er eflaust sá kraftur sem Þorsteinn Pálsson vísar til í leiðara sínum en eftir stendur atvinnugrein sem er skuldugri og laðar alltaf minna og minna til sín ungt fólk eins og aðsókn að Fjöltækniskólanum ber með sér á umliðnum árum.

Maður furðar sig á því að bæði stjórnvöld og aðrir fjölmiðlar en Stöð tvö hafa lítið fylgt eftir svindlinu í sjávarútvegi sem að mati fiskistofustjóra eru margir milljarðar árlega.

Núna er ég staddur í Skotlandi á Fishing 2007 þar sem ég hitti marga forsvarsmenn í breskum og írskum sjávarútvegi. Jafnframt á ég von á að hitta nokkra blaðamenn í greininni og verður gott að fá tækifæri til að ræða ýmis mál, eins og t.d. ástandið á Íslandi. Það verður fróðlegt að hlera hljóðið í þeim og heyra hvað héðan er að frétta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn- Sigurjón ert þú ekki farin að fatta þetta þetta ennþá? Þetta eru business maður grjótharður business .Stela og selja fiskinn í sjónum þetta snýst um það.Eg veit ekki hvern anskotan Þorseinn Pálsson vill upp á dekk, var ekki búið að reka hann? hans eigin flokksmenn. Eg hélt satt að segja að hann yrði stjórnarformaður LÍÚ þegar skipt var út síðast. Þorsteinn fór illa með margann góðann manninn,sem var að basla í útgerð þegar hann var sjávarútvegsráðherra og var að festa kvótakerfið í sessi.

bjarnidyrfjord (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 11:51

2 identicon

Þorsteinn Pálsson ætti að skmmast sín og þegja um þessi mál. Sigurjón- hvar er Magnús Þór? er hann enn í sjokki? það þarf nausinlega að fá hann til að fara ofan í kompásmálið það er verið að þaga þetta í hel.hvað er í gangi í þessu þjófélagi? Menn bera vitni um það í sjónvarpi  ( fiskistofustjóri ) að það hafi verið stolið þúsundum tonna af fiski, og er það bara allt í lagi? það virðist vera, eða hvað?

bjarnidyrfjord (IP-tala skráð) 25.5.2007 kl. 13:40

3 Smámynd: Grétar Pétur Geirsson

Þetta er alveg rétt Sigurjón.Nú þurfum við Frjálslyndir svo sannarlega að standa í ístæðinu sem aldrei fyrr

Grétar Pétur Geirsson, 25.5.2007 kl. 13:45

4 Smámynd: ragnar bergsson

Það er ekkert skrítið að hann reyni að fegra ófögnuðinn hann á þar stóran hlut að máli.

ragnar bergsson, 25.5.2007 kl. 17:06

5 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Sigurjón, fyrir menn eins og mig sem þekkja söguna illa þá er það nokkuð merkilegt með tengslin milli Þorsteins og LÍU.

Persónulega er ég hrifinn af markaðslögmálum, en þau virðast ekki virka í sjávarútveginum. Þar ræður hinn stóri og sterki í skjóli einokunar.

Það er rétt sem Bjarni segir að nýta þarf betur Kompás þáttinn til að fá umræðu. Þar voru málin útskýrð þannig að jafnvel landkrabbar eins og ég "föttuðu" hvað málið snýst um. Ég sakna líka Magnúsar Þórs, hann þegir þunnu hljóði eftir kosningar. Okkur vantar sterka rödd sem gefst aldrei upp, sem er óþreytandi að hamra á óréttlæti núverandi kvótakerfis. Sigurjón við þörfnumst manna eins og þín, sem gefast ekki upp og halda baráttunni áfram og þorir að standa upp í hárinu mönnum eins og Þorsteini Pálssyni.

Gunnar Skúli Ármannsson, 25.5.2007 kl. 21:13

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Svo vill til að það er einmitt Þorsteinn Pálsson sem ber ráðherraábyrgðina á mestu mistöku síðustu aldar allrar sem eru lögleiðing brasksins í sjávarútvegi og auðvitað ver hann það sem ritstjóri hér og þar ljóst og leynt , hvað annað.

Væri hann hlutlaus faglegur ritsjóri viðlesins blaðs myndi hann gagnrýna hlutina á faglegum forsendum að öllum líkindum en hann er fyrrverandi ráðherra sem var sendur til útlanda sem sendiherra eftir afrekin í ráðuneyti sjávarútvegs á sínum tíma.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 26.5.2007 kl. 01:53

7 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Sæl og blessuð öllsömul

Ég er enn í fullu fjöri og hef haft í nógu að snúast eftir kosningar og hvergi af baki dottinn. Mun láta heyra í mér af fullum krafti.

Bestu kveðjur,

Yðar einlægur

Magnús Þór Hafsteinsson, 26.5.2007 kl. 15:02

8 identicon

Það er magnað að lesa yfir málflutning ykkar, ekki vottur af rökum fyrir neinum fullyrðingum sem þið setjið fram. Er sóknardagakerfið þá mun hagkvæmara kerfi og mun það fá þorskinn til að fjölga sér?  Ætlið þið að sigla á miðin og dreifa töfradufti frjálslynda flokksins.  Fyrir daga kvótakerfisins máttu allir veiða að vild, það væri nú frábært ef það hefði fengið að halda áfram.  ....heyrðu, er ekki sóknardagakerfið líka kvótakerfi?

Jóhann Gunnarsson (IP-tala skráð) 27.5.2007 kl. 06:06

9 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Ef ég má blanda mér í þessa umræðu þá snýst þetta ekki um kvótakerfi eða sóknardagakerfi. Málið snýst um að þjóðin eigi kvótan og að arður af fiskveiðistjórnuninni skili sér til þjóðarinnar og aflastýringin verndi fiskistofninn fyrir ofveiði. Það er engin  stýring núna þar sem ekki er vitað  hversu miklu er landað fram hjá vigt og hversu mikill afli er litaður ( þ,e,önnur fisktegund en gefin er upp) Ég held að það þurfi ekkert töfraduft til að finna út að það er meiri fiskur í sjónum en Hafró vill vera láta. Þetta er ágæt stýring á sölu-og leiguverði að draga sífellt úr leyfðum veiðiafla ekki satt ?

Kolbrún Stefánsdóttir, 27.5.2007 kl. 11:05

10 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Ég tek sérstraklega undir með Gunnari Skúla já og fl á þessari síðu.Það var nú sagt við mig um daginn".Hvern fjandan kemur manni Flateyri við.Maðurinn seldi bara sinn business.Þessir útlendingar geta bara hypjað sig heim".Svona hugsa þeir sem settu X við Dið.Ég veit að þið 3,þú Magnús og Kolbrún eigið eftir að blómstra á Alþingi þó það verði ekki fyrr en eftir 4 ár.4 ár er ekki svo langur tími í lífi manns.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 27.5.2007 kl. 19:45

11 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Það versta við þetta kvótakerfi er að það getur bara versnað.

Georg Eiður Arnarson, 28.5.2007 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband