Leita í fréttum mbl.is

Vesalingarnir í Samfylkingunni

Samfylkingin er búin að gefast upp á að afnema verðtrygginguna og einnig að leiðrétta skuldir heimilanna fyrir utan það sem Hæstiréttur dæmdi, þvert ofan í vilja ráðherrra flokksins.  Sömuleiðis hefur flokkurinn tekið U beygju í sjávarútvegsmálum og réttlætt leynilegar afskriftir til hrunverja. 

Helstu afrek Samfylkingarinnar er að koma á kynjuðum fjárlögum og banna ljósabekkjanotkun ungmenna.

Núna hefur Samfylkingin blásið til orustu við þjóðhátíðardaginn 17. júní undir leiðsögn eins helsta hugmyndasmiðs samtakannna, Illuga Jökulssonar

Stjórnin á sína aðdáendur enn en það eru innheimtumennirnir í AGS og eigendur  bankanna þ.e. vogunarsjóðirnir sem uppskera ríkulega á að kreista almenning og hæla stjórninni á hvert reipi.


mbl.is Gagnrýndi hátíðarhöldin 17. júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þetta er auðvitað fyrsta skrefið inn í ESB að sturta niður þjóðhátíðardeginum.  Þvílíkur vesældómur.  Norðmenn halda sko sinn dag heilagan, þar er allt á fullu allan daginn og mikið um að vera, þeir eru stoltir af sínum þjóðhátíðardegi.  En okkar Samfylkingar og ESBlúðar hlæja og skemmta sér yfir hve vel tekst til að klúðra 17. júní. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2012 kl. 20:56

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Er ekki hægt að gefa þessu liði lýsi.

Sigurjón Þórðarson, 19.6.2012 kl. 21:03

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei gefum þeim laxerolíu, það er betur við hæfi

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2012 kl. 21:06

4 identicon

Ef þú heldur að lýsi sé slæmt að taka inn,eitt það besta sem þú gefur líkama þínum er lýsi.þá er ekki skrýtið hvernig þinn hugsanarháttur er.Þú veist ekki hvað er rang eða rétt í neinu máli.Ert þú í Framsókn?já eða nei?

Sigrún T Einarsdóttir (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 00:22

5 identicon

Þingmenn Hreyfingarinnar/Dögunar samþykktu enn frekari aðlögun að ESB með því að samþykkja IPA styrkina.  Are you only in it for the money ... þeas. til að fá ríkisstyrki Hreyfingarinnar til fjármögnunar framboðsins, skítt með málefnin og hvernig þið sullist áfram? 

Allt er þetta á þinni vakt Sigurjón.  Hvenær ætlarðu að feisa það? 

Þið látið Samfylkinguna teyma ykkur á asnaeyrunum.  Hvenær ætlar Dögun að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi fláræði og undanrennuhátt Hreyfingar Vesalinganna, sem ítrekað styðja helferðarríkisstjórnina?

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 20.6.2012 kl. 03:31

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Nú er ég ekki á Alþingi eins og kunnugt er en er varaformaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.

Í gær samþykktu allir í stjórn SSNV nema einn að skoða hvort hægt sé að nýta umrædda styrki hér á svæðinu til góðra vera. Á meðan við erum í aðildarviðræðum þá tel ég rétt að nýta það jákvæða sem boðið er upp á.

Ég tel hins vegar rétt að fá botn í viðræðurnar sem allra fyrst svo hægt verði að kjósa um málið og þá er ég nokkuð viss um að aðildarsamningur yrði kolfelldur.

Sigurjón Þórðarson, 20.6.2012 kl. 09:18

7 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

Sigurjón..Ekki raska ró hennar Jóhönnu,hún er á Bæn..

Vilhjálmur Stefánsson, 21.6.2012 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband