Leita í fréttum mbl.is

Hannes Bjarnason skoraði í Árgarði

Greinilegt er að  framboð Þóru snýst fyrst og fremst um að fara  gegn Ólafi Ragnari Grímssyni og þeirri ákvörðun hans að skjóta Icesave-málinu til þjóðarinnar en að öðru leyti ekki fyrir neinum öðrum málefnum.  Helstu stuðningsmenn Þóru telja að besta leiðin til þess að vinna framboði hennar fylgis sé að snúa út úr orðum forseta Íslands og leggja út af þeim á versta mögulega veg.

Þóra  Arnórsdóttir virðist hafa fátt ferskt fram að færa ólíkt mótframbjóðandanum sínum Hannesi Bjarnasyni.  Í dag sat ég fund með Hannesi í Árgarði þar sem rætt var um lagningu háspennulínu í Skagafirði.  Óhætt er að fullyrða að Hannes hafi skorað á fundinum með áhugaverðum athugsemdum og fyrirspurnum sem opnuðu nýja vinkla á skipulags- og raforkumál lýðveldisins.

Fjölmiðlar verða að tryggja að aðrir forsetaframbjóðendur en þeir sem hafa miklar flokksmaskínur á bak við sig fái sanngjarna umfjöllun og kynningu. 


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er nú ósanngjarnt Sigurjón.

Að tengja icesave málið við einhvern tiltekinn frambjóðanda til forsetaembættisins bara afþví að hann er ósammála Ólafi í því hvað þetta embætti stendur fyrir.

Hver segir að Þóra hefði ekki líka beint þessu í þjóðaratkvæðagreiðslu ef hún hefði fengið þessar tugþúsundir undirskrifta.

Þótt hún hafi aðrar áherslur en Ólafur, hvað varðar að gera forsetaembættið svona rammpólitískt.

Við þurfum forseta sem sameinar þjóðina (veit að þetta er klisja, en þetta er satt þrátt fyrir það) í stað þess að sundra henni, eins og Ólafur hefur gert ítrekað til að bæta sínar vinsældir.

Gott dæmi er þegar Ólafur skaut á 101 Reykjavík til að skora prik hjá kjósendum úti á landi á einhverjum fundinum.

Þetta er ekki það sem við þurfum. Þessi þjóð er beygð og jafnvel brotin í einhverjum tilvikum, eftir hrunið og Ólafur spilar inná það og gerir verra með þjóðrembu málflutningi sínum.

Mikið hlakka ég til þegar Þóra tekur við. Og þótt þú styðjir hana ekki í dag, að þá áttu eftir að sjá það þegar þú gefur henni tækifæri að hún er mun betri kostur en þessi gamli pólitíski refur.

Takk fyrir annars skemmtilega bloggsíðu, ég les hana oft.

Kveðja

Einar

Einar (IP-tala skráð) 28.5.2012 kl. 18:55

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Einar, takk fyrir athugasemdina en ég er m.a. að benda á að frambjóðendurnir eru fleiri og sumir hverjir ferskari.

Sigurjón Þórðarson, 28.5.2012 kl. 18:59

3 identicon

Ólafur Ragnar er líka búinn að snúa útur. Mikið vona ég að Þóra verði kosinn því ég er algerlega búinn að fá nóg af Ólafi Ragnari. Þvílík hræsni að halda því fram að hann sé einhver hetja að hafa ekki skrifað undir ICESAVE... hann byrjaði nú á því að skrifa undir fyrsta samkomulagið sem var langsamlega verst. Svo var endursamið tvisvar (ennþá slæmir samningar) og þá var ekki hægt að skrifa undir??? Hann sá sér bara leik á borði að geta hækkað upp fylgi sitt sem var í lægstu lægðum mikið er fólk fljótt að gleyma.

Páll Jens Reynisson (IP-tala skráð) 28.5.2012 kl. 19:17

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hefur það komið fram hvað Þóra kaus í Icesave-kosningunum sem þjóðin felldi?

Sigurjón Þórðarson, 28.5.2012 kl. 19:23

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Páll: Ólafur laut bara vilja þjóðarinnar og tugþúsundum áskoranna um að leggja málið fyrir þjóðina. Hann tók ekki einu sinni persónulega afstöðu með því heldur afstöðu með meirihluta þjóðarinnar, sem hafði ítrekað komið fram. Þar virkaði hann sem sameiningarafl framar öllu öðru. Hefði hann lotið vilja minnihlutans, sem aldrei skoraði á hann að samþykkja, þá fyrst hefði orðið hér sundrung og reiði sem varað hefði til dagsins í dag, þó ekki væri nema fyrir afleiðingarnar.

Þóra segir Ólaf hættulegan stjórnskipan landsins af þessum sökum og virðist ekki hafa hugmynd um það að í lýðræðisríki þá er þjóðin efst í goggunarlista valdsins. Annars héti þetta einfaldlega ekki lýðræði. 

Ef þér og Einari hér að ofan reynist erfitt að skilja þetta, þá legg ég til að þið leggist í lestur og fræðist um grunnstoðir lýðræðis og stjórnarskrá landsins. 

Ef þið teljið heimóttalega ættjarðarást vera þjóðrembu, sem páfar samfylkingarinnar ganga jafnel svo langt að líkja við nasisma og ónefndan fjöldamorðingja í noregi (Eiríkur Bergmann), þá er fokið í flest skjól.

Þið viljið væntanlega banna forsetanum að bera þjóð sinni gott vitni og stuðla að árangri íslenskra frumkvöðla og fyrirtækja? Banna honum að kynna menningu og sögu? (Vigdís kæmi aldeilis hrikalega út ef þetta er mælikvarðinn).

Þið viljið væntanlega þurrka út einkenni þjóða og banna fólki að vísa til einkenna með stolti?  Segið Frökkum, þjóðverjum, Ítölum, Svíum, Ameríkönum eða Aserbajönum það. 

Þetta er hreint ótrúlegt væl.

Viljið þið gefa okkur upp afstöðu ykkar til Icesave og ESB? Það hjálpaði mér að skilja ykkur. Ég vissi ekki að Frjálslyndi flokkurinn berðist gegn Ólafi og gegn þjóðinni í mikilvægum svo málum eins og Páll gefur í skyn. Kannski er þessi flokkur svona gersamlega glatað fyrirbrygði.

Sigurjón: Ég veit annars ekki hvað hugarefni forsetaefna komi framboðum við. Þau hafa ekkert vald til að reka mál fyrir þingi né framkvæma. Forseti hefur hvorki lögjafar né framkvæmdavald. Það eina sem ég vil vita um forseta er hvort hann er flokksbundinn í einhverju stjórnmálaafli og hvaða afstöðu hann hafi til þjóðaratkvæða.  Ef hann telur sig þurfa að lúta áskorunum þjóðar í málum sem snerta afkomu og framtíð landsins, þá er hann á réttri leið. 

Jón Steinar Ragnarsson, 28.5.2012 kl. 19:52

6 identicon

Sigurjón Þórðarson vill að kvótagreifarnir eigi allan fiskinn i sjónum og allir aðrir hafi rangt fyrir sér !!!

Þessar orð sem hér eru skrifuð að framan eru á sömu nótum og skrif þín Sigurjón !

Einhverra hluta vegna er alltaf verið að gera fólki upp skoðanir af sérvöldum sjálumglöðum íslenskum pólitíkusum, eins og þér !

Þú markar þér bás , það gerði það enginn annar !!!

JR (IP-tala skráð) 28.5.2012 kl. 20:04

7 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Er þá ekki upplagt að Hannes stofni fyrirtæki í Skagafirði og leggi sitt af mörkum?

Berglind Steinsdóttir, 28.5.2012 kl. 20:33

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

JR?

Sigurjón Þórðarson, 28.5.2012 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband