Leita í fréttum mbl.is

Sjálfseyðingarhvöt Samfylkingarinnar

Samfylkingin, ásamt Steingrími J, er nú á miklu spretthlaupi við að veita Samherja og öðrum helstu útgefendum Morgunblaðsins nánast einokun á því að nýta fiskimiðin út 21. öldina.

Í kappi stjórnarflokkanna við að afhenda eigur almennings eru mannréttindi og jafnræði látin lönd og leið. Sömuleiðis er algerlega litið fram hjá því að "árangur" kvótakerfisins hefur verið hræðilegur við að ná upphaflegu markmiði sínu sem var að auka afla á Íslandsmiðum.

Nú þegar hafa eigendur Moggans, sem eru ráðandi í LÍÚ og SA, nánast kverkatak á stjórnvöldum þó svo að nýtingarrétturinn sé einungis veittur til eins árs í senn og að helstu eigendur séu illilega flæktir í vafasama gjörninga í aðdraganda hrunsins.

Við öllu hugsandi fólki blasir að kvótafrumvarp Steingríms J.  mun styrkja stöðu Moggamanna í samfélaginu og ég leyfi mér að efast um að það muni verða Samfylkingunni og Evrópumálum sem flokkurinn setur á oddinn til framdráttar.

Kannski var eftir allt saman engin meining á bak við  Evrópustefnu Samfylkingarinnar frekar en afnám verðtryggingarinnar og réttláta fiskveiðistjórnun.


mbl.is Vilja vita ástæður húsleitarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allir þeir sem hafa þegið laun frá alþingi svo lengi sem ég man, ( ég er fæddur 1952 og hef verið á sjá í 20 ár ) hafa ekki þorað að gera neitt varðandi neinar breytingar um eitt né neitt varðandi sjávarútveginn !!!

Hvers vegna ?

Jú, Sigurjón, þú og fleiri hafið haft hagsmuni af því að ekkert er gert !

Það er gott að kenna alltaf öðrum um !!!

Sandkassaleikur ykkar, sem hafið fengið laun sem alþingismenn, sýna okkur venjulegum íslendingi hvar hugar ykkar liggur !!!!

JR (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 00:45

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég held að Samfylkingin skilji ekki hvað er meinið hér. Þeir eru einfaldlega svo vitlausir. Maður hallast að því. 

Það sem hefur verið að efnahagsmálum á Íslandi undanfarna áratugi eru inngrip útgerðarelítunnar í gengismál. Það þurfti ekki nema símtal neðan úr LÍÚ til að fá gengið fellt fyrir fiskútflutninginn.

Í velgengni þessa lykiliðnaðar hækkaði gengið og það bitnaði á útflutningsverði.  Menn töldu sig missa samkeppnishæfni með hækkun á útflutningsverði og heimtuðu gengisfellingu frekar en að lækka fiskverð eða hleypa fleirum að og ná hagkvæmni í magni þrátt fyrir eilitla lækkun.  Allt miðaði þetta að því að halda völdum fárra í greininni og loka fyrir nýliðun. Þessir fáu vildu eiga kökuna og éta hana hvað sem það kostaði þjóðarbúið.

Lækkað gengi þýddi svo hækkað innflutningsverð hjá þjóð sem flutti nánast allar nauðþurftir inn. Þetta orsakaði verðbólgu, minnkandi kaupmátt og hrun í verði eigna, sem orsakaði svo óró á vinnumarkaði og víxlverkun kaupgjalds og verðlags.  Til þess að bregðast við þessum afleiðingum (í stað þess að opna á frelsi í greininni) þá var verðtryggingu komið á og hún seld fólki með þeim formerkjum að laun yrðu verðtryggð líka.  Það hentaði útgerðinni þó ekki því þá græddu þeir ekki á öllum endum svo sá hluti verðtryggingar var tekinn af.

Þú sérð keðjuverkunina hér bara út frá þessu einfalda fokki með gengið fyrir hina útvöldu. Verðtryggingin er líka afleiðing þess.

Eðlilegt jafnvægi í gengi náðist aldrei og allt hefur verið upp í loft í þeim málum alla tíð vegna þessa. Rússibanareið. Lausnin hefði verið að heypa fleirum að, fiska meira og setja háar gæðakröfur. Ísland væri ríkasta land í heimi. En nei..það hentaði ekki útgerðarmafíunni því þá missti hún spón úr aski. Allir Íslendingar hafa þurft að borga fyrir þetta.

Það er ekki nóg með að þeir hafi haft tögl og hagldir á þingi, því þeir eru voldugir í bankakerfinu líka. Þegar verðtryggingin var sett á, þá var ekkert gert til að lækka þá verðtryggingu sem va fyrir þ.e. vextina. Þrátt fyrir verðtryggingu voru þeir áfram 4-6% þegar 1% hefði verið eðlilegt.  Þar er þjóðinni riðið two times over og rænd enn frekar. 

Engum dettur í hug að kæra þetta rán því allir þeir sem séð hafa í gegnum þetta hafa hlotið einhverskonar vegtyllur og þagnað. 

Ef Ísland ætlar að vera áfram sjálfstæð þjóð með sterka mynt og réttlátt samfélag, þá þarf að breyta þessu eina atriði sem allri þessari keðjuverkan kemur af stað og rýr okkur inn að skinni.

Hrunið má síðan segja að hafi orðið fyrir ofgnógt peninga í höndum þessara fáu, sem fóru að gambla með það í tuskubúðum erlendis. Gráðugum fábjánum sem aldrei hafa dýft hendi í kalt vatn og hryllir við að þurfa að deila auðlegð landsins með þeim, sem eiga hana.

Við erum hersetin af Þessari mafíu og  hún mergsýgur allt. Eina sem Samfó og VG dettur í hug að gera er að skattleggja hana frekar en raska ekki vígi hennar og einokun. Þeir eru sáttir við status quo. Útgerðin mun taka veiðigjaldið af hlut sjómanna, sem þegar hafa misst skattaafslátt sinn. Endurnýjun skipa mun hætta og þetta færi smátt og smátt á steinaldarstigið aftur. 

Græðgin hefur grafið þeim þessa gröf og í fallinu munu þeir taka alla með.

Þurfum við aðra mynt? Nýja stjórnarskrá eða að afsala fullveldi okkar til vopnabraskara ESB? Nei. Við þurfum að breyta því sem velti þessari vítiskúlu af stað. Það er einfalt mál. Það þarf bara heiðarleika til, ef hann finnst á þingi okkar, þar sem 80% liðsins er keypt til hlýðni.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.4.2012 kl. 00:57

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þegar strandveiðar voru leyfðar, þá bitnaði það á fiskverði og útgerðin rak upp ramakvein. Magnið var þó meira og þetta borgaði sig. Það sem fór í taugarnar á mönnum var að auðlegðinni skyldi dreift. Það er tabú.

Ef allur fiskur fer á markað og verð lækkar, þá á það að vera vinnslunni búbót. Lágt hráefnisverð eykur tekjur af útflutningi og eykur samkeppnishæfni. Allir græða í endann.

Hið vanhelga hjónaband LÍÚ og Hafró er það sem slíta þarf líka. Þú hefur aldrei heyrt LÍÚ kvarta yfir höftum þaðan, enda eru það líklega þeir sem í gegnum fulltrúa sína í ráðuneytum panta þessi höft. Sjómenn reka upp ramakvein og smáútgerðir missa allt afkomuöryggi og lognast útaf í lokuðum hólfum en hinir stóru halda hítinni.

Hvernig væri að menn leggðust í það að greina þetta samsæri þjóðinni til bjargar.

Það ætti t.d. að hringja bjöllum þegar útgerðin fagnar því að gengið hrapi og eigur manna brenni upp. Aldrei hefur gengið jafn vel á þeim bænum á meðan þjóðin er að geispa golunni. Sjá menn samhengið í því? Sjá menn viljann til að hafa veika krónu og halda henni þannig?

Af hverju vilja þeir ekki Evru? Er það ekki augljóst? Þeir eiga mynt sem þeir hafa fullan control yfir. Þannig vilja þeir hafa það.

Ég er ekki að mæla með evru heldur er ég að segja að við værum með mynt, sterkari evru ef við losum helgreip útgerðainnar af henni. Í næstu kosningu ættu menn því að skoða vel hagsmunatengsl og fjölskyldutengsl þeirra sem bjóða sig fram.  Þar er margur pottur brotinn og hefur verið lengi.

Þarf byltingu til að ná krónunni úr klóm LÍÚ?

Jón Steinar Ragnarsson, 2.4.2012 kl. 01:15

4 identicon

,,Í næstu kosningu ættu menn því að skoða vel hagsmunatengsl og fjölskyldutengsl þeirra sem bjóða sig fram.  Þar er margur pottur brotinn og hefur verið lengi."

Þú veist eins og flestir venjulegir íslendingar að klíkuklúbbasamfélagið í þessu landi er sterkt !

Hvort það eru glæpasamtök , eins sjálfstæðisflokkurinn sem gaf sjálfdæmi í fjármálasukkinu, eða aðrir sakleysingjar eins og bændastéttin sem er sett í pant hjá FISK á Sauárkróki í þágu svika með fjármagn GIFTAR ???

Þetta íslenska þjóðfélag er enn með sömu andlitin í sömu stöfum við að ræna þjóðina !!!

Hvers vegna ?

Jú, þið eruð allir á launum við búa til ósamstöðu hjá fólki !!!

Þið skrifið mikið en meiningin er engin !!!

JR (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 01:33

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Kannski er málið Jón Steinar að meinið sé heimska.

JR, mér finnst það nokkuð bratt að setja þá Halldór Ásgrímsson og Grétar Mar Jónsson í sama flokk alþingismanna.

Sigurjón Þórðarson, 2.4.2012 kl. 01:33

6 identicon

Finnst mönnum ekkert áhugavert hvernig ,,eignarhald" er á fyrirtækjum er í þessu landi ?

Getur það verið að meirihluti launamanna á almennum vinnumarkaði sé í starfi hjá ,,glæpamönnum"  ?

Hvers vegna voru eigur ,,glæpamanna" ekki teknar af þeim ?

Jú, klíkuklúbbasamfélagið !!!

Þeir baða sig í frægðarsól i útlöndum, rífa kjaft með launað fjölmiðlafólk og lögfræðinga, en þurfa aldrei að gjalda gjörða sinna !

Allt vegna klíkuklúbbasamfélagsins !!!

JR (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 01:46

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er ég nú líka orðinn leigupenni JR.

Hver ætti það að vera sem greiðir mér kaup fyrir að setja inn komment á blogginu? Geturðu svarað mér því? Bara svona til að ég sannfærist um að þú hafir eitthvað fyrir þér en sért ekki alger vitfirringur.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.4.2012 kl. 02:07

8 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég gat ekki annað en hlegið þegar þessi yfirlýsing Friðriks Arngrímssonar birtist á síðu LÍÚ:

"Það skýtur skökku við að á sama tíma og forsvarsmenn ríkissjórnarinnar tala um nauðsyn þess að styrkja gengi krónunnar er ráðist í aðgerðir sem grafa undan sjávarútvegnum, undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Óhagkvæmari sjávarútvegur veikir gengi krónunnar og grefur undan kaupmætti heimilanna í landinu.."

Reynslan er sú að velgengni í sjávarútvegi (þ.e. hjá hinum útvöldu) hefur alla tíð kallað á gengisfellingar og það með valdi. Öfugmælavísur, hræðsluáróðu og hótanir er það eina sem kemur úr þessum vígstöðvum. Ekki stakt orð samkvæmt veruleikanum.

Jón Steinar Ragnarsson, 2.4.2012 kl. 04:17

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Bara svona innlegg eins og þetta óráðsrugl JR sem greinilega gerir ekki mun á plús og mínus, segir frá því hversu mikið er búið að rugla saklaust fólk með ábyrgðarlausum stjórnmálum. 

Árni Gunnarsson, 2.4.2012 kl. 08:18

10 identicon

Fyndnasta kommentið á Jón Steinar. Samfylkingin er svo vitlaus. Spillt er hún ekki. Hún bara veit ekki betur.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 2.4.2012 kl. 08:26

11 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er gömul heimska að gengisfellingar hafi verið gerðar sérstaklega að kröfu útgerðarinnar.Gengið er fellt vegna þess að það er þegar fallið og þjóðin eða þjóðir eiga ekki gjaldeyrir fyrir þeim innflutningi sem er að eiga sér stað.Vörur eru einfaldlega gerðar dýrari svo færri geti keypt þær og þannig sparast gjaldeyrir.Síðustu stóru gengisfellingarnar 2008.áttu sér stað þegar krónan var á floti og hafði verið of hátt. skráð í mörg ár.Útgerðin hafði ekkert með það að gera að gengið féll, ekki frekar en önnur útflutningsfyrirtæki.Og útgerðin hefur ekkert með það að gera að Seðlabankinn lætur gengið falla þessa dagana.Gengið fellur sjálfkrafa þega fyrir séð er að Ísland mun lenda í gjaldeyrisþurrð með sama áframhaldi.En þú Sigurjón þarft að athuga þína stöðu.Þú ert aðili að flokki.Dögun sem ver ríkisstjórn Samfylkingar vantrausti.Þú ert þar með einn af þeim sem heldur ríkisstjórninni á floti, svo það fer þér illa að andskotast út í Samfylkinguna.

Sigurgeir Jónsson, 2.4.2012 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband