Leita í fréttum mbl.is

Formaður Sjálfstæðisflokksins í erfiðum málum

Í þættinum Landið sem rís, var Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins að fara yfir orsakir hrunsins og hver næstu skref ættu að vera við endurreisn landsins. Bjarni fékk málefnalegar og gagnrýnar spurningar frá þáttarstjórnendum. Meðferðin á Bjarna var að þvi leytinu býsna ólík þeirri sem að formaður Vg fékk í sama þætti, en Steingrímur J. fékk að vaða á súðum um mikla björgunarleiðangra sína undir nánast lofgjörð þáttarstjórnenda.

Greinilegt var að Bjarni hefur fengið línuna úr Hádegismóum um hvað hafi orskað hrunið og hvernig eigi að vinna sig út úr erfiðri stöðu. Í stuttu máli þá var rauði þráðurinn í viðtalinu sá, að orsakanna væri ekki að leita í algerri óstjórn og einkvinavæðingu Sjálfstæðisflokksins - Skýringarnar voru einhverjar allt aðrar.

Furðulegt var að hlusta á formann Sjálfstæðisflokksins leggja stein í götu endurskoðunar á stjórnarskrá landsins. Sömuleiðis þá bjóst ég við að nýsleginn baráttumaður fyrir mannréttindum Geirs Haarde væri búinn að sjá ljósið og búinn að endurskoða stefnu Sjálfstæðisflokksins gagnvart illræmdu kvótakerfi sem brýtur mannréttindi á sjómönnum, en svo virðist ekki vera. Ekki mátti merkja annað á formanni Sjálfstæðisflokksins að hann vildi hafa svipaða stjórnarhætti og beita svipuðu aðferðum og i aðdraganda hrunsins.

Ekki veit ég hvað þarf til svo að forysta Sjálfstæðisflokksins sjái að sér - Ég efast jafnvel um að annað hrun dugi til sem að flokkurinn stefnir ótrauður á.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Óksk mín hefur verið að Sjáfstæðisflokkurinn leggist af því að hann hefur ekki breyst neitt frá hruni og ætlar ekki að taka til í sínum röðum svo mikið er víst!

Sigurður Haraldsson, 29.1.2012 kl. 12:14

2 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Það er óskiljanlegt hvernig kló DO heldur forystu Sjálfstæðisflokksins í heljar greipum. Hvernig í ósköpunum getur þetta fólk verið fylgjandi EINOKUN í atvinnumálum og stutt við fyrirfram töku arðsins af greininni. Var það ekki upphaf orsaka hrunsins og næsta hruns og næsta hruns..?

Ólafur Örn Jónsson, 29.1.2012 kl. 14:00

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það nýjasta heyrðist hjá Jóni Magnússyni í Silfri Egils í dag þar sem hann fullyrti að fjármálakerfið íslenska hefði vaxið frá 2002-2006 en farið minnkandi eftir það !

Ekki heyrði ég að þáttarstjórnandinn eða aðrir í settinu hefðu neitt við þessa nýju kenningu að athuga, en hún rímar vel við það sem maður hefur heyrt, svo sem orðin "svonefnt hrun" sem sumir nota.

Ómar Ragnarsson, 29.1.2012 kl. 22:09

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég horfði reyndar ekki á Silfrið í dag, en eg játa það að ég botna reyndar lítið í sumu því sem Jón vinur minn er að halda fram þessa dagana.

Ég tel vænlegt fyrir Jón að lesa í gegnum marga góða pistla sína, sem hann flutti sköruglega á árunum 2006, 2007 og 2008.

Sigurjón Þórðarson, 29.1.2012 kl. 22:51

5 identicon

Það er ótrúlegt að verða aftur og aftur vitni af því að fólk á miðjum aðldr og eldra er illa farið af D.O. Heilkenninu. Sigurjón ef þú ert eins og Jóhanna og Steingrímur J. illa farinn af þessu heilkenni, átt þú ekkert erindi í pólitík aftur. Við þurfum nýtt fólk, sem lætur ekki hatur á einum manni stjórna öllum sínum gerðum. Gerðu nú okkur landsmönnum þann greiða að hætta í pólitík, enda eftir all baslið á þér liggur ekkert eftir.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.1.2012 kl. 09:44

6 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

http://www.youtube.com/watch?v=5egkmJRikKw

Ert þú að tala um þennan DO Ómar. Góða skemmtun.

Ólafur Örn Jónsson, 30.1.2012 kl. 10:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband