Leita í fréttum mbl.is

Icesave í þjóðaratkvæðgreiðslu

Enn á ný er komin á Icesavesamningur sem felur í sér að kreppuhrjáður íslenskur almenningur eigi að greiða ólögvarðar kröfur Breta og Hollendinga. Kröfur sem tilkomnar eru vegna fjárglæfra bankanna sem ekki víluðu fyrir sér að fegra bókhaldið út í hið óendanlega.
Óskiljanlegan vilja ríkisstjórnarinnar til að fallast á hvern afarkostinn á fætur öðrum um greiðslu Icesave, má helst skýra út frá þráhyggju Samfylkingarinnar við að koma þjóðinni inn í Evrópusambandið og gríðarlegs þrýstings frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.
Evrópusinnar stóðu lengi í þeirri trú efnahagur landsins myndi taka mikinn kipp við það eitt að senda umsókn um aðild að Evrópusambandinu til Brussel. Ekki skorti heldur á að stjórnvöld vöruðu við hræðilegum afleiðingum þess að vísa fyrri Icesavesamningi í þjóðaratkvæðagreiðslu,en gefið var jafnvel í skyn að landinu yrði lokað ef samningum yrði hafnað. Allar hamfara og hrakspár stjórnarinnar hafa sýnt sig að vera skrum eitt og eiga ekki vð neinn raunveruleika að styðjast.
Allir vita nú af biturri reynslu Íra og Grikkja að aðild að ESB og Evra er ekki trygging gegn efnahagslegum áföllum. Sömuleiðis ber öllum saman um enn sem komið er að nýjasti Icesamningurinn sé skárri kostur en þeir fyrri, þó enn megi draga stórlega í efa réttmæti og lögmæti þess að láta þjóðina borga fyrir skuldir augljósra lögbrjóta í rekstri fyrirtækja sinna.
Ekki er hægt að búast við því að nokkur sátt verði um að stritandi almenningur greiði Icesave á meðan þeir sem eiga sök á bankaglæpunum sprangi um eins og fínir menn um í Amsterdam, London og Reykjavík.
Í stað þess að vera að semja við erlend ríki að greiða upp slóðina af skuldum þeirra sem fölsuðu og sviku ætti að vera forgangsverkefni hjá stjórnvöldum að sjá til þess að erlend ríki aðstoðuðu við að koma lögum yfir brotamennina og þýfi þeirra.
Við í Frjálslynda flokknum treystum dómgreind Íslendinga til þess að greiða atkvæði um nýja Icesavesamninginn, en fyrr á árinu sýndi þjóðin og forsetinn meiri skynsemi en ríkissjórnin og hefur það komið berlega í ljós að höfnun fyrri samnings var til góðs fyrir þessa þjóð.

Ásta Hafberg og Sigurjón Þórðarson

mbl.is Verið að deila sársaukanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hvernig væri að stjórnmálamenn hættu þessu fjandans bulli og klári þetta mál sjálfir... við kusum þá ekki til að flýja ábyrgð og hafa ekki lágmarksskynsemi...

Jón Ingi Cæsarsson, 9.12.2010 kl. 23:51

2 identicon

Ekkert annað en þjóðaratkvæðagreiðsla á að fara fram.Þjóðin ber ekki ábyrgð á einkabankafylliríi Björgólfsfeðga og þeirra glæpagengis.Ég er sannfærður um það að Jón Ingi er ritar hér að ofan er sammála mér,hann sem komin er af miklum baráttumanni og verkalýðsforingja.

Númi (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 23:57

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jón Ingi ef ég man rétt þá hefur þú ekki verið efins um nokkurn Icesave samning, og gilti þá einu hvort það væri Icesave 1, 2 og nú 3. Er ekki kominn tími til að staldra við og velta því upp hvort að Steingrímur, Jóhanna og Geir Haarde hafi verið traustsins verð?

Sigurjón Þórðarson, 9.12.2010 kl. 23:59

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mitt nei stendur. Grunnforsendurnar eru þær sömu. Okkur ber ekki að borga þetta og ef um ágreining er að ræða, þá skal leysa það fyrir dómstólum. 

Jóhanna og Steingrímur voru svo ósvífin að lokinni höfnun þjóðarinnar að túlka það upp á sitt einsdæmi að við værum einungis að lýsa óánægju okkar um vaxtaprósentuna, þegar í raun við vorum að segja blátt nei við nokkrum samningi.  Þjóðaratkvæðin stóðu um nei við Icesave en snerust ekki um lægri vexti.  Afneitun þeirra er alger og þau hafa endanlega farið á bak við þjóð sína og brotið öll lög og reglur í þeirri viðleytni. Ættu í raun að vera tugthústæk fyrir.

Málið snýst um það fordæmi að banksterar geti skellt áhættunni á fólkið um alla famtíð, ef þetta nær í gegn. Það getum við ekki gert alþýðufólki um allan heim.  Þetta snýst ekki bara um okkur NB.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.12.2010 kl. 01:08

5 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er merkilegt og vert að íhuga, að það eru margar þjóðir sem horfa til Íslands. Stærð þessa máls er svo margfalt stærra en Icesave. Ef við íslendingar fáum að greiða um þennan samning atkvæði og höfnum honum að nýju, munu aðrar þjóðir telja það fordæmi sem vert væri að fylgja. Við erum svo gríðarlega stór í smæð okkar. Við eruð það af því að við erum að breyta rétt gegn óréttlæti þjóða sem hafa fullkomnað þá list að kúga aðra og fara með ofbeldi gegn veikari þjóðum.
Ég hlýddi með mikilli athygli á mál Lee Bucchheit og hans röksemdir. Það kann að vera rétt hjá honum að við tækjum áhættu með því að hafna þessum samningum og láta reyna á dómstólaleiðina. Það kann að vera að þetta séu bestu mögulegu samningar sem við getum náð...en áhættan við að samþykkja þessa samninga er líka mikil. Efnahagslegar forsendur gætu breyst hjá okkur vegna breytinga á mörkuðum okkar.
Hvað er það versta sem gæti gerst ?

  • Kúba verðum við ekki, það er alveg á hreinu
  • Norður Kórea verðum við ekki, það er jafn skýrt
  • Meinuð innlimun í ESB ? YES PLEASE !
  • Hent út úr EES ? Kannski, afar ólíklegt samt
  • Lokað á viðskipti við okkur ? Nei það tel ég nokkurn vegin útilokað
  • Ferðabann ? Hver væri tilgangurinn ?
  • :
Ég veit ekki hvað gæti gerst, ég veit þó að draugasögur Steingríms og Jóhönnu eru bæði ósannar og illa skrifaðar.

Haraldur Baldursson, 10.12.2010 kl. 01:21

6 identicon

Samkvaemt faerustu erlendu sérfraedingum thá ber thjódin enga ábyrgd á thessu klúdri glaepabankans. 

Ljómandi pistill (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 10:41

7 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Frjálsar smábáta eða handfæraveiðar leysa atvinnuvanda

Íslendinga, ekki nýjar lántökur!

Mætum á Austurvöll alla fimmtudaga kl. 14.00.

Aðalsteinn Agnarsson, 11.12.2010 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband