Leita í fréttum mbl.is

Gagnrýnislaus spegill

Ríkisútvarpið er iðið við að fá einhverja útlendinga til að tjá sig um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.  Í Spegli RÚV í kvöld var langt en gagnrýnislaust viðtal blaðamannsins Sigrúnar Davíðsdóttur við sænska hálfkratann Carl Bildt. 

Eitt af því sem Sigrún át margoft upp eftir Carl Bildt var að Ísland hefði svo mikið fram að færa hvað varðar árangursríka stjórn í sjávarútvegi.

Hvernig er það - hefur Sigrún Davíðsdóttir ekkert heyrt um skuldafen útgerðarinnar, öldruðum fiskiskipaflota, að þorskafli nú sé einungis þriðjungurinn af því sem hann var fyrir daga kvótakerfisins og að kvótakerfið brjóti í bága við álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Hvað er hálfkrati? Er það svipað fyrirbæri og FF er svona hálf íhald? XD:2= FF?

Björn Birgisson, 12.11.2010 kl. 20:09

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Björn ég átti nú frekar við að það er ekki mikill munur á Moderaterna í Svíþjóð og jafnaðarmannaflokknum sænska - það er svona svipað ástand þar og hér að fólk veit varla af því að það hafi orðið stjórnarskipti - bankaspillingin heldur áfram hér þó svo að Samfylkingin ráði því sem hún vilji ráða og geti ekki lengur bent á Sjálfstæðisflokkinn.

Annars er hæfileg íhaldsmennska ágæt.

Sigurjón Þórðarson, 12.11.2010 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband