Leita í fréttum mbl.is

Til forsætisráðherra Norðurlandanna

Katrín Jakobsdóttir
ráðherra norrænna samstarfsmála
 
 
Hér með er óskað eftir að samstarfsráðherra Katrín Jakobsdóttir komi eftirfarandi ályktun til forsætisráðherra Norðurlandanna sem funda þann 4. nóvember í Reykjavík:
 
Ályktun frá stjórn Frjálslynda flokksins til norrænu forsætisráðherranna sem sitja á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík í nóvember 2010.

Stjórn Frjálslynda flokksins óskar eftir því fyrir hönd almennings á Íslandi að þið leggið ykkar af mörkum til að tryggja að mannréttindi gagnvart þegnum landsins séu virt.

Stjórn Frjálslynda flokksins óskar eftir aðstoð ykkar við að fá ríkisstjórn Íslands til að bregðast við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá október 2007 um að núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi brjóti gegn 26. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem er samhljóða 65. gr. stjórnarskrár íslenska lýðveldisins.

Stjórn Frjálslynda flokksins óskar einnig eftir aðstoð ykkar við að tryggja að almenningi á Íslandi verði tryggð þau mannréttindi sem tilgreind eru í 25. gr. mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna þar sem segir að allir eigi rétt á lífskjörum sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan þeirra sjálfra og fjölskyldu þeirra. Telst þar til fæði, klæði, húsnæði, læknishjálp og nauðsynleg félagsleg þjónusta, svo og réttur til öryggis vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, fyrirvinnumissis, elli eða annars sem skorti veldur og menn geta ekki við gert.

Í viku hverri standa hundruð Íslendinga í biðröð eftir matargjöfum frá hjálparsamtökum til þess að draga fram lífið. Það ætti að vera forgangsverkefni hjá norrænum vinum að ýta við íslenskum stjórnvöldum.
 
Reykjavík 3. nóvember 2010
 
Í Skandinavískri þýðingu:
 
 
Bestyrelsen af det islandske Frjálslyndi parti hævder et ønske til det nordiske ministerråd som nu er i Island på grund af den nordiske ministerråds konference.

På vegne af det islandske folk ønsker bestyrelsen at det nordiske ministerråd assisterer os for at få den islandske regering til at passe at menneskerettigheder for folket i landet bliver respekteret.

Den islandske regering har ikke taget sig af og udført en dom som blev vedtaget for menneskerettighedsdomstolen i oktober 2007. Ifølge dommen bryder de islandske fiskerilovparagraffer artikel nr. 26 af den internationale konvention om borgerlige rettigheder. Den finder også genklang i artikel nr. 65 i vores egen grundlov.

Den islandske borger skulle have alle de menneskerettigheder som vises i artikel nr. 25. Vi ønsker at I, de nordiske ministre, presser på den islandske regering så at dette bliver efterfulgt.

Artiklen lyder sådan:

Enhver har ret til en sådan levefod, som er tilstrækkelig til hans og hans families sundhed og velvære, herunder til føde, klæder, bolig og lægehjælp og de nødvendige sociale goder og ret til tryghed i tilfælde at arbejdsløshed, sygdom, uarbejdsdygtighed, enkestand, alderdom eller andet tab af fortjenstmulighed under omstændigheder, der ikke er selvforskyldt.

Hver uge står nu islændinger i hundredevis og venter på at få mad fra hjælporganisationer for bare at overleve. Det burde være set som en vigtig opgave hos vore nordiske venner at skynde på de islandske myndighederne at prioritere på vegne af det islandske folk.

Reykjavik 3. november 2010

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ljómandi framtak.  Audvitad á ad opinbera ósómann.  Vid hverju er ad búast af stjórnvöldum sem laetur glaepinn vidgangast? 

Einnig er thad athyglisvert ad Hreyfingin laetur sér thetta litlu varda.  Er Hreyfingin kannski einnig í vasa LÍÚ? 

Hvenaer hefur Hreyfingin talad um kvótaglaepakerfid á Althingi?

Hvenaer aetlar fólk ad átta sig á thví ad Frjálslyndi flokkurinn er stórkostlega gódur kostur?  Frjálslyndi flokkurinn ...samkvaemt stefnuskrá og thví sem thú formadurinn hefur skrifad hér á blogginu tekur á theim málum sem LANG MESTU máli skipta og er naudsynlegt ad gera ef á Íslandi á ad vera heilbrigt samfélag án stjórnvalda sem stydja glaepamennsku eins og núverandi stjórn gerir og fyrrverandi stjórnir Sjálfstaedisflokks og Framsóknarflokks gerdu.

Sammála (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 14:48

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

ljómandi framtak ó hvenar ætla liltu íslendingarir að átta sið hvað við erum góð.......

Eyjólfur Jónsson, 6.11.2010 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband