Leita í fréttum mbl.is

Einkennilegur forsætisráðherra

Jóhanna Sigurðardóttir beitir mjög svo einkennilegum stjórnunarstíl sem byggir á því að magna upp ágreining, hóta samstarfsfólki og þykjast lítið sem ekkert vita um mikilvæg mál sem hljóta að vera á hennar borði.

Vart fer það fram hjá nokkrum manni hversu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra er í nöp við karlgarminn Jón Bjarnason.  Forsætisráðherrann notar hvert tækifæri til að magna upp ágreining og siga flokksdeildum Samfylkingarinnar á ráðherra sinn. Ekki er hún að bera klæði á vopn í deilum um ESB heldur opnar sár Vg svo það fossblæði.  Margur óbreyttur flokksmaður Vg hefur sætt sig við aðildarumsóknina að ESB með því að hugga sig við hálf kindalegt andóf Jóns Bjarna gegn ESB.

Jóhanna hefur í hótunum við ríkiskirkjuna með því að segjast vera að íhuga úrsögn kirkjunni í stað þess að leggja á ráðin með myndugleika um tímabæran  aðskilnað ríkis og kirkju.  Með aðskilnaðinum væri tryggt að öllum trúfélögum verði gert jafn hátt undir höfði og losaði jafnframt þjóðkirkjuna úr ákveðinni tilvistarkreppu.

Furðulegt er að verða vitni að því hvað eftir að annað hversu lítið forsætisráðherrann þykist vita um mál sem ættu að vera inn á hennar borði s.s.  lögmæti gengislánanna og Magmaspillingar Samfylkingarinnar og Steingríms.


mbl.is Krefjast afsagnar Jóns Bjarnasonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég er farin að líta á Jóhönnu sem tvíkynhneigða konu hún er ekki betri en Össur og í engu treystandi. Ef hún fer að skipta Jóni B út þá verðum við að gera áhlaup á hana.

Valdimar Samúelsson, 24.8.2010 kl. 19:59

2 Smámynd: Jón Sveinsson

það þarf ekki að hlusta á herfuna og steinfret til að sjá falsið sem kemur úr túla þeirra, það er með ólíkindum hvað við erum þolinmóð við svonaNÍÐINGSLIÐ sem þessi ríkisstjórn er það þarf að híða þau á ALMANNAFÆRI. Í BURTU MEÐ ÞAU ÞAÐ ER MÍN ÓSK.

Jón Sveinsson, 24.8.2010 kl. 20:21

3 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það gengur hratt á ráðherralið VG. Það rifjast óhjákvæmilega upp fyrir manni leikur Sigga Sigurjóns á Steingrími í síðasta Áramótaskaupi. Sû uppfærlsa er að verða sársaukalega lík raunveruleikanum. Steingrímur virðist gera allt...ALLT...til að missa ekki stólinn sinn. Afkáralegt sem það nú er, dettur manni í hug að hann sé að tryggja sér aukinn eftirlaunaréttindi með því að sitja bara nógu lengi.

Jón Mjólkur-Kvóta-Þjösn Bjarnason nýtist engu að síður frelsi landsins, sem fáir aðrir. Hans vera í ríkisstjórn með Verkstjóra-Þjösninum Jóhönnu Sigurðardóttur er samt skrítinn komedía. Er sú gamla yfirhöfuð í stakk búin að standa í starfi sem þessu. Það bendir ekkert til þess að hún hafi nokkurn skapaðan hlut í þetta að gera og ánægjan virðist heldur ekki vera það sem heldur henni í stólnum...

Haraldur Baldursson, 24.8.2010 kl. 21:01

4 Smámynd: Lárus Baldursson

Það eru allir fjölmiðlar 365 notaðir í að hvetja fólk í að segja sig úr þjóðkirkjunni, það síðast sem hefur haldið þjóðinni saman í gegnum aldirnar, allt til að brjóta niður þjóðarsálina til að auðvelda innlimunina í ESB.

Lárus Baldursson, 24.8.2010 kl. 22:03

5 identicon

Sigurjón! Þú hefur nú setið á þingi og án efa heyrt ýmislegt skrafað þar á kaffistofunni af kollegum þinum sem setið hafa með ,,hinni heilögu'' í stjórn og eða nefndum. Þar af leiðir veistu vel að það er ekkert nýtt að hún hóti samstarfsfólki sínu ef henni finnst halla á sig og sitt. Þannig er henar stíll, hún kann ekki að umgangast annað fólk nema á eigin forsendum. Ef þær fá ekki undirtektir annara, þá hótar hún og skellir hurðum eins og óþægur ofdekraður krakki.  Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af Jóni og alls ekki á sömu pólitísku línu (nema er varðar EU), en af þessu fólki sem situr í stjórnarráðinu, þá ber hann höfuð og herðar yfir þau öll (nema kannski dómsmálaráðherra).

Elías Bj (IP-tala skráð) 24.8.2010 kl. 22:37

6 identicon

Jóhanna þvingaði kirkjuna til að ganga í verk sem gerir það að verkum að boðskapur hennar verður ómarktækur,  þannig að kirkjan verður húmbúkk eftir, þetta gerir hún í heimsku sinni, til að hljóta atkvæði frá frá ákveðnu samsorta liði og hún reynist vera sjálf. Utkoman blasir við öllum sem sjá vilja, óbrenglaðir einstaklingar flykkjast burt frá ónýtri kirkju sem þeir eiga enga samleið með.

Robert (IP-tala skráð) 25.8.2010 kl. 05:35

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jón á alla mína samúð í þessu samkrulli.  Það er ekki traustvekjandi stjórn sem ranglar svona fram og til baka, og gerir ekkert, telur fólki trú um að þau séu á haus að gera eitthvað en það kemur ekkert út úr því nema setja á stofn fleiri nefndir.  Ég er orðin yfir mig þreytt á þessum ráðamönnum, sem hafa SVIKIÐ allt sem þau lofuðu.  Burtu með þau.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.8.2010 kl. 08:33

8 Smámynd: Jón Magnússon

Þetta er alveg rétt hjá þér Sigurjón. Það er með ólíkindum með hvaða hætti Jóhanna kemur fram sem forsætisráðherra. Öllum má vera ljóst að verkstjórn hennar í ríkisstjórninni er vægast sagt slæm. Þá er það með ólíkindum að hún skuli vega að þjóðkirkjunni einmitt á þeim tíma sem á henni standa mörg spjót og þau spjótalög ekki öll heiðarleg eða sanngjörn. 

Þá fannst mér sérstakt að Jóhanna setti sig í dómarasætið gagnvart  ýmsu fólki út í bæ, en segir að menn megi ekki dæma ósannindamann ársins Gylfa Magnússon efnahagsmálaráðherra.

Jón Magnússon, 25.8.2010 kl. 14:15

9 Smámynd: Inga Sæland Ástvaldsdóttir

Já það vantar ekkert upp á einkennilegheitin bæði hjá ráðherranum og þeirri stjórn sem hann stýrir.  Við þurufum nýtt afl, algjöra uppstokkun á þessu spillta óegeðis kerfi sem hefur kúgað okkur og pínt alla tíð. Ég leyfi mér ekki einu sinni að byrja á hroðanum sem hrækt er í okkur hvern einasta dag, það væri til æra óstöðugan.

Inga Sæland Ástvaldsdóttir, 28.8.2010 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband