Leita í fréttum mbl.is

Bull aldarinnar

Hvað er hægt að segja við þessu???  Hér er grein frá manni sem er helsta vonarstjarna Samfylkingarinnar; http://blog.eyjan.is/dofri/2010/02/05/bullhugtakid-voruskiptajofnudur/ .  Hér greinir hann meðal annars hvernig þjóðin aflar sér viðurværis:

 "Heilbrigðis og félagsþjónusta skila okkur svo rúmleg tvöfalt meiri verðmætum en fiskveiðar" 

Það er þá væntanlega von Dofra að þjóðin veikist hastarlega svo hægt sé að vinna sig úr vandanum.  Það er skrýtið til þess að hugsa að skv Dofra leggja öryrkjar meira til samfélagsins en sjómenn og fiskvinnslu fólk.  Við verðum væntanlega að vonast til að það fólk bætist á örorku og atvinnuleysisskrár til þess að vinnum okkur hraðar út úr kreppunni.

 Er Dofri að lýsa hér 20/20 áætlun Samfylkingarinnar?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Þetta er alveg æðislegt.

En fyrir þann sem hefur dvalist í Skandinavíu kemur svona bull og vitleysa ekki mikið á óvart.  Ótrúlegt en satt!  Skandinavíukratar eru það vitlausasta sem gengur á tveimur fótum, svei mér þá.  Alla vega ef reiknað væri meðaltal á gáfnafari þeirra.

Nóg af illmælgi, en þessi orð hræða.

Ekki væri það lífvænlegt samfélag þar sem allir væru læknar.  Þeir eru stórgáfað fólk flestir, en heldur vildi ég búa þar sem allir væru sjómenn.  Þá væri í það minsta til fiskur á hlóðirnar.

Jón Ásgeir Bjarnason, 5.2.2010 kl. 18:56

2 identicon

Sigurjón minn, þú ert að dæma strákgreyjið alltof hart.  Það eina sem barnið gerði var að segja upphátt það sem mennta og lista elítan í Samfylkingunni er öll að hugsa.  Og í leiðinn þá fann hann nýja atvinnugrein, að handveiða saltfisk.  Það nú ekki amalegt að eiga svona frumkvöðla.  Ég vil óska barninu til hamingju með algerlega nýja hugsun í fjármálum þjóða.  Þetta hefur engum dottið í hug áður að veikja sig út úr vandanum.  Það hlýtur að fara um margan hagfræðinginn en við vitum nú hvert næsti Nóbel í þeim fræðum fer.

Þórður Áskell MAgnússon (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 20:23

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Sigurjón þú dæmir þessa færslu útfrá villu í niðurlaginu þar sem Dofri segir:Heilbrigðis- og félagsþjónusta skila okkur svo rúmlega tvöfalt meiri verðmætum en fiskveiðar. Ef þú lest alla færsluna yfir aftur þá sérðu að hann er að tala um vinnsluvirðið innan greina. Dofri útskýrir hvað það er enda hefur hann gaman af að skoða hagtölur og notar  reiknilíkan Hagstofunnar til að bera saman vinnsluvirði innan greina. Hann er ekki að bera saman greinarnar sem hlutfall af landsframleiðslu. Það vita allir að sjávarútvegur skilar mestum tekjum í dag vegna gengishrunsins en á móti er Dofri að reikna kostnaðinn og gefur sér að skuldir sjávarútvegsins í erlendum gjaldeyri sé það há upphæð að vinnsluvirðið verði í raun svona lítið.  Ekki ætla ég að dæma hvort þetta sé rétt enda fáum við ekkert að vita hverjar skuldir sjávarútvegsins eru í bönkunum eða hverjar erlendar skuldir bankanna eru.   Þór Saari las nú þessa grein hans Dofra yfir og gerði ekki athugasemdir svo við skulum reikna með að nokkuð rétt sé farip með þótt hagfræðingum beri nú sjaldan saman um hvernig beri að túlka tölur.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 5.2.2010 kl. 23:38

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Jóhannes það má vera að þið Þórður Áskell hafið rétt fyrir ykkur að ég sé að dæma þessi skrif of hart, en ég verð því miður að játa það, að þó svo að ég hafi lesið pistilinn á ný frá upphafi til enda þá finnst mér hann dæmalaust rugl og af ýmsu er að taka - nánast frá upphafi til enda.

Auðvitað geta allir átt misjafnan dag en samt maður fer að trúa Jóni Ásgeiri Bjarnasyni að þetta sé snarvitlaust lið.

Sigurjón Þórðarson, 6.2.2010 kl. 00:09

5 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ég er ekki í Samfylkingu, ekki andvígur álverum en það þarf einbeittan brotavilja til að skilja ekki pistilinn hans Dofra.

Öll störf er álíka mikilvæg, hvort sem fyrirtækið sem við vinnum hjá stundi útflutning eða ekki. Við getum ekki verið án heilbrigðisþjónustu eða fiskveiða verið.

Það er augljóst að sjómaður og hjúkrunarfræðingur skila álíka verðmætum til þjóðarbúsins, ekki satt?

Á bakvið útflutningsgreinarnar eru störf sem eiga að sjálfsögðu "aflahlut" í öflun gjaldeyris.

Án fiskveiða myndi heilbrigðisþjónustan hrynja og án heilbrigðisþjónustu hrynur samfélagið.

Ég viss um að eitthvað bull finnst í pistlinum hans Dofra en það er ekki meira en gengur og gerist, að tala um bull aldarinnar er út í hött.

Benedikt Halldórsson, 6.2.2010 kl. 10:35

6 identicon

Ég las þennan pistil hjá Dofra í gær og fékk verulegan kjánahroll. Viðhorf Dofra og skilningur á efnahagsmálum er svipaður og hjá þeim sem telja það þróun í rétta átt að breyta efnahag úr framleiðsluefnahag yfir í þjónustuefnahag. Þeir halda að það að selja hvorum öðrum latte sé jafngilt því að skapa raunveruleg verðmæti. Þessi þróun er búin að setja vesturlönd á hausinn.

 Benedikt: Það getur vel verið að störf séu "jafngild" en það þýðir ekki öll skapi jöfn verðmæti. Hvað gerist ef þú skerð niður sjávarútveg um helming (tekjur) og bætir við samfélagsþjónustu sem því nemur (útgjöld)? Jú, þjóðfélagið fer lóðbeint á hausinn.

Það er algerlega magnað að fólk skilji þetta ekki. Dofri er greinilega ekki sá eini sem tjáir sig um þessi mál án þess að hafa nokkurn einasta skilning á þeim. 

Árni (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 11:29

7 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Að sjálfssögðu skila öll störf álíka verðmætum til þjóðarbúsins. 

Skilar eldamennska kokka á frystitogurum meiri verðmætum í þjóðarbúið en vinna veitingamanna í mötuneytum og á veitingahúsum? Ef eitthvað ómerkilegra að hella upp á kaffi í landi en út á sjó?

Er vinna bókasafnsfræðings ekki eins verðmæt og vinna netamanns á togara?

Ef útflutningur dregst saman minnka rauntekjur landsmanna sem því nemur en störfin eru eftir sem áður álíka verðmæt.

Ég endurtek. Á bakvið útflutningstekjur er heilt samfélag vinnandi fólks, til sjós og lands, sem á alveg jafn mikið í útflutningstekjum  landsmanna og þeirra sem sem starfa við útflutningsgreinarnar.

Benedikt Halldórsson, 6.2.2010 kl. 12:38

8 Smámynd: Sigurður Grétar Guðmundsson

Skandinavíukratar eru það vitlausasta sem gengur á tveimur fótum, svei mér þá. 

Þetta segir maður að nafni Jón Ásgeir Bjarnason hér á blogginu og segist tala af reynslu vegna þess að hann hefur leitað í skjól hjá þessum sömu krötum og þarf að þakka fyrir sig.

É held að það hljóti að vera til eitt eintak sem er enn vitlausara en Skandinavíukratar og það ert þú Jón Ásgeir.

Það segir hins vegar ekki að þú getir ekki skilað góðu verki. Skandinavíukratar hafa byggt upp réttlátustu og búsældarlegustu ríki á hnettinum. Þetta tókst þeim á sama tíma og kommúnistum í Austri og kapítalistum í Vestri mistókst hrapalega að byggja upp réttlát ríki. Kommúnistar byggðu upp hið skelfilega Gúlag, þrælabúðir þar sem saklaust fólk þrælaði þar til það féll niður hálfdautt eða dautt. Bandaríkjamenn gerðu það sama í Mið-Ameríku og fjölmörgum löndum Suður-Ameríku, þessi lönd voru í raun þrælabúðir Bandaríkjanna. Þessar þrælabúðir í Austri og Vestri voru mikilvægir hlekkir í   hagkerfum Sovétríkjanna og Bandaríkjanna.

Heimspressan hefur sem betur fer haldið rækilega á lofti skelfingum Gúlagsins í Austri en mér kæmi ekki á óvart þó ég verðu úthrópaður fyrir róg um okkar "besta" vin, Bandaríkin, með því að benda á að framferði þeirra, aðallega í Mið-Ameríku, sem var engu betra en framferði Stalín og og hans meðreiðarsveina Síberíu.

Jón Ásgeir, þú þarft ekki að taka það sem illa mælt að þú sért jafnvel "vitlausari" en Skandínavískir kratar. Þeir hafa byggt upp þjóðfélög sem eru fjölmörgum öðrum löndum fyrirmynd. Þó að þú sért eitthvað örlítið vitlausari en Skandínavískir kratar geturðu jafnvel verið góðum gáfum gæddur og hæfur til góðra verka.

Sigurður Grétar Guðmundsson, 6.2.2010 kl. 14:20

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Benedikt, það sem mér finnst furðulegast í skrifum Dofra er að hann virðist ekki gera sér nokkra grein fyrir því sem hann telur ástæðu til þess að fjalla um þ.e. mikilvægi viðskiptajafnaðar - Hann er nú frumforsenda þess að hægt sé að greiða af erlendum lánum en það hefur verið eitt mesta áhugamál Samfylkingarinnar að bæta Icesave á þungan skuldaklafa þjóðarinnar í þágu samstöðu með Alþjóðasamfélagsins.

Skrifin sýnir mér a.m.k. hvað forystumenn Samfylkingarinnar eru illa upplýstir um efnahagsáætlun AGS og ríkisstjórnarinnar.

Sömuleiðis má augljóslega lesa úr skrifunum neikvæða fordóma og fáfræði gagnvart útflutningsgreinunum sem skapa gjaldeyri s.s um olíunotkun við fiskveiðar ofl.  Það er greinilegt að forystumönnum Samfylkingarinnar þykja fiskveiðar vera óhreinn atvinnuvegur og stóriðja beinlínis af hinu illa.

Sigurjón Þórðarson, 6.2.2010 kl. 14:26

10 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Það er nú ekki skynsamlegt að fara að rífast um það hver er vitlausastur, ég eða Skandinavíukratarnir.  Enda svo sem ekki auðvelt að miða við einhvern einn óþekktan af mörgum.  Allt of mörgum!  Hvað eru svo sem gáfur, ef út í það er farið?  Það væri sennilega betra að tala um skynsemi.

En hvað um það.  Skandinavíukratar eru bara alls ekki þeir sömu í dag og þeir sem byggðu upp þessi samfélög fyrri ansi mörgum árum.  Því miður.  Því hlýtur meira að segja þú Sigurður G. Guðmundsson að vera sammála.  Þeir hafa fyrir leiðan vana að lítilsvirða störf vinnandi fólks með lítillækkandi málflutningi á verðmæti vinnunnar.  Sérstaklega varðandi störf sem skapa efnisleg verðmæti sem öll önnur verðmæti okkar mannlegu samfélaga byggjast á.  Því miður er Dofri orðin talsmaður þessar fílosófiu kratana.  Þú mátt t.d. ekki hafa meira en forsætisráðherran í laun, af því að hún er hinn heilagi staðall fyrir hámarksverðmæti vinnunnar.  Sem betur fer, er þetta vitleysa.  Alla miðað við núverandi mönnun í þessa stöðu hér á Íslandi.

Það hjálpar að hafa búið í Skandinavíu til að koma auga á þetta.  Ekki til að leyta sér skjóls, heldur til að læra, vera og sjá hvað heimurinn er utan Íslands.  Segir ekki, glöggt er gests augað? Eða Heimskur er heima alin o.s.frv.? 

Það er ekki vanþakklæti að gagnrýna vitleysu.  Það er nauðsynlegt hverjum hugsandi manni að horfa, hugsa og svo kanski síðast að gagnrýna eða ræða. 

Danmörk er að fara á kúpuna.  http://e24.no/utenriks/article3504393.ece

Jón Ásgeir Bjarnason, 6.2.2010 kl. 15:46

11 identicon

“ Heilbrigðis- og félagsþjónusta skila okkur svo rúmlega tvöfalt meiri verðmætum en fiskveiðar.“

Þessi setning gæti hugsanlega verið ein sú allra vitlausasta sem sést hefur á prenti í áratugi. Það sorglega við hana er að hún sýnir hve skilingslaus hún er kaffíhúsa elítan sem stjórnar Samfylkingunni.

Veit Dofri virkilega ekki? Að það eru útflutngingsgreinar sem borga fyrir innlenda samfélagsþjónustu á Íslandi? Er þetta eitthvers konar grín hjá manninum? Maður er eiginlega orðlaus.

Jón Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.2.2010 kl. 16:18

12 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Sigurjón og þið öll

Tek heilshugar undir það sem Benedikt Halldórsson skrifar hér að ofan. Dofri er að benda á mjög athyglisverða hlið á því hvað eru verðmæti sem skilað er til samfélagsins. Sá sem ekki viðurkennir verðmæti nema hægt sé að flytja þau út úr landinu, er bara ekki að skilja orðið verðmæti.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.2.2010 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband