Leita í fréttum mbl.is

Hvernig geta Hagar styrkt hlutabréfamarkaðinn?

Aríón bankinn virðist vera að ná nokkuð góðum samningum fyrir hönd vogunarsjóðanna sem eiga bankann.  Ekki er spurt að því hver kaupir enda gildir nú, að það sé sama hvaðan gott kemur þ.e. hvort fé komi alla leið frá Tortóla úr vösum grunaðra glæpamanna sem hafa sett á svið ósvífna blekkingarleiki. 
 
Í kvöld kynnti svo Arion banki að hann hygðist selja ofurskuldsetta markaðsráðandi fyrirtækið Haga í gegnum hlutabréfamarkaðinn, þar sem þjóðþrifa áherslan væri sú fyrst og fremst, að styrkja hlutabréfamarkaðinn.  Sá böggull fylgdi skammrifi að "mikilvægir" eigendur og stjórnendur sem rekið höfðu fyrirtækið í þrot væri tryggð fyrirfram 15% af hlutafé Haga.  Það má heita nokkuð öruggt að með þessu forskoti munu núverandi eigendur ná fullum yfirráðum á því á ný, sérstaklega ef að lífeyrissjóðir og almenningur munu í einhverjum mæli fjárfesta í Högum.
 
Það er mikill ábyrgðarhluti að ætla egna fyrir almenning og lífeyrissjóðum í gin hákarlanna, sérstaklega í ljósi nýlegs dóma sem leyfðu Glitni að ganga á hlut minni fjárfesta. Svo segir sagan okkur að þessir höfðingjar í Högum umgangist almenningshlutafélög ekki með mikilli virðingu.
 
Ef það á í raun að efla hlutabréfamarkaðinn er þá ekki fyrsta vers að taka á þeim leikreglum sem eru látnar viðgangast þar átölulaust.

mbl.is Mun styrkja hlutabréfamarkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ef ég ætti afgangsfé sem ég gæti fjárfest í einhverju, færi aldrei króna í félag þar sem honum Jóhannesi í Bónus er tryggð 10% eignaraðild.  Ég gæti kannski lagt peninga í fyrirtæki þar sem Jóhannes og sonur, Björgólfarnir og ýmsar aðrar fjármálahýenur kæmu ekki nálægt. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.2.2010 kl. 01:08

2 identicon

Það verður æ ljósara að stórskuldarar viðskiptalífsins hinkra með fé sitt og bíða afskrifta í stað þess að reyna að standa í skilum.  Fá þannig peningalegt forskot þegar kemur að sölu "gömlu þrotabúanna" og koma ár sinni aftur fyrir borð.   Rammalöggjöf um hlutabréfamarkaðinn er fyrir löngu tímabær en illu heilli er þessari ríkisstjórn fyrirmunað að skilja forgangsröð hlutanna.

LÁ  

lydur arnason (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 03:52

3 Smámynd: Jón Magnússon

Góð færsla Sigurjón þú hittir naglann á höfuðið.  Merkilegt að fyrst var talað um að Bónusfeðgar legðu fram 7 milljarða inn í 35 milljarða skuld í bankanum. Nú er horfið frá því en þeim gefinn forkaupsréttur. Þetta er skollaleikur Samfylkingarfurstans í bankastjórastól Aríón banka. Skattgreiðendur tapa. Nú verður fróðlegt að sjá hvort að stjórnmálastéttin samþykkir þetta.  Hvað skyldu Bónusfeðgar annars eiga ítök í mörgum þingmönnum í gegnum greiðslur til þeirra?

Jón Magnússon, 5.2.2010 kl. 09:00

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Nær væri að loka Kauphöllinni hér í Reykjavík. Hér mun ekki þrífast virkur markaður næstu árin og alls ekki undir stjórn núverandi forstjóra

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 5.2.2010 kl. 09:08

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég þakka fyrir Jón, en ég tek undir með þér að það verður fróðlegt að fylgjast með stjórnmálastéttinni sérstaklega þeim hluta sem hafa kvartað undan háu matvælaverði og ónógri samkeppni.

Ekki er ég viss um núverandi forstjóri sé vandamálið heldur leikreglurnar og kannski kúltúrinn sem hefur skapast.  Það sem er einna verst er að mér sýnist sem að ríkisstjórnin sé að gefa tóninn með að hann eigi að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist s.s. Kastljósviðtalið við Jóhönnu þar sem hún lagði blessun sína yfir að grunuðum glæpamönnum séu afhent fyrirtækin. Ólíkt Jónu Kolbrúnu, þá sækist Jóhanna Sigurðardóttir í sem mest samkrull með þeim aðilum sem settu landið á hausinn og ræður alla helstu sérfræðinga þeirra sem sérlega pólitíska aðstoðarmenn sína.

Þórður var forstjóri Þjóðhagsstofnunar og sýndi talsvert sjálfstæði og uppskar það að stofnunin var lögð niður rétt eins og Samkeppnisstofnun lögð var niður í kjölfar þess að hreyft var við samráði olíufélaganna.

Auðvitað verður fyrst að setja betri ramma yfir hlutabréfamarkaðinn fyrir minni hluthafa eins og Lýður bendir á.

Sigurjón Þórðarson, 5.2.2010 kl. 09:33

6 identicon

Að mínu mati verður að leiðrétta samkeppnisstöðuna.  Það er ekki okkur neytendum hagstætt að eitt félag ráði fyrir 50% markaðaðstöðu.  Þessu verður að breyta, skylda félagið til að skipta sér upp.  Þetta þarf að gerast áður en félagið verður boðið út á markaði.

Varðandi kaupin á félaginu væri öflugt að hópur fjárfesta tæki sig saman og keypti ákveðna stærð í félaginu.  Þar með væri kominn aðili í stjórn og þar með aðhald á stjórnendur og bónusfeðga sem væntanlega eru saman í bát.

Svo er gríðarlega mikilvægt að lög nái fram að ganga um að ekki sé heimilt að veita lán út á hlutabréf og eins að viðskiptavild sé tekin út við eignarlegt mat. viðskiptavildin á einungis að vera virk þegar kemur að kaupum og sölum þar sem viðkomandi kaupandi leggur þá sitt eigið fé þar sem hann telur verðmæti í viðskiptavildinni en getur ekki fengið lán út á hana né að hún sé reiknuð inn í heildarverðmæti félagsins þegar óskað er lána út á viðkomandi félag.

Orn (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 10:49

7 identicon

Sæll,

 Þú virðist misskilja örlítið með þessarri setningu "Sá böggull fylgdi skammrifi að "mikilvægir" eigendur og stjórnendur sem rekið höfðu fyrirtækið í þrot væri tryggð fyrirfram 15% af hlutafé Haga."

Fyrirtækið Hagar - móðurfélag Bónus, Hagkaupa og fleiri verslana fór aldrei í þrot og er eins og stendur eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi sem stendur í fullum skilum með skuldabréf sín. 1998 ehf, móðurfélag Haga fer hinsvegar í þrot, að því leyti að það er ofurskuldsett og eigendur gætu aldrei mögulega greitt af lánum sínum við sinn skuldunaut, Arion banka.

Langaði bara að koma þessarri staðreynd að.

Athugasemd (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 11:15

8 identicon

Bónusfeðgar virðast hafa þetta í hendi sér ef ekki kemur til öflugur fjárfestir með aðra hagsmuni. Það ábyrgðarhluti að selja hlutafé til almennings í þessu félagi (og reyndar í öllum félögum eftir nýjustu breytingar á skattalögum).

En það er miklu fróðlegra að vita hvað verður um skuldir 1998 ehf, móðurfélags Haga, og einnig hvað verður gert með ábyrgðir sem Arion banki hefur að baki þeim skuldum ef þær verða afskrifaðar að hluta eða fullu.

Jóhannes (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 11:41

9 identicon

Ekki ber á öðru en að þeir feðgar verði að fullu komnir að kjötkötlunum innan tíðar á sama tíma og skattborgarar greiða tapið. Við höfum stutt minni á þessum miklu skandalatímum

 og því vil ég minna á viðtal úr Silfri Egils um einokunarmál sem komið er á youtube. Slóðin er þessi:

1. Hluti: http://www.youtube.com/watch?v=Qk6R44cMYBs 2. Hluti: http://www.youtube.com/watch?v=-grXJLFBgkg 

Friðrik G. Friðriksson (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband