Leita í fréttum mbl.is

Femínistar fara offari

Ég er nýkominn af formannafundi ÍSÍ, þar sem aðalumræðan snérist um að hvernig ætti að standa standa vörð um æskulýðs- og ungmennastarf þegar þjóðin horfir fram á síharðnandi kreppu.  Til upplýsingar þá eru skráðir iðkendur innan íþróttahreyfingarinnar 109 þúsund og flestir eru börn og unglingar, en skráðir félagsmenn eru tvöfalt fleiri.  Vinnuframlag innan hreyfingarinnar er að stórum hluta unnið í sjálfboðavinnu. Hreyfingin á nú undir högg að sækja við að halda í fjárframlög frá hinu opinbera m.a. að tryggja fjárframlög í ferðasjóð sem nýtist fyrst og fremst börnum og ungmennum á landsbyggðinni.

Á fundinum kom einnig til umræðu 4 ára gömul heimsókn fjármálastjóra KSÍ á súlustað og þörf á að setja siðareglur í framhaldinu.

Ég vonast til þess að femínistar ætli ekki að notfæra sér súlumálið til þess að sverta íþróttahreyfinguna  en með því væru þeir að grafa undan mikilvægu æskulýðsstarfi í landinu.  Miklu nær væri fyrir femínista að bjóða ÍSÍ fram aðstoð við að semja siðareglur.

Femínistafélagið og samtök um Kvennaathvarf virðast vera mjög upptekin af því að tengja súlustaði við mansal þó svo að þær tengingar séu ekki alltaf mjög ljósar.   Hitt er þó ljósara að eitthvað er um að íslenskar fjölskyldur hafi farið mjög illa út úr heimsóknum á súlustaði, þar sem að rænulitlir eiginmenn hafi misst kortin sín á flug og farið með fjárhag fjölskyldunnar.   Þessar heimsóknir hafa orðið miklu hærri en reikningurinn sjálfur hefur hljóðað upp á, þar sem þær hafa leitt til skilnaða.

Ég vonast til þess að femínistar sjái að sér baráttu sinni og beini spjótum sínum í aðrar áttir en að barnastarfi.

 


mbl.is Fordæma niðurstöðu stjórnar KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. nóvember 2009

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband