Leita í fréttum mbl.is

Góður díll að kaupa Pulsuvagn fyrir þrjá milljarða

Dellan í íslensku viðskiptalífi ríður ekki við einteyming en í kvöld greindi Kastljósið frá því að ríkisbanki hefði lánað nokkrum jólasveinum tugi milljarða til kaupa á gjaldþrota fyrirtækinu Icelandic Group, en þeir sem fengu lánið úr ríkisbankanum eru helst þekktir af því að hrúga endalausum lánum á fyrirtækin sem þeir ráða yfir.

Veðin sem að skuldasveinarnir lögðu fram til þess að fá kúlulánið frá Steingrími J. voru ekki önnur en bréfin í fyrirtækinu sem þeir fjárfestu í.

Með viðlíka fyrirgreiðslu væri lítið mál að kaupa pylsuvagninn við Tryggvagötu fyrir þess vegna þrjúþúsund milljónir króna  þ.e. ef að ekki þyrfti að greiða  af láninu fyrr en eftir einhver ár. 

Það er ekki að undra að ríkisstjórnin með Steingrím J. í fararbroddi hafi ekki nokkurn tíma til þess að huga að stöðu almenningi á meðan það er verið að snúast í bráðum vanda helstu hugsuða íslensks viðskiptalífs.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Visir.is segir (feitletrun mín): "Landsbankinn lánaði hlutafélaginu IG ehf. 26 milljarða króna í formi kúluláns skömmu eftir bankahrun til þess að kaupa hluti í Icelandic Group. Veðin eru bréfin í félaginu sjálfu. Þetta kom fram í Kastljósi í kvöld.  Þar kom fram að félagið ELL 187 var stofnað snemma í október 2008 af lögmannsstofunni Logos.af lögmannsstofunni Logos".

Eins og sjálfsagt mannst þá var ríkisstjórn Geir Haarde við völd á þessum tíma.  Þar sem trúi því að það sé verknaðurinn sjálfur, þ.e. að lána þessa peninga, sem fari fyrir brjóstið á þér þá geri ég ráð fyrir að þú leiðréttir umfjöllun þína og gerir snöggt "replace" á Steingrímur og Geir.   Því stendur eftir að verknaðurinn jafn ömulegur ekki satt?  Eða var það ekki það sem umfjöllun þín snýst um?

ASE (IP-tala skráð) 23.12.2009 kl. 10:18

2 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er rétt ég hef víst hengt Steingrím J. fyrir Björgvin G. og Geir Haarde.

Ég hef mér það helst til málsbóta að það virðist ekki nokkur hlutur hafa breyst með komu Vg í ríkisstjórn s.s. í kvótamálum og bankabraski s.s. Saga Capital málið.

Sigurjón Þórðarson, 23.12.2009 kl. 10:38

3 identicon

ASE, ég efast um að Sigurjóni sé svo umhugað um mannorð Geirs að það væfist fyrir honum að snúa þeirri sök á sekan.  Hitt er svo annað mál að ólíklega kom þetta á borð hvorki Geirs né Steingríms en sýnir okkur svart á hvítu hvaða afleiðingar það hefur að hafa sama fólkið í stjórn bankanna og voru þar fyrir.  Sama fólkið, sami hugsunargangur.

Að kaupa pulsuvagn á 3 milljarða með veði í hlutabréfum í pulsuvagninum einungis með einum gjalddaga eftir 2-3 ár er flott fjárfesting.  Maður greiðir sér þau laun sem vagninn ber og segir svo úpps eftir þrjú ár, nú eða fer að leita eftir auknu hlutafé.  Sé ekki hvernig hægt er að tapa á svona viðskiptum.  Nú er ég búinn að vera í allskonar viðskiptum í rúma tvo áratugi.  Aldrei hefur mér boðist áhættulaus viðskipti þar sem ég þarf ekkert að leggja fram, ekki einu sinni mitt góða nafn.  Ég er sennilega svona óheppinn.

Þórður Áskell Magnússon (IP-tala skráð) 23.12.2009 kl. 10:40

4 identicon

Gott hjá þér að taka ábendingu, langt í frá allir sem gera það.  Það sem fyrst og fremst "pirrar" mig við málflutning okkar Íslendinga er hversu oft við þurfum að "persónugera" hlutina.  Umræðuhefð okkar er mjög ábótavant og margir virðast ruglast á rökræðum og kappræðum.  Ég er alls ekki að mæla neinum bót, stjórnmálamenn, viðskiptamenn, embættismenn, fjölmiðlamenn og almenningur, brugðust á mjöööögg mörgum sviðum fyrir hrun (og að vissu leyti enn) og þurfa að axla sína ábyrgð.  Almenningur mun m.a. gera það með versnandi lífskjörum.  Aðrir hljóta vonandi viðeigandi dóma fyrir dómstólum (þó vissulega efist aðeins á þessu sviði), en alla vega í huga almennings og á spjöldum Íslandssögunnar. 

Hins vegar sakna ég þess að umræðan snúist ekki oftar um málefnin frekar en mennina, eins og í þessu tilfelli, gjörsamlega óásættanlegur gjörningur alveg sama hvaða ríkisstjórn væri við völd.  Það breytir ekki gjörningnum, um hann snýst málið.  Svo þarf að finna þá sem bera ábyrgð og draga þá til ábyrgðar, en það er gjörningurinn sjálfur, ekki hvort vinstri eða hægri stjórn var við völd, sem skiptir höfuðmáli.

Enginn einn flokkur hefur bara vitlaust / vont fólk á sínum snærum og fær bara vitlausar / vondar hugmyndir, o.s.frv.  Þannig málflutningur er "barnalegur" og skaðar mest, þegar upp er staðið, þá sem hann stunda.

ASE (IP-tala skráð) 23.12.2009 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband