Leita í fréttum mbl.is

Var Stöð 2 sigað af LÍÚ

Í kvöld var vægast sagt furðuleg umfjöllun í fréttum Stöðvar 2, um frumvarp sem felur í sér smávægilegar breytingar á fiskveiðilöggjöfinni.  Fiskveiðilöggjöfin hefur verið afar umdeild  og deilur staðið annars vegar um eignarétt á auðlindinni og hins vegar um vafasama fiskveiðiráðgjöf. Í stað þess að fréttamaður Stöðvar 2 setti málið í samhengi við hvort að málið kæmi á móts við jafnræði þegnanna og álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um brot á á atvinnuréttindum sjómanna, þá var lagabreytingin sett í samhengi við að Grétar nokkur Mar hefði keypt sér bát!

LÍÚ hefur tekið þá óskiljanlegu afstöðu að vera móti frumvarpinu þó svo að það feli ekki í sér að það sé verið að skerða nýtingarétt nokkurs félagsmanns LÍÚ.  Útbreiðsla skötuselsins hefur breyst frá því að hann var illu heilli settur í kvóta en þá veiddist hann einungis fyrir Suðurlandi.  Nú veiðist fiskurinn  í miklum mæli fyrir norðan og vestan og er 1.000 tonna aukning aflaheimilda ætlað að mæta breyttu veiðimynstri.  Með andstöðu sinni afhjúpast berlega að LÍÚ er að taka  afstöðu með afar þröngum sérhagsmunum og á móti þjóðarhagsmunum.  Tekjur þjóðarinnar af aflaaukningunni sem barist er gegn er vel á annan milljarð króna árlega og beinar tekjur ríkisins 240 milljónir. LÍÚ ætti að hafa ríkan skilning á að nauðsynlegt er að auka framleiðslu og tekjur ríkisins - nú þegar kúlulánaþegar bíða í röðum eftir afskriftum lána sinna.

Sjónarhorn Stöðvar 2 á þessu litla frumvarpi sem skilar þó dágóðri summu í þjóðarbúið er svo furðulegt að maður hlýtur að spyrja hvort að ágætur fréttamaður Stöðvar 2 hafi orðið fórnarlamb þess að vera sigað af þröngum sérhagsmunasamtökum. 

 Eitt er víst að ekki var um mjög gagnrýna og hvað þá upplýsandi fréttamennsku að ræða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Þetta er alveg í anda LÍÚ. Það er allt að verða vitlaust út af þessu "maríhænufeti" Jóns en hann er að stíga skref í rétta átt. Þó lítið sé. Alltof lítið. Það gladdi mig að í fréttinni kom fram að þessi kvóti er ekki framseljanlegur= ekkert brask. Engin furða að útgerðarmenn gráti. Það væri þess virði að eyða smá tíma og kanna hvort e-r innan LÍÚ sé jafnvel hluthafi í 365. Kveðja

Þráinn Jökull Elísson, 11.11.2009 kl. 23:27

2 identicon

Og við sem erum að tortryggja bankana! Árið 2004 skrifaði Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður bókina "Fjölmiðlar 2004. Getur þú treyst þeim?" Þar rekur hann einmitt hvernig fjölmiðlar þjóna hagsmunum þeirra sem eiga þá eða greiða þeim fyrir fréttir. Þessi frétt Stöðvar 2 sem byrjaði svona „Grétar Mar neitar því að nýr skötuselskvóti sé klæðskerasaumaður fyrir sig“ er gott dæmi um annað hvort peninga fyrir frétt frá LÍÚ eða nafnlaust símtal fyrir pening....Ætli LÍÚ eigi bæði Stöð 2 og Morgunblaðið?? Það eru fleiri sem keyptu sér báta á sama tíma og Grétar. Afhverju skyldi LÍÚ... nei, afsakið Stöð 2 ekki hafa talað við þá líka?

Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.11.2009 kl. 23:31

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Þetta er nú meiri fréttahaukurinn þessi Kristján Már. Það er eins og hann sé alltaf að fjalla um fréttir sem hann kann ekkert skil á. Á dögunum tók hann viðtal við fiskifræðing í sambandi við sýktu síldina. Það verður að segjast eins og er að það var skrítnasta viðtal sem eg hef heyrt, og eins og allt hafi verið pantað fyrirfram.

Bjarni Kjartansson, 11.11.2009 kl. 23:43

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sagan af sjúku síldinni er nú sorglega vitlaus.  Í mars var hún svo sjúk illa farið holdið að ekki var nokkur leið að nýta hana og veikin sögð ólæknandi.  Síðan báurst fréttir af því að veikin hefði mælst í 40% af síldinni og stofninn svo lítill að ekki væri hægt að veiða.  Þrátt fyrir að nánast helmingur stofnsins hafi mælst dauðvona þá var stofninn endurreiknaður fyrir nokkru mikið stærri en í sumar og í kjölfarið var gefinn út 40 þús tonna veiðiheimildir.

Annað hvort hefur síld rignt niður eða þá læknast.

Sigurjón Þórðarson, 12.11.2009 kl. 00:05

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

hvaða hvaða, mér fannst þetta fyndin frétt hjá rauðsól. Grétar greyið var eins og tungl í fyllingu þegar hann viðurkenndi að hafa haft "innherjaupplýsingar" um þessa fyrirhuguðu aukningu.  Nú er bara að sjá hverjir fá úthlutað......

Ekki dettur mér til hugar að hrósa Jóni fyrir þessa smjörklípu

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 12.11.2009 kl. 03:36

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

vertu ekki með þessar lygar alltaf hreint um þessa nefnd sem kennd er við SÞ en er ekkert undir henni og fagnar fjöldamorðum í kínverskum fangelsum.

helmingur nefndarinnar, sá helmingur sem kemur frá löndum þar pyntingar á föngum og málfrelsi er virt að vettugi, fann að upphaflegri úthlutun á kvóta. annað er bara lygi eða uppspuni frá ykkur kvótaandstæðingum. og þetta var álit sem þeir gáfu og ekkert meir. hefur ekkert gild í lögum, reglum eða neinu öðru. 

hvernig dæmdi mannréttindardómstóll evrópu um kvótakerfið núna um árið? eða er bara mokað sandi yfir það?

Fannar frá Rifi, 12.11.2009 kl. 14:49

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta eru staðreyndir Fannar og það sem er ömurlegt er að íslensk stjórnvöld hafa ekki enn rætt við þá sjómenn sem brotið var á og fengu úrskurð sér í vil.  Það vekur sömuleiðis furðu að íslensk stjórnvöld hafi skipað Björgu Thorarensen sem varaformann ESB samninganefndarinnar en hún var staðin af því að rangtúlka álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

http://www.visir.is/article/20080612/SKODANIR04/122655351/1268

Ísland er skuldbundið að virða álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna Ísland, þar sem árið 1979 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu sem heimilaði fullgildingu tveggja alþjóðasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Annars vegar alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og hins vegar alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Sáttmálar þessir voru samþykktir á 21. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og komu fyrst til undirritunar 19. desember 1966. Þeir voru undirritaðir af Íslands hálfu 30. desember 1968 en auglýsing um afhendingu tilheyrandi fullgildingarskjala var birt í C-deild Stjórnartíðinda, 28. ágúst 1979, bls. 33 og bls. 73 í sama hefti.
    

Sigurjón Þórðarson, 12.11.2009 kl. 15:08

8 Smámynd: Fannar frá Rifi

enn reyniru að halda í þessa nefnd sem ályktar að í lagi sé að taka fólk af lífi og ályktar ekki gegn pyntingum.

Fannar frá Rifi, 12.11.2009 kl. 15:32

9 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Eins og þú veist fullvel, Sigurjón þá virða aðrar þjóðir ekki þessa svokölluðu Mannréttindanefnd  að neinu og minnst þær þjóðir sem voru í meirihluta við að samþykka þetta álit um íslensku"sjómennina" sem voru ekkert annað en útgerðarmenn á sjó.En eins og allir vita nema þessi meirihluti í nefndinni þá mega íslenskir sjómenn ekki kaupa kvóta til leigu eða til framtíðar, bara útgerðarmenn sem hafa yfir skipi að ráða.Ef íslensk stjórnvöld taka mark á þessi bulli frá þessum ríkjum sem eru í því að kála saklausum þegnum sínum þá verða íslendingar að athlægi á erlendum vettvangi.En Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í vor frá kæru grásleppu útgerðarmanns á hendur Íslenska ríkinu vegna kvótakerfisins.Ekki er annað að sjá samkvæmt því en að það fyrirkomulag sem er hér við stjórn fiskveiða teljist ekki brjóta nein mannréttindi að áliti Mannréttindadómstólsins sem er bindandi dómstóll fyrir Ísland sem þessi svokallaða mannréttindanefd muslimaríkjanna og Kína er ekki.

Sigurgeir Jónsson, 12.11.2009 kl. 15:46

10 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

En hvar eru nú þessir andstæðingar kvótakerfisins sem hafa hrópað á torgum að kvótakerfið sé frá djöflinum komið.Nú halda þeir ekki vatni af hrifningu yfir kvóta sem er fénýttur af ríkinu.Enda hefur fyrirgangur þessara manna um andstöðu sína við kvótakerfið aldrei verið neinn, þeir hafa aðeins viljað að ríkið hirti aflaheimildirnar með þjóðnýtingu og leigði þær út og í því ljósi verður að skoða hrifningu þeirra á skötuselskvóta Jóns sem hann ætlar að leigja út  fyrir ríkið í R.Vík.

Sigurgeir Jónsson, 12.11.2009 kl. 15:53

11 Smámynd: Fannar frá Rifi

því má nú bæta við að þessi nefnd sem Ísland samþykkti að fara eftir 1979 er ekki til lengur. þetta er ný nefnd. gamla nefndin var lögð niður eftir að hafa ályktað að engin þjóðarmörð væru framin í Rúanda og Darfúr. já það er grunnurinn á þessari nefnd sem þú leggur svo mikið mat á. nefnd sem skipuð er meðal annars þjóðum sem þóttu þjóðarmorðin í Darfúr og Rúanda ekkert tiltökumál.

Fannar frá Rifi, 12.11.2009 kl. 17:40

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Fannar þetta er nú verulega langsótt hjá þér.

Sigurjón Þórðarson, 12.11.2009 kl. 19:41

13 identicon

Gott kvöld.

Smá hliðarspor.

Í Rúanda létu 800 þús manns lífið, flestir á hryllilegan hátt. Þar var til staðar friðargæslulið SÞ, í umboði Öryggisráðs SÞ. Kanadískur yfirmaður friðargæsluliðsins telur ráðleysi og hik Öryggisráðsins hafa verið afgerandi hversu illa fór.

Íslenskir stjórnmálamenn sóttu fast að ná sæti í þessu ráði. Gera menn sér grein fyrir þvílík fásinna þetta var?

Vilhjálmur Jónsson (IP-tala skráð) 12.11.2009 kl. 21:11

14 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það er alltaf jafn dapurlegt að sjá það sem við eigum að kalla málsmetandi menn réttlæta óhæfuverk með enn verri óhæfuvekum framin af einhverjum öðrum...

Hallgrímur Guðmundsson, 12.11.2009 kl. 21:15

15 Smámynd: Fannar frá Rifi

enn hvað kallasta það Hallgrímur þegar menn fara og sækja sér rök og einhver sannindi til manna sem styðja með ráðum og dáðum slíka glæpi gegn mannkyni?

Það er búið að dæma af mannréttindardómsstól evrópu að Íslenska kvótakerfið brjóti engin mannréttindi. þetta er kannski eitthvað sem menn reyna að breiða yfir sem eru á móti kvótakerfinu? þannig að tal þitt Hallgrímu er bara þvaður. 

Fannar frá Rifi, 13.11.2009 kl. 01:36

16 Smámynd: Fannar frá Rifi

Sigurjón. Hvaða nefnd var þetta nákvæmlega sem Íslensk stjórnvöld sögðust taka mark á árið 1979? er hægt að koma með nafn hennar og einhverja staðfestingu á því að alþingi hafi samþykkt þetta?

komdu svo með nafn þessarar nefndar sem þú heldur svo mikið upp á. 

vittu til. nöfnin eru ekki þau sömu. nefndin er ekki sú sama. þessi sem er núna er ómerkileg punt nefnd sem hefur ekkert með mannréttindi að gera. hún er til sýnis. svona til þess að þau ríki sem missþyrma íbúum í ríkjum sínum sem hafa aðrar skoðanir en yfirvaldið, geti sagt að þau séu nú svo mikið fyrir mannréttindi.

svona líkt og sovétríkin sálugu sem höfðu fleiri kafla í stjórnarskrám sínum um mannréttindi. kaflar sem voru bara dauður bókstafur. 

Fannar frá Rifi, 13.11.2009 kl. 01:40

17 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Fannar þú sem sagt trúir því í alvöru að þetta sé það besta sem völ er á.

Allt annað er vonlaust og ekki þess virði að skoða, er það í alvöru þinn skilningur á þessu?

Hallgrímur Guðmundsson, 13.11.2009 kl. 05:51

18 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Láttu ekki svona Fannar, nefndin var ekki ómerkilegri en svo að íslenska ríkið sá ástæðu til að grípa til varna með ærnum tilkostnaði. 

Viðbrögð stjórnvalda við úrskurðinum hafa hins vegar verið fram á þennan dag þjóðinni til skammar - Undarlegast var að fá eiginkonu eins af hæstaréttardómurunum í Vatneyrarmálinu sem álit Mannréttindanefndar SÞ fjallaði um, til þess að leggja mat á álit Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Í erfiðri málsvörn þinni fyrir því að huns álit Mannréttindanefndar SÞ finnst mér glitta í vissa lítilsvirðingu gagnvart ákveðnum þjóðum sem taka þátt í starfi Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2009 kl. 09:34

19 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ég legg til Sigurjón að þú og útgerðarmaðurinn Grétar Mar farið og kynnið ykkur mannréttindamál í Kína, Íran, Saudi Arabíu og þessara 12 landa sem sömdu þetta svokallaða maqnnréttindaálit.En þið teljið sjálfsagt að þess þurfi ekki því slík er hrifning ykkar af mannréttindum í þesum löndum, þótt það sé þvert á álit þeirra samtaka sem hægt er að kalla raunveruleg samtök sem verja mannréttindi.Ég veit ekki til þess að nein mannréttindasamtök hafi tekið undir þetta bull þessara fulltrúa frá þessum mannréttindabrotaþjóðum um að verið sé að brjóta mannréttindi á íslenskum sjómönnum.Og ekki hafa nein samtök íslenskra sjómanna tekið undir það heldur.Hvorki Sjómannasambandið né Farmanna og fiskimannasambandið.

Sigurgeir Jónsson, 13.11.2009 kl. 13:35

20 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sjálfur horfði ég á konu hálshöggna á miðju torgi í Jedda í Saudi Arabíu 1978 fyrir engar sakir.Ég veit ekki til þess að neitt hafi breyst þar. Kannski hefur böðullinn verið í mannréttindanefndinni sem samdi álitið.

Sigurgeir Jónsson, 13.11.2009 kl. 13:40

21 Smámynd: Atli Hermannsson.

Þessi umræða er lýsandi um það er sem gerir bloggið bæði svo skemmtilegt og í senn fræðandi. Sem dæmi má nefna; að Íslendingar eigi ekki að taka mark á áliti mannréttindanefndar SÞ vegna þess að nefndarmenn koma sumir hverjir frá löndum þar sem mannréttindi séu ekki í hávegum höfð... og ástand mannréttinda sé víða mun verra en hér... og svo eru skelfileg þjóðamorð blandað í umræðuna sem aldrei fyrr.

Þetta er eiginlega alveg jafn magnað og þegar maður er að lesa innlegg frá andstæðingum ESB að þá eru þeir félagarnir Hitler og Stalín sjaldan langt undan.

Atli Hermannsson., 14.11.2009 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband