Leita í fréttum mbl.is

Þór Saari hefur rétt fyrir sér

Gagnrýni Þórs á frumvarp félagsmálaráðherra og breytingartillögur nefndarinnar á fyllilega rétt á sér. Ekki verður betur séð en að meiningin sé að gefa lánastofnunum galopnar heimildir til þess bæði að afskrifa og veita skattaafslætti á kúlulán og afleiðusamnginga og allt þetta ,,fína" sem kom þjóðinni á hausinn.

Sem betur fer fékk breytingartillagan um skattaafsláttinn ekki brautargengi, hún virðist hafa verið kölluð aftur á lokametrunum. Það sem stendur upp úr er að rúmu ári eftir hrunið virðist fjórflokkurinn ekki geta komið frá sér óbrengluðum tillögum sem snúa að heimilunum heldur þarf hann að lauma í leiðinni inn ákvæðum sem koma heimilunum ekkert við, s.s. með afleiðusamningana.

Þegar Þór leyfði sér að benda á hið rétta í málinu kom Ólína Þorvarðardóttir stútfull af heilagri vandlætingu yfir því að hann læsi það út sem stendur nánast berum orðum í frumvarpinu!

Þessu máli er hvergi nærri lokið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæll Sigurjón,

þessar athugasemdir Þórs eru mjög athyglisverðar og þarfnast mun meiri yfirlegu. Reyndar er fátt farið að koma manni á óvart þessa dagana.

Gunnar Skúli Ármannsson, 25.10.2009 kl. 22:44

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta eru dæmigerð vinnubrögð LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR að mál, sem ekki "ÞOLA" umfjöllun fái flýtimeðferð´, þannig átti "upphaflega" að senda Ices(L)ave í gegn.

Jóhann Elíasson, 26.10.2009 kl. 13:35

3 identicon

http://sweetpickles.typepad.com/.a/6a00e5513a321888330120a595b206970c-800wi

nhelgason (IP-tala skráð) 26.10.2009 kl. 16:17

4 identicon

Útsjónarsemi og hæfileikar Þór Saari sem stjórnmálamanns eru mun meiri en flestra  sem sitja á þingi,en innantóm þvaður Ólínu þorvarðar er sem hún viti ekki tilgangi sínum farveg.Að eiga hlut í 8% fylgi Þórs og félaga í þingkosningunum er gott mál.

Ludvik (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband