Leita í fréttum mbl.is

Verða vextir lækkaðir?

Ég verð að segja að ég var nokkuð sammála Steingrími hvað varðar elítuna. Það sem brennur virkilega á fólki eru okurvextirnir og ótti um að ríkið verði ekki rekstrarhæft.

Allur krafturinn í umræðunni fer í ESB eða ekki ESB. Engar tillögur eru lagðar á borðið um að auka tekjur. Frjálslyndi flokkurinn lagði til að veiðar yrðu auknar og þær tillögur hafa enn þann dag í dag ekki fengið málefnalega umræðu. Sú aukning myndi þó skila tekjum í kassann umsvifalaust. Auknar veiðar eru músík dagsins í dag en ekki framtíðarharmónía Evrópusambandsins.

 


mbl.is Elítan vill í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Steingrímur hafði algerlega rétt fyrir sér.  Í hvert sinn sem Evrópuaðild kemst á dagsrá er "Evrópusérfræðingurinn" Eiríkur Bergmann kallaður til að gefa sitt álit sem felst ávalt  í því að gera lítið úr ókostum Evrópusambandsaðildar.

Þá er Framsókn í raun búin að hafna Evrópusambandsaðild með því að setja skilyrði um  forræði Íslendinga á fiskveiðiauðlindinni. Fjölmiðlamenn vita ekki að ESB mun aldrei samþykkja þetta enda hefur Eiríkur Bergmann ekki sagt þeim frá því. 

Sigurður Þórðarson, 26.4.2009 kl. 22:25

2 Smámynd: Már Wolfgang Mixa

Umræðan er því miður í röngum farvegi.  Rétt er að huga að ESB en slíkt mál tekur tíma og hann höfum við ekki í dag varðandi atvinnumál.  Það er merkilegt - sjá http://mixa.blog.is/blog/mixa/entry/863618/, að nánast enginn stjórnmálamaður hafi fjallað um atvinnu á síðustu metrunum nema þá með yfirborðslegum hætti.  Atvinnusköpun ætti að vera forgangsmál þjóðarinnar í dag.

Már Wolfgang Mixa, 26.4.2009 kl. 22:28

3 Smámynd: Oddur Helgi Halldórsson

Sammál Má með þetta. Þeir hafa engin svör og benda bara á aðra

Oddur Helgi Halldórsson, 26.4.2009 kl. 22:33

4 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Var Steingrímur ekki búin að segja að hann vildi ekki auka fiskveiðar. Alla veganna finnst mér það hafa verið einhver í hans flokki sem gerði það.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 26.4.2009 kl. 22:40

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Já Már og Oddur maður vonar svo sannarlega að nýkosnir ráðamenn nái áttum og fari gaumgæfilega yfir allar tillögur og bæti starfsskilyrði starfandi fyrirtækja.

Sigurjón Þórðarson, 26.4.2009 kl. 22:46

6 identicon

Hér fyrir neðan er smá frétt sem ég fann í dv.is í kvöld um stöðu mála í ESB landi já og landið sem heitir Spán er líka með evru. Þetta er gott að lesa fyrir þá sem trúðu.trúa og eða trúa en að ESB bjargi því sem þarf að bjarga hér á landi svo allt fari vel að lokum. Í Grikklandi eru mánaða laun um 60 þúsund ísenskar en þar eru líka lágir vextir og mikið atvinnuleysi. Það sem Spán og Grikkland eiga sameigilegt sem dæmi er að þau eru bæði í ESB og eru með mynt sem heitir Evra. Varist aðila sem vilja skemmta sér í Rínardalnum meðan fólkið sveltur!! 

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ

,,Atvinnuleysi á Spáni mælist nú 17,4 prósent og hefur tvöfaldast á einu ári. Ein milljón manns hefur misst vinnuna í landinu og er nú heildarfjöldi atvinnulusra rúmlega fjórar milljónir. Seðlabanki Spánar reiknar með að atvinnuleysi verði 19,4 prósent á næsta ári.

Forsætisráðherra landsins, Jose Luis Rodriguez Zapetero, segist vonast til þess að tæplega 70 milljarða evra innspýting í fjármálakerfi landsins verði til þess að koma atvinnulífinu í betra horf. Gagnrýnendur eru hinsvegar ekki á sama máli og telja að frekari aðgerða sé þörf.''

B.N. (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 23:08

7 identicon

Já, fréttamenn hafa lagt alltof mikið upp úr Evrópubandalaginu, það er satt hjá Steingrími.   Og á meðan missa um 100 manns vinnuna daglega og um 10 fyrirtæki verða daglega gjaldþrota.

EE elle (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 23:52

8 Smámynd: Haraldur Baldursson

Meiri fisk
Sjávarfangið er okkar öflugasta spil. Það er óskiljanlegt að því skuli ekki spilað út að auka megi kvótann....í raun þá með því að auka frelsið í aðgengi strandveiða (enn meira).

Eiríkur Bergnuminn
Varðandi ESB....það kæmi engum manni í hug að halda því fram að Eiríkur Bergmann væri á launum hjá ESB. Það er vitanlega mikil fjarstæða. Vitanlega klórar maður sér samt á kollinum, hvers vegna maðurinn er svona viljugur að framselja fullveldið, kvótann og hvað eina sem dugir til að koma okkur inn í þetta elliheimili.
ESB Elliheimilið
Það er sorglegt að heyra menn tala um markaðsmöguleikana hjá bandalagi sem verður orðið að elliheimili innan 10-15 ára. Markaðir munu á sama tíma hverfa....og hverfa í raun miklu fyrr. Markaðir sem markast af háum meðalaldri, markast líka af minnkandi neyslu.
Viðskiptahömlur
En ef við förum inn megum við heldur ekki bjarga okkur sjálf með því að semja við lönd utan ESB um tvíhliða viðskiptasamning.

Haraldur Baldursson, 27.4.2009 kl. 09:20

9 Smámynd: Haraldur Baldursson

Og lækka vexti strax !

Haraldur Baldursson, 27.4.2009 kl. 09:37

10 identicon

Megum ekki vanmeta viðskipti eldra fólks þó.  Það fólk á oft peninga.  Og þó ég sé hvorki að mæla með eða móti Evrópubandalaginu.

EE elle (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 10:04

11 Smámynd: Haraldur Baldursson

Kæra EE elle.
Fyrir alla muni ekki ætla mér neina vanvirðingu við eldra fólk. Hitt er bara staðreynd að neyslukannanir sýna bara þá staðreynd að eldra fólk minnka sína neyslu. Ég er ekkert að reyna að túlka það á annan máta en svo að markaðir okkar í ESB munu minnka...ekki aukast (nema þá til mjög skamms tíma).

Haraldur Baldursson, 27.4.2009 kl. 10:14

12 identicon

Haraldur, nei mér fannst þú ekki vanvirða eldra fólk.  Heldur finnst mér fólk hafi of oft gert þau mistök að meta ekki kaupgetu þessa fólks, sem er oft mikill, og þó vissulega oftast eyði það minna fyrir sig sjálft.  Kannski áttirðu ekkert við það.

EE elle (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 10:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband