Leita í fréttum mbl.is

Villi Egils er góður drengur

Villi Egils er góður drengur eins og allt hans fólk. Mér fannst Davíð vega nokkuð ómálefnalega að honum en þó eru verk Villa fjarri því að vera hafin yfir gagnrýni þar sem hann átti sjálfur ríkan þátt í því hvernig fór með afskiptum sínum af stjórnmálum. Í aðdraganda hrunsins gerði Villi lítið úr þeim varnaðarorðum sem beindust að skuldsetningu þjóðarbúsins og hélt því statt og stöðugt fram að eignir Íslendinga erlendis væru vanmetnar. Hann reyndist hafa rangt fyrir sér.

Ef ég man rétt boraði Villi gat á sparisjóðakerfið og gerði með afskiptum sínum af lagasetningu á þingi um fjármálafyrirtæki stofnfé að ígildi hlutabréfa. Það sjá allir hvert það leiddi okkur. Villi beitti sér fyrir því að nema úr gildi öll höft sem takmörkuðu framsal veiðiheimilda. Það er stjarnfræðilega vitlaust að hægt sé að framselja veiðiheimild norður í Grímsey til fyrirtækis í Grindavík eða Vestmannaeyjum eða Grundarfirði. Villi gerði það engu að síður enda var það í samræmi við hagfræðibókina sem hann las í Ameríku.

Ef þjóðin ætlar út úr hruninu sem Sjálfstæðisflokkurinn leiddi yfir hana verður að fara fram hreinskipt uppgjör og gegnumlýsing á þeim kerfum sem hafa verið við lýði í samfélaginu, m.a. kvótakerfinu, lífeyrissjóðakerfinu og stjórnmálakerfinu.

Í sjálfu sér var þetta ágætisbyrjun hjá Króksaranum Villa og Sigurði Erni Ágústssyni frá Geitaskarði, fyrrum framherja Ungmennafélagsins Hvatar. Svo er að sjá hvert framhaldið verður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum var DO krossfestur - og í gær kom hann ".. að dæma lifendur.."  Kominn allverulega fram úr Kristi?

Menn sóðu upp og köppuðu vel og lengi fyrir Davíð en Villi grét sáran á meðan á klappinu stóð og nokkru eftir að því lauk og hældi Davíð fyrir góða ræðu með tárin í augunum meðan að hann sagði að ræðan hefði verið sérlega góð nema kaflinn um hann.

Sigurður Þórðarson, 29.3.2009 kl. 16:14

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Tek undir allt það sem þú segir um Villa Egils Sigurjón. Hann er drengur góður en hefur orðið valdur að meiri óhöppum við skipun leikreglna á sínum pólitíska ferli en hægt er að þegja yfir.

Bestu kveðjur í Skagafjörðinn.

Árni Gunnarsson, 29.3.2009 kl. 17:59

3 identicon

Villi er algjör bjáni hef aldrei haft álit á þessum manni!!!!!!

Anna (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 20:29

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Villi er kafbátur. punktur

Jón Steinar Ragnarsson, 30.3.2009 kl. 00:39

5 Smámynd: Gísli Torfi

Skemmtileg lesning. Siximus kominn í miðstjórn og það er vel.

það skemmtilega við gamla samherja minn er að áður en hann varð þekktur sem Sigurður sjötti Ágústsson var og er hann vanur að kalla sig Siximus " eftir Glatiador myndini" " becareful what you wish for " hehe

Gísli Torfi, 30.3.2009 kl. 05:53

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Davíð Oddsson er líka drengur góður og öll hans fjölskylda.Þetta er einhver misskilningur.Davíð var að gefa í skyn að Villi hefði lent í höndum manna sem væru ekki betri en þeir pappírar sem þeir hefðu sýslað með.Þetta er rétt hjá Davið.Villi mun að sjálfsögðu átta sig á þessu , að hann var ekki í góðum félagsskap.Góður Davíð.

Sigurgeir Jónsson, 30.3.2009 kl. 09:17

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Gísli Torfi, ég minnist þess að Sigurður Örn hafi verið kallaður ýmsum nöfnum og sum hver ratað í héraðsfréttablaðið Feyki sem var undir öruggri ritstjórn Fljóta- knattspyrnu- skíðamannsins Þórhalls Ásmundssonar.

Sigurjón Þórðarson, 30.3.2009 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband