Leita í fréttum mbl.is

Slátrar Guðjón Arnar kópi?

Ég hef kannað lauslega hvernig innvígðir og innmúraðir sjálfstæðismenn hafa tekið inngöngu Jóns Magnússonar í flokkinn. Mér heyrist sem þeim finnist ekki mikið um, t.d. hef ég ekki rekist á nokkurn blogga af fögnuði yfir komu Jóns í herbúðir Sjálfstæðisflokksins. Einn virtasti bloggari sjálfstæðismanna sá ekki ástæðu tið að fagna, þess í stað sá hann ástæðu til að blogga um góðan dreng sem hefur orðið fíkniefnum að bráð.

Sjálfur hef ég heyrt utan af mér af megnri óánægju einstakra sjálfstæðismanna með komu Jóns í Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfur lýsti hann því svo að engum alikálfi hefði verið slátrað þegar hann mætti á sinn fyrsta fund með þingflokki sjálfstæðismanna. Ég er ekki viss um að Jón telji sig eiga lengi heima í þessum nýju vistarverum og það má vel vera að hann snúi einfaldlega fljótt til baka í Frjálslynda flokkinn.

Þá er ég viss um að kafteinn Guðjón Arnar mun fagna týnda stýrimanninum, bjóða til veislu í Þernuvík við Ísafjarðardjúp og slátra kópi sem étinn yrði undir dýrlegum harmonikkuleik.

Maður skyldi aldrei segja aldrei því að nokkur dæmi eru um að fólk sem gengið hefur tímabundið úr flokknum hafi fljótlega gengið í hann á ný.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dunni

Ekki veit ég hvort Guðjón Arnar grætur Jón Magnússon eða ekki. En mikið hef ég lesið Guðjón Arnar vilaust ef hann slátraði kópi til að fagna endurkomu hans í flokkinn.  Geir sá ekki einu sinni ásæðu til að fórna einni tilraunakanínu er þessi fyrrum félagi hans gekk aftur í lið með Sjálfstæðisflokknum.´

Ég efast ekkert um að Jón er sjálfsagt góður og vel greindur maður. Það breytir þó ekki því að í pólitík er hann hreinrækaður tækifærissinni. Það staðfestir hann nú með því að flýja FL þegar flokkurinn er í sárum samkvæmt skoðanakönnunum.  Augljóst var nefnilega þegar Jón og félagar gengu í flokkinn var ekkert annað en yfirtaka á markmiðaskránni.  Áætlunin mistókst, Jón hundskaðist heim í Sjálfstæðishreiðrið og þið getið haldið áfram, væntanlega í innbyrðis friði, að vinna að stefnumálum flokksins sem mörg eru alls góðs verð.

Ég vona að þið hadið ykkur inni á þingi, án Jóns Magnússonar, eftir aprílkosningarnar. 

Dunni, 19.2.2009 kl. 21:35

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jón Magnússon mun ekki eiga neinn frama vísan í Frjálslynda flokknum, kjósi hann að snúa þangað aftur.  Það er ég nokkuð viss um.  Það hafa verið þó nokkuð margar símhringingar sem ég hef fengið af fólki sem ætlar að koma aftur í flokkinn eingöngu út af útgöngu þessa manns.  Ég er líka alveg sæl og glöð yfir að hann skuli vera komin "heim" til Sjálfstæðisflokksins, þar á hann örugglega heima. Bara spurningin hvort hann verður ekki skorin niður við trog eins og Gunnar Örlygsson.  Sjallar taka kvislingum engum vettlingatökum. Þeir vita sem er að sá sem svíkur málstað sinn er ekkert heilagt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2009 kl. 21:40

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er kraftur í Jóni og mér finnst slæmt að missa hæfileikaríkt fólk út úr flokknum sem getur veitt góðum málstað lið.

Sigurjón Þórðarson, 19.2.2009 kl. 22:14

4 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það á við um þá báða Jón Magnússon og Kristinn H, Gunnarsson að þeir eru greindir og koma vel fyrir sig orði. Hitt er svo líka spurning hvort þeir verði einhvern tímann greindir til fulls?

Árni Gunnarsson, 19.2.2009 kl. 22:57

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Kópi  , já þú segir nokkuð.

Ef Jón og Gunnar ganga aftur heim þá mun ég verða fyrsta manneskja til þess að bjóða þá báða velkomna enda afburðamenn.

Gæti trúað að Kristinn fengist til að þenja nikkuna af því tilefni og Valdimar myndi kanski spila á hörpu.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 20.2.2009 kl. 01:53

6 identicon

Ég er Sjálfstæðismaður og fagna komu Jóns Magnússonar heim. Það er nú svo að Frjálslyndir eru Sjálfstæðismenn sem voru í fýlu út í flokkinn, og stofnuðu því Frjálslynda. Ég minni á að Guðjón Arnar formaður Frjálslyndra er uppalinn góður og gegn Sjálfstæðismaður og er stoltur af og getur verið það. Smátt og smátt er þetta ágæta fólk að sættast við sinn gamla flokk og það er vel. Verið þið öll velkomin, það verður tekið vel á móti ykkur og hver veit nema ég muni slátra kóp til að fagna komu ykkar.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.2.2009 kl. 07:03

7 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðrún Maríam þá yrði kátt í Þernuvík.

Ómar, ég held að þú sért sá allra fyrsti sjálfstæðismaðurinn sem opnar faðminn fyrir Jóni.

Sigurjón Þórðarson, 20.2.2009 kl. 10:07

8 Smámynd: Rannveig H

Já það yrði kátt í kotinu! Ef það er satt sem Ómar seigir að Frjálslyndir séu bara góðir og gegnir fýlusjálfstæðismenn,ætli að það sé þá verið að bíða eftir að prófkjöri ljúki hjá Sjöllum svo FF fái nokkra tapara til sín. Það hefur ekki komið nema ein tilkynning opinberlega hverjir sækjast eftir fyrstu sætum í kjördæmunum já FF og það er frá Viðari Guðjónsen að hann stefndi á fyrsta sæti í RVK.

Veistu eitthvað um þetta Sigurjón? Er ekkert framboð á fólki á listana ,eða er verið að handvelja í reykfylltum bakherbergjum á nýja Íslandi . Hjá öðrum flokkum hrannast upp tilkynningar hvaða fólk ætlar fram fyrir þá. Einu fréttirnar af FF eru frá Eiríki Stefánssyni á Útvarp Sögu og einhverjir molar á DV hvorugt upplífgandi fyrir FF.

Rannveig H, 20.2.2009 kl. 13:09

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég held að það sé allt jákvætt að frétta.  Guðjón Arnar var löngu og ströngu ferðalagi um kjördæmið, en það eina neikvæða er að Guðjón náði sér í kvef á ferðalaginu.

Mér skilst að það sé búið að redda selnum í veisluna góðu og það er aldrei að vita nema að Konni Eggerts gauki hrefnu í boði Steingríms J til veisluhaldanna þ.e. ef að veislan stendur yfir í marga daga.

Það er auðvitað ekkert  að marka DV en mér virðist sem að blaðið sé orðið eitthvert málgagn VG og Baugs.

Ómar Ragnarsson er nýkominn frá Kanarí en virðist samkvæmt þínum fréttum engu að síður ekki vera í neinum gleðigír. Mér finnst það sem haft er eftir Ómari sem er gamall sjálfstæðismaður benda til þess að hann sé á leið í Frjálslynda flokkinn. Það eykur auðvitað enn frekar á gleðina í selapartýinu.

Hvað varaðr málflutning Eiríks Stefánssonar þá hef ég að mestu misst af pistlum Eiríks í vikunni þó svo að ég geri mér far um að hlusta á Útvarp Sögu en sambandið hingað norður hefur verið slitrótt.  Ég þykist vita að Eiríkur eigi nokkuð erfitt þessar vikurnar þar sem að honum þykir mjög vænt um málstað Frjálslynda flokksins og er svo sannarlega tilbúinn að leggja flest á sig til þess að þau nái fram en á móti kemur er að hann er mjög ósáttur hvernig haldið hefur verið á málum í flokksstarfinu.

Sigurjón Þórðarson, 20.2.2009 kl. 13:56

10 Smámynd: Kolbeinn Már Guðjónsson

Þeir sjálfstæðismenn sem ég hef heyrt í, hafa ekki beint þakkað fyrir "sendinguna". Ég sem hélt að Jón væri kominn heim.... vonandi að Eiríkur leggi honum lið í heimkomunni.

Kolbeinn Már Guðjónsson, 20.2.2009 kl. 17:28

11 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Nei Sigurjón, ég held að Guðjón sé búinn að slátra Frjálslyndaflokknum.

Sigurður Þorsteinsson, 20.2.2009 kl. 23:48

12 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ég trúi því að FF hafi tekið gleði sína á ný. Jón og hans vinir stóðu jú í veginum fyrir því að gaman væri í flokknum. Hann vildi sinna stjórnmálum, en það var lítið um slíkt í FF. Nú verður vonandi mikið um sela og hvalapartý hjá öllum þeim sem hafa gegnið til liðs við flokkinn á ný. Frábært hvað allt virðist ganga vel hjá flokknum þínum Sigurjón og Ásthildur. Gott að ég fór því ég hefði trúlega eyðilagt veisluna góðu. Rnda ein af hyskinu.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 21.2.2009 kl. 01:32

13 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðrún Þóra þú ert frábær og getur ekki gert annað en bætt allar veislur.

Sigurjón Þórðarson, 21.2.2009 kl. 01:58

14 identicon

Það er broslegt að lesa kommentin sem hér hrannast upp. Undirritaður gekk til liðs við FF í fæðingu hans og ég kom ekki úr neinu stjórnmála umhverfi, margir ættingjar mínir hafa þó verið framsóknarar, sem mér finnst ekki skipta neinu máli, Það sem varð til þess að ég gerðist FFari var sumsé óanægja mín með kvótakerfið og þá sérstaklega eignarhaldið á auðlindinni. Það sem mér er ljóst er að ýmsir hafa reynt að riðja sér leið inn í pólitíkina með því að koma sér inn í FF , þar sem við erum sennilega opnastir flokka og með bestu málefnaskrána. Þrátt fyrir ýmis rassaköst og fýluskot, þá hefur aldrei hvarflað að mér að hlaupa frá þessu fyrirbæri sem við stofnuðum til hérna um árið, og ætla ég að beyja mig undir vilja meirihluta flokksins, og taka ekki þátt í niðurrifi flokksins míns, en að sjálfsögðu vil ég reyna að leiðrétta það sem rangt er farið með. Og ef einhverjum finnst að hann eða hún ,sé hyski þá bara finna þeir sér nýja selaveislu, og hætta að breiða út ósannindi um okkur sem viljum reyna að bæta þessa þjóð sem búið er að hrekja út á ystu nöf tilveruréttar í samfélagi þjóða, og  það held ég allir geti sameinast um að Frjáslyndi flokkurinn á þar enga pólitíska sök á.

Þorsteinn Árnason (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband