Leita í fréttum mbl.is

Jón Magnússon mættur í vörnina hjá Davíð Oddssyni

Ég get sagt margt gott um Jón Magnússon og fátt eitt slæmt, enda er okkur ágætlega til vina. Hann getur verið dálítið fljótfær og satt að segja kom mér lítið á óvart brotthvarf hans úr Frjálslynda flokknum en ég er mjög hissa á því að hann finni sér samastað í Sjálfstæðisflokknum. Jón Magnússon hefur verið harður andstæðingur Davíðs Oddssonar og viljað kenna honum um flest það sem miður hefur farið í samfélaginu síðustu tvo áratugina, gjafakvótann, einkavæðinguna, útþenslu hins opinbera, peningamálastefnuna og að koma í veg fyrir Evrópuumræðuna.

Í ræðu og riti Jóns hafa harðar og vel rökstuddar ákúrur kristallast í heljargreipum Davíðs Oddssonar á samfélaginu.

Síðustu vikuna hefur það verið dagskipan þingflokks Sjálfstæðisflokksins að þvælast endalaust fyrir því að Davíð Oddssyni, upphafi alls ills að mati Jóns, verði komið út úr Seðlabankanum. Á þessum tímapunkti finnur einhverra hluta vegna Jón hvöt hjá sér til að leggja honum lið í vörninni. Ég fæ ekki botn í þetta.

Á þessu máli eru svo sem skemmtilegar hliðar og það kæmi mér hreint ekki á óvart að einn harðasti stuðningsmaður Jóns, Eiríkur Stefánsson, fylgdi honum í Sjálfstæðisflokkinn. Eiríkur er mikill hugsjónamaður og einlægur kvótaandstæðingur og er líka vanur að láta menn finna til tevatnsins eins og ég þekki sjálfur. Það eru hressilegir pistlar sem hann lætur gossa og fari svo fram sem horfir býst ég við að á landsfundi Sjálfstæðisflokksins muni Eiríkur taka flokkinn til bæna fyrir óhæfuverk síðustu áratuganna.

Eiríkur Stefánsson fyrrverandi verkalýðsleiðtogi frá Fáskrúðsfirði by olikristinn.

Myndin af Eiríki er tekin af myndasíðu Óla Kristins.


mbl.is Jón Magnússon í Sjálfstæðisflokk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

Ég skil vel brotthvarf Jóns úr FF eftir allt sem gekk á þar,en mesta óvirðing sem þingmaður gert kjósanda sínum er að  með atkvæðið yfir í annan flokk.

Rannveig H, 18.2.2009 kl. 22:49

2 Smámynd: hilmar  jónsson

Það fer vel á því að sameina fordóma og þröngsýni í einn flokk.

hilmar jónsson, 18.2.2009 kl. 22:54

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sumir ganga með draum í mörg ár og svo rætist hann í korter. Góð mynd af Eiríki   Sammála Rannveigu. Var Jón aldrei búinn að tjá sig um svona framkomu? kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 18.2.2009 kl. 23:37

4 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Mér er svo sem andskotans sama í hvaða flokki svona hálfvitar lenda,þessi maður Jón Magnússon var í Sjálfstæðisflokknum,nú e.h.hefur hann fyrrast við þann flokk,og stofnaði eiginn flokk,sameinaðist síðan frjálslindum,fyrraðist við þá,og er svo kominn heim aftur.Þá spyr maður sig,á að kjósa svona vileysinga á þing aftur,ó nei þeir geta bara éwtið það sem úti frýs.

Hjörtur Herbertsson, 18.2.2009 kl. 23:38

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Mannflóran er skemmtileg. Jón segir sjálfur að hann muni halda sínum áherslum í Sjálfstæðisflokknum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig okkar gamla félaga reiðir af þar.

Ég heyrði haft eftir Eiríki Stefánssyni að hann ætlaði að halda áfram að vera samviska Frjálslynda flokksins og láta ekki deigan síga.  Aðspurður um þetta sagði Eiríkur: "Oft var þörf en nú er nauðsyn að passa uppá að flokkurinn fari ekki ú t af sporinu".

Sigurður Þórðarson, 18.2.2009 kl. 23:48

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

hahaha Verst að leyfilegur bloggtími er liðinn hjá mér.

Skemmtilegt aflestrar þetta blogg.

Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 18.2.2009 kl. 23:57

7 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Svo bregðast krosstré sem aðrir raftar. Engin átti von á þessu.

Aldrei hefði ég trúað því að atkvæði mitt færi til Sjálfsstæðisflokksins. Sem betur fer verður það stutt.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 19.2.2009 kl. 00:00

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Spyrji mig einhver að því hvað ég hafi kosið núna síðast þá er ég ákveðinn í að segast vera búinn að steingleyma því.

Hvenær kýs maður Sjálfstæðisflokkinn og hvenær kýs maður ekki Sjálfstæðisflokkinn?

Kaus ég kannski Sjálfstæðisflokkinn? Fari í helvíti sem ég kaus hann- og þó!

Er furða þó maður sé farinn að hugsa eins og Jón Hreggviðsson?

En er það misminni hjá mér að biskupinn hafi beðið einhver lifandis ósköp fyrir þessum kjánum og öllum þeirra þankagangi í sjálfri Dómkirkjunni fyrir tæpum tveim árum? Ég held ekki.

Hann er nú ekki bænheitur hann Karl biskup.

Árni Gunnarsson, 19.2.2009 kl. 01:17

9 identicon

Já, Jón er farinn heim. Það er svolítið síðan ég tók eftir að hann var á leiðinni í Sjálfstæðisflokkinn og það bara með því að fylgjast með Alþingi.

En það er með sjálfstæðismenn eins og hið ástralska vopn ,,búmerang" að það kemur allta til baka, nema eitthvað sérstakt verði í vegi þess.  

Vonandi vinnur hann þá gegn kvótakerfinu í Sjálfstæðisflokknum. 

Kveðja að vestan.

Gústaf Gústafsson (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 08:38

10 Smámynd: Ómar Ragnarsson

U-beygjan er dálítið stór þegar miðað er við það að í haust voru það talin hin verstu svik hjá Kristni H. Gunnarssyni að vilja ekki samþykkja vantrausttilögu á þáverandi ríkisstjórn eins og hinir þrír í þingflokki Frjálslyndra vildu gera.

Ómar Ragnarsson, 19.2.2009 kl. 09:50

11 Smámynd: Róbert Tómasson

Jón er kominn heim... amen

Róbert Tómasson, 19.2.2009 kl. 11:29

12 Smámynd: Rannveig H

Það hefur alveg verið fjarri mér að kjósa Sjálfstæðisflokk,en atkvæði mitt er komið þangað. Mér er misboðið og skil ekki afhverju menn seigja ekki af sér þingmensku  og fara svo í slagi með nýjum flokki..Lýðræðið virkar eitthvað öfugt, þú mátt ekki kjósa persónu í flokki en þingmaðurinn má flakka með hundruð atkvæða á bak við flokkinn yfir í annan flokk. Svei.Hver er raunverulegur réttur kjósanda.

Rannveig H, 19.2.2009 kl. 12:17

13 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sigurjón, þú ættir að fylgja Jóni yfir í Sjálfstæðisflokkinn.  Hugsanlegt er að þú hefðir meiri áhrif þar en í FF.  Eiríkur og Kristinn H. fengju örugglega inngöngu líka, sæktust þeir eftir því.

Ég fæ ekki séð að FF muni lifa af fram að kosningum, allavega ekki eftir kosningar.

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.2.2009 kl. 13:15

14 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Tómas ég hef þá trú að Frjálslyndi flokkurinn verði aldrei stærri en einmitt eftir næstu kosningar.

Sigurjón Þórðarson, 19.2.2009 kl. 13:25

15 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Sé þú ert jákvæður Sigurjón. Gott að þú heldur húmornum.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 19.2.2009 kl. 14:04

16 Smámynd: ThoR-E

Mikil vonbrigði og óvirðing við okkur kjósendur Frjálslyndaflokksins.

Við kusum Jón á þing og hann þakkar okkur fyrir með því að stinga af eins og rotta af sökkvandi skipi.

Jáh.. þvílík vonbrigði.

ThoR-E, 19.2.2009 kl. 14:58

17 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég get verið sammála þér Sigurjón, Frjálslyndi flokkurinn verður aldrei stærri en eftir kosningar nú í vor.

Tómas Ibsen Halldórsson, 19.2.2009 kl. 15:12

18 identicon

Gaman að sjá suma jákvæða þó hart sé í ári.

Vorkenni þeim sem eru of neikvæðir, en þannig er bara hin gelda íslenska þjóð :)

Hafið það gott :)

Arnar B (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 15:51

19 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Það er komið gat í kosninga-og framboðsflóruna. Mikið fylgi Sjálfstæðisflokksins er komið á flot og margir þingmenn flokksins virðast vera umkomulausir. Jón ætlar ef til vill að fara að hugga þá. Frjálslyndi flokkurinn er ekki með þingmann lengur í Reykjavík eftir að Jón Magnússon er hættur. Framsókn er að verða of sein að skýra afdráttarlaust frá því hvar formaðurinn setur sig niður. Þetta tómarúm þarf að fylla upp í. Sá sem býður sig fram í fyrsta sæti einhvers flokks í Reykjavík og getur farið að láta tala um sig fer að skora stig. Hinir verða úti á Góunni.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 19.2.2009 kl. 16:25

20 identicon

Ef þú getur ekki sigrað þá, gakktu  þá í lið með þeim. Er það bara ekki málið að taka þá innan frá

(IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 18:13

21 identicon

Eru menn ekki farnir að átta sig á heildarmyndinni,Jón M var bara að fara aftur HEIM, og hver fer næst?

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 18:19

22 Smámynd: Atli Hermannsson.

Það eru vissulega vonbrigði að Jón Magnússon skuli hafa yfirgefið Frjálslynda. Þá batt ég vonir við að hann yrði næsti formaður flokksins. En úr því sem komið er fagna ég því að ötulasta þingmanni Frjálslyndra hefur tekist að koma sér inn á þingflokksfundi hjá Sjálfstæðisflokknum. það er ekki ómögulegt að honum muni ganga betur að koma stefnuskrá Frjálslyndra á framfæri þá leiðina en með Guðjóni og Kristni.    

Atli Hermannsson., 19.2.2009 kl. 18:54

23 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ákvörðun Jóns var rétt en ég á síður von á því að hann nái inn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Skoðanakannanir benda til þess að FF muni ekki eiga þingmann á alþingi Íslendinga eftir næstu kosningar.

Óðinn Þórisson, 19.2.2009 kl. 20:16

24 identicon

Óánægju fylgi sem kemur úr öðrum flokkum er ekki það sem hægt að byggja Frjálslyndaflokkinn á. Ég óska ykkur til hamingju með Eyjamannin knáa sem ætlar að gefa kost á sér í annað sæti á Suðurlandi,þar fer góður PEYI sem verður trúr sínum kjósendum.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 20:28

25 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Veit ekki hvort Eiríkur fer á landsfund. Það er búið að kjósa alla landsfundarfulltrúa. Landsfundurinn átti fyrst að vera í lok síðasta mánaðar og það verður engu breytt með fulltrúana.

Stefán Friðrik Stefánsson, 19.2.2009 kl. 20:54

26 Smámynd: Sævar Einarsson

Núna get ég loksins hugsað mér á að kjósa FF eftir að Jón fór, hef aldrei þolað þennan froðusnakk.

Sævar Einarsson, 20.2.2009 kl. 08:12

27 Smámynd: ThoR-E

Sigurjón, ætlar þú ekki að bjóða þig fram ??? nóg er víst plássið á listunum núna :) hnehne..

Kv.

ThoR-E, 20.2.2009 kl. 10:51

28 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ace, það er víst að ég verði í kjöri til formanns UMSS en ég legg verk mín í dóm fulltrúa aðildafélaga UMSS þann 6. mars n.k..

Sigurjón Þórðarson, 20.2.2009 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband