Leita í fréttum mbl.is

Kristinn H. Gunnarsson forsætisráðherra

Það má örugglega segja að Kristinn H. Gunnarsson sé sameiningartákn starfandi Alþingis því að hann hefur verið í öllum flokkum á þingi, eða forverum þeirra, nema Sjálfstæðisflokknum. Á þessu þingi hefur hann hins vegar stutt ríkisstjórnina dyggilega, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins þannig að taugarnar frá honum til þess flokks hafa greinilega verið miklar. Hann er gamall flokksbróðir og vinur forseta Íslands.

Góðar líkur eru á því að Kristinn leiði „þjóðstjórnina“ sem vilji er til að mynda.

Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góður!

LS.

LS (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 14:03

2 identicon

Það er nú eftir annari dellu á þessari síðu að segja að Kristinn H sé gamall ,,vinur forseta Íslands"!

Flosi (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 14:10

3 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hahaha...yeah right!

Heiða B. Heiðars, 26.1.2009 kl. 15:54

4 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

En og aftur Sigurjón. Fyrir hverja ert þú að vinna. Ég bara spyr?

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 26.1.2009 kl. 16:50

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

 Þó Kristinn láti ekkert tækifæri ónotað til að níða skóinn á félögum sínum í Frjálslynda flokknum þá lyftið þið honum á stall og launið illt með góðu.

Þetta kallar maður fagurt hugarþel.  Mín  von er sú að ef þið haldið áfram að launa illt með góðu endið þið með því að bræða steinrunnið hjarta Sleggjunnar. 

Sigurður Þórðarson, 26.1.2009 kl. 17:10

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sæl Hanna Birna, ég er að vinna hjá heilbrigðiseftirlitinu.

Sigurjón Þórðarson, 26.1.2009 kl. 17:25

7 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Hringdu í forsetann og tippsaðu hann.

Gunnar Skúli Ármannsson, 26.1.2009 kl. 18:05

8 identicon

Hann er ekki kallaður flokkadrós fyrir ekki neitt

Villi (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 18:24

9 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

Ekki trúlegur málflutningur hjá fólki sem stefnir á stórt hlutverk í stjórnmálum. Ég spyr því aftur Sigurjón, og nú: fyrir hvaða flokk ert þú að vinna? Ég vissi um vinnu þína hjá heilbrigðiseftirlitinu, en taldi það ekki hafa pólitíska skoðun á mönnum og málefnum. Ég hef aldrei Sigurður sett Kristinn H á stall. En hef ekki átt í neinum deilum við hann né neinn annan sem vinnur að stefnumálum Frjálslynda fl. Forseti vor gæti átt nafngiftina flokkadrós t.d.

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 26.1.2009 kl. 18:42

10 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hanna Birna þetta er misskilningur að ég sé að vinna fyrir einhvern stjórnmálaflokk en eini flokkurinn sem ég hef verið í er Frjálslyndi flokkurinn.  Ég gekk í Frjálslynda flokkinn á stofnfundi flokksins í Rúbrauðsgerðinni til þess að leggja lið baráttu gegn óréttlátu kvótakerfi sem er arfavitlaust kerfi til að stjórna fiskveiðum. 

Fyrir Frjálslynda flokkinn hef ég unnið í sjálfboðavinnu og verið þingmaður en nú í seinni tíð hafa núverandi stjórnendur flokksins einhverra hluta vegna ekki alltaf þegið mitt vinnuframlag. 

Mér hefur þótt það undarleg ráðstöfun en stórfurðulegt hefur mér þótt að frétta af því að Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Frjálslynda flokksins hafi neitað að styðja ályktun þess efnis að gætt yrði jafnræðis með úthlutun 30 þúsund tonna kvótaaukningar vegna þess að hann vildi að úthlutunin færi öll á núverandi handhafa veiðiheimilda. 

Ég er sannfærður um að megnið af fólkinu í Frjálslynda flokknum á samleið með mér sem vil breyta  fiskveiðikerfinu í átt til réttlætis og sættir sig alls ekki við óbreytt kvótakerfi sem er upphafið að hruni fjármálakerfisins.

Sigurjón Þórðarson, 26.1.2009 kl. 19:24

11 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

Var líka á þeim fundi í Rúgbrauðsgerðinni forðum. Mikið vatn hefur til sjávar runnið síðan og fiskurinn með. Já ég helt að okkar barátta ætti samleið, hún á ekki að snúast um menn, heldur málefni, þeir sem ekki finna sig í okkar grunnstefnumálum yfirgefa einfaldlega flokkinn og finna sínum málum borgið annars staðar. SVO EINFALT ER ÞAÐ. Sjáumst á landþingi. Flokkurinn vill breyta fiskveiðikerfinu, um það var hann stofnaður fyrir rúml. 10 árum. Vonandi tekst það nú að fá aðra með í þá vinnu. Þá sem  hingað til hafa ekki þorað. Allir  aðrir flokkar hafa verið bleyður í þeim málaflokki. En taka upp eftir Frjálslyndum góðar tillögur,en  svo er bara að  skoða - skoða verði þetta orm-étna kerfi. Því kom t.d. ekki fram í fjölmiðlum að fyv. sjávarútvegsráðherra hefði aukið aflaheimildir að tillögu Frjálslynda fl.?

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 26.1.2009 kl. 19:50

12 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Sigurjón , ég hélt að við hefðum verið sammála síðastliðinn Föstudag  um að stærsta vandamál FF væru innanflokks erjur ? Ekki finnst mér vera mikill sátta tónn í þessum skrifum hjá þér , og þó að ég geti tekið undir það með þér að  Kristinn hafi ekki gengið í takt við stefnuskrá FF þá finnst mér þessi staður ekki vera rétti staðurinn til að ræða málinn . kv . 

Georg Eiður Arnarson, 26.1.2009 kl. 20:16

13 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hanna mín , þú átt það til að misskilja stundum. Ég hef aldrei haldið því fram að þú hafir sett KHG á stall. Það gerði bróðir minn aftur á móti og launaði þannig illt með góðu. KHG hefur aldrei stutt sjávarútvegsstefnu Frjálslynda flokksins, þvert á móti styður hann stefnu Sjálfstæðisflokksins sem vill að kvótagreifarnir fái 30.000 tonna viðbótina.  Þannig hefur hann sett sig upp á móti stefnuskránni, landsfundarsamþykktum, þingflokki og nú síðast miðstjórnarsamþykkt flokksins varðandi þetta sama mál. Það er rangur misskilningur hjá þér að Sigurjón eigi að hypja sig úr flokknum fyrir þær sakir að standa enn á sömu skoðun og þegar við stofnuðum flokkinn, þó framsóknarmaður gangi í flokkinn og gleymi  að kynna sér stefnu hans. En það er aftur á móti  réttur misskilningur hjá þér að fiskurinn renni til sjávar.  Nú held ég að ég hætti þessu skrifi annars fer ég að ruglast í því hvað sé réttur misskilningur og hvað rangur.

Sigurður Þórðarson, 26.1.2009 kl. 20:28

14 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Mér finnst að við þurfum nú að hafa ahyggjur af þvi að meira fylgi skili sér ekki til Frjálslyndra heldur en raun er það þarf að skoða það

Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.1.2009 kl. 21:17

15 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sátt, samlindi, náungakærleikur, samstíga, einurð og heilbrigð skoðanaskipti. Dettur manni þá fyrst í hug Frjálslyndi flokkurinn, ég bara spyr?

Það er vægast sagt hroðalegt hvernig þessi flokkur hefur spilað úr sóknartækifærum sínum og hver ber ábyrgð á því? Ég leyfi mér að fullyrða að það eru ekki óbreyttir liðsmenn flokksins.

Ég held að staðreyndin sé einföld, algjör uppstokkun á fronti og forustu flokksins eða hann þurkast út og verður minnst í sögubókun sem flokkur með flotta stefnu en því miður vonlausa stjórn á sjálfum sér.

Hallgrímur Guðmundsson, 26.1.2009 kl. 21:24

16 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

Ekki er minn misskilningur meiri en þinn, minn kæri vinur Sigurður ef þú leyfir þér að rangtúlka skrif mín hér að ofan að ég hafi óskað  að Sigurjón bróðir þinn yfirgæfi baráttumál Frjálslynda fl. En Persónulegt hatur getur ruglað hið besta fólk. Við vinnum saman að málefnum, en ekki sundrung.Það eru málefnin sem eiga að vera okkar sameiginlega markmið en ekki persónur sem fara með valdið hverju sinni. Við skiptum fólki út, en ekki málefnum.

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 26.1.2009 kl. 21:43

17 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kæra vinkona, þú hefur mikinn sannfæringarkraft og mér finnst bara upplyfting í því að  kýta svona í góðu.  Það er gott að heyra að það sé kært á milli þín og KHG og ég vona að þú misnotir þá aðstöðu þína til að sannfæra KHG um að stefnu Frjálslandaflokksins t.a.m það  að leyfa frjálsar krókaveiðar.  Og ef við leyfum okkur að kýta í góðu þá getum við líka leyft okkur að gera að gamni okkar. Það er langur vegur frá því að hata einhvern eða gantast. 

Sigurður Þórðarson, 26.1.2009 kl. 22:27

18 Smámynd: Halla Rut

Ég las þessa færslu hjá Sigurjóni og sá hana fyrir það sem hún er: GRÍN og GAMAN.

Er húmorinn alveg farin frá ykkur á öllu krepputalinu?

Annars er ég 100 % sammála Hallgrími hér að ofan sem oftar. 

Menn segja stundum að verkin tali. Formaður FF er nýkomin heim eftir margar vikna legu á Kanarí. Hvers konar leiðtogi stjórnmálaflokks og þingmaður fer til útlanda í frí í fleiri vikur við þessar aðstæður? Kemur svo til baka og segir að allir verði að leggja sitt að mörkum og vinna að aðkallandi málum. Ég nenni ekki einu sinni að pirra mig á þessu því þetta er bara ekkert annað en kjánalegt. Undrar einhvern 3,5% fylgi?

Flokkurinn hefði hér getað komið fram, unnið fylgi, komist í ríkisstjórn og breytt þess kvótakerfi. Hér var tækifæri til að koma með árangur nokkuð sem flokkurinn hefur aldrei gert. 

Það þarf að skipta um forustu og það strax. Allir eru betri en þessi með fullri virðingu fyrir því fólki er að henni stendur. Jafnvel trúður mundi ná betra fylgi á tímum sem þessum eða var það ekki einmitt hér eitt árið að eitthvað grín framboð náði ótrúlegum árangri?

Ég bíð mig hér með fram til formanns. Bara verst að þá þarf ég að skrá mig í flokkinn aftur.

Halla Rut , 26.1.2009 kl. 22:33

19 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Mér finnst þetta besta tillaga sem ég hef heyrt í langan tíma

Brynjar Jóhannsson, 26.1.2009 kl. 23:06

20 Smámynd: Jens Guð

  Hallgrímur hittir naglann á höfuðið og Halla Rut bætir um betur.  Það þýðir ekki að sópa vandanum undir teppi og láta sem ekkert sé.  Flokkur með frábæra stefnu sem landsmenn eru sammála en hafna samt flokknum.  Og fylgjast í forundran með því hvernig einn þingmaður flokksins hefur lagt í vana sinn að greiða atkvæði öndvert við annan þingmann flokksins. 

Jens Guð, 26.1.2009 kl. 23:16

21 Smámynd: Sigfús Axfjörð Sigfússon

Sá maður ætti að vera einn í flokki sem enginn mætti kjása nema hann. Tilvali nafn á flokkinn hans væri Fokk flokkurinn, enda er hann rómuð flokkamella!

Sigfús Axfjörð Sigfússon, 26.1.2009 kl. 23:19

22 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Kristinn var að vinna fyrir sína umbjóðendur, smábátasjómenn á Vestfjörðum meðal annars, með því að hafna því að ríkið sem er staðsett í R.vík.hirti þessi þrjátíu þúsund tonn, sem hefði með því farllið að stærstum hluta á  fólk sem ekkert kemur nálægt sjávarútvegi.

Sigurgeir Jónsson, 26.1.2009 kl. 23:56

23 Smámynd: Halla Rut

Smábátasjómenn á Vestfjörðum...hvernig færðu það út?

Halla Rut , 27.1.2009 kl. 00:22

24 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það var alveg kominn tími á & til að flokkzfélagar mínir töluðu af einhverju viti.

Steingrímur Helgason, 27.1.2009 kl. 00:37

25 Smámynd: Halla Rut

Hver er að tala af viti Steingrímur?

Halla Rut , 27.1.2009 kl. 01:08

26 identicon

HALLA RUT

Mig langar til að leiðrétta hér smávegis.

formaðurinn var ekki á margra vikna legu á Kanarí, 1 vika átti það að vera í upphafi en endaði með 2 þar sem flugfélagið hætti við þessa ferð heim á þeim tíma sem formaðurinn átti að fara heim, ekki veit ég hvers vegna en mig grunar að það séu bara rekstarörðuleikar eins og á svo mörgum fyrirtækjum.

Kannski að þú hafir ekki vitað en alþingi var ekki að starfa á þeim tíma sem formaðurinn fór út, þingið hófst 1 degi fyrr en hann kom heim.
og mega menn ekki ferðast hvort sem það er innan eða utanlands ef þeir eru í fríi? Jón Magnússon var nú úti líka á sama stað á sama tíma.....segiru ekkert við því eða ???

fyrir mitt leyti þá hefur Kristinn H alltaf verið ósamstarfshæfur og allir sem að flokknum komu voru bara varaðir við að taka hann með því hann væri ekki samstarfshæfur, slíkt hefur því miður of oft komið á daginn, sumir einfaldlega geta ekki breyst.

hvort það eigi að skipta um forystu í flokknum ætla ég ekki að tjá mig um, hef það fyrir mig og kýs það sem mér dettur í hug.
en eitthvað þarf að gera og ég er alveg sammála því.

en það sem einfaldlega hefur verið að drepa flokkinn eru þessar endalausu innanhúserjur þar sem allir taka þátt í fyrir kannski utan nokkra einstaklinga og ég segi það bara hér með að þetta blogg er ekkert að mýkja hlutina heldur örugglega þvert á móti.

þannig að ég bara spyr, hvenær ætla þeir sem eru í þessum flokki að halda málum fyrir innan flokkinn eða jafnvel bara á milli sín og þá án þess að þurfa að blogga um þau.

ég bara skil ekki afhverju menn þurfa að gera þetta.

einhver hér mun segja ykkur hver ég er og mér er bara alveg sama um það. ég er ég og ég hef mínar eigin skoðanir. alveg eins og þið.

Arnar (IP-tala skráð) 27.1.2009 kl. 01:25

27 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég tek það fram að ég er ekki Arnar, enda hefði ég alveg verið stoltur & kátur með að rita undir hanz innlegg hér með mínu nafni því að ég er alveg gjörzammála henni.

En hann á hana sjálfur & löngu þarft verk að þetta heyrðist.

Á endalauzt að sætta sig við 'pilzner fylgið' bara fyrir að standa óumdeilt fyrir góðum málefnum ?

Steingrímur Helgason, 27.1.2009 kl. 01:47

28 Smámynd: Jens Guð

  Arnar,  í fullri vinsemd:  Það er góð regla að hefja málsgrein á stórum staf.  Þessa athugasemd máttu ekki taka sem hroka.   

  Þetta með innanhúsvandann:  Hvenær er vandi innahúss og hvenær er vandi á opinberum vettvangi? 

  Þegar einn þingmaður í 4ra manna þingflokki greiðir ætíð atkvæði öndvert við annan þingmann flokksins er vandamálið opinbert.  Eða hvað?  Eigum við að flokka það sem innanhúserjur?  Eða er vandamálið stærra?  Með öðrum orðum opinbert?

Jens Guð, 27.1.2009 kl. 01:48

29 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Halla Rut. Á landsfundi Landsambands Smábátaeigenda 2007 kom fram tillaga um að festa bæri kvótakerfið í sessi.Sú tillaga var samþykkt með 22 atkvæðum gegn fimm.Atkvæðagereiðslan fór fram með handaruppréttingu.Ef mig misminnir ekki voru allir fulltrúar Vestfjarða með tillögunni.Þó má vera að einn hafi verið á móti.Sjómannasamtökin í landinu hafa heldur ekki gefið neitt út um það, að þau vilji þjóðnýtingu aflaheimilda.

Sigurgeir Jónsson, 27.1.2009 kl. 10:30

30 Smámynd: Sigurður Þórðarson

 Það er ekki hægt að neita því að það er mikil krafa um endurnýjun

Það er búið að nefna 4 eða 5 nöfn í væntanlegu formannskjöri og fleiri eiga eftir að koma. 

Af hverju hittast ekki nokkrir velviljaðir menn og ræða málin af hreinskilni?  Það verður að stilla upp sterkasta liði sem völ er á ef þetta á að ganga fyrir flokkinn.

 En svo getur verið að menn vilji bara hugsa þetta þrögnt út frá eigin persónu og þá þarf ekki að ræða neitt. 

Sigurður Þórðarson, 27.1.2009 kl. 11:21

31 Smámynd: Axel Jóhannes Yngvason

Óskaplega er leiðinlegt að lesa þetta rugl eftir ykkur bræður ég held að ykkur væri nær að gera eitthvað annað enn að eyðileggja fyrir flokknum með sífelldu baknagi og illmælgi um menn og snúa ykkur að því að afla flokknum fylgis en ekki að sundra öllu með ómálefnalegum dylgjum. Eigum við ekki annars að bjóða fram í væntanlegum kosningum farið nú að haga ykkur eins og fullorðnir menn.

Axel Jóhannes Yngvason, 30.1.2009 kl. 21:43

32 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Hvað er rugl Axel minn?

Sigurjón Þórðarson, 30.1.2009 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband