Leita í fréttum mbl.is

Steingrímur J. er kvótakall

Kryddsíldin kláraðist ekki en það sem vakti sérstaka athygli mína var að Ingibjörg Sólrún utanríkisráðherra sem hefur verið meira á landinu í lok ársins en fram eftir ári þegar hún þeyttist til Írans, Íraks, Ísraels og víðar til að stilla til friðar talaði niður til mótmælenda. Ég er viss um að ástæða þess að dregið hefur úr ferðagleði Ingibjargar er að hún á erfitt með að horfast í augu við útlendinga sem hún hefur platað fyrr á árinu og sagt að fjármálakerfið væri ákaflega traust. Af tvennu illu finnst henni skárra að vera hér á hólmanum og skamma landann fyrir að vera ekki lotningarfullur yfir klúðrinu og að enginn skuli bera ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut.

Steingrímur J. var hinn reffilegasti í Síldinni og virtist vera búinn að gleyma því að hann væri í grænum flokki og gerði enga athugasemd við það að Rio Tinto styddi hann til að koma fram í þessum þætti.

Það var hins vegar annað viðtal sem vakti mig meira til umhugsunar þar sem SJS var til andsvara, viðtal sem ég heyrði endurflutt á Útvarpi Sögu í morgun þar sem SJS fór allur í flækju þegar hann var spurður hvernig hann vildi breyta stjórn fiskveiða. Það var greinilegt á SJS að hann taldi það meiriháttar mál og vildi flækja það með því t.d. að stóru félögin sem búin eru að kaupa útgerðir og höggva djúp skörð í byggðir landsins og stofna til mikilla skulda væru svo mikilvæg að þar mætti engu breyta. Hið sama átti við um útgerðina í Grímsey, þar mátti engu breyta í þessu kerfi sem brýtur á mannréttindum - því að hagsmunir væru svo ríkir. Málið er einfaldlega að aukið frelsi í greinninni þar sem opnað væri á nýliðun myndi tryggja búsetu í Grímsey og öðrum sjávarbyggðum til framtíðar. Steingrímur, bullið í þér kom á óvart!

Í viðtalinu sem Ásgerður Jóna tók kom Steingrímur upp um sig, afhjúpaði sig beinlínis sem kvótasinna sem ætlaði ekki að breyta kerfinu heldur setjast í valdastólinn og viðhalda kerfinu sem hefur misboðið fólki til langs tíma. Steingrímur klykkti út með því að vegna þess að í sumar hefði gengið svo vel hjá þessum fyrirtækjum vissi hann ekki hvernig ástandið væri án þeirra. Maður hlýtur að spyrja sig hvort hann sé í engu jarðsambandi.

Það þarf að verða endurnýjun í íslenskum stjórnmálum og þar á meðal í þessu kerfi.

Gleðilegt nýtt ár 2009!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

góður pistill Sigurjón.. kvótinn skal taka burt frá kvótagreifum þessa lands.. með góðu eða illu og kvótanum skal úthluta á jafnréttisgrundvelli, eitt tímabil í senn.. og enginn nema þjóðin getur átt kvóta.

Það var gott að kryddsíldinni lauk eins og henni lauk.. því ekki hefði ég viljað að þessir sauðir sem þar sátu hefðu fengið að þvaðra út í eitt yfir alþjóð.. að vísu huglausri og duglausri þjóð en þjóð engu að síður..

Imba solla Stirða er að ná hæstu hæðum í því að verða fyrirlitinn af þessari sömu duglausu þjóð hér norður í ballarhafi..

eigði gott ár Sigurjón og þakka þér fyrir bloggvináttu þína á árinu sem er að líða. 

ef það er einhvers virði þá mundi ég kjósa þig í persónukosningum..  

Óskar Þorkelsson, 31.12.2008 kl. 16:55

2 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Ég er nú sammála þér með kvótaruglið í Steingrími - ég hélt að þeir hefðu séð ljósið en svo virðist ekki vera með Steingrím!   Ef ekki er lag að stokka upp kerfið núna þá kemur það aldrei.     Útgerðarmenn eru margir skuldugir upp fyrir haus að því að sagt er þrátt fyrir að hafa selt kvótann framvirkt og sennilega dregið fé úr fyrirtækjum sínum til að fjárfesta í rugli í stað þess að efla útgerðirnar.     Þeir sem selja sig fjandanum verða að taka afleiðingunum!

Ragnar

Ragnar Eiríksson, 31.12.2008 kl. 17:19

3 Smámynd: Jón Kristjánsson

Mér hefur alltaf fundist SJS tvístígandi í kvótamálum. Hann, eða flokkurinn, hefur ekki þegið boð mitt um fyrirlestur um ástand fiskstofna, fyrirlestur sem er á faglegum nótum, svo menn geti skoðað málin sjálfir og tekið upplýsta afstöðu.
Ég varaði hann við hruni þorskstofnsins 1998, þegar hann var formaður Sjávarútvegsnefndar Alþingis, en hann hafði það að engu og hefur reyndar ekki talað við mig síðan um fiskimál.

Jón Kristjánsson, 31.12.2008 kl. 20:23

4 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Þetta er með ólíkindum, þessir menn eru blindir, siðblindir ef til vill að vilja ekki skoða málin frá öllum hliðum.   Þú - Jón - hefur verið talsmaður annara gilda en HAFRÓ og þá er undarlegt miðað við árangur Hafró í fiskveiðistjórn að VG  eða aðrir kvótasinnar vilji ekki hlusta á rök þín um skynsamlegri stjórnun!   Ætl'ann telji þig bara bjána (eins og mig!)? 

Ragnar Eiríksson, 31.12.2008 kl. 20:39

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Því miður verður það að segjast eins og er að þarna í þessu viðtali á Útvarpi Sögu hjá Ásgerði Jónu, afhjúpaði formaður Vg sitt kjördæmishagsmunapot þess eðlis að hafa keypt aflaheimildir til þess að halda í byggðarlagi og þar með þáttöku í hinni rússnesku rúllettu markaðsbraskins allra handa í kvótakerfinu.

Auðvitað ganga menn síðan ekki erinda þess að breyta kerfi sem þeir samþykkja með þessu móti síðar, það gefur augaleið, því miður fyrir land og þjóð.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.1.2009 kl. 01:14

6 Smámynd: Halla Rut

Af hverju talar þú ekki við hann. Hringir í hann eða bíður honum á fund?

Gleðilegt ár og takk fyrir góða vináttu á árinu sem er að líða.

Halla Rut , 1.1.2009 kl. 19:22

7 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

GLEÐILEGT ÁR Þakka bloggvináttu liðins árs  Nenni ekki að kommenta á Steingrím

Jón Aðalsteinn Jónsson, 2.1.2009 kl. 00:26

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég þakka sömuleiðs mjög góð skrif í gegnum tíðina en nú er að byrja örlagaríkt ár sem mun örugglega hafa í för með sér talsverðar breytingar.

Sigurjón Þórðarson, 2.1.2009 kl. 00:39

9 identicon

Gleðilegt ár Sigurjón,ekki eyða bloggpúðri þínu á Steingrím. Nú er það forgangur að koma þér á þing og vinna með Steingrími að vinda ofan af kvótaruglinu. Þið getið báðir reynst landinu vel,ekki síst landsbyggðinni. Baráttukveðja Skafti

Skafti Steinólfsson (IP-tala skráð) 2.1.2009 kl. 11:19

10 Smámynd: Héðinn Björnsson

Steingrímur kemst aldrei upp með að styðja kvótakerfið á þingi. Ef þið komið með tillögur um leiðir til að afnema kvótakerfið munu VG styðja það og Steingrímur með. Allt annað myndi valda uppþoti innan VG og þá kæmust núverandi fulltrúar ekki á þing aftur. Uppgjör við kvótakóngana er nauðsynlegt skref í því uppgjöri við auðstéttina sem þarf að fara fram á komandi ári og árum.

Héðinn Björnsson, 2.1.2009 kl. 20:28

11 Smámynd: Kristín Sigurjónsdóttir

Sæll frændi.
Guð gefi þér og þínum gleðilegt ár.
Ég þakka fyrir allt liðið og endilega komdu inn á facebook hjá mér.
Kveðja Kristín frænka.

Kristín Sigurjónsdóttir, 2.1.2009 kl. 22:39

12 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Sæl frænka´, við feðgar áttum ánægjulegan dag á æskuheimili þínu á Siglufirði.

Kristín ég er ekki komin enn á Facbook

Sigurjón Þórðarson, 3.1.2009 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband