Leita í fréttum mbl.is

Er Ingibjörg Sólrún að hætta? Hún skipar vinkonu sína sendiherra.

Það hefur verið háttur fyrrum utanríkisráðherra að fara í vafasamar ráðningar á sendiherrum rétt áður en þeir láta af störfum, þó ekki Valgerður Sverrisdóttir og á hún skilið hrós fyrir það. Í dag bárust fréttir af því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skipaði mitt í sparnaðaraðgerðum sínum vinkonu sína og fyrrum aðstoðarmann og skrifstofustjóra borgarstjórans í Reykjavík, Kristínu Árnadóttur, sendiherra.

Kristín hefur starfað í rétt rúmt ár í utanríkisþjónustunni og stýrt einni vitlausustu hugmynd Íslendinga á síðustu árum, þ.e. að sækjast eftir setu í öryggisráðinu. Og ekki er hægt að segja að erfiðið hafi skilað þjóðinni miklum árangri.

Þetta er gert í miðjum sparnaðaraðgerðum sem felast í því að blása burtu megninu af því furðulega í útþenslu utanríkisþjónustunnar sem boðað var í fjárlagafrumvarpinu. Þetta minnir á kallinn sem datt í hug að fara í tvær sólarlandaferðir á næsta ári, bæði til Mæjorka og Kýpur, en grípur svo til harðra sparnaðaraðgerða - fara bara í aðra ferðina og spara þannig hundruð þúsunda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skattborgari

Það síðasta sem okkur vantar eru fleiri sendiherrar því að við höfum mun fleiri en við höfum þörf fyrir.

Skemmtileg saga með manninn sem ætlaði í 2 utanlandsferðir sem lýsir því vel hvernig stjórnvöld hugsa.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 12.11.2008 kl. 23:14

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Hvað segirðu, hvar verður sú hin sama sendiherra ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 12.11.2008 kl. 23:27

3 identicon

Er ekki verið að ráða í vinnu í utanríkisráðuneytinu vegna þess að þar er ekkert fólk við vinnu ? 

Hefur einhver orðið var við aulana sem Davíð Oddsson réði í utanríkisþjónustuna ?

Hvers vegna er enginn úr untanríkisþjónustunni að svara fjölmiðlum og fólki í þeim löndum þar sem  bankarnir voru með starfsstöðvar ?

JR (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 23:30

4 Smámynd: Eiríkur Guðmundsson

ég var einmitt nokkuð hissa með þessa ráðningu á henni Kristínu, sem er að því er ég held frænka mín.  Ekki að það skipti máli. Þetta lítur, svona fyrst í stað, út fyrir að það sé bara verið að búa til embætti fyrir hana Stínu. Sem er í hæsta máta furðulegt, ég þekki ekki hvort að hún sé mikið að sér í utanríkismálum, og spyr mig hvort að það hefði ekki jafnvel átt að auglýsa þessa stöðu, eða í það minnsta skipa faglega í þetta starf. 

 Ég hef aftur á móti kannski ekki allar upplýsingar til að mynda mér fullkomlega réttmæta skoðun á þessu máli. Lögfræðin hefur einfaldlega of mikið tak á mér þessa daganna.  

Eiríkur Guðmundsson, 12.11.2008 kl. 23:32

5 Smámynd: Róbert Tómasson

Æi þetta er svolítið pínlegt hja henni blessaðri og ég sem var akkurat hérumbil að fá ofurlítið álit á henni, en svo bregðast krosstré sem önnur....

Róbert Tómasson, 12.11.2008 kl. 23:32

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Kristín Árnadóttir er skipaður sendiherra í Reykjavík.  Skýringin var eitthvað á þá leið að Kristín á að stjórna nýrri skrifstofu sem hefur ekki með minna né minna að gera en sérstaka yfirstjórn .

Eina vandamálið með ráðningu Kristínar skrifstofustjóradjobbið var að það voru svo margir sendiherrar fyrir á skrifstofunni og hún ekki orðin svoleiðis þannig að eina leiðin til þess að redda því var að gera Kristínu líka að sendiherra.

Sigurjón Þórðarson, 12.11.2008 kl. 23:38

7 Smámynd: Skattborgari

Er þá verið að skipa hana sendiherra án þess að það sé til sendiráð fyrir hana? Af hverju þarf að skipa hana sendiherra? Ætli ástæðan sé ekki að hún fær hærri laun og ýmis fríðindi sem sendiherra sem að venjulegt skrifstofufólk fær ekki.

Kveðja Skattborgari.

Skattborgari, 12.11.2008 kl. 23:42

8 identicon

Kristín Árnadóttir er annálaður dugnaðarforkur (þótt hún sé vinkona ISG).

Stærsta smáninn í spillingarbæli utanríkisþjónustunnar eru þessir félagar sem skriðu upp eftir bakinu á Davíð Oddssyni.

Markús Örn (peð Davíðs Oddssonar)

Júlíus Hafstein (sendisveinn Davíðs Oddssonar)

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 23:44

9 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég veit ekki hvernig þetta fer ofan í hinn almenna kjósenda Samfylkingarinnar sem hefur fylgst með formanninum Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur gagnrýna hinar og þessar ráðningar m.a. í hæstarétt. 

Einkavinavæðing á aldrei rétt á sér hvenær sem hún fer fram og skiptir þá engu hver á í hlut en núna er a.m.k. ekki rétti tíminn til þess að ögra fólki sem er að missa vinnuna og greiða æ stærri hluta af launum í afborganir af lánum.

Sigurjón Þórðarson, 12.11.2008 kl. 23:57

10 identicon

Sæll, Sigurjón.  Einkennilegt reyndar að ISG hafi ekki lagt niður varnarmálastofnun í niðurskurðinum.  En auðvitað orkar skipun vinkonu í sendiherrastöðu án sendiráðs tvímælis.

LÁ 

lydur arnason (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 02:35

11 Smámynd: Heidi Strand

Í Kristín er eins og skipper skuteløs.
Nýskipuð barna og fjölskyldmálaráherra Noregs varð að segja af sér  vegna þess að hún réð vinkonu sina í starf umboðsmaður barna í Noregi og hafði sagt ósatt um að þeir þekktust.

Stöðuveitinguna var í kjölfarið ógild og fyrrverandi umboðsmaður fékk endurráðningu eins og hann óskaði eftir.

Heidi Strand, 13.11.2008 kl. 05:37

12 Smámynd: corvus corax

Þessi skipun Sollu svikara á vinkonu sinni í stöðu sendiherra orkar ekki bara tvímælis, heldur er hún siðferðilegur glæpur! Það er ekki bara að um einkavinavæðingu sé að ræða heldur er þessi gjörningur eins og blaut tuska framan í þjóðina eins og staðan er í dag. Það er löngu orðið brýnt að láta Ceaucescu Oddsson og Geira gungu fjúka ásamt þeim ríkislögreglustjóra, dómsmálaráðherrafíflinu og hrossalækni ríkisstjórnarinnar. En nú bætist í hópinn, Solla svikari verður að fjúka líka strax, hún er búin að fyrirgera öllu trausti og ætti aldrei að láta sjá sig aftur á sviði stjórnmála hér á landi.

corvus corax, 13.11.2008 kl. 08:45

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eru sendiherrar okkar að gera landinu einhverja þjónustu núna? Nei, þeir eru það ekki. Þeir eru auglýsingastofur fyrir útflutningsráð og búið. Rétt eins og forsetabullan sem á að vera heima og rjúfa þing í stað þess að ganga frá síðustu vinasamböndum okkar og raska valdajafnvægi nato.

Krístin söng, Ég einskis barn er...Endalaust myrkur er áskapað mér. Kannski ISG ætti að setja þá vellu á fóninn, því það eru hennar örlög, sem lýst er þar.

Hún vill nú kljúfa þjóð á þing í meiningalausu þrátti um inngöngu í evrópubandalagið, sem engin leið er að við séu gjaldgeng í næstu 10 ár a.m.a. Selja okkur undir Rómarsáttmálann, sem kveður á um að fiskistofnar aðildarlandanna skuli tilheyra bandalaginu í heild.

Á meðan brennur allt stafnanna á milli. Veistu...fólk hefur verið höggvið fyrir minna í siðmenntuðum samfélögum. Hún er loddari og lýðskrumari með sjalfmiðuð markmið um persónuleg völd og upphefð. Háskólaelítuhlandfrussa, sem gefur ekki skítinn úr sjálfri sér fyrir fólkið í landinu.  Það er eins gott að það sé rétt að hún sé á flótta. Það myndi lýsa henni rétt.

Afsakið svo frönskuna mína.

Jón Steinar Ragnarsson, 13.11.2008 kl. 10:07

14 identicon

Enn eitt dæmið um spillingu.

Rosalega er maður orðinn þreittur á þessu....

Burt með þessa óhæfu spilltu ríkisstjórn!!

Einar (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 10:11

15 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Mér finnst merkilegt að fylgjast með gagnrýnislítilli umfjöllun fjölmiðla um vægast sagt umdeildar ráðstafanir ISG.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 10:25

16 Smámynd: Rannveig H

Ég horfi til þess líka, að fjölmiðlum finnst lítið til koma. Hvað er málið vildi gjarnan vita það.

Rannveig H, 13.11.2008 kl. 11:28

17 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Það er t.d. áhugavert að skoða skrifin á Samfylkingarvefnum Eyjunni en þar ríkir algjör þögn um málið.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 11:33

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Enn einn spillingarnaglinn í líkkistuna hjá ríkisstjórninni, eða þetta hlýtur eiginlega að vera pýramídi, því naglarnir eru orðnir svo margir, eða steinarnir í götunni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2008 kl. 12:28

19 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þetta kemur mér fyrir sjónir sem hneyksli. Er Ingibjörg að reyna að bjarga málum í þágu flokksgæðings, áður en hún stekkur af sökkvandi skútu og þjóðstjórn fagmanna tekur við?

Jón Valur Jensson, 13.11.2008 kl. 13:27

20 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ingibjörg Sólrún beitti sér mjög gegn ráðningu vina og vandamanna í hæstarétt á sínum tíma.  Af síðustu verkum má helst ætla að andstaða hennar hafi fyrst og fremst grundvallast á því að hvorki var um vini né vandamenn Ingbjargar að ræða. Hér er bútur úr ræðu formanns "jafnaðarmanna" sem hún flutti fyrir 3 árum síðan á landsfundi þegar hún var að hneykslast á vinavæðingu núverandi samstarfsflokks síns.

Samfylkingin á að vera flokkur siðrænna gilda, hugmynda, lausna og samstarfs sem byggir á leikreglum lýðræðisins. Við útilokum engan frá því samstarfi en við munum ekki beygja okkur undir óskrifaðar reglur sjálfskipaðra valdaklúbba sem vilja velja sér félaga og ráða lögum og lofum án tillits til hins lýðræðislega vilja

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 15:54

21 identicon

Það er gott ef hún hættir.Þá gerir hún ekki meiri ókunda.EN ÞAÐ VANTAR ENGA SENDIHERRA.

Nú spörum við fyrir skuldum ÚTRÁSARMANNA og RÁÐAMANNA .

ÞAÐ er að segja ríkið , við eigum ekkert afgangs.Verðum samt að herða sultarólina.

Verðum sennilega ekki offitusjúklingar á meðan.

Kristín (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 17:34

22 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er svakalegt og enn er haldið áfram að leyna upplýsingum.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 19:39

23 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Bon, Það er nú það en eitt er víst að Geir H sem er í vinnu hjá okkur er ekkert að láta okkur vita.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 21:19

24 identicon

Það hefði varið gaman að sjá Jón Val dæma af sömu hörku allar hinar mannaráðningarnar sem menn og konur á þingi stunda, sérstaklega sjálfstæðismenn. Fyrirgreiðslupólitík er óþolandi hvort sem það er Ingibjörg eða einhver annar. Davíð réði sex sendiherra og ég veit ekki betur en að þeir séu bara að slæpast um göturnar á fínum launum, fyrir svo utan alla lögfræðingana sem fengið hafa vinnu í gegn um Davíð. En þegar þessi kona var ráðin var gengið fram hjá embættismönnum með gríðarlega reynslu af utanríkismálum, þannig að þetta er jú skandall.

Valsól (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 22:04

25 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ef ég man rétt þá er þetta 4. sendiherrann sem Ingibjörg Sólrún skipar en hún byrjaði ferilinn á að skipa fyrrum ráðherra.

Það sem gerir þessar skipanir óverjandi er að Ingibjörg Sólrún hafði boðað kjósendum breytta stefnu.

Sigurjón Þórðarson, 13.11.2008 kl. 22:16

26 Smámynd: Jón Valur Jensson

I. Skúlason, þessi ágæti brandari þinn á eftir að lifa!

Valsól, ég hef margoft gagnrýnt sumar mannaráðningar Sjálfstæðisflokksins (t.d. Árna Matth. og Geirs), en vissulega varið sumar aðrar sem faglegar. Enginn er ég flokksþræll, hélt að flestir hagvanir á Moggabloggi vissu það.

Jón Valur Jensson, 14.11.2008 kl. 03:49

27 Smámynd: Katrín Linda Óskarsdóttir

BARA burt með slíkar ráðningar hvort sem það eru vinir Ingibjargar, Geirs, Davíðs eða Þorgerðar ......  einfaldlega ÓÞOLANDI gjörningar!!!!!!!

Katrín Linda Óskarsdóttir, 14.11.2008 kl. 04:01

28 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég get tekið undir það sem Jón Valur segir að hann er enginn flokkþræll og við lestur heimasíðu Jóns Vals tel ég mjög ólíklegt að hann kjósi Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum

Sigurjón Þórðarson, 14.11.2008 kl. 10:44

29 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Mikið var að það kæmi gagnríni á Samfylkinguna,maður var farinn að halda að hún væri heilög kýr.   Enda hefur hún ekki farið úr stjórnar andstöðu enn þá.

Ragnar Gunnlaugsson, 14.11.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband