Leita í fréttum mbl.is

Magnús saltar Einar Kristin

Það er alltaf hálfundarleg upplifun að verða vitni að því þegar núverandi sjávarútvegsráðherra ver kvótakerfið út í eitt í ljósi þess að barátta hans gegn kerfinu skolaði honum ítrekað á þing. Í gærkvöldi gat þjóðin enn og aftur fylgst með ráðherranum í algjörri nauðvörn fyrir arfavitlausu kerfi sem brýtur mannréttindi á þegnunum. Sá sem sótti að honum í Kastljósinu í gær var varaformaður Frjálslynda flokksins sem beitti yfirvegaðri rökfærslu um að kerfið væri komið í þrot.

Helsta vörn Einars Kristins var að hanga á orðinu og láta móðan mása um nánast ekki neitt, sérstaklega fannst mér grátbroslegt þegar hann sagðist endilega þurfa að koma einhverju að, alltaf bara einhverju sem var svo hvorki eitt né neitt.

Staða Einars er að mörgu leyti þröng og ég hef á tilfinningunni að hann vilji stundum fara aðrar leiðir en að fylgja nákvæmlega forskrift LÍÚ, en virðist þó ekki hafa kjark í það þegar á hólminn er komið. Kvótakerfið á sér æ færri formælendur og ég tel mig finna að ýmsir flokkshestar Sjálfstæðis-og Framsóknarflokks sem lengi voru fylgjandi kerfinu séu farnir að játa með sjálfum sér að kerfið er gjaldþrota og gengur engan veginn upp.

Það örlar þó á að einstaka samfylkingarmenn sem hafa lítið vit á sjávarútvegi séu nú hálft í hvoru orðnir talsmenn kerfisins, eflaust til að halda í hlýju hjónasængurinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Er nú frjálslyndi flokkurinn kominn á salt og að með fiskifræðing í brúnni. Góður pistill hjá þér Sigurjón, vandræðagangur Einars svipaður og Árna þegar verja átti dómararáðninguna, þ.e. "af því bara" eða "hvað kemur þér þetta við".

Haltu þig við gagnrýni á ríkisstjórnina, slepptu borgarsoranum hann vekur bara hjá manni (ó)geð.

Þórbergur Torfason, 31.1.2008 kl. 00:27

2 Smámynd:  Grétar Rögnvarsson

Sammál þér Sigurjón, vildi ekki standa í sporum þessa mans, hann veit ekkert í hvorn fótinn hann á að stíga Líu eða Hafró fótinn, og hvernig skildi honum líða þegar hann kemur í sinn heimabæ og þar í kring og sjá hvernig kvótakerfið er búið að rústa öllu lífi þar. Skil bara ekki hvernig maðurinn getur verið í þessu starfi.

Grétar Rögnvarsson, 31.1.2008 kl. 10:49

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Því miður fer ég að hallast að því Sigurjón að þú lesir ekki þau blöð sem Landsamband smábátaeigenda gefur út. Þetta finnst mér slæmt ef rétt er, þar sem þú hefur skrifað í blöð L.S. og gerir vonandi meira af í framtíðinni. Því vil ég benda þér á blað L.S.sem kom út í nóv. 2007 og fjallar úm síðasta landsfund L.S.,meðal annars samþykktar ályktanir sem sendar eru til Alþingis.Ein ályktunin hljóðar svo,  L.S.krefst þess að aflahlutdeildarkerfi það sem nú er notað við stjórn fiskveiða hér á landi verði fest í sessi með skýrari lögum um afnotarétt ti framtíðar. Þessi ályktun fór inn á borð Einars Kristins og að sjálfsögðu hlýtur hann að ætlast til þess að hann vinni samkvæmt henni.

Sigurgeir Jónsson, 31.1.2008 kl. 11:45

4 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Ég hef það sterklega á tilfinningunni að það fjari nú rosalega hratt undan fiskveiðistórnunarkerfinu. Árangursleysi þess á öllum sviðum; - ekki síst í uppbyggingu fiskveiða, byggðahrun, álit mannréttindanefndar SÞ, geggjuð skuldsetning á sjávarútveginum, fáránlegar uppsagnir starfsfólks á frábærum útgerðastöðum eins og Akranesi og fleira, - gerir það að verkum að fjölmargir sem hingað til hafa stutt þetta kerfi eru nú að snúa við því bakinu.

"Við getum bara ekki varið þetta lengur", heyri ég sagt.

Hér á ég við lykilfólk í grasrót flokka eins og Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Ég hitti þessa dagana æ oftar fólk sem hefur verið gallharðir kvótasinnar en er nú farið að viðurkenna að þetta kerfi hefur beðið skipbrot, að þjóðin megi ekki lengur haldið áfram á þessari braut til glötunar.

Íslenska kvótakerfið er gjaldþrota - bæði efnahagslega, siðferðislega og líffræðilega.

Það er komið að fallaskiptum í þessu máli.

Magnús Þór Hafsteinsson, 31.1.2008 kl. 13:16

5 identicon

Magnús stóð fyrir sínu, eins og vænta mátti. Sagan mun dæma málstað Frjálslynda flokksins hinn rétta.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 13:58

6 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Já Magnús var góður, brosið sem hann sendi Einari í lokin þegar Einar var búin að koma skít á FF. Hann þurfti aðeins að segja....og svo kom skíturinn. Honum er virkilega vorkunn, hann situr þarna sem strengjabrúða blessaður.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 31.1.2008 kl. 15:52

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta verð ég að sjá.  Takk fyrir að bendan á þetta Sigurjón.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2008 kl. 16:19

8 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Magnús Þór Hafsteinsson, 31.1.2008 kl. 16:40

9 Smámynd: Kristján Pétursson

Magnús stóð sig afburða vel,en varnarorð Einars urðu að engu ,enda tómt blaður.Ég vona að Magnús og þú Sigurjón komi oftar fram í fjölmiðlum,svo Frjálslindifl.fái aftur ferskan blæ.Þessi fjölmiðla glennuháttur Jón Magnússonar er afar leiðgjarn og einhæfur.

Kristján Pétursson, 31.1.2008 kl. 22:54

10 identicon

Sæll Sigurjón.

Ég er skipsstjóri og hef því mikinn áhuga á þessum málum. Ég hef fylgst með málflutningi ykkar Magnúsar og verð að viðurkenna að ég botna ekkert í honum, þið eruð alltaf í sandkassaleik(sástu hvernig ég tók hann) en gleimið að upplýsa okkur um hvað þið munduð gera ef hætt væri við kvótakerfið. Það er ekkert gagn í mönnum sem sífellt nöldra en bjóða svo engar lausnir sjálfir. Gleymdu því ekki að kjósendur höfnuðu ykkur báðum í síðustu kosningum. hvers vegna skildi það vera, það skyldi þó ekki vera að það botnaði enginn í hvað þið voruð að fara.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 23:35

11 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ómar hvernig er það horfðum við ekki á sama þáttinn? Ég gat ekki betur heyrt en að Magnús hefði margoft lagt fram tillögur um aðrar leðir en þær ófærur sem stjórnvöld hafa viljað þræða á umliðnum 20 árum.

 Ff hefur ítrekað lagt fram tillögur og síða í viðtali í Feyki þá lýsti ég mínum viðhorfum en ég hef reyndar gert það margoft.  Mér finnst það ekki sanngjörn gagnrýni að það hafi ekki verið lagðar fram neinar tillögur tíl úrbóta en vera má að þú sért einfaldlega ánægður með núverandi kerfi og afleiðingar þess svo að þú vilt engu breyta.

Það er rétt að ég fékk ekki brautargengi í Norðausturkjördæminu þó svo að Ff hafi aukið fylgi sitt í kjördæminu frá  kosningum þar á undan.  Ég tel að ástæða þess hafi síst af öllu verið sjávarútvegsstefna flokksins sem ég taldi mig finna að ætti mikinn hljómgrunn. 

Sigurjón Þórðarson, 1.2.2008 kl. 00:17

12 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er alveg á hreinu að skipstjórar og undirmenn hjá kvótabólgnum útgerðum munu bölva sárlega ef tillögur okkar Frjálslyndra ná brautargengi.

Hinsvegar munu dugandi aflaskipstjórar áreiðanlega geta séð sér og sínum farborða ef fiskistofnar fá að vaxa á raunhæfum forsendum sjávarlíffræði.

Árni Gunnarsson, 1.2.2008 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband