Leita í fréttum mbl.is

Kristinn H. er í andstöðu við formann Frjálslynda flokksins

Í DV í dag gerir Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, að umtalsefni að Frjálslyndi flokkurinn sé að hverfa frá þeirri stefnu sinni að aðskilja ríki og kirkju. Í sjálfu sér er eðlilegt að það sé að einhverju leyti ólík afstaða til andlegra mála innan stjórnmálaflokka sem snúast eðli máls samkvæmt að mestu leyti um önnur viðfangsefni. Undir þetta sjónarmið Kristins um að endurskoðunar sé þörf tekur Magnús Þór Hafsteinsson.

Það sem stakk mig sérstaklega í umfjöllun DV var að þingflokksformaður Frjálslynda flokksins tiltekur ein trúarbrögð sérstaklega, þ.e. heiðnina, og segir að þau eigi ekki að sitja við sama borð og þau trúarbrögð sem meirihlutinn aðhyllist. Með þessu talar hann þvert gegn þeirri grundvallarstefnu flokksins að trúarskoðanir fólks séu einkamál þess, allar eigi sinn rétt og að aðskilja beri ríki og kirkju.

Það sem meira er er að formaður flokksins hefur margsinnis lagt fram frumvarp um aðskilnað ríkis og kirkju. Grunnstefið í því máli er að allir landsmenn eigi að sitja við sama borð. Í greinargerð Guðjóns Arnars með frumvarpi sínu segir m.a.:

Efnislega felur þetta frumvarp í sér að öllum trúfélögum skuli gert jafnhátt undir höfði og í samræmi við það skuli stefnt að aðskilnaði ríkis og hinnar evangelísku lútersku kirkju. 

Og nokkru síðar: 

Með núverandi skipan mála má segja að öðrum trúarhópum en þjóðkirkjunni sé sýnt óréttlæti sem ekki samrýmist eiginlegu trúfrelsi.
Skoðanakannanir hafa leitt í ljós að 60–65% þjóðarinnar styðja aðskilnað ríkis og kirkju.

Og enn síðar í greinargerðinni:

Flytjendum þessa frumvarps er öldungis ljóst mikilvægi hins menningarlega og félagslega hlutverks kirkjunnar í samfélaginu. Því felur frumvarpið ekki á neinn hátt í sér óvild í garð kirkjunnar. Með því er einungis ætlunin að tryggja jafnrétti allra þegnanna á þessu sviði sem öðrum í samfélaginu.

Erfitt er að átta sig á skyndilegum trúarhita Kristins H. Gunnarssonar og miklum vilja til að blanda  saman stjórn- og trúmálum. Frelsaðir sannkristnir vinir mínir kannast ekki við að Kristinn H. hafi lagt áherslu á þessi mál fyrr. Það vekur einnig upp áleitnar spurningar um hvers vegna þingflokksformaður Frjálslynda flokksins sem enn er lítill flokkur skuli leggja sérstaka áherslu á að örlítið trúfélag ásatrúarmanna skuli vera sett skör lægra en önnur.   

Ég sé enga ástæðu aðra en þá að Kristinn H. Gunnarsson vilji tryggja sína stöðu innan Frjálslynda flokksins með því að efna til deilna um trúmál við mig. Ég frábið mér að taka þátt í þeirri deilu með öðrum orðum en þeim að minna á orð frelsarans M.K. 12.17. Gjaldið keisaranum það sem keisarans er, og Guði það sem Guðs er og bréf Páls til Títusar 1.15. Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint, heldur er bæði hugur þeirra flekkaður og samviska. 

Ég óska Kristni og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Páls til Títusar 1.15. Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint, heldur er bæði hugur þeirra flekkaður og samviska.
Amen!! Orð í tíma töluð! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 21.12.2007 kl. 16:28

2 Smámynd: Ottó Marvin Gunnarsson

Þarna víkur hann aðeins frá beinni stefnu flokksins sem er að stórstofnanir eins og sjúkrahús og skólar séu algjörlega hlutlaus í garð þjóðernis og trúarbragða, ef kallinn hefur skipt um skoðun á því að ríki skilur við rekstur kirkjuna á maðurinn ekki að tala fyrir hönd flokksins,

Mér finnst á þessari lesningu að hann Kristinn H. Gunnarsson sé að stéttarskipta eða forgangsraða trúarbrögðum/söfnuðum og er mín skoðun sú að hann eigi ekki að tala fyrir flokkinn þegar hann gerir það því þá kemur hann upp á móti því sem ég tel vera niðurstaða stefnu flokksins og notar flokkurinn sér þetta "allir jafnir" í rökstuðningi sínum við því að aðskilja eigi ríki og kirkju.

Það er megin ástæða þess að ég styð þennan flokk (en ég má eigi kjósa þannig minn stuðningur skiptir nú litlu eins og er en þetta er mín skoðun)

Ottó Marvin Gunnarsson, 21.12.2007 kl. 16:56

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Hvað er nýtt í því að Kristinn H Gunnarsson sé upp á kant við flokkforystu sína ?  Ég meina hvernig datt ykkur í hug að taka hann í FF og hvað þá að koma honum á framboðslista efstu manna ?

Annars.. gleðileg jól

Óskar Þorkelsson, 21.12.2007 kl. 16:56

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Kristinn H. er vandræðagemsi, sem ekki rekst í hópi hann virðist alltaf vilja fara sínar eigin leiðir en samt er eins og allir flokkar taki honum fagnandi.  Vilja menn ekki sjá að þar fer ÚLFUR í SAUÐAGÆRU?

Jóhann Elíasson, 21.12.2007 kl. 21:18

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

það gleður mitt veraldlega hjarta að sjá svart á hvítu að FF hefur að stefnu...

"Efnislega felur þetta frumvarp í sér að öllum trúfélögum skuli gert jafnhátt undir höfði og í samræmi við það skuli stefnt að aðskilnaði ríkis og hinnar evangelísku lútersku kirkju. "

Ætli maður komi ekki bara x-inu nálægt F næst í kosningum? 

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.12.2007 kl. 22:30

6 Smámynd: Jens Guð

  Kristinn H. er framsóknarmaður sem reynir að sveigja stefnu FF að framsóknarmennsku.  Þegar formanni Framsóknarflokksins,  Guðna,  klæjar.  þá klórar Kristinn sér. 

Jens Guð, 21.12.2007 kl. 23:35

7 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Ja hérna, nú er ég hissa. Ég hef ekki lesið umrædda grein í DV en geng út frá því að rétt sé farið með. Hef í raun enga ástæðu til að ætla að svo sé ekki. 

Þrátt fyrir það finnst manni þetta með ólíkindum. Að setja eitt trúfélag í annan gæðaflokk í flokki sem berst fyrir jöfnuði milli trúfélaga er mjög sérkennileg hegðun. Ef um væri að ræða einhvern óbreyttan kverúlant eins og mig gæti menn horft í gegnum fingur sér. Reyndar tel ég mig ekki minna kristinn en Kristinn og hef að leiðarljósi að allir menn séu jafnir fyrir Guði og einnig að sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum, því eru þessar hugmyndir andsnúnar minni lífsýn. Málið er öllu vandasamara þegar um er að ræða þingflokksformann flokksins. Hér virðist hann tjá sig gegn því sem Landsþing hefur ákveðið að skuli vera stefna flokksins í umræddu máli. 

Sérstaklega er þetta grátlegt með tilliti til þess að formaður flokksins hefur flutt frumvarp á Alþingi sem er alls ekki í samræmi við skoðun Kristins í þessu máli. Að draga laskað fley til hafnar hefur á stundum fært skipstjórum þessa lands frægð og frama. Skipsreka bátsmanninum virðist það eitt koma til hugar að draga botnnegluna úr skipinu sem framlengdi líf hans.

Endir þessa sérkennilega máls hlýtur að verða sá að Kristinn fylgi því sem er ákveðið af flokknum og hans stofnunum. Hann getur afsakað sig með því að allt helgihaldið í desember hafi ruglað hann aðeins í ríminu. Ég vil ekki trúa því að enn eitt ágreiningsmálið sé í uppsiglingu innan flokksins. Ég er ekki viss um að almennir flokksmenn hafi þrek í eitt slíkt enn. Að öðrum kosti mun þessi flokkur fylla spjöld sögunnar sem enn eitt misheppnað framboð. Það myndi kæta kvótagreifa landsins.

Gunnar Skúli Ármannsson, 22.12.2007 kl. 00:12

8 Smámynd: Rannveig H

Gunnar Skúli ég tek undir hvert orð sem þú skrifar,og mikið er ég orðin þreytt á svona endaleysu. 'Eg held að það sé að koma að þeim tíma að ég hugsi minn gang og á það örugglega við um fleyrri.

Rannveig H, 22.12.2007 kl. 01:28

9 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Sigurjón.

Ég sé sjaldan eða aldrei DV og myndi sennilega seint fara að versla það blað sérstaklega.

Ég held að þú vitir það nú Sigurjón minn að stefna flokksins hefur ekki breyst í þessum málum hvað varðar stefnumótun enda engin breyting á á síðasta Landsþingi.

Það er hins vegar öllum frjálst að ræða sína skoðun á málum Kristni sem öðrum, að ég tel.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.12.2007 kl. 01:28

10 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Gunnar Skúli.

Veldur hver á heldur við að magna deilur og erjur allra handa, alltaf alls staðar og oftar en ekki er þar " litil þúfa " sem veltir þungu hlassi.

Frjálslyndi flokkurinn hefur gengið gegnum marga brotsjói frá upphafi það þekki ég afar vel sem ein af þeim er ausið hafa dallinn á stundum með það að marki að flokkurinn lifi´, því hans er þörf í íslensku stjórnmálalandslagi, full þörf.

Menn innan flokka hvoru tveggja þurfa og verða að gera upp samskipti sín og sjónamiðamun á vettvangi skoðanaskipta innbyrðis sem og ákvarðanatöku um stefnumótun í heild innan flokka á þeim vettvangi sem til þess er.

Kristinn H Gunnarsson gekk til liðs við Frjálslynda flokkinnn var valinn á lista, fór í framboð og var kjörinn á þing fyrir flokkinn.

Jón kom til okkar úr Nýju Afli og Valdimar úr Samfylkingunni og þótt það væri afar sárt að fá ekki Magnús og Sigurjón inn sem þingmenn þá er það svo að okkar flokkur má vel við una að halda þingmannatölu sinni í heild við fráhvarf eins þingmanns á fyrra kjörtímabili úr okkar röðum.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 22.12.2007 kl. 02:40

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég held að Kristinn H leggi það ekki í vana sinn að lesa stefnuskrár þeirra flokka sem hann gengur til fylgis við.

Theódór Norðkvist, 22.12.2007 kl. 04:31

12 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gleðilega hátíð, til þín og fjölskyldu þinnar Sigurjón og þakkir fyrir árið sem er að líða, megi nýtt ár færa ykkur gæfu og gott gengi.

Jóhann Elíasson, 22.12.2007 kl. 09:51

13 Smámynd: Ottó Marvin Gunnarsson

http://www.kristinn.is/ - allt grænt...hehe

Nei sko ég las þessa grein, mér finnst hann vera tala fyrir flokkinn....í þessu tilviki á hann ekki að gera það ef hann er ekki samhliða honum.

Ég vill fá að vita hvar hans stendur með þessum flokk og hvar ekki, það myndi vera mjög þægilegt að vita hvað hann stendur gagnvart FF.

Ottó Marvin Gunnarsson, 22.12.2007 kl. 19:21

14 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Kæra Guðrún María,

það var ekki svona pólitík sem ég hafði í hyggju að stunda síðustu dagana fyrir jól. Það er ekki ég sem hef umræðuna. Ég er þér svo sammála að menn eigi að gera upp mál innan flokks áður en farið er með þau á opinberan vettvang. Ég keypti DV í dag. Ég hafði vonast til að Sigurjón væri að mála skrattann á vegginn. Því miður var svo ekki. Vonandi munum við bæði tvö eiga friðarjól. Vonandi munu menn sitja á sér yfir jólin og hafa að leiðarljósi; að það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður skuluð þér og þeim gjöra.  

Gleðileg jól og farsælt komandi ár Guðrún María,  mætum hress til leiks á næsta ári.

Gunnar Skúli Ármannsson, 22.12.2007 kl. 22:02

15 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Gleðileg jól - kveðja frá Hafnarfirði

Valgerður Halldórsdóttir, 23.12.2007 kl. 16:57

16 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Gleðileg jól elsku Sigurjón minn og Gunnar Skúli.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.12.2007 kl. 00:01

17 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Gleðileg jól Sigurjón, vonandi náið þið Kristinn sáttum í ykkar málum því þetta getur bara skaðað okkur öll, haldi þetta áfram. Kær kveðja til ykkar beggja.

Georg Eiður Arnarson, 24.12.2007 kl. 00:59

18 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Gleðileg Jól félagi.

Og að sjálfsögðu óska ég þér farsældar á komandi ári líka.

Ólafur Björn Ólafsson, 24.12.2007 kl. 02:06

19 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Gleðileg jól.

Þorkell Sigurjónsson, 24.12.2007 kl. 11:51

20 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Ja hér, einkennileg lesning hér á jólanótt. Er ekki verið að snúa út úr og taka mál úr samhengi? Ég sé ekki betur en að flestir þeir sem tjá sig hér, hafa ekki einu sinni hirt um að lesa heimild höfundar og móta sér síðan skoðanir. Er það svo að stuðningsmenn FF láti skúffumata sig? Er ítroðsuaðferðin sú leið sem virkar best?

Vona að menn staldri við og hugsi hvernig svona málflutningur fer með flokkinn.  Átti ekki von á svo óvöndum glósum eins ég les hér að ofan. Sé ekki betur en að það jaðri við níði. Ljótt er, ef satt er. 

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 25.12.2007 kl. 00:11

21 identicon

Hér kemur grein úr STJÓRNARSKRÁ LÝÐVELDISINS ÍSLANDS samkvæmt henni er Kristin H. Gunnarsson í fullum rétti og virðir stjórnarskrána með virtum.

48. grein

,Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.''

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

Baldvin Nielsen (IP-tala skráð) 25.12.2007 kl. 02:23

22 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það er alltaf sárgrætilegt hvernig flokksmenn raða sér niður á ,,arma" með þeim afleiðingum að flokkarnir klofna. Hver kannast ekki við Davíðsarm vs Geirsarm, Halldórsarm vs Guðnaarm, Ingibjargararm  vs Össurararm!

Ástæðuna má trúlega rekja til þess að innan flokkanna eru mörg leiðtogaefni og öll vilja þau ráða. Berjast um áhirf og völd, afleiðingin verður sú að fylgjendur raða sér utan um ,,sinn leiðtoga" og síðan verður hver höndin upp á móti annarri.

Innan flokkanna fer fram lýðræðisleg kosning um val á mönnum í áhrifastöður. Niðurstöðunni verða menn að una, sáttir eður ei. Séu þeir það ekki hafa þeir tækifæri til að afla sér fylgis fyrir næstu kosningar. Þeir sem vilja ná árangri byggja gagnrýni sína á málefnalegum grunni, það hefur alltaf reynst heilladrýgst. Það að stuðla að innbyrðis ágreiningi og ólgu færir viðkomandi aldrei þau áhirf sem stefnt er að, þvert á móti.

Ég segi eins og er Sigurjón; ég sakna þín á þingi og vil sjá þig taka þar aftur sæti. En ég vil sjá málefnalegan rökstuðning fyrir gagnrýni þinni og þitt framlag til að halda flokksmönnum saman en ekki í sundur.  Hafi verið á þér brotið er eðllegt að sækja það mál stíft á réttum vettvangi. Þar fengir þú réttmætan stuðning en umfram allt þarf að halda fylgjendum þessa unga flokks saman og styrkja innivði hans. Hvað segir reynslan okkur úr röðum annarra flokka? Samfylkingin?  Framsókn? Sjálfstæðismenn í borginni? Sundrung verður allaf flokkum að falli, það tekur óratíma að byggja upp traust á ný. Þetta veist þú.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 25.12.2007 kl. 14:04

23 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Guðrún: það er mín skoðun að það sé rétt að lesa umrædda heimild í DV áður en fjallað er í löngu máli um eðlileg viðbrögð mín við henni.  Ég efast stórlega um að flestir þeir sem tjá sig hér á síðunni um málið hafi ekki lesið umrætt viðtal í DV, eins og þú ætlar. 

Ég hef ekki orðið var við neina flokkadrætti í Frjálslynda flokknum eins og þú varar við og nefnir dæmi úr öðrum stjórnmálaflokkum.  Ég veit ekki betur en að ýmsir sem hleyptu heimdraganum með Margréti í Íslandshreyfinguna vilji koma tilbaka ef flokkurinn stendur fast á sínum stefnumálum.

Að lokum er rétt að taka undir með gömlum félaga Baldvin Nielsen um að Kristninn H Gunnarsson er í fullum rétti að hafa sína skoðun og fara gegn formanni Frjálslynda flokksins Guðjóni Arnari Kristjánssyni í þessu máli. 

Sigurjón Þórðarson, 26.12.2007 kl. 14:09

24 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Gott að heyra. Vona að ótti minn um flokkadrætti reynist rangur.

Hins vegar kemur glögglega í ljós í skrifum sumra hér að ofan að þeir lásu ekki heimildina, á það var ég að benda.   

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.12.2007 kl. 01:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband