Leita í fréttum mbl.is

Hagfræðingar í afneitun - þurfa að fara í meðferð

Það kom ekki á óvart að Fréttablaðið undir stjórn Þorsteins Pálssonar fyrrum sjávarútvegsráðherra skyldi skrúfa hressilega frá gagnrýnislausum straumi frétta af ráðstefnu kvótavina um íslenska kvótakerfið.

Sérfræðingarnir sem þar tjáðu sig virðast vera í algerri afneitun og neita að horfast í augu við að kerfið er algerlega misheppnað. Þá þarf ekki frekari vitna við en að skoða aflatölur, þorskaflinn nú er þriðjungur af því sem hann var áður en farið var af stað með þessa tilraun sem kvótakerfið er.

Í stað þess að ræða það með gagnrýnum hætti hvers vegna kerfið gengur ekki upp, s.s. líffræðilegar forsendur eða að ekkert vit sé í að framselja aflaheimildir landshorna á milli - fiskurinn fer ekki af miðunum við Grímsey þó svo kvótinn sé seldur í burtu - halda umræddir kvótavinir ráðstefnu sem virðist miklu frekar vera hópefli í afneitun og raunveruleikafirringu. Niðurstaðan er alltaf sú sama, sú að ekki sé hægt að kenna kvótakerfinu um neitt sem miður fer og að allar breytingar sem það hefur í för með sér séu í raun af hinu góða.

Sveinn Agnarsson gekk svo langt að fullyrða að það væri ekkert samband á milli byggðaþróunar og flutnings á aflaheimildum þó svo að almenn skynsemi segi annað sem og skýrslur Byggðastofnunar

Sérfræðingur Kaupþingsbanka heldur á lofti stjarnfræðilega vitlausri kenningu um myndun og þróun byggða á Íslandi. Er hún að einhverju leyti kóperuð upp úr erlendri kenningu um þróun byggða og borga í Ameríku og Evrópu út frá samgöngum og síðan peistuð á íslenskt samfélag.

Þessar kenning stenst ekki neina skoðun þar sem öllum má vera ljóst að þróun sjávarbyggðanna er samofin atvinnuveginum sem byggðin er grundvölluð á. Það sést berlega á þróun byggðar, t.d. á Siglufirði þar sem síldveiðar skipta miklu máli. Sá uppgangur sem verður í fiskveiðum Íslendinga á 8. áratugnum sem eru samfara auknum veiðum og útfærslu landhelginnar kemur berlega fram í íbúaþróun sjávarbyggðanna og einnig kemur hnignun byggðanna vel fram með minnkandi afla og lamandi hendi kvótakerfisins sem hefur komið í veg fyrir nýliðun í greininni.

Ég er mjög undrandi á að menn sem kalla sig sérfræðinga skuli leggja aðra eins dellu á borð fyrir almenning. Er ekki til meðferð við svona vanda?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er bara enn eitt sorglegt dæmi um það að menn eru gjörsamlega búnir að missa allt jarðsamband og gera sér ekki nokkra grein fyrir því að þó svo að fleiri vinni í bönkunum en við sjávarútveg, þá verða tekjur þjóðarinnar ekki til innan bankanna eins og margir þessara "sérfræðinga" virðast halda.  Ekki veit ég hvernig í ósköpunum Sveinn Agnarsson hefur komist að þessari niðurstöðu og því síður get ég komið auga á neina ástæðu fyrir því að maðurinn skuli kjósa að stofna ferli sínum í hættu með því að láta frá sér svona órökstutt bull. 

Jóhann Elíasson, 31.8.2007 kl. 16:55

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þeir eru alls ekki í neinni afneitun heldur hafa þeir lifibrauð af því að reka áróður fyrir kostendur sína - eru sem sagt hagsmunastýrðir. Það blasir raunar við á fleiri sviðum. Þú getur keypt hvaða sérfræðiálit sem er nú á tímum um allt undir sólinni með eða á móti. Þið getið kallað það reglu Baldurs en þegar meira en 50% vísindamanna og blaðamanna og stjórnmálamanna (helstu veruleikahönnuða almennings) eru opinberlega til sölu í einu þjóðfélagi þá er stutt í að hefðbundið vændi verði lögleitt í téðu þjóðfélagi - ekki síst til að draga athyglina frá öllum "óhefðbundnu" hórunum. 

Baldur Fjölnisson, 31.8.2007 kl. 20:36

3 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Sæll Sigurjón.

Þetta er flott grein hjá þér.  Og flott að vekja umræðu á þessu.  En staðreyndin er sú að það er hægt að fá hvaða prófessor og í raun hvern sem er til að skrifa hvaða skýrslu sem er sama hversu vitlaus hún er.  Ég minnist einmitt skýrslu sem fyrrverandi Samgönguráðherra skellti á borð landsmanna og komst að því að það væri miklu meiri kostnaður og mengun frá einu strandferðarskipi  sem flytur  2-300 gámaeiningar heldur en 2-300 flutningabílar sem eru með hver bill 5-6oo hestafla vél emn skipið er með kannski 2500kw vél

Einar Vignir Einarsson, 31.8.2007 kl. 21:55

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Allt svo mikið rétt hjá þér Sigurjón, þetta er" hagfræðin sem kann ekki að tala " og hinn óttalega mjög svo sýnilegi háttur ritstjóra Fréttablaðsins til þess að verja ágæti hins handónýta kvótakerfis er stórhlægilegur.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.9.2007 kl. 02:49

5 Smámynd: Þórir Kjartansson

Samkvæmt gamalli skrýtlu er ,,sérfræðingur, maður, sem veit allt sem mögulega er hægt að vita, um hreint ekki nokkurn skapaðan hlut"

Þórir Kjartansson, 1.9.2007 kl. 09:05

6 Smámynd: Sigurpáll Ingibergsson

Góður Sigurjón!

Frábær grein hjá þér í Morgunblaðinu í morgun. Góður rökstuðningur hjá þér í henni.

En annars er merkilegt hvað þessar stofnanir eru einsleitar. Það eru aðeins valdir aðilar sem halda öðru sjónarmiðinu fram. Í þessu tilfelli vinir LÍÚ.  Mér er minnisstæð góð frammistaða þín á málþingi í Öskju fyrir konsningar en þar fjallaði útskriftarkandídat um niðurstöður lokaritgerðar sinnar. Þar kom fram að kvótakerfið hefði ekki haf nein áhrif á íbúaþróun á Vestfjörðum. Síðan var talsmaður LÍÚ í ríkisstjórninni, Einar Guðfinnson og kratinn Anna til umsagnar. Þú tróðst inn í hópinn og bentir á nokkrar rökvillur. Það var flott sjóv. 

Sigurpáll Ingibergsson, 1.9.2007 kl. 11:28

7 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Sæll Sigurjón

"For economists reality is a special case".

Hagfræðingarnir eru með allt niðrum sig. Hversu trúverðugt er að yfirmaður greiningadeildar banka sem er ofurseldur mammon komi með fræðilega analýsu á að sjávarútvegur eigi ekki og geti ekki staðið undir byggðum í landinu þegar að hann vinnur dagsdaglega í geira þar sem ákvarðanir eru teknar um hverjir fá að lifa og hverjir eiga ekki viðreisnar von.

Ég bara spyr!

Anna Karlsdóttir, 1.9.2007 kl. 13:17

8 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ég þakka kærlega fyrir góðar undirtektir við þessum skrifum en í mínum huga er einungis spurning um hvenær þessari vitleysisumræðu "sérfræðinganna" verði hætt.

Í sumar komst ég yfir sérkennilega papíra en það  voru útdrættir á erindum sem haldin vour á mikilli ráðstefnu fiskihagfræðinga sem haldin var á Íslandi nú í sumar.  

Þarna var hópur manna sem koma víða að og var að reikna eitt og annað sem flest var grundvallað á afar veikum forsendum.

Fréttaflutingurinn af ráðstefnunni var fyrir ýmsa hluti áhugaverður þar sem að erlendu sérfræðingarnir dáðust mjög að því að það ætti að fara í einu og öllu að ráðgjöf Hafró og þeir sem vottuðu ráðgjöf Hafró voru hagfræðingarnir hjá Hagfræðistofnun sem reiknuðu út áhrif veiða á stofnstærð þorsks áratugi fram í tímann.

Já þannig er það hagfræðingar votta í bak og fyrir fiskifræði sem gengur í berhögg við viðtekna vistfræði.

Sigurjón Þórðarson, 1.9.2007 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband