Leita í fréttum mbl.is

Nýbúi sem hefði betur aldrei komið til landsins

Í síðasta greinarkorni sagði ég frá því að ég hefði orðið vitni að rústaskoðun Geirs forsætisráðherra á Siglufirði þegar ég var að koma úr veiðitúr á Siglunesi.   

Það sem helst bar til tíðinda í veiðinni var að snemma morguns þegar ég var að vitja um net á Neskróknum sá ég að einn silungurinn var með djúpt hringlaga sár. Mér datt strax í hug að um væri að ræða steinsugu sem er „frumstæður“ kjaftlaus fiskur sem lifir sníkjulífi á öðrum fiskum en hann bítur sig fastan í hold og skilur eftir sig hringlaga sár. 

Ég ýtti þessari hugsun til hliðar þar sem ég hafði ekki heyrt af því að steinsugur væru tíðir gestir í náttúru Íslands. Þegar ég var kominn í hús skömmu síðar heyrði ég á Rás 1 viðtal við Sigurð Guðjónsson framkvæmdastjóra Veiðimálastofnunar sem greindi frá að þær væru nýir nýbúar í náttúru Íslands, þeirra hefði aðallega orðið vart á Suðurlandi en jafnframt var tekið fram að þær hefðu ekki sést á Norðurlandi.

Eftir að hafa rætt við Benóný Jónsson líffræðing er nokkuð ljóst að sárið á silungnum er eftir nýbúann sem allir veiðimenn eru sammála um að hefði betur aldrei komið til landsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eftir að hafa lesið þessa grein eftir þig er mér ljóst að breytingarnar á lífríkinu í og við landið eru mun meiri heldur en maður hafði gert sér í hugarlund.  Hefur það verið kannað hvort þessi "ófögnuður" hefur numið land í flestum vötnum í flestöllum landshlutum og eftir hvaða leiðum útbreiðslan er?

Jóhann Elíasson, 26.7.2007 kl. 20:20

2 Smámynd: Svava S. Steinars

Enn ein gleðin sem við fáum með breyttu loftslagi og sjávarhita. 

Svava S. Steinars, 31.7.2007 kl. 01:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband