Leita í fréttum mbl.is

Geir Haarde í rústaskoðun á Siglufirði

Í þann mund sem ég var að fara að hífa gúmmíbátinn minn á Siglufirði sá ég útundan mér Geir forsætisráðherra sem var að sækja Siglfirðinga heim. Hann er væntanlega að skoða rústirnar eftir stefnu Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegsmálum í hátt í tvo áratugi.

Staðan á Siglufirði hefur gerbreyst á þessum tíma. Nú er ekki nokkur von fyrir nýja aðila að hefja útgerð og fiskvinnslu, það er enginn togari á staðnum, ekkert frystihús og rækjuvinnslan er í þann mund að leggja upp laupana. Flaggskip fiskvinnslunnar á Siglufirði verður væntanlega salfiskverkunin Þeysill sem er lítil saltfiskvinnsla.

Það er kaldhæðnislegt að um leið og ég sá forsætisráðherrann skarta ljósum búningi sá ég fiskverkanda sem hafði starfrækt fiskverkun um áratugaskeið, en sagan segir að hann hafi verið knúinn í gjaldþrot af sjálfri Byggðastofnun vegna 4 milljóna kr. skuldar við stofnunina. Það var skömmu áður en ríkisstjórnin tilkynnti að Byggðastofnun ætti að gegna meginhlutverki í að bjarga landsbyggðinni.

Ef maður þekkir stjórnarherrana rétt er ekki líklegt að mikið kjöt verði á beinunum í umtöluðum mótvægisaðgerðum. Fyrri aðgerðir hafa verið til friðþægingar og að nafninu til. Raunverulegar mótvægisaðgerðir á Siglufirði sem akkur væri í væru að auka frelsi í sjávarútveginum, t.d. væri byrjunin að leyfa handfæraveiðar og tryggja að fiskur færi á markað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Þarna komstu með það Sigurjón. Ég ætla að stofna ferðamannafyrirtæki sem sérhæfir sig í rústaskoðunum. Það verður nóg af rústum eftir ekki svo langan tíma. En svona grín laust, þessar mótvægisaðgerðir eru algjört rugl, halda mætti að þeim sé slegið svona upp til þess eins að slá ryki í augu þeirra sem á höfuðborgarsvæðinu búa, sem náttúrulega trúa því að fjármagnið sé tekið algjörlega úr þeirra vasa. þetta dæmi með byggðarstofnun er sér kapítuli útaf fyrir sig. Hvað gerði byggðarstofnun á Ísafirði? Þar var einhver stór merkilegur hlutur í gangi. Hvaða rassgati var verið að bjarga þar? Ég set hlekk um það Hér . Þarna kemur það kristal skýrt í ljós að það er ekki sama hver er, og hverjum skal bjargað.

kv. Halli

Hallgrímur Guðmundsson, 24.7.2007 kl. 18:18

2 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Sigurjón.

Hættu þessu væli það tekur enginn mark á þessum upphrópunum þínum. Þér væri nær að fjalla máefnalega um þetta.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 24.7.2007 kl. 19:52

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er allt satt og rétt, Jóhann Páll, og það vitum við báðir. Það má bæta því við að fiskimjölsbræðslan á Siglufirði hefur ekki verið starfrækt á undanförnum árum. Hér er mjög góð höfn og góð fiskimið sem gefa vel og núverandi ástand er óþarft. Það væri í þjóðarhag að auka frelsið og gefa íbúum Siglufjarðar færi á að sækja björg í bú og leggja í auknum mæli með sér til þjóðarbúsins.

Sigurjón Þórðarson, 24.7.2007 kl. 20:31

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gleymið svo ekki Vestfjörðunum - eitt samfellt rústasvæði allir firðirnir

Marta B Helgadóttir, 25.7.2007 kl. 01:00

5 identicon

Heill og sæll, Sigurjón og aðrir skrifarar !

Vakti athygli, á síðu minni á þessarri nauðsynlegu umfjöllun þinni.

Jóhann Páll Símonarson ! Hvar hefir þú verið, undanfarin ár og misseri ?

Ertu ekki Íslendingur; maður ?

Er það væll, þá menn missa tekjustofna sína, í heimabyggðum sínum, sökum heimsku,, eða þá illkvittni æðstu ráðamanna þjóðarinnar ?

Svari þú spurningum þessum, Jóhann Páll; sértu maður til !!!

Með blendnum kveðjum / Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 02:03

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er alveg sammála því að það veri enga mótvægisaðgerðir, Þetta er bara innantómt kjaftæði og bara til þess gert að slá ryki í augu landsmanna þegar LÍÚ hefur notið fulltingis ríkisstjórnarinnar við að ná endanlegum yfirráðum yfir fiskimiðunum. 

Jóhann Elíasson, 25.7.2007 kl. 08:18

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Rúntað og spjallað í 2 tíma, borðað á Bíókaffi og svo brennt í bæinn.  Afar ítarleg úttekt sýnist mér.  Mér skilst annars að ráðamenn á Sigló séu að betla umbætur á borð við flóðlysingu á skíðasvæði og annað, sem hefur ekkert með atvinnuuppbyggingu til framtíðar að gera.

Menn eru að kroppa í ónauðsynlega snjóflóðavarnargarða hérna og bora göng.  Hvað um atvinnuvegi, sem ávaxta sitt pund?   Fyrir gesti hér þá finnst mér þetta örvæntingarfullt fálm.

Jón Steinar Ragnarsson, 25.7.2007 kl. 09:04

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér segir svo hugur um, að Geir Haarde sé mun hættulegri stjórnmálamaður en áður var talið og jafnvel jafnoki Halldórs Ásgrímsonar og Davíðs Oddsonar ef hann telur þurfa þess með.

Jóhannes Ragnarsson, 25.7.2007 kl. 11:20

9 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þarna hittirðu naglann á höfuðið Jóhannes.  "Það er ekki betri músin sem læðist en sú sem stekkur".

Jóhann Elíasson, 25.7.2007 kl. 11:56

10 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Er í einhverju svartsýnis kasti núna. Það er öllum sama þó sjávarbyggðir vorar verði bara fornminjar fyrir túrhesta úr Reykjavík. Það er ekki til neinn skilningur né þekking á sjávarútvegi í dag. Það liggur við að fólk hrökkvi í kút ef það sér fisk annar staðar en í búð.

Hvað er til ráða? Í sjálfu sér fátt, ekki annað en að halda baráttunni áfram þar til yfir líkur. Ég er svo rómantískur að ég vil mun frekar útgerðir út um víðan völl en einhverjar verksmiðjur.

Gunnar Skúli Ármannsson, 25.7.2007 kl. 19:18

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Væl segir einhver.  Þetta er bara lífsspursmál ekkert minna en það. Endilega haltu áfram að ræða þessi mál Sigurjón.  Þú þekkir þau mjög vel og það eru margir sem hlusta, og jafnvel ennfleiri sem vita að þú ert að segja sannleikann. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.7.2007 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband