Leita í fréttum mbl.is

Ekkert sem kemur á óvart!

Árni Þór sem kosinn var sem þing á þeim forsendum að hann væri andstæðingur aðildar Íslands að Evrópusambandinu, flytur mál sitt eins launaður blaðafulltrúi Evrópusambandsins.

Eitt er ljóst að hann er ekki að tala fyrir hönd þjóðarinnar sem hafnaði alfarið þeim Icesavesamningum sem um er deilt og þingmaðurinn samþykkti tvisvar.

Ég vonast svo sannarlega eftir því að það verði flutt vantrauststillaga sem allra fyrst á eina ömurlegustu ríkissjórn sem verið hefur við völd á landinu, frá upphafi vega.


mbl.is „Ekkert sem kemur okkur á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég hef alltaf haldið að Árni Þór væri vangefinn!!!!!!!!!!

núna er ég sannfærður

snorri jónsson (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 01:44

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Sigurjón. Þú ert kominn í kosningarbandalag við Hreyfinguna sem vill
halda þessu helvítis RUGLI áfram ásamt vinstriöflunum.  EKKERT  AÐ
MARKA ÞÍN ORÐ HÉR!!!!!! EKKERT!  Enda var Frjálslyndi flokkurinn
svokallaði ætíð fjórða hjólið undir vinstriöflunum!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 12.4.2012 kl. 01:59

3 Smámynd: Sandy

Ef Hreyfingin vill halda lífi og taka þátt í næstu kosningum er þeim hollara að halda sig til hlés og stiðja ekki við bakið á þessari ríkisstjórn.

Annars held ég nú að þeir í Sjálfstæðisflokknum og Framsókn gætu gert betur í að koma þessari stjórn frá ef þeir hefðu viljað það, það sýndi sig þegar kvótafrumvarpið var til umræðu á þingi hvers þeir eru megnugir ef þeir vilja.

Sandy, 12.4.2012 kl. 02:07

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Því miður , verð ég að segja Sigurjón, að þér setti mikið niður við samkrullið við Hreyfinguna og ég veit bara ekki hvað er mikil alvara í þessum skrifum hjá þér.

Jóhann Elíasson, 12.4.2012 kl. 06:42

5 identicon

Ég hef alla tíð haldið því fram að Árni Þór,þingmaður er ekkert annað en Úlfur í Sauðargæru.

Númi (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 08:55

6 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Ykkur til huggunar Jóhann og Guðmundur, þá á ég von á því að Hreyfingin beri fram vantrauststillögu á næstu dögum. 

Sigurjón Þórðarson, 12.4.2012 kl. 09:20

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég verð að segja það hér að ég er ánægð með Dögun og þá aðila sem að henni standa.  Þó vil ég eindregið að framboðið lýsi því yfir að viðræðum við ESB verði hætt.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.4.2012 kl. 10:04

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Lýsi Dögun yfir eindreginni andstöðu við ESB endurskoða ég afstöðu mína.

Jóhann Elíasson, 12.4.2012 kl. 13:38

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég myndi fagna því mjög svo. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.4.2012 kl. 16:12

10 identicon

Sama hér.

GB (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 17:15

11 identicon

Ég veit reyndar að Sigurjón Þóraðarson er eindreginn andstæðingur ESB aðildar og hefur haft margtgott fram að færa meðan hann sat á Alþingi fyrir Frjálslynda flokkinn, ekki hvað síst í sjávarútvegsmálum.

En að ganga saman við þennan hrærigraut sem kallar sig "Dögun" sem er með ESB líkið í lestini, skil ég alls ekki.

En ég tek undir með þeim tveimur síðasttöldu sem hér tjá sig.

Ef þeir lýsa yfir einarðri andstöðu við ESB aðild þá mun ég líka endurskoða afstöðu mína og fagna þeim.

Fyrr en svo verður eru þeir bara úlfar í sauðagæru og einnota ESB dindlar, sem ekki eru á vetur setjandi !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 17:16

12 identicon

http://www.dv.is/fb/konnun/island-ad-slita-adildarvidraedum-vid-esb/nidurstodur/#_=_

Frjálslyndur (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 17:23

13 identicon

Ef Stjórnmálaaflið Dögun lýsir ekki yfir vantrausti á utanríkisráðherra og ríkisstjórnina nú þegar, þá þurrkast þetta afl út úr stjórnmálum í næstu kosningum. Ég vil fá skýlausa yfirlýsingu frá þeim að þeir styðji ekki núverandi ríkisstjórn. Heyrst hefur að Þór Saari verji ríkisstórn Jóhönnu og Steingríms falli, fái hún vantrauststillögu á alþingi.

Ef svo er ekki, þá verður það að koma fram í fjölmiðlum

nú þegar.....

Jóhanna (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 19:19

14 identicon

Árni Þór, Björn Valur o.m.fl. Fyrir hverja eru þeir að vinna?

Jóhanna (IP-tala skráð) 12.4.2012 kl. 19:22

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er sammála því það veltur mest á frambærileika Dögunar að þeir lýsi yfir eindregnum vilja til að fara EKKI inn í ESB. Það er bara þannig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.4.2012 kl. 20:13

16 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Tek undir orð Ásildar Cesil um að stjórn Dögunar lýsi yfir eindregnum vilja til að fara EKKI inn í ESB!

Árni Þór minnir mig á mörgæs, sem reyndi að hefja sig til flugs á bryggju, og ætlaði að fljúga langt, en komst því miður ekki einu sinni út af startpunktinum. Ég veit að þetta er ósmekkleg samlíking, en hún er ekki illa meint, né til þess gerð að niðurlægja Árna Þór (sem ég held að sé ekki slæmur maður), heldur til þess gerð að niðurlægja þá sem stjórnuðu/blekktu hann og fleiri stjórnmálamenn, til að svíkja kjósendur sína.

Það er margt sem ekki hefur verið sagt frá opinberlega, um hvernig svikin gerast á eyrinni. Það er gömul staðreyndar-saga og ný.

Það er sorglegt að horfa uppá hvernig banka-útrásar-svindlarar hafa keypt, afvegaleitt og blekkt stjórnmálamenn á svívirðilegan hátt með sínum svikum, og halda þeim síðan í ómannúðlegri gíslingu, með aðferðum, sem ég treysti mér ekki til að útskýra hér og nú.

Allir sem hafa mikla raunheimabaráttu-lífsreynslu og eru eldri en tvævetur, vita hvað ég á við.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.4.2012 kl. 22:50

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

En fréttin í morgun var að Jóhanna vissi ekki neitt fyrr en hún heyrði það í fréttum.  Er það ekki undarlegt að forsætisráðherra sjálf hafi ekki fengið upplýsingar, eða fékk hún þær ef til vill á öðru tungumáli en íslensku og skildi ekki?  Eða er henn haldið utan við svona smámál?  Maður spyr sig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2012 kl. 10:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband